Serbar sniðganga kosningarnar 23. október 2004 00:01
Mikil spenna einkennir kosningar sem fram fara í Kósóvó í dag. Serbar sniðganga kosningarnar sem líklegt er að muni leiða til aðskilnaðar Kósóvó frá Serbíu. Kosningarnar í dag eru aðrar kosningarnar frá því að Sameinuðu þjóðirnar skilgreindu héraðið sem sérstakt verndarsvæðið. Tæknilega séð er Kósóvó ennþá hérað í Serbíu en Sameinuðu þjóðirnar tóku völdin þar í kjölfar stríðsátaka árið 1999. Þó að aðgerðir NATO hafi bundið enda á þjóðernishreinsanir og grimmdarverk er ástandið langt í frá gott. Fimmtíu prósenta atvinnuleysi er í héraðinu og það er háð fjárframlögum frá Evrópusambandinu og Bandaríkjunum. Átján þúsund friðargæsluliðar frá NATO halda uppi lögum í héraðinu og vegna kosninganna voru tvö þúsund til viðbótar sendir þangað. Níutíu prósent íbúa eru Albanar og þeir koma því til með að ráða úrslitum kosninganna. 1,4 milljónir kjósenda eiga rétt á að greiða atkvæði í kosningunum. Gert er ráð fyrir að flestir þeirra greiði einum af fjórum albönskum flokkum atkvæði sitt en þeir krefjast allir sjálfstæðis fyrir Kósóvó. Ibrahim Rugova er talin líklegasti sigurvegari kosninganna en hann er hófsamur þjóðernissinni. Serbar, sem eru fáir eftir í Kósóvó, ætla sér að sniðganga kosningarnar. Bæði forystumenn serbneskra stjórnmálaflokka, sem og forsvarsmenn serbnesku réttrúnaðarkirkjunnar, hafa hvatt landa sína til að halda sig heima í dag. Kosningaeftirlitsmenn segja að á sumum kjörstöðum hafi ekki einn einasti Serbi sést en svo virðist sem sumir þeirra óttist jafnmikið gengi serbneskra ungmenna, sem hótað hafa þeim sem kjósa líkamsmeiðingum, og þeir óttast hugsanlegar aðgerðir Albana. Boris Tadic, forseti Serbíu, hvatti hins vegar landa sína til að gera skyldu sína og kjósa. Forystumenn Serba í Kósóvó segja öryggis Serba ekki nægilega vel gætt þar. Hundrað og áttatíu þúsund Serbar flýðu frá héraðinu í kjölfar stríðsins árin 1998 og 1999 og þeir sem eftir eru búa í svæðum sem sveitir NATO gæta sérstaklega.
Erlent Fréttir Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fleiri fréttir Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Sjá meira