Innlent

Rafmagn fór af Grindavík

Rafmagn fór af Grindavík um hálftíuleytið, að því er talið er vegna tveggja öflugra eldinga sem laust niður vestanvert við bæinn. Rafmagn var að mestu komið á aftur klukkan rúmlega tíu að sögn Hitaveitu Suðurnesja. Þeir sem sáu eldingarnar sögðu þær líkastar eldhnöttum og héldu einhverjir bæjarbúa að jarðskjálfti gengi yfir þegar meðfylgjandi þrumur drundu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×