Viðskipti innlent

Milljarða hagnaður fyrirtækja Ólafs

Matvælafyrirtækið Alfesca, sem Ólafur Ólafsson á tæplega 40% hlut í, hagnaðist um 35 milljónir evra á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2010.

En það jafngildir rúmlega 5,5 milljörðum króna. Ólafur á 40% hlut í gegnum hollenska fyrirtækið Kjalar Invest á móti franska fyrirtækinu Lur Berri.

Tæplega hálfur milljarður króna var greiddur út í arð til hluthafa í fyrra en eignir Alfesca umfram skuldir nema 375 milljónum evra, jafnvirði rúmlega 59 milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×