Einar Oddur og túkallinn 20. júlí 2004 00:01 Veiðgjald - Jóhann Ársælsson, alþingismaður Fyrir næstsíðustu kosningar lofuðu formenn stjórnarflokkanna sátt um stjórn fiskveiða. Á liðnu kjörtímabili settu þeir svo upp langan leikþátt og þóttust vilja hlusta á önnur sjónarmið m.a. í nefnd sem sumir kölluðu sáttanefnd. Það örlaði á vilja til sátta í þeirri nefnd um tíma en þegar möguleg lausn var að taka á sig mynd kipptu stjórnarherrarnir í taumana og meirihluti nefndarinnar skilaði niðurstöðu sem þeir einir höfðu samið um.Um þessa leið hefur ekki verið og verður aldrei sátt við aðra enda var hún einungis sátt milli foringja stjórnarflokkanna. Nú er búið að reikna út í fyrsta sinn þetta veiðigjald og í ljós kemur að útgerðin þarf að greiða u.þ.b. tvær krónur af hverju þorskígildi til ríkissjóðs. Þetta er reyndar í heild nákvæmlega sú sama upphæð og felld var um leið niður í öðrum gjöldum útgerðarinnar til ríkissjóðs. Gera má ráð fyrir, ef miðað er við svipaðar aðstæður og nú ríkja, að þá muni gjaldið hækka í þrepum upp í rúmar þrjár krónur til ársins 2009. Viðbótarálögurnar verða því ein til tvær krónur á þorskígildi. Í tilefni af því að þessi útreikningur var birtur hafa verið viðtöl í fjölmiðlum við forsvarsmenn útgerðar í landinu sem kveina undan þessum álögum. Undir þennan söng tók Einar Oddur Kristjánsson í viðtali við Ríkisútvarpið. Þar kom sú skoðun hans fram að þetta veiðigjald kæmi fyrst og fremst niður á sjávarbyggðunum úti á landi og ekki var hægt að skilja hans orð öðruvísi en að þessar viðbótarálögur ógni bókstaflega framtíð þessara byggða. Ég er sammála Einari Oddi um að veiðigjald ógnar víða framtíð sjávarbyggðanna í landinu en það eru ekki þessar tvær eða þrjár krónur sem nú var verið að reikna út heldur hið raunverulega veiðigjald sem þeir útgerðarmenn sem fá úthlutað kvótanum innheimta af hinum sem vilja hefja útgerð eða auka við sína útgerð með viðbótaraflaheimildum. Þegar útgerðarmönnum var fengið ígildi eignarréttar á fiskinum í sjónum með hinu frjálsa framsali aflaheimilda sem komið var á settu útgerðarmenn strax upp markað með leigu og sölu aflaheimilda. Þar gilda þær einu reglur að þar fær sá sem hæst býður. Veiðigjaldið á þeim markaði er ekki tvær krónur eða þrjár. Í dag er varanleg veiðiheimild í þorski boðin á 1085 kr. á kg. og leigan innan ársins 115 kr. á kg. Þetta er hið raunverulega veiðigjald og það hefur svo sannarlega komið mörgum sjávarbyggðum á vonarvöl. Afleiðing þess eignarhalds á veiðirétti sem komið hefur verið á er sú að nýliðun í útgerð er engin. Ástæðan er sú að samkeppnisaðstaða þeirra sem vilja hefja útgerð gagnvart þeim sem fyrir eru er gersamlega vonlaus og skyldi engan undra. Með því að gefa þeim sem fyrir eru í útgerð eignarhald á veiðiréttinum var þeim í raun fengið forskot á hina sem vilja inn í útgerðina sem svarar verðmæti aflaheimildanna. Í dag er þetta forskot sennilega 350 til 400 milljarða virði og varla hægt að deila um það að þessi verðmæti virka sem forskot í formi eiginfjár þeirra sem fyrir eru í útgerð gagnvart þeim sem vilja hefja rekstur í greininni. Ekki fer milli mála hverjar afleiðingarnar eru í sjávarbyggðunum. Síðustu tölur um fækkun starfa í sjávarútvegi á Vestfjörðum um fjögur til fimm hundruð á næstliðnum fimm árum eru t.d. dæmi um þetta. Þar ríkir almenn vantrú á framtíðina vegna þess að engin nýliðun getur átt sér stað. Þetta veiðigjald er að rústa framtíð margra byggðarlaga. Það virkar eins og fáránlegur brandari hjá Einari Oddi Kristjánssyni að reyta hár sitt út af túkalli á kílóið og halda því fram að það gjald leggi sjávarbyggðir í eyði. Gjald sem útgerðarmenn hafa hvort sem er greitt í ríkissjóð en bara í öðru formi. Hinn raunverulegi ágreiningur um málið hefur alltaf snúist um eignarhaldið og það er þetta eignarhald sem hefur raskað öllum tilverugrundvelli í sjávarbyggðunum. En Einar Oddur og aðrir þingmenn sem hafa stutt þá ríkisstjórn sem mest hefur bisað við að festa óréttlæti kerfisins í sessi hafa alla tíð reynt að láta umræðuna snúast um aðra hluti. Ummæli þingmannsins eru hins vegar ágætt dæmi um hversu víðsfjarri kjarna málsins hann og margir aðrir hafa alla tíð haldið sig í umræðunni um stjórn fiskveiða. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 19.07.2025 Halldór Þetta er allt hinum að kenna! Helgi Brynjarsson Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir Skoðun Sleppir ekki takinu svo auðveldlega aftur Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson Skoðun Óður til opinberra starfsmanna Halla Hrund Logadóttir Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar Skoðun Þetta er allt hinum að kenna! Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Sleppir ekki takinu svo auðveldlega aftur Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir skrifar Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Undirbúum börnin fyrir skólann með hjálp gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Enginn skilinn eftir á götunni Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Við krefjumst sanngirni og aðgerð strax Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Verðmætatap auðlindagjaldanna – Hverra og hvernig? Haukur V. Alfreðsson skrifar Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Örn Pálsson skrifar Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar Sjá meira
Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson Skoðun
Skoðun Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson skrifar
Skoðun Þjóðþrifamálin sem stjórnarandstaðan fórnaði á altari útgerðanna Heimir Már Pétursson skrifar
Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar
Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar
Áfangasigur í baráttunni við hernaðinn gegn heimkynnum villta laxins Ingólfur Ásgeirsson,Árni Baldursson Skoðun