Látinn hætta vegna ágreinings 29. desember 2004 00:01
Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri Íslandsbanka, var rekinn úr starfi í dag og látinn hætta strax vegna óleysanlegs ágreinings milli hans og Bjarna Ármanssonar forstjóra. Jón Þórisson hættir eftir ríflega 20 ára samfellt starf, fyrst í Iðnaðarbanka og síðar í Íslandsbanka. Í fréttatilkyningu sem Jón sendi frá sér síðdegis segir að Bjarni Ármannsson, forstjóri, hafi ákveðið að hann léti af störfum, en Jón tekur fram að sér hafi í 20 ár verið treyst fyrir margvíslegum viðfangsefnum, meðal annars sem staðgengli forstjóra. Í tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallarinnar kemur fram að ástæða þess að Jón hættir nú, sé óbrúanlegur ágreiningur, eins og það er orðað, á milli aðstoðarforstjórans og forstjórans og þakkar bankinn Jóni fyrir vel unnin störf. Jón Þórisson lýsti því yfir fyrir skemmstu að hann útilokaði ekki möguleikann á sameiningu Íslandsbanka og Landsbankans, en áður hefur komið fram að Bjarni Ármannson sé andvígur þeirri leið. Bjarni sagði í samtali við fréttastofu síðdegis að leysa hefði þurft ágreining hans og Jóns og hann teldi það bestu lausnina að Jón hætti störfum. Samkvæmt heimildum fréttastofu tengist brotthvarf Jóns nú, hörðum átökum á hluthafafundi Íslandsbanka í byrjun nóvember síðastliðins, en breytingar urðu þar á valdahlutföllum innan bankaráðsins. Ágreiningur var um hagræðingu og framþróun bankans á íslenskum fjármálamarkaði og um þá ákvörðun Jóns að ráða Svein Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, útibústjóra miðbæjarútibús bankans í Reykjavík. Óskað hefur verið eftir því að bankaráð komi saman vegna málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira