Viðskipti innlent

Spáir 11,7% verðbólgu í apríl

Greining Íslandsbanka telur að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,3% í apríl. Ef spáin gengur eftir mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 15,2% í 11,7% og verður hún þá svipuð og fyrir ári síðan.

Viðskipti innlent

Nýherji skilar hagnaði á fyrsta ársfjórðungi

Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja segir að afkoma samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi 2009 hafi batnað umtalsvert frá fjórða ársfjórðungi 2008. Hann segir að þær fjölþættu aðgerðir sem gripið hafi verið til í því markmiði að lækka rekstrarkostnað samstæðunnar. vegna sviptinga og óvissu í íslensku efnahagsumhverfi séu komnar fram að hluta. Í febrúarmánuði hafi til dæmis komið til framkvæmdar 10% launalækkun hjá öllum starfsmönnum Nýherja og dótturfélaga á Íslandi.

Viðskipti innlent

Decode selur Celera

Decode hefur selt bandaríska líftæknifyrirtækinu Celera rétt á notkun á þremur erfðaprófum sem meta líkurnar á áhættuþáttum á borð við hjartasjúkdóma og sykursýki.

Viðskipti innlent

Bréfin ruku upp um 390 prósent

„Þetta er afskaplega góður samningur og jafngildir því að erfðaprófin eru komin í hillu í mjög stórri búð," segir Kári Stefánsson, forstjóri deCode en fyrir­tækið hefur selt bandaríska líftæknifyrirtækinu Celera rétt á notkun á þremur erfðaprófum sem meta líkurnar á áhættuþáttum á borð við hjartasjúkdóma og sykursýki.

Viðskipti innlent

Rekstur Icelandair Group jákvæður

Rekstur Icelandair Group samstæðunnar gekk betur á fyrsta ársfjórðungi 2009 en áætlanir félagsins sögðu til um. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Munar þar mestu um að afkoma stærstu félaganna í samstæðunni, Icelandair og Travel Service, var talsvert umframvæntingar og hefur Icelandair ekki skilað jafn góðri rekstrarniðurstöðu á fyrsta ársfjórðungi fyrir skatta, fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) frá stofnun félagsins í núverandi mynd eða frá árinu 2002.

Viðskipti innlent

Gengi bréfa Marel Food Systems féll um fimm prósent

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems féll um fimm prósent í Kauphöllinni í dag en það er mesta lækkun dagsins. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Össurar um 0,77 prósent. Hins vegar skaust gengi bréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, upp um 11,33 prósent.

Viðskipti innlent

Lífleg skuldabréfaviðskipti á miðvikudaginn

Skuldabréfamarkaður kvaddi viðburðaríkan vetur með líflegum viðskiptum. Alls nam veltan á miðvikudag, síðasta dag vetrar, 13,6 milljörðum króna í ríkisbréfum og íbúðabréfum. Í greiningu Íslandsbanka kemur fram að kaupáhugi hafi verið töluverður fram eftir degi og krafa flestra markflokka lækkað, en kröfulækkun ríkisbréfa gengið að hluta til baka fyrir dagslok.

Viðskipti innlent

Bankastjóri í 21 dag

Sveinn Andri Sveinsson, sem ráðinn var bankastjóri Sparisjóðabankans þegar skilanefnd tók hann yfir um síðustu mánaðarmót, hefur látið af störfum, eftir 21 dag á forstjórastóli. Hann segir að skilanefnd bankans hafi ákveðið að spila stærri rullu í starfssemi bankans áður hafi verið ráð fyrir gert og því hafi reynst þarflaust að vera með bankastjóra.

Viðskipti innlent

Álver gæti brætt 50% jöklabréfanna

Hugmyndir um að leysa töluverðan hluta jöklabréfavandans með því að skipta þeim yfir í skuldabréf í dollurum sem Norðurál (Century Aluminium) myndi gefa út eru komnar lengra á skrið en áður var talið. Hægt væri að losa um 50% útistandandi jöklabréfa ef þessar hugmyndir verða að veruleika.

Viðskipti innlent

Lífeyrisréttindi skert um 10%

Samþykkt var í gær að lækka áunnin réttindi lífeyrisþega hjá lífeyrissjóðnum Gildi um 10%. Nafnávöxtun sjóðsins var neikvæð um 14,8% og raunávöxtun neikvæð um 26,7% á árinu 2008. Þetta kom fram þegar afkoma sjóðsins var kynnt á ársfundi í gær. Hrein eign til greiðslu lífeyris var tæpir 209 milljarðar króna í árslok og lækkaði um rúma 29 milljarða eða um 12,3% frá árslokum 2007.

Viðskipti innlent

Kaupmáttur launa jókst í mars

Kaupmáttur launa jókst um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hinsvegar lækkað um 8,4%. Kaupmáttarþróunina má að hluta til skýra með því að samkvæmt kjarasamningum aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka Atvinnulífsins sem undirritaður var þann 17. febrúar 2008 átti 13.500 króna hækkun launataxta að koma til framkvæmda þann 1. mars 2009. Þrátt fyrir að fyrir lægi samkomulag á milli aðila vinnumarkaðarins um frestun launahækkana komu þær til framkvæmda hjá hluta þeirra fyrirtækja sem aðild eiga að Samtökum atvinnulífsins.

Viðskipti innlent

Seðlabankinn lækkar dráttarvexti

Grunnur dráttarvaxta hefur lækkað um 1,5% frá síðustu dráttarvaxtaákvörðun úr 17,0% í 15,5%. Dráttavextir lækka því frá 1. maí 2009 um 1,5% verða 22,5% fyrir tímabilið 1. maí - 31. maí 2009.

Viðskipti innlent

Tryggingamiðstöðin tapaði 17,6 milljörðum í fyrra.

Tryggingamiðstöðin tapaði 17,6 milljörðum króna í fyrra. Hamfarir á fjármálamörkuðum setja mark sitt á afkomu félagsins. Tap vegna norska dótturfélagsins NEMI sem nú hefur verið selt, nam 12,1 milljarði króna og tap vegna innlendrar starfsemi TM nam 5,5 milljörðum króna. Þrátt fyrir afar erfiðar rekstraraðstæður á árinu 2008 er fjárhagsstaða TM sterk og eignir á móti vátryggingaskuld traustar.

Viðskipti innlent

Vaki fiskeldskerfi hlýtur Útflutningsverðlaunin

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti í dag fyrirtækinu Vaka fiskeldiskerfi hf. Útflutningsverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Það var Hermann Kristjánsson framkvæmdastjóri sem veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins.

Viðskipti innlent

Stofna eignastýringarfyrirtæki í Lúxemborg

Nokkrir af fyrrverandi starfsmönnum íslensku bankanna í Lúxemborg hafa nú stofnað nýtt eignastýringarfyrirtæki þar í landi. Að félaginu standa nokkrir fyrrverandi starfsmenn útibúa Landsbankans og Kaupþings í Lúxemborg en fyrirtækið hefur fengið starfsleyfi frá fjármálaráðuneytinu þar í landi. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.

Viðskipti innlent

Líf og fjör á skuldabréfamarkaðinum

Líflegt var á skuldabréfamarkaði í gær og sömu sögu má segja um það sem af er morgni. Alls nam veltan í ríkisbréfum og íbúðabréfum tæplega 7,1 milljarði kr. í gær og þegar þetta er ritað (kl.11:30 f.h.) er velta dagsins tæpir 3 milljarðar kr. í fyrrnefndu bréfunum en 1,5 milljarða kr. í þeim síðarnefndu.

Viðskipti innlent