Laxeldi eykst um helming 28. ágúst 2004 00:01
Gert er ráð fyrir ríflega tvöföldun í framleiðslu á eldislaxi milli ára og um 45 prósenta heildaraukningu í fiskeldi hér á landi, samkvæmt tölum Landssambands fiskeldisstöðva. Þá er einnig gert ráð fyrir stóraukningu í þorskeldi. Í fyrra var slátrað 375 tonnum en gert er ráð fyrir að þau verði um 800 í ár. Fiskeldisstöðvar í rekstri eru á milli 60 og 70 talsins á öllu landinu, samkvæmt tölum frá Veiðimálastjóra og Fiskistofu. Verndartollar ESB Laxeldi er sagt „komið á fullan skrið„ hér á landi og svo hefur verið aukning í þorski og bleikju. Þorskeldið snýst enn að megninu til um áframeldi smáfisks sem alinn er í kvíum og svo slátrað, en stefnt er að því að auka hlutfall seyðaeldis, sem þá er nefnt aleldi. Með því er vonast til að dragi úr framleiðslusveiflum sem átt geta sér stað á milli ára. Þá hafa markaðir fyrir bleikju verið að stækka og ágætt verð fengist fyrir afurðirnar. Nýtilkomnir verndartollar Evrópusambandsins á eldislaxi gætu þó sett strik í reikninginn hér ef áframhald verður á slíkum aðgerðum. Norðmenn og Færeyjar fá sérstakan kvóta til samræmis við útflutning ríkjanna undanfarin þrjú ár en önnur ríki sameiginlegan kvóta upp á 22.850 tonn. Þar erum við með Bandaríkjunum, Kanada og Rússlandi. Ekki er þó búist við að kvótinn hafi mikil áhrif að sinni svo fremi sem gætt verði að réttri tollskráningu á villtum fiski frá Kanada og Alaska. Fari svo að útflutningur á villtum laxi frá þeim löndum verði ekki aðskilinn frá eldislaxi, geti það þýtt að þrengra verði um útflutning á eldislaxi héðan. Jón Kjartan Jónsson er framkvæmdastjóri Oddeyrar, eignarhaldsfélags Samherja sem meðal annars á í fiskeldisfyrirtækinu Sæsilfri sem stundar laxeldi í Mjóafirði. Jón Kjartan segir Sæsilfur ekki hafa farið varhluta af aukningunni sem orðið hafi á milli ára. „Þetta er nálægt því tvöföldun frá því í fyrra,“ sagði hann og kvaðst nokkuð bjartsýnn á gengi fiskeldisins. „Við gerum ráð fyrir að haustið verði gott.“ Væntingar til þorskeldis Töluverðar væntingar eru svo enn gerðar til þorskeldis. Valdimar Ingi Gunnarsson, sjávarútvegsfræðingur og verkefnisstjóri Þorskeldis á Íslandi, býst við mikilli aukningu næstu ár og telur slátrun jafnvel verða komna í 2.500 tonn árið 2006, úr um 800 tonnum í ár. Sindri Sigurðsson, sem umsjón hefur með fiskeldi Síldarvinnslunnar á Norðfirði, segir þó mjög erfitt að spá fyrir um framhaldið í þorskeldi. „Í þessu ferli sem menn eru í núna er staðan einfaldlega sú að við erum að reyna að finna út hvort eitthvað vit sé í að fara í þetta.“ Hann telur þó allt benda til að svo sé. „En það tekur einhver ár í viðbót að gera þetta þannig að menn fari að sjá einhvern pening út úr þessu,“ bætir hann við. Sindri segir vissulega stefnt að því að auka hlutfall seyðaeldisins í rekstrinum en menn sníði sér þó stakk eftir vexti. „Við viljum hafa þetta eins lítið og nett og frekast er unnt. Nóg kostar þetta samt.“ Sindri segir ákveðnar sveiflur í áframeldi þorsks á milli ára, þær ráðist af því hvernig gengur að veiða hverju sinni. „Við reiknum með að slátra einhverjum 50 tonnum á þessu ári, allt úr áframeldi,“ segir hann, en á næsta ári mun stefna í um þrisvar sinnum meiri slátrun. „Við förum svo ekki að slátra úr seyðunum fyrr en eftir í fyrsta lagi tvö ár.“ „Það er ákveðin þróunarvinna í gangi og við dundum okkur við þetta í rólegheitunum. Árangurinn er þokkalegur að okkur finnst en samt misjafn,“ segir Sindri. Fyrstu tilraunir með söfnun á villtum þorski til áframeldis í kvíum hér á landi hófust árið 1992 og fram til ársins 2000 stunduðu á annan tug eldisstöðva eldi á villtum þorski á Austfjörðum, Vestfjörðum og í Eyjafirði. Á vef AVS rannsóknasjóðs í sjávarútvegi kemur fram að í fyrra hafi 14 fyrirtæki stundað tilraunastarfsemi í þorskeldi um allt land, þar á meðal eru nokkur af öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Þá er í gangi nokkur vinna við að meta samkeppnishæfni einstakra eldistegunda í alþjóðlegu samhengi. Fiskeldishópur AVS og Landssamband fiskeldisstöðva heldur til dæmis í októberlok mikla ráðstefnu sem ætlað er að gefa meðal annars yfirlit yfir stöðu einstakra eldistegunda og koma með tillögur að mikilvægum rannsókna- og þróunarverkefnum. Þá verður á ráðstefnunni greint frá öðrum mikilvægum verkefnum sem ætlað er að tryggja framgang fiskeldis.
Fréttir Innlent Sjávarútvegur Fiskeldi Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira