Ívan grimmi hefur fellt fimmtíu 12. september 2004 00:01
Fellibylurinn Ívan, sem fengið hefur viðurnefnið grimmi, gengur nú yfir Cayman-eyjur og stefnir á Kúbu. Um fimmtíu manns liggja í valnum eftir yfirreið Ívans um Karíbahaf. Veðurofsinn í fellibyljum er sambærilegur við allra verstu veður sem verða á Íslandi. Fellibylurinn Ívan er nú þegar orðinn einn af skæðustu fellibyljum sem gengið hafa yfir Karíbahafið. Hann rokkar á milli þess að vera talinn fjórða eða fimmta stigs fellibylur en fimmta stigið er það hæsta. Haraldur Ólafsson, prófessor í veðurfræði, segir hættuna mjög raunverulega og ef ekkert verði gert farist þúsundir. Hættan stafi ekki af vindinum sem slíkum heldur flóðunum sem fylgi fellibyljum. Annars vegar geti sjór gengið á land og hins vegar rigni óskaplega mikið þannig að ár flæða yfir bakka sína og koma af stað aurskriðum. Ívan grimmi er nú yfir Cayman-eyjum sem eru smáeyjar á milli Jamaíku og Kúbu. Þessar eyjar eru breskt yfirráðasvæði og hafa löngum verið leikvöllur ríka og fræga fólksins. Fellibyljir valda mun meira manntjóni í fátækum löndum þar sem hús eru veikbyggð og varnir litlar en í þeim ríkari. Það veldur því skiljanlega meiri áhyggjum þegar fellibylur á borð við Ívan gengur yfir lönd eins og Kúbu og Jamaíka en Cayman-eyjar eða Bandaríkin. Kúbubúar búa sig nú undir það versta og fólk hefur verið flutt á brott frá vesturhluta landsins þar sem áætlað er að Ívan beri niður. Óttast er að vindhraðinn geti farið upp í 69 metra á sekúndu sem getur valdið gríðarlegu tjóni í landi sem Kúbu. Haraldur segir allra verstu veður á Íslandi sambærileg við fellibyl eins og Ívan en það er oftast vindur sem mældur er uppi á fjöllum þar sem enginn býr. Slíkt hvassviðri myndi vissulega valda röskun á lífi landsmanna í þéttbýli.
Erlent Fréttir Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira