Vandamálasmiðir við stjórnvölinn 26. júní 2004 00:01 Heilbrigðismál - Albert Jensen Vandamálasmiðirnir sem enn stjórna heimahjúkrun, upplýstu þjóðina um nýja og alveg sérlega áhrifaríka stjórnvisku. Úr tilkynningu sem framkvæmdastjóri heimahjúkrunar sendi frá sér, mátti lesa að besta aðferðin við að slökkva eld væri að hella olíu á hann. Tildrög skrifa minna, eru fádæma heimskuleg vinnubrögð stjórnar heimahjúkrunar. Það er eins og framkvæmda- og hjúkrunarforstjóri þessarar mikilvægu starfssemi, skilji ekki mun á réttu og röngu. Þau tvö komu með úlfúð og illindi inn í samskiptin við starfskonur stofnunarinnar og ætla greinilega að halda þeim áfram. Fyrst þau komust upp með að vera með hótanir og ósannaðar aðdróttanir um vinnusvik starfskvenna sinna, finnst þeim öllu óhætt. Þau hafa frá komu sinni í stjórnina, haft allt á hornum sér gagnvart starfsliðinu. Án nokkurs samráðs eða samvinnu við starfslið eða stéttarfélög þeirra og allra síst skjólstæðingana og aðstandendur þeirra, breyta þau sitt og hvað að eigin geðþótta. Í vinnudeilu tókst þeim að reka fleyg í milli starfskvennanna og rýra árangur erfiðrar baráttu. Þeim tókst að kúga nokkrar konur sem ekki máttu við að missa vinnuna, til að láta að vilja sínum. Það gerðu þau með hótunum um minni vinnu, verri laun og uppsagnir. Þjóðin sá þau og heyrði í sjónvarpi bera lygi og vinnusvik á starfskonur sínar. Allt varð kyrrt og hljótt um aðför hrokafullrar stjórnar heimahjúkrunar að varnarlausum starfskonunum, en það gæti tengst því að heilbrigðisráðherra Framsóknarflokksins og yfirtryggingalæknir eru verndarar hennar. Eftir samtöl við ráðherrann og forstjóra tryggingastofnunar ríkisins, veit ég þetta. Ráðherrann virðist annar í orði en á borði og því sumt líkt með honum og stjórn heimahjúkrunar. Það hefði verið gott fyrir starfslið og skjólstæðinga að hafa hann í það minnsta ekki á móti sér. Stjórn heimahjúkrunar hefur sannað að hún hefur engan skilning á einu eða neinu sem varðar starfslið og skjólstæðinga þeirra. Í hennar augum eru tölur ofar öllu, en tillits- og hugulsemi kostnaðarsamur óþarfi. Það stýrir ekki góðri lukku fyrir hjálparvana fólk í heimahúsum að eiga velferð sína undir svo heimskri og kaldranalegri stjórn. Stjórn heimahjúkrunar tekur undir orð mín þegar hún verðlaunar þær konur sérstaklega sem af ýmsum ástæðum treystu sér ekki til að standa á sínu. Hinar eiga nú undir högg að sækja, því stjórnin ætlar að sína hver ræður og að það borgar sig ekki að mótmæla. Það er heilbrigðisráðherra til skammar að svo veruleikafirrt stjórn skuli gína yfir hjálparvana fólki og starfsliði þess. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar