Viðskipti innlent

Breiður hópur fjárfesta keypti í Icelandair

Framtakssjóður Íslands hefur selt 10% hlutafjár í Icelandair Group, alls 500 milljón hluti til breiðs hóps fagfjárfesta. Meðalverð á hlut var 5,423 krónur og nemur heildarsöluvirði hlutafjár því 2.711 milljónum króna. Eftir viðskiptin á Framtakssjóður Íslands um 950 milljón hluti í Icelandair Group, eða um 19% hlutafjár.

Viðskipti innlent

Vöruskiptin hagstæð um 8 milljarða í október

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir október var útflutningur 52,7 milljarðar króna og innflutningur tæpir 44,7 milljarðar króna. Vöruskiptin í október voru því hagstæð um 8,1 milljarð króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.

Viðskipti innlent

Milestone í mál við Makedóna

Þrotabú Milestone reynir nú að innheimta skuld upp á eina milljón evra, jafnvirði um 160 milljóna króna, af makedónskum kaupsýslumanni, sem var viðskiptafélagi Wernersbræðranna Karls og Steingríms fyrir bankahrun. Málflutningur um skuldina fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Viðskipti innlent

Dregið verði úr verðtryggingaráhættu

Ákveðið hefur verið að ríkissjóður kaupi til baka óverðtryggð bréf af Íbúðalánasjóði að andvirði 32,5 milljarðar króna að nafnverði. Á móti afhendir ríkissjóður verðtryggð bréf fyrir 31,62 milljarða króna, að því er segir í tilkynningu.

Viðskipti innlent

Fimm milljarða króna aukakvóti

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið í framhaldi af ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunarinnar 3. nóvember síðastliðinn að hækka heildaraflamark í íslenskri sumargotssíld um 40 þúsund tonn. Fyrr á þessu hausti úthlutaði ráðherra 5 þúsund tonnum í sama aflamarki.

Viðskipti innlent

Icelandair hækkaði í kjölfar tilkynningar um sölu

Icelandair hækkaði um rúmlega 1,1 % í dag og stendur gengi bréfa féalgsins nú í 5,48. Eins og áður hefur komið fram tilkynnti Framtakssjóður Íslands um það í morgun að hann hygðist selja 10% hlut í félaginu á genginu 5,42. Íslandsbanki hefur umsjón með söluferlinu.

Viðskipti innlent

Arion vann milljarðamál í héraðsdómi

Ice Capital ehf, sem áður hét Sund ehf, hefur verið dæmt til að greiða Arion banka því sem nemur 3,7 milljörðum króna vegna láns sem félagið tók hjá Kaupþingi. Málið er rakið til þess að árið 2004 gerði Sund samning við Kaupþing Búnaðarbanka um eignastýringu.

Viðskipti innlent

Úr 3,6 milljörðum í 8,1 milljarð

Miðað við markaðsgengi Icelandair Group í dag er hlutur Framtakssjóðsins í félaginu ríflega 8,1 milljarða virði. Framtakssjóðurinn keypti 30% hlutinn á 3,6 milljarða. Hagnaðurinn er því umtalsverður. Tíu prósent hlutur, sem Icelandair tilkynnti um í morgun að yrði seldur, er virði um 2,7 milljarða króna miðað við núverandi gengi.

Viðskipti innlent

Vill ljúka fjármögnunarsamningi um Vaðlaheiðagöng

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist telja að ekkert sé því til fyrirstöðu að ljúka fjármögnunarsamningi við fyrirtækið Vaðlaheiðagöng hf um fjármögnun fyrir gerð ganganna. Samkvæmt samningnum mun fyrirtækið hafa umsjón með gerð ganganna með láni frá ríkissjóði. Verktakafyrirtækin ÍAV og Marti munu sjá um verklegan þátt framkvæmdanna.

Viðskipti innlent

Vill nýtt mat á kostnaði við Vaðlaheiðargöng

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, vill að gert verði nýtt mat á kostnaðinum við gerð Vaðlaheiðarganga. Hann segir það vægast sagt varlega áætlað að ætla að gera ráð fyrir 7% frávikum frá kostnaðaráætlun miðað við það hve mikið gangagerð hefur farið fram úr kostnaðaráætlunum síðustu ára. Áætlaður kostnaður við gerð ganganna nemur um 10 milljörðum króna. Runólfur benti á að kostnaðaráætlun hefði verið gerð af Saga Capital og síðar MP banka. Þessir aðilar hefðu hag af því að framkvæmdin yrði að veruleika vegna þess að bankinn myndi sjá um skuldabréfaútboð í tengslum við fjármögnun ganganna. Kristín H. Sigurbjörnsdóttir, formaður stjórnar Vaðlaheiðarganga, sagðist ekkert hafa á móti því að óháður aðili gerði kostnaðarmat á framkvæmdinni.

Viðskipti innlent

Selja 10% í Icelandair

Framtakssjóður Íslands hefur falið Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. að hafa umsjón með sölu á 10% hlutafjár í Icelandair Group. Hlutaféð er boðið til sölu til fagfjárfesta með áskriftarfyrirkomulagi. Lágmarksverð er kr. 5,42 á hlut sem er dagslokagengi á síðasta viðskiptadegi, föstudaginn 4. nóvember. Frestur til að skila inn tilboðum er til kl. 18.00 mánudaginn 7. nóvember, 2011.

Viðskipti innlent

Met sett í útflutningi sjávarafurða

Met var sett í útflutningi sjávarafurða frá landinu í september en útflutningurinn nam 28,6 milljörðum króna og hefur aldrei verið meiri í krónum talið. Það er þessum útflutningi að þakka hve myndarlegur afgangur varð á vöruskiptajöfnuðinum í september en hann nam 15.5 milljörðum króna.

Viðskipti innlent

Endurfjármagna Hörpuna

Til stendur að ráðast í skuldabréfaútgáfu upp á 18 milljarða króna til að endurfjármagna sambankalán sem Austurhöfn-TR, eigandi tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, tók í janúar í fyrra. Austurhöfn er í 54% eigu íslenska ríkisins og 46% eigu Reykjavíkurborgar. Skuldabréfaútboðið á að fara fram á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 og verður innlent. Þetta staðfestir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, dótturfélags Austurhafnar, sem heldur utan um eignarhald á Hörpunni.

Viðskipti innlent

Matvörufélag Ólafs græðir milljarða

Hollenska matvælafyrirtækið Alfesca, sem Ólafur Ólafsson á tæplega 40 prósenta hlut í, hagnaðist um 35 milljónir evra á síðasta ári, sem jafngildir rúmlega 5,5 milljörðum íslenskra króna. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær.

Viðskipti innlent

Milljarða hagnaður fyrirtækja Ólafs

Matvælafyrirtækið Alfesca, sem Ólafur Ólafsson á tæplega 40% hlut í, hagnaðist um 35 milljónir evra á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2010. En það jafngildir rúmlega 5,5 milljörðum króna. Ólafur á fjörutíu prósenta hlut í gegnum hollenska fyrirtækið Kjalar Invest á móti franska fyrirtækinu Lur Berri. Tæplega hálfur milljarður króna var greiddur út í arð til hluthafa í fyrra en eignir Alfesca umfram skuldir nema 375 milljónum evra, jafnvirði rúmlega 59 milljarða króna.

Viðskipti innlent

Slitastjórnir mala gull eftir hrunið

Slitastjórnir föllnu bankanna þriggja mala gull eftir bankahrunið, en sumar lögmannsstofur í eigu nefndarmanna í slitastjórnum skiluðu tugmilljóna króna hagnaði á síðasta ári. Í slitastjórn Kaupþings sitja nú þau Feldís Lilja Óskarsdóttir og Davíð Benedikt Gíslason, eftir að Ólafur Garðarsson, lét af störfum. Lögmannstofa Feldísar Lilju hagnaðist um 6,8 milljónir króna í fyrra samkvæmt ársreikningi. Félag Davíðs hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2010. Fyrirtæki utan um rekstur Steinars Þórs Guðgeirssonar, sem er formaður skilanefndar Kaupþings, skilaði rúmlega fimmtíu milljóna króna hagnaði á síðasta ári og er félagið skráð með eignir upp á tæplega hundrað milljónir króna, en hann þess skal getið að hann rekur félagið ásamt eiginkonu sinni sem einnig er lögmaður og inni í fjárhæðinni eru því einnig hagnaður vegna tekna hennar.

Viðskipti innlent

Epli.is sektað fyrir loforð um „enga vírusa“

Neytendastofa hefur sektað Epli.is um eina og hálfa milljón króna sökum þess að fyrirtækið notaði fullyrðinguna „engir vírusar" í auglýsingum sínum, en gat ekki fært sönnur á hana. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV. Sektin er lögð á rekstraraðila Epli.is vegna þess að fyrirtækið fór ekki eftir banni Neytendastofunnar við að nota fullyrðinguna í markaðsherferðum. Í desember á síðasta ári gerði Neytendastofa fyrst athugasemdir við auglýsingarnar. Í október á þessu ári bárust hins vegar ábendingar um að auglýsingarnar væru aftur farnar að birtast. Í kjölfarið komst Neytendastofa að þeirri niðurstöðu að um ítrekuð brot væri að ræða og fyrirtækið sýndi einbeittan vilja til að blekkja neytendur. Því þótti hæfilegt að sekta fyrirtækið um eina og hálfa milljón króna.

Viðskipti innlent

Er ég ekki örugglega í fókus?

Lytro er líklega með skrýtnustu myndavélum sem þú hefur séð. Hún er ferstrendingslaga, á öðrum endanum er lítill snertiskjár og á hinum endanum er óvenjulega stór linsa fyrir svona litla vél. En þótt að Lytro sé smá þá býr í henni tækni sem er áður óþekkt, í það minnsta á neytendamarkaði. Þú þarft nefnilega aldrei að fókusa neitt.

Viðskipti innlent

Þarf þrjúþúsund notendur á mánuði

Í Holtagörðum er nú verið að undirbúa opnun nýrrar líkamsræktarstöðvar en eigendur hennar ætla sér að tröllríða markaðnum hér á landi með því að bjóða ódýr líkamsræktarkort án bindingar. Stöðin þarf þrjúþúsund korthafa til að reksturinn gangi upp. Það er nóg um að vera í Holtagörðum þessa dagana en þar er líkamsræktarfrumkvöðullinn Ágúst Ágústsson ásamt foreldrum sínum í óða önn að innrétta glænýja líkamsræktarstöð.

Viðskipti innlent

Árni Hauksson: "Munum ekki kaupa meira“

Beinn eignarhlutur viðskiptafélaganna Árna Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar í smásölurisanum Högum er aðeins átta prósent þegar eignarhald á samlagshlutafélaginu Búvöllum hefur verið sundurgreint. Árni segir að þeir hafi engin áform um að auka við hlut sinn.

Viðskipti innlent

Segir ráðherra hafa misst af tekjum upp á milljarða

Magnús Orri Schram sakar sjávarútvegsráðherra um að hafa "misst af dauðafæri" þegar hann úthlutaði kvóta í makríl án endurgjalds til útgerðarmanna fyrr í haust. Með því að leigja kvótann frá ríkinu hefði ráðuneytið geta aflað 6 milljarða króna að mati Magnúsar. Þeir hefðu komið sér vel á niðurskurðartímum.

Viðskipti innlent

Hreiðar Már yfirheyrður í Al-Thani málinu

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var yfirheyrður fyrr í vikunni í tengslum við rannsókn á hinu svokallaða Al-Thani máli. Þetta staðfesti Hörður Felix Harðarson hrl., lögmaður Hreiðars Más, í samtali við fréttastofu.

Viðskipti innlent

Már: Færir traustara gólf undir vextina

Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði í ræðu á þingi Viðskiptaráðs í morgun að það væri algengt að seðlabankar "færi taumhald í hlutlausa stöðu" með hækkun nafnvaxta áður en slaki er horfinn úr hagkerfinu. Elli þyrfti mun snarpari vaxtahækkanir á skilum "slaka og spennu." Hækkun stýrivaxta um 0,25% prósentustig í 4,75% skýrðist ekki síst af þessu.

Viðskipti innlent