Viðskipti innlent
FME beitti lífeyrissjóðinn Stapa dagsektum Fjármálaeftirlitið (FME) þurfti að beita lífeyrissjóðinn Stapa dagsektum til að fá aðgang að upplýsingum úr tölvukerfi sjóðsins eins og lög og reglur kveða á um. Viðskipti innlent 10.1.2012 07:27
10 þúsund leigusamningum þinglýst 2011 - slegist um lausar íbúðir Hátt í 10 þúsund leigusamningum um íbúðarhúsnæði var þinglýst á landinu á síðasta ári og hefur markaðurinn tvöfaldast frá hruni. Lítið hefur dregið úr eftirspurn og dæmi um að slegist sé um lausar íbúðir. Viðskipti innlent 9.1.2012 20:14
Einn stærsti skartgripasali Mið-Austurlanda vildi kaupa Aurum Holdings Í bréfi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar til sérstaks saksóknara er vitnað til þess að Damas, einn stærsti skartgripasali Mið-Asturlanda með starfsemi í Evrópu, hafði undirritað óbindandi samkomulag við Fons um kaup á Aurum Holdings áður en dótturfélag Fons fékk lán til að kaupa félagið. Viðskipti innlent 9.1.2012 18:48
Tilbúnir að fresta skaðabótamáli gegn Lárusi og Jóni Ásgeiri Slitastjórn Glitnis ætlar að fallast á beiðni um að fresta aðalmeðferð í skaðabótamáli á hendur Lárusi Welding, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Pálma Haraldssyni og fleirum vegna félagsins Aurum Holdings þangað til niðurstaða liggur fyrir í rannsókn sérstaks saksóknara vegna sama máls. Dómari getur frestað málinu að sjálfsdáðum. Viðskipti innlent 9.1.2012 18:30
Gæslan semur um leigu á nýrri þyrlu Landhelgisgæslan hefur ákveðið að taka tilboði Knut Axel Ugland Holding AS um leigu á þyrlu af gerðinni Aerospatiale Super Puma AS332 L1, sem er sömu tegundar og björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar TF-LIF og TF-GNA. Leiguþyrlan mun leysa af TF-LIF sem flýgur til Noregs 14. janúar næstkomandi. þar sem hún mun í fyrsta sinn fara í gegnum umfangsmikla G-skoðun. Áætlað er að skoðuninni ljúki 23. mars. Viðskipti innlent 9.1.2012 13:54
Alcoa dregur saman seglin - samt ekki á Íslandi Í ljósi aðstæðna á álmörkuðum heimsins og lækkandi álverðs hefur Alcoa tilkynnt að dregið verði úr heildarframleiðslu áls um tólf prósent, eða um sem nemur 531 þúsund tonni á ári, samkvæmt frétt á heimasíðu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 9.1.2012 10:17
Fasteignamat á landinu öllu nemur 4.377 milljörðum Heildarfasteignamat á landinu öllu samkvæmt nýrri fasteignaskrá um síðustu áramót var 4.377 milljarðar króna. Viðskipti innlent 9.1.2012 08:58
Mikill munur á orkugjöldum Mikill munur er á orkugjöldunum, sem hækkuðu um áramótin, eftir því hvaða orkufyrritæki á í hlut, samkvæmt útreikningum Orkuvaktarinnar. Viðskipti innlent 9.1.2012 07:18
Líkur á að krafa á skuldabréf lækki Vænt skuldabréfaútgáfa Lánamála ríkisins og Íbúðalánasjóðs á árinu mun ekki nægja til að fullnægja fjárfestingarþörf lífeyrissjóðakerfisins. Því er sennilegt að ávöxtunarkrafa á skuldabréfamarkaði lækki á næstunni. Þetta er mat sérfræðinga hjá Júpíter, rekstrarfélagi verðbréfasjóða í eigu MP banka, sem var til umfjöllunar í nýjasta fréttabréfi félagsins. Viðskipti innlent 9.1.2012 06:00
Þriðja félagið rekur Kanann síðan 2009 Skjárinn, sem keypt hefur útvarpsstöðina Kanann, tók ekki yfir félagið utan um útvarpsstöðina heldur keypti út úr því reksturinn – tæki, hljóðver, vörumerki og lagalista – auk þess að kaupa tíðnina á uppboði. Einar Bárðarson, sem rak Kanann og verður áfram yfir stöðinni hjá Skjánum, segir að gamla félagið, Skeifan 7 eignarhald, standi þó ekki eftir sem tóm skel með skuldum. Viðskipti innlent 9.1.2012 03:00
Óráðlegt að lækka eigiðfé bankanna Tryggi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur ekki gáfulegt að stjórnvöld sæki fjármagn í bankakerfið með því að lækka eigiðfjárhlutfall bankanna eins og stendur. Guðmundur Steingrímsson hvatti til þess í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun að stjórnvöld athuguðu þann möguleika að lækka eigiðfjárhlutfall bankanna sem nú er um 22,5% niður í 16%. Þannig mætti sækja fjármagn til að hraða uppbyggingu í landinu, enda á ríkið um 40% í bönkunum. Viðskipti innlent 8.1.2012 20:52
