Álögur á bjór verði lækkaðar 23. október 2004 00:01
Dönsk skattayfirvöld segja meira hagræði í að lækka skatta á áfengi enn frekar í stað þess að lækka áfengisgjald á bjór. Bjórframleiðendur telja það ekki sanngjarnt að sitja ekki við sama borð og vínframleiðendur. Skattaráðherra Danmerkur kynnti í gær nýja skýrslu sem var unnin í kjölfar aðgerða stjórnvalda til að draga úr aukinni landamæraverslun Dana sem meðal annars hafa keypt ódýrara vín og tóbak í Þýskalandi. Reynslan sýnir að lægri gjöld á sterku víni hafa leitt til mikillar söluaukningar í Danmörku. Hins vegar telja skattayfirvöld ekki sjálfgefið að lægri skattar á bjór muni auka söluna innanlands heldur sé betra að fara þá leið að lækka enn frekar áfengisgjald á sterku víni. Ár er liðið frá því að breytingar á lögum um áfengisgjald tóku gildi í Danmörku. Aðalbreytingin var afleiðing brotnáms svokallaðrar sólarhringsreglu um síðustu áramót. Reglan var sú að Danir máttu ekki koma með sterkt vín og ekki meira en hundrað sígarettur ef þeir höfðu verið erlendis í minna en 24 klukkustundir. Kerfisbundið hefur þessi regla verið rýmkuð frá því að vera þriggja daga regla í upphafi árið 1973. Til að stemma stigu við landamæraverslun eftir afnám reglunnar var gjald af sterku víni því lækað um 40%. Það þýddi, sem dæmi, að 70 cl vodkaflaska í Danmörku lækkaði um rúmar 500 íslenskar krónur. Danir voru að spara sér um þúsund krónur á flöskunni áður með því að kaupa hana í Þýskalandi en spara nú ekki nema 300 krónur. Breytingarnar eru reyndar mjög jákvæðar fyrir Svía og Norðmenn sem spara enn meira en áður með því að versla í Danmörku. Þannig sparar Svíinn sér þúsund kall og Norðmaðurinn um 1700 íslenskar krónur á vodkaflöskunni. Danskir bjórframleiðendur segja það ekki sanngjarnt ef álögur á bjór verði ekki lækkaðar líkt og á sterku víni til að jafna samkeppnisstöðu þeirra við vínframleiðendur. Í viðtali við danska ríkisútvarpið segir talsmaður þeirra það þröngsýni af yfirvöldum að taka einungis tillit til ríkiskassans. Vilji ríkið fækka enn frekar verslunarferðum Dana til Þýskalands verði að lækka bjórinn næst - hann sé aðaldráttaraflið.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira