40 hafa slasast í hálkunni 29. nóvember 2004 00:01
Yfir 40 manns hafa þurft að leita á slysadeild í morgun vegna slysa tengdum hálku. Gangandi vegfarendur eru varaðir við því að launhált sé á gangstéttum og götum. Frá klukkan átta í morgun og fram undir hádegi höfðu yfir 50 manns komið á slysadeildina í Fossvogi og þar af yfir 40 vegna meiðsla sem hlotist höfðu af falli í þeirri miklu hálku sem nú er úti. Þegar fréttastofan hafði samband við slysadeild var hátt í tíu manna biðröð í afgreiðslunni, auk þess sem aðrir tíu biðu í biðstofu. Kristín Sigurðardóttir, læknir á slysadeildinni, segir að öngþveiti hafi skapast um tíma, enda aðeins tveir læknar á vakt, en nú hefur sá þriðji bæst í hópinn. Hún segir alls ekki einungis um meiðsl á höndum og fótum að ræða heldur hafi margir hreinlega flogið á hausinn og meiðst á baki eða hnakka. Til allrar lukku hafi þó engin slasast lífshættulega. Kristín segir þorra þeirra sem komið hafa á slysadeild vera ungt fólk, enda virðist eldra fólkið vara sig betur þegar út er haldið. Enn er mjög hált úti og er fólk beðið um að hafa varann á ef ætlunin er að fara út að ganga, enda launhált víða og oft mjög erfitt að átta sig á hættunni fyrr en um seinan.
Fréttir Innlent Mest lesið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Umferð beint um Þrengslin í dag Innlent Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Innlent Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Innlent Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Innlent Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Erlent Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Félagið Ísland-Palestína harmar skvettuna Rán og frelsissvipting í Árbæ Mótmælandi skvetti málningu á ljósmyndara Morgunblaðsins Brottfararstöð dómsmálaráðherra komin í samráðsgátt Móðir og níu mánaða barn hætt komnar í Þrengslunum Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Reyndu að koma í veg fyrir að hún settist upp í hjá afrískum bílstjóra Tveir af þremur ánægðir með beitingu „kjarnorkuákvæðisins“ Alvarlega slösuð bankakona lagði VÍS eftir langa og stranga baráttu Lærði skriðsund á YouTube og syndir Ermarsund á morgun Sjálfsagt að taka málið fyrir: „Leysist ekkert sjálfkrafa við að ganga inn í Evrópusambandið“ Lögreglan hugsi yfir Skildi Íslands: Eitt lögbrot verði ekki réttlætt með öðru Eldur í verslunarhúsnæði á Laugavegi Play tekur dýfu í skugga afkomuviðvörunar og Njáll Trausti vill funda Hótað og ógnað eftir að hafa aðstoðað lögreglu Laugavegurinn að „deyja úr velgengni“ Loftgæði mun betri á höfuðborgarsvæðinu Njáll Trausti vill fund hið fyrsta í atvinnuveganefnd Sjá meira