Innlent

Landsframleiðsla vex

Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um tæplega 7,5 prósent á síðasta ársfjórðungi ársins, samkvæmt tölum Hagstofunnar, sem er mun meiri hagvöxtur á einum ársfjórðungi en verið hefur undanfarin þrjú ár. Landsframleiðslan virðist hinsvegar að mstu leiti, eða sem nemur 5,8 prósentum, vera knúin upp af aukinni einkaneyslu. Fjárfesting óx hinsvegar aðeins um tíu prósent, sem er mun minni vöxtur en að undanförnu. Útflutningur jókst um 11 prósent, sem er meira en á undanförnum ársfjórðungum og heldur dró úr innflutningi, en aukningin þar nam þó röskum 7 prósentum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×