Viðskipti innlent

Matvörufélag Ólafs græðir milljarða

Hollenska matvælafyrirtækið Alfesca, sem Ólafur Ólafsson á tæplega 40 prósenta hlut í, hagnaðist um 35 milljónir evra á síðasta ári, sem jafngildir rúmlega 5,5 milljörðum íslenskra króna. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær.

Ólafur á hlutinn í gegnum félagið Kjalar Invest, á móti franska fyrirtækinu Lur Berri. Hlutur Ólafs var áður inni í Eglu, dótturfélagi Kjalars, en hann flutti hlutinn í Kjalar Invest áður en Egla gekk í gegnum nauðasamninga við kröfuhafa.

Tæplega hálfur milljarður króna var greiddur í arð til hluthafa Alfesca í fyrra, en eignir félagsins umfram skuldir nema um 59 milljörðum íslenskra króna.

Ólafur samdi nýlega við Arion banka um skuldauppgjör Kjalars, sem hélt utan um þriðjungshlut hans í HB Granda. Arion banki tók hlutinn, auk lausafjár, samtals að andvirði ríflega þrettán milljarða, upp í rúmlega 70 milljarða skuld Kjalars við bankann. Skuldin er nú að engu orðin.

Ólafur, sem var í síðustu viku yfirheyrður af sérstökum saksóknara vegna tengsla sinna við hið svokallaða Al-Thani-mál hjá Kaupþingi, á enn ráðandi hlut í flutningarisanum Samskipum ásamt stjórnendum félagsins.- sh






Fleiri fréttir

Sjá meira


×