Vill sækja peninga í bankakerfið Guðmundur Steingrímsson telur tímabært að ráðast í miklu meiri fjárfestingar og uppbyggingu núna. Hann segir að peningar til að hrinda því í framkvæmd séu að öllum líkindum til. Ríkið á um þessar mundir 41% af bankakerfinu. Bankakerfið núna er með eiginfjárhlutfall upp á um 22,5% að meðaltali núna. Fjármálaeftirlitið segir eðlilegt viðmið um 16%. Ef við myndum færa eiginfjárhlutfallið niður í 16% myndi ríkið fá í sinn hlut 70 milljarða í arðgreiðslur. Guðmundur telur áleitna spurningu hvort hægt sé að sækja hluta af þessum peningum til að ná niður atvinnuleysi og koma okkur áleiðis upp úr kreppunni. Viðskipti innlent 8.1.2012 12:20
Skúli Mogensen orðinn einn stærsti hluthafi í Skýrr Fjárfestingafélagið Títan, sem er í eigu Skúla Mogensen, hefur bæst í hóp stærstu hluthafa Skýrr með liðlega 5% hlut. Samhliða þessu er fyrirhugað að Skúli setjist í stjórn Skýrr á næsta aðalfundi félagsins. "Skúli hefur á undanförnum misserum sannað sig sem þungavigtarmaður í íslensku viðskiptalífi. Hann hefur tekið þátt í að stofna og fjárfesta í fjölda fyrirtækja, bæði hér á landi og erlendis. Jafnframt hefur Skúli yfirgripsmikla reynslu af þekkingariðnaði, sem spannar yfir tvo áratugi. Það er því mikill styrkur í aðkomu hans að Skýrr," segir Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr. Viðskipti innlent 7.1.2012 13:55
Metár hjá Icelandair Árið 2011 var metár hjá Icelandair, sem flutti 1750 þúsund farþega á árinu, eða fimmtungi fleiri en árið áður. Stefnt er að enn frekari fjölgun sæta á þessu ári að sögn framkvæmdastjóra félagsins. Icelandair Group birti í gærkvöldi flutningatölur fyrir árið 2011. Samkvæmt þeim fjölgaði farþegum um rúm 260 þúsund á síðasta ári, eða 18 prósent, en alls voru farþegarnir 1750 þúsund. Sætanýtingin var tæp 80 prósent, en hún jókst jafnframt um tæpt eitt prósentustig. Félagið hefur aldrei áður flutt jafnmarga farþega eða haft jafngóða sætanýtingu. Viðskipti innlent 7.1.2012 13:11
Landsbankinn stefnir á nýjar höfuðstöðvar Landsbankinn ætlar að reisa nýjar höfuðstöðvar fyrir árið 2015 og leggur mikla áherslu á að bankinn eigi kost á því að halda höfuðstöðvunum í miðborginni. Þetta kemur fram í umsögn bankans um atvinnustefnu Reykjavíkurborgar sem lögð var fram í borgarráði í vikunni, en þar segir jafnframt að verði hugmyndin að veruleika muni bankinn standa fyrir mjög mannaflsfrekum aðgerðum og skapa aðstæður í miðborginni til að byggja upp aðstöðu fyrir aðra starfsemi. Upplýsingafulltrúi bankans segir þó í samtali við Fréttablaðið að engar viðræður hafi farið fram um lóðamál við borgaryfirvöld, en allt eins komi til greina að horfa til sömu lóðar og til stóð að byggja glæsilegar höfuðstöðvar á fyrir hrun. Viðskipti innlent 7.1.2012 11:15
Gátu opnað Zara-búð vegna persónulegra tengsla eigenda Hagar gátu náð sérleyfissamningi við Zara-samsteypuna um opnun Zöru verslunar á Íslandi vegna persónulegra tengsla Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Jóns Schevings Thorsteinssonar við eiganda Zöru, Amancio Ortega, en áður en þetta gekk eftir árið 2001 höfðu fjölmargir reynt að fá sérleyfi og opna Zöru verslanir hér á landi án árangurs. Þetta kemur fram í viðtali við Finn Árnason, forstjóra Haga, í nýjasta þættinum af Klinkinu. Viðskipti innlent 6.1.2012 21:00
Forstjóri Haga: Enginn á þingi ber hagsmuni neytenda fyrir brjósti Forstjóri Haga, sem er stærsta verslanafyrirtæki á Íslandi, segir að neytendur séu afgangsstærð í íslenskum stjórnmálum og enginn beri hagsmuni þeirra fyrir brjósti. Forystumenn í verslun og þjónustu tali fyrir daufum eyrum og stjórnmálamenn verndi sérhagsmuni á kostnað heimilanna. Viðskipti innlent 6.1.2012 20:00
Segir það hafa rúmast innan stefnu Haga að kaupa í 365 Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir að Hagar hafi fjárfest í óskyldum rekstri hér á árum áður og það hafi verið ákvörðun fyrrverandi stjórnar félagsins að kaupa hlut í 365 miðlum skömmu eftir bankahrun fyrir 810 milljónir króna. Hann segir Haga hafa tapað 300 milljónum króna á þessari fjárfestingu, en svarar því ekki hvort hann hafi verið hlynntur henni. Viðskipti innlent 6.1.2012 19:30
Leiðréttir og afskrifar lán hjá Olís og tengdum félögum Samkomulag hefur tekist við Landsbankann um fjárhagslega endurskipulagningu Olíuverzlunar Íslands hf (Olís) og tengdra félaga. Viðskipti innlent 6.1.2012 16:04
Sótti áður um starf hjá Norðurorku - fékk ekki vegna glæparannsóknar „Þessi maður kom einnig til greina þegar hann sótti um starf forstjóra hjá Norðurorku í fyrra. Þá var ákveðið að hann yrði ekki ráðinn þar sem hann var álitinn sakborningur af sérstökum saksóknara," segir Edward Huijbens, varabæjarfulltrúi VG á Akureyri og stjórnarmaður Norðurorku. Hann gagnrýnir ráðningu Þorvalds Lúðvíks Sigurjónssonar sem framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE), en hann falaðist eftir forstjórastöðu hjá Norðurorku, sem tilheyrir Akureyrarbæ, á síðasta ári. Viðskipti innlent 6.1.2012 15:02
Sparisjóður Svarfdæla seldur Landsbankanum Stjórn Sparisjóðs Svarfdæla og Landsbankinn hf. hafa náð samkomulagi um að Landsbankinn kaupi allar eignir og rekstur Sparisjóðsins og haldi áfram fjármálastarfsemi í Dalvíkurbyggð. Viðskipti innlent 6.1.2012 11:47
Síðustu forvöð að tilnefna til vefverðlauna SVEF Samtök vefiðnaðarins veita árleg vefverðlaun sín í Tjarnarbíói þann 3. febrúar. Síðustu forvöð til að tilnefna vefi eru á morgun, 7. janúar, og eru þeir sem hyggjast tilnefna vefi sína hvattir að bregðast skjótt við. Viðskipti innlent 6.1.2012 11:00
Vöruskiptin hagstæð um 14,5 milljarða í desember Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir desember síðastliðinn var útflutningur tæpir 59,6 milljarðar króna og innflutningur 45,0 milljarðar króna. Vöruskiptin í desember voru því hagstæð um 14,5 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Viðskipti innlent 6.1.2012 09:13
Gistinóttum fjölgaði um 13% milli ára í nóvember Gistinætur á hótelum í nóvember voru 79.500 samanborið við 70.400 í nóvember 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 73% af heildarfjölda gistinátta í nóvember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 19% samanborið við nóvember 2010 á meðan fjöldi gistinátta Íslendinga var svipaður á milli ára. Viðskipti innlent 6.1.2012 09:04
Landaður afli í Faxaflóahöfnum jókst um tæp 13% milli ára Aukning á lönduðum afla hjá Faxaflóahöfnum milli áranna 2010 og 2011 nam um 16.800 tonnum eða um 12,8%. Aukningin var að mestu í Reykjavík en á Akranesi barst svipaður afli á land í fyrra og árið 2010. Heildaraflinn í fyrra nam 148.200 tonnum, að því er segir á heimasíðu hafnanna. Viðskipti innlent 6.1.2012 09:00
Ísland áfram á leið niður listan um skuldatryggingaálög þjóða Ísland heldur áfram að falla niður lista CMA gagnaveitunnar um skuldatryggingaálag þjóða heimsins, sem er jákvæð þróun. Viðskipti innlent 6.1.2012 07:37
Lítið greitt af erlendum skuldum fyrirtækja frá hruninu Greining Arion banka telur að lítið hafi verið greitt niður af erlendum skuldum fyrirtækja frá hruninu haustið 2008. Viðskipti innlent 6.1.2012 07:23
Eignir lífeyrissjóða halda áfram að aukast Eignir lífeyrissjóðanna halda áfram að aukast en samkvæmt nýjum tölum Seðlabanka Íslands nam hrein eign lífeyrissjóða 2.078 milljarða kr. í lok nóvember síðast liðins. Viðskipti innlent 6.1.2012 07:02
Minna úrval vegna merkinga matvara Hagar hafa að mestu leyti skipt út matvælum sem þarf að merkja vegna reglugerðar um merkingar á erfðabreyttum matvælum sem tók gildi um áramótin, að sögn Finns Árnasonar forstjóra. Viðskipti innlent 6.1.2012 06:00
Skuldir Víkingaheima afskrifaðar að mestu Skuldir tveggja félaga sem halda utan um Víkingaheima í Reykjanesbæ munu lækka um 60-70% samkvæmt uppgjörssamkomulagi þeirra við stærsta eiganda sinn, Reykjanesbæ, og lánardrottinn, Landsbankann. Félögin tvö, sem heita Íslendingur ehf. og Útlendingur ehf., skulduðu samtals um 620 milljónir króna í lok árs 2010. Viðskipti innlent 6.1.2012 06:00