Lífið

Sandra fékk bestu og verstu verðlaunin í gær

Sandra Bullock átti viðburðarríkan dag í gær því hún var valin besta leikkonan á Óskarsverðlaunahátíðinni fyrir leik sinn í myndinni The Blind Side. Það voru þó ekki einu verðlaun Söndru í gær því nokkrum klukkutímum áður en hún fékk verðlaunin eftirsóttu fékk hún önnur, minna eftirsótt.

Lífið

Kjólarnir á rauða dreglinum - myndir

Óskarsverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Hollywood í nótt. Eins og venjulega vakti klæðnaður stjarnanna mikla athygli þegar þær mættu á rauða dregilinn og voru þær hver annari glæsilegri.

Lífið

Saka Lady Gaga um græðgi

Aðdáendur söngkonunnar Lady Gaga eru bálreiðir þessa dagana eftir að miðar á tónleikaferð hennar hækkuðu um helming á nokkrum mánuðum. Þetta kemur fram í breska blaðinu The Sun í dag.

Lífið

Flaug til Íslands fyrir Fíusól

„Við erum óskaplega þakklátar Þjóðleikhúsinu fyrir að hafa tekið okkur svona vel. Þetta var alveg frábært,“ segir Þórunn Helga Traustadóttir. Hún fékk að vera viðstödd rennsli á leikritinu Fíasól, sem verður frumsýnt á næstunni, ásamt sjö ára barnabarni sínu Andreu Sólveigu Thierry-Mieg.

Lífið

Lokun vofir yfir Kattholti

„Ég segi kannski ekki að við séum að loka akkúrat núna. En ef þetta heldur svona áfram þá verður gengið á eigur Kattavinafélagsins og það finnst mér ekki rétt,“ segir Sigríður Heiðberg, framkvæmdastjóri Kattholts. Sigríður staðhæfir að ef Kattholti berist ekki aðstoð frá yfirvöldum við reksturinn sé raunveruleg hætta á að Kattholti verði lokað. „Við getum ekki rekið þetta áfram á þessum forsendum, Reykjavíkurborg borgar sjö daga fyrir óskiladýr, Mosfellsbær og Seltjarnarnes líka en önnur sveitarfélög greiða ekki neitt þótt við séum að taka við dýrum frá þeim. Og svo erum við að borga meira en eina milljón í fasteignagjöld á ári. Við ráðum einfaldlega ekki við þetta,“ segir Sigríður og bætir því við að efnahagskreppan hafi orðið til þess að verð á allri þjónustu hafi hækkað.

Lífið

Pókermót tekin upp fyrir sjónvarp á Íslandi

„Það er frábært fyrir hinn almenna pókeráhugamann að geta fylgst með mótum á Íslandi. Séð hendurnar sem verið er að spila og hvernig menn spila þær,“ segir Valur Heiðar Sævarsson, sem er í forsvari fyrir pókerklúbbinn 53.

Lífið

Ilmvatn frá Aniston

Leikkonan Jennifer Aniston sendir á næstunni frá sér nýtt ilmvatn sem hún hefur verið að undirbúa síðustu tuttugu mánuði. Nafn ilmvatnsins er ekki komið á hreint en líklegast er að það verði einfaldlega Aniston.

Lífið

Helena er hræddvið geðveikina

Breska leikkonan Helena Bonham Carter hefur verið þekkt fyrir leika utangarðspersónur sem dansa á línu heilbrigðrar skynsemi. Hún viðurkenndi í samtali við vefútgáfu Times að hún væri hrædd um að þurfa að takast á við geðsjúkdóm á einhverjum tímapunkti. „Geðveiki er arfgeng og ég veit að mamma mín, amma og langamma hafa þurft að glíma við geðsjúkdóma,“ sagði Helena en móðir hennar fékk taugaáfall þegar hún var 38 ára gömul. Helena viðurkennir jafnframt að hún hafi glímt við þunglyndi þegar hún var átján ára. „Ég kunni ekki við það, ég vissi ekkert hver ég var og hvert ég væri að stefna.“

Lífið

Boðið að sitja fyrir léttklædd - myndir

„Við höfum þekkst núna í tvö ár og verið í miklu sambandi mest allan tímann. Við höfum alltaf skemmt okkur mjög vel saman. Það skiptir í rauninni ekki máli hvað við erum að gera það er alltaf gaman," segir Kristrún Ösp Barkardóttir fyrirsæta spurð út í samband hennar við fótboltastjörnuna Dwight York.

Lífið

Gamla liðið í Leikhúskjallaranum - myndir

Leikhúskjallarinn opnaði aftur sem skemmtistaður í gærkvöldi eftir langt hlé. Fjöldi fólks sem stundaði staðinn á tímabilinu 1995 - 1999 fagnaði ærlega í gærkvöldi eins og myndirnar sýna. Rifjað var upp þegar Bjössi í World Class rak staðinn með 100 metra röð hverja einustu helgi. Þá spiluðu Siggi Hlö og Valli Sport vel valin lög í búrinu með troðfullt dansgólfið á meðan fjörið var rifjað upp við Langabar. Ef þú vilt komast í kjallarastemninguna í kvöld, laugardag, þá er hægt að nálgast boðsmiðann hér.

Lífið

40 kg fokin - myndband

Ólafur Ólafsson, tveggja barna faðir hefur lést um hvorki meira né minna en 40 kíló á fimm mánuðum. „Maður var hættur að geta hreyft sig," segir Ólafur í meðfylgjandi myndskeiði en hann borðar í dag almennan heimilismat samhliða æfingum hjá þjálfaranum Garðari Sigvaldasyni sem segir að að mataræðið sé númer eitt, tvö og þrjú.

Lífið

Sykurmolar kynna verðlaun

Sykurmolarnir fyrrverandi, Sigtryggur Baldursson og Margrét Örnólfsdóttir, verða kynnar á Íslensku tónlistarverðlaununum sem verða afhent í Íslensku óperunni 13. mars.

Lífið

Algjör Sveppi gerð í þrívídd

„Við erum með þetta á teikniborðinu núna, þetta gæti verið mjög spennandi,“ segir Bragi Þór Hinriksson leikstjóri og framleiðandi. Framhaldsmyndin Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið verður að öllum líkindum fyrsta íslenska kvikmyndin sem gerð verður með þrívíddartækni. Fyrsta myndin um Sveppa og ævintýri hans sló eftirminnilega í gegn í sumar en nú á að hugsa hlutina í stærra samhengi. „Þrívíddartæknin hefur gengið í gegnum mikla þróun undanfarin tvö ár og nú er svo komið að hún er orðin yfirstíganleg,“ segir Bragi kokhraustur.

Bíó og sjónvarp

Dóri Gylfa átti að vera Icesave-kallinn

„Ég var ráðinn í þetta djobb,“ segir leikarinn Halldór Gylfason. Fréttablaðið sagði í gær frá því að leikarinn Erling Jóhannesson hefði í maí árið 2008 verið ráðinn í auglýsingu fyrir Icesave-útibú Landsbankans í Hollandi. Erling átti að leika listamann í auglýsingunni, sem var aldrei framleidd, en Halldór Gylfason átti að leika aðalhlutverkið.

Lífið

Mick Jagger var með Jolie

Samkvæmt nýrri bók, Brad Pitt and Angelina: The True Story, áttu Angelina Jolie og Mick Jagger úr Rolling Stones í ástarsambandi. Fyrst byrjuðu þau að hittast þegar hún lék í tónlistarmyndbandi sveitarinnar við lagið Anybody Seen My Baby? árið 1997. Sambandið hélt síðan áfram árið 2003, heldur höfundur bókarinnar, Jenny Paul, fram.

Lífið

Klovn á hvíta tjaldið

Aðdáendur danska grínparsins Franks Hvam og Caspers Christiansen þurfa ekki að kvíða neinum þurrki. Danskir fjölmiðlar greina nefnilega frá því að félagarnir séu með stórt verkefni í smíðum.

Bíó og sjónvarp

Íslendingar fljótir að aðlagast nýjum heimkynnum

Katrín Dröfn Guðmundsdóttir, nemandi í þjóðfræði við Háskóla Íslands, og Valý Þórsteinsdóttir spænskufræðingur hafa farið af stað með verkefni sem snýr að Íslendingum búsettum erlendis. Verkefnið nefnist Íslendingar þvers og kruss og munu stúlkurnar taka viðtöl við Íslendinga sem búa erlendis og kanna meðal annars hvernig þeir hafa aðlagast nýrri menningu og hvaða hefðir þeir hafa tekið með sér að heiman.

Lífið

Íranskar frelsishetjur vilja sjá Sigur Rós

Í kúrdísku heimildarmyndinni Nobody Knows About the Persian Cats eftir Bahman Ghobadi kemur fram að aðalsöngvari einhverrar fremstu indí-sveitar Írans, Take it Easy Hospital, þráir ekkert heitar en að sjá Sigur Rós á sviði á Íslandi. Til að setja þetta í samhengi er rétt að geta þess að indí-rokk og önnur vestræn tónlist er stranglega bönnuð í klerkaríkinu og hljómsveitarmeðlimir þurfa að fara huldu höfði þegar þeir leika tónlist sína á opinberum vettvangi.

Lífið

Grunge-gaur á HönnunarMars

Hönnunarhátíðin HönnunarMars fer fram í annað sinn dagana 18.-21. mars. Hátíðinni er ætlað að vekja athygli á íslenskum hönnuðum. Aðalgestur hátíðarinnar verður Bandaríkjamaðurinn og grafíski hönnuðurinn David Carson.

Lífið

Timberlake og frú fóru í frí til Sviss

Hjartaknúsarinn Justin Timberlake ákvað að breyta viðskiptaferð sinni til Sviss í rómantíska helgarferð með kærustu sinni, Jessicu Biel. Timberlake og Biel komu sér fyrir í Genf en Justin var þar sem sendiherra bílaframleiðandans Audi. Svo skemmtilega vildi til að Biel átti 28 ára afmæli um þessa helgi og sáust þau í innilegum faðmlögum á einni af göngugötum borgarinnar. Auk þess ákváðu þau að splæsa í eina sleðaferð í smábænum Verbier og virtust ekki sjá sólina fyrir hvort öðru.

Lífið

Ekki hættur að drekka

Keith Richards, gítarleikari Rolling Stones, hefur vísað á bug fregnum um að hann sé hættur að drekka áfengi. „Orðrómurinn um að ég sé orðinn allsgáður er stórlega ýktur. Við skulum bara láta þar við sitja,“ sagði Richards í viðtali við tímaritið Rolling Stone. Hann bætir við að ný plata frá Stones sé hugsanlega á leiðinni. „Það kæmi mér ekki á óvart ef við tækjum eitthvað upp seinna á árinu.“ Stór tónleikaferð um heiminn virðist þó ekki vera í undirbúningi. „Það er ekkert víst að við spilum aftur á fótboltaleikvöngum. Kannski prófum við eitthvað nýtt,“ sagði hann.

Lífið

Sakaður um ritstuld

Kínverski rithöfundurinn Zhou Shaomou hefur höfðað mál gegn James Cameron, leikstjóra stórmyndarinnar Avatar. Hann segir að 80 prósent söguþráðarins í Avatar séu fengin úr vísindaskáldsögu sinni, Tale of the Blue Crows frá árinu 1997 og krefst tæplega tveggja milljarða króna í skaðabætur. „Bókin fjallar um ferðalag sex geimfara til fjarlægrar plánetu þar sem bláar verur ráða ríkjum,“ sagði Zhou. „Í bókinni stendur að ferðalagið hafi tekið sex ár en í mynd Camerons tekur hún fimm ár, níu mánuði og 22 daga. Ég var mjög undrandi þegar ég komst að þessu.“ Það tók Zhou sjö ár að semja bókina og segir hann að yfir tíu milljónir manna hafi lesið hana á Netinu.

Lífið

Snoop má fara til Bretlands

Bandaríski rapparinn Snoop Dogg hefur unnið fullnaðarsigur í fjögurra ára baráttu sinni fyrir því að fá að snúa aftur til Bretlands. Stjórnvöld í Bretlandi settu honum stólinn fyrir dyrnar eftir átök á Heathrow-flugvelli árið 2006.

Lífið

Danir hugga Cheryl Cole

Það voru danskir áhorfendur í danska X-Factornum sem voru þeir fyrstu til að sjá enska söngfuglinn Cheryl Cole koma opinberlega fram eftir að stoðirnar hrundu undan hjónabandi hennar og knattspyrnukappans Ashley Cole. Cheryl flúði Bretland eftir að breskir fjölmiðlar grófu upp ástarævintýri eiginmannsins með ókunnugum stúlkum. Nektarmyndir úr símum hans og dónaleg sms-skilaboð voru birt á forsíðum helstu dagblaðanna og að endingu ákvað Cheryl að binda enda á hjónabandið með stuttu smáskilaboði.

Lífið

Vill taka við af Cowell

Christopher Ciccone, bróðir söngkonunnar Madonnu, hefur sett af stað herferð um að hann taki við af Simon Cowell sem dómari í þáttunum American Idol. Eins og kunnugt er hættir Cowell eftir þessa þáttaröð og snýr sér að X-Factor. „Ég held að fólk myndi taka mikið mark á mér. Ég yrði eina manneskjan við borðið sem hefur búið til poppstjörnu og hjálpað henni að halda sér á toppnum í tuttugu ár. Ég veit hvað þarf til að slá í gegn,“ sagði Ciccone, sem hefur verið systur sinni til halds og trausts í gegnum árin.

Lífið

Tónleikar í London

Tónlistarkonan Elíza Newman spilar á tvennum tónleikum í London dagana 11. og 16. mars. Fyrri tónleikarnir verða órafmagnaðir á Troy Bar og hinir síðari verða með hljómsveit á Buffalo Bar. Elíza mun spila lög af nýjustu plötu sinni Pie in the Sky sem kom út um síðustu jól og verður gefin út í Bretlandi í vor. Platan var tekin upp í London og á Íslandi með hjálp upptökustjórans Gísla Kristjánssonar. Á henni eru tíu lög, þar á meðal hin vinsælu Ukulele Song For You og Hopeless Case.

Lífið