Starfsleyfisumsókn vísað frá 29. nóvember 2004 00:01
Umsókn Mjallar-Friggjar um starfsleyfi við Vesturvör 30c á Kársnesi í Kópavogi var vísað frá á fundi heilbrigðisnefndar bæjarins í gær vegna þess að gögn skorti frá fyrirtækinu. Fyrirtækið var áður með klórvinnslu og klórgasframleiðslu að Fosshálsi í Reykjavík, en flutti starfsemina í kjölfar eigendaskipta í byrjun sumars. Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, segir að starfsemi hefði ekki átt að hefjast í Kópavogi fyrr en búið var að ganga frá bæði forms- og öryggisatriðum henni tengdri, en vitað er að fyrirtækið flutti með sér þrýstihylki með klórgasi og hóf vinnslu. Hann taldi þó ekki það slíkar brotalamir ættu eftir að hafa eftirmála. "Við höfum enga ástæðu til að fara með mál fyrir dómstóla, nema þá að það sé eitthvað sem heldur áfram." Guðmundur áréttar þó að fyrirtækið geti lagt inn starfsleyfisumsókn á ný þegar viðeigandi gagna hafi verið aflað, en ekki lágu fyrir byggingarnefndarteikningar sem þyrftu uppáskrift slökkviliðs. Þá segir hann einnig hægt að sækja um undanþágu frá starfsleyfi til umhverfisráðherra. Flutningur fyrirtækisins hefur vakið nokkrar deilur í bæjarfélaginu og jafnvel talið að ekki sé meirihluti fyrir því innan bæjarstjórnarinnar að veita Mjöll-Frigg starfsleyfi. Fulltrúar Samfylkingar og Framsóknarflokks í bæjarstjórn höfðu lýst andstöðu sinni við málið og að minnsta kosti einn fulltrúi Sjálfstæðisflokks, að því er heimildir blaðsins herma. Þá liggur fyrir umsögn skipulagsnefndar bæjarins frá því í októberbyrjun þar sem segir nefndin leggist alfarið gegn klórgasframleiðslu á svæðinu. Í umsögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna starfsleyfisumsóknarinnar kemur fram að áhrifasvæði umhverfisslyss vegna þrýstigashylkjanna utan um klórgasið sé nokkuð stórt, eða tæpir 3 kílómetrar undan vindi, en á móti kemur að mjög litlar líkur eru taldar á óhappi. Hinrik Morthens, eigandi eignarhaldsfélags Filtertækni og Mjallar-Friggjar við Vesturvör, kaus að svara ekki spurningum blaðsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira