Lífið

Íslendingar á The Great Escape

Hljómsveitin Retro Stefson og tónlistarkonurnar Lára Rúnarsdóttir og Ólöf Arnalds koma fram á tónlistarhátíðinni The Great Escape í Brighton á Englandi í næstu viku.

Lífið

Svölustu sportbílar framtíðar

Hönnuðir helstu sportbílaframleiðanda heims keppast um að hanna framúrstefnulegastu sportbíla heims nú sem aldrei fyrr. Í meðfylgjandi myndasafni gefur að líta margt af því ferskasta sem er í gangi hjá sportbílahönnuðum meðal annars frá; Benz, BMW, Ferrari, Audi, Porsche, Lexus, Mazda, Saab og Range Rover. Margir þessara bíla er komnir af hugmyndastiginu og í hendurnar á heppnum eigendum.

Tíska og hönnun

Lady Gaga vísar guðlasti á bug

Lady Gaga-maskínan virðist eitthvað vera farin að hiksta. Eftir fáránlega velgengni að undanförnu hefur nýjasta efninu hennar verið tekið fremur fálega. Og nýjasta myndbandið hennar virðist ekki ætla að valda þeim deilum sem lágu í loftinu.

Lífið

Glamúrgellur í kvikmyndaleik

Tökur á undirheimakvikmyndinni Svartur á leik eru hafnar. Myndin byggir á samnefndri bók Stefáns Mána um undirheimana í Reykjavík, eiturlyf, handrukkanir og kynlíf.

Lífið

Selja fötin á frábæru verði

Undanfarin misseri hefur mikið borið á því að smekklegustu skutlur bæjarins hreinsa út úr fataskápum sínum og slá til fatamarkaðar. Þessi helgi er engin undantekning. Í dag milli 13 og 17 fer fram fatamarkaður í portinu á Prikinu þar sem Erna Bergmann, Svala Lind og Anna Soffía standa vaktina.

Lífið

Clooney í góðu næði

Þrátt fyrir að George Clooney sé án nokkurs vafa ein allra stærsta kvikmyndastjarnan um þessar mundir tekst honum af og til að halda sig fjarri sviðsljósinu. Þannig varð leikarinn fimmtugur í gær en í stað þess að halda upp á afmælið með glæsilegri veislu og frægum vinum bauð hann kærustu sinni, Elisabettu Canalis, í lágstemmdan kvöldverð á kínverska veitingastaðnum Mr. Chow í miðbæ Los Angeles.

Lífið

Cheryl Cole ráðin dómari

Enska poppstjarnan Cheryl Cole hefur verið ráðin í dómarastarf í bandarísku útgáfunni af X Factor sem hefur göngu sína síðar á árinu. Cole er 27 ára söngkona stúlknabandsins Girls Aloud. Hún hefur sinnt dómgæslu í síðustu þremur þáttaröðum af X Factor í heimalandi sínu. Tökur á nýju þáttaröðinni hófust á föstudag. "Ég er virkilega spennt yfir því að taka þátt í bandarísku útgáfunni af X Factor,“ sagði Cole. Aðrir í dómnefndinni verða Simon Cowell og upptökustjórinn fyrrverandi Antonio LA Reid. "Ég er virkilega ánægður fyrir hönd Cole,“ sagði Cowell.

Lífið

Brjáluð í súkkulaði

Leikkonan Eva Mendes er brjáluð í súkkulaði og gerir hvað sem er til að fá skammtinn sinn. „Ég myndi borða viðarborð ef það væri súkkulaðihúðað. Ég er sjúk í smákökur, frauð og allt sem tengist súkkulaði,“ sagði hún. „Ef ég fæ mér þá refsa ég mér ekki fyrir það. Ég reyni frekar að njóta þess.“ Mendes, sem er 37 ára, reynir að minnka við sig í kaloríum á öðrum sviðum ef hún fær sér súkkulaði. „Ég reyni að borða eins marga ferska ávexti og eins mikið grænmeti og mögulegt er.“

Lífið

Sexý og svalar konur hjá Gucci

Tískuhúsið Gucci kynnti á dögunum tískuna fyrir næsta haust. Yfirhönnuður þessarar línu hjá Gucci er 39 ára ítalskur fatahönnuður Frida Giannini. Hún tók við sem yfirhönnuður skömmu eftir að Bandaríkjamaðurinn Tom Ford lét af störfum fyrir Tískuhús Gucci en hún starfaði áður sem einn af aðstoðarmönnum hans. Tískuhús Gucci er eitt það stærsta í bransanum. Frida hafði það að markmiði að hanna föt fyrir konur sem þora að vera sexý og svalar. Þetta endurspeglast vel á módelunum sem klæðast þessum ofursvala og sexý fatnaði á myndunum í meðfylgjandi myndasafni. Í myndasafninu má einnig sjá þennan glæsilega yfirhönnuði Gucci, Fridu Giannini.

Tíska og hönnun

Kex hostel opnar í Reykjavík

Knattspyrnukappinn Pétur Hafliði Marteinsson, athafnamaðurinn Kristinn Vilbergsson, handboltahetjan Dagur Sigurðsson og fleiri opnuðu gistiheimilið Kex hostel formlega í gær en það er staðsett í húsnæðinu sem eitt sinn hýsti kexverksmiðjuna Frón við Skúlagötu.

Lífið

Hera er opinber söngkona Mr. Gay World USA

„Ég vona að þetta vindi upp á sig. Þetta er besti bransinn til að byrja í því þetta eru „trendsetterarnir“,“ segir söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir. Hera er sjóðandi heit í heimi samkynhneigðra í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hún er opinber söngkona keppninnar Mr. Gay World USA og lag hennar, Je Ne Sais Quoi, er lag keppninnar. Undankeppnir hefjast víða um Bandaríkin í júní og Hera kemur fram á einhverjum þeirra. Þá kemur hún fram í lokakeppninni í janúar á næsta ári.

Lífið

Fjallabræður undirbúa plötu

Vestfirski stuðkórinn Fjallabræður er að undirbúa nýja plötu sem kemur út fyrir næstu jól ef allt gengur að óskum. Fyrsta plata Fjallabræðra kom út fyrir tveimur árum og hefur hún selst mjög vel, eða í um fimm þúsund eintökum. Kórinn syngur á þjóðhátíð í Eyjum í annað sinn í röð í sumar en hefur annars hægt um sig. Kórstjórinn Halldór Gunnar Pálsson á góðar minningar frá síðustu þjóðhátíð. „Það var alveg geðveikt. Við vorum í jakkafötunum í átján klukkutíma," segir hann hress.

Lífið

Rómantískt hús með sérstöðu

Ástralski arkítektinn Fitt De Felice hannaði þetta hús fyrir fjölskyldu sem óskaði eftir einföldu notalegu einbýlishúsi. Fjölskyldan lagði áherslu á það að húsið væri hlýlegt, nútímalegt en jafnframt notalegt. Hönnuðurinn notar margvísleg náttúruleg efni og lýsingu til þess að skapa rómantíska stemningu í þessu fallega rými. Loftið er ólíkt á milli herbergja sem gefur hverju rými sérstöðu sem er óvenjulegt því algengast er í hönnun nútímalegra einbýlishúsa að upplifunin sé sú að rýmið sé opið og flæði um allt húsið. Sérstaðan þarna virkar vel þar sem hvert rými hefur sinn sérstaka karakter og upplifun hvers herbergis þannig einstök.

Tíska og hönnun

Kryddpía eignast annan son

Breska kryddpían, söngkonan Emma Bunton, 35 ára, eignaðist son í dag. Bæði móður og syni heilsast vel en hún sendi eftirfarandi tilkynningu til fjölmiðla: Fallegi sonur okkar, Tate, er mættur heilbrigður í þennan heim. Við erum öll svo ánægð og spennt. Þakkir og ást til ykkar allra. Faðir drengsins er unnusti hennar, breski söngvarinn Jade Jones. Saman eiga þau soninn Beau fyrir.

Lífið

Ólafur Gaukur fámáll um tengdasoninn

"Ég má ekkert segja,“ sagði Ólafur Gaukur þegar Vísir hafði samband við hann en dóttir hans, Anna Mjöll, giftist bandaríska auðkýfingnum Cal Worthington í apríl. Hann hagnaðist gríðarlega á bílasölu en á milli þeirra er allnokkur aldursmunur. Cal er fæddur árið 1920 á meðan Anna Mjöll er fædd 1970. Það eru því fimmtíu ár á milli þeirra.

Lífið

Fagurt er í Hörpu

Fyrstu tónleikar Sinfóníunnar í Hörpu lofuðu góðu. Tónlistarflutningurinn var magnaður og hljómburðurinn flottur. Ég held að það sé ljóst að Harpa er vel heppnað tónleikahús, að minnsta kosti stóri salurinn. Ég óska okkur öllum til hamingju með stórkostlegan áfanga í menningarlífinu á Íslandi.

Gagnrýni

Hönnunarmerkið bARBARA í gONGINI

Tískuverslunin GK Reykjavík hefur nýverið tekið að selja hönnun bARBÖRU í gONGINI og ætti það að vera mikið fagnaðarefni fyrir áhugafólk um skandinavíska hönnun. Ása Ninna Pétursdóttir, sem rekur GK Reykjavík ásamt sambýlismanni sínum, Guðmundi Hallgrímssyni, sýnir brotabrot af hönnun bARBÖRU í gONGINGI í meðfylgjandi myndskeiði. Hönnunarmerkið bARBARA í gONGINI var á meðal þeirra skandinavísku tískumerkja sem sýndu línur sínar á nýyfirstaðinni tískuviku í Kaupmannahöfn. Merkið er upprunalega frá Færeyjum en hefur aðsetur í Kaupmannahöfn og þykir hönnun þess dökk og framúrstefnuleg.

Tíska og hönnun

Mikið rétt sætu stelpurnar hittust í gær

Meðfylgjandi myndir voru teknar í höfuðstöðvum Aveda á Íslandi í Borgartúni í gærkvöldi þar sem fjöldi hárgreiðslukvenna kom saman á svokölluðu Mini master djamm móti þar sem stofurnar Unique hár og spa og 101 Hárhönnun kynntu það nýjasta frá Aveda í hár og litun.

Lífið

Einbýlishúsin verða varla djarfari

Þetta djarfa einbýlishús var byggt á síðasta ári í Bandaríkjunum. Húseigandinn vildi hús hannað af framúrstefnulegri dirfsku en án þess að það yrði tilgerðarlegt í vísindaskáldsögustíl. Það verður ekki annað sagt en að vel hafi tekist til í hönnuninni á þessu sérkennilega svarta húsi sem sker sig með afgerandi hætti frá villtri náttúrunni sem umlykur þessa framúrstefnulegu hönnun. Einfalt og smekklegt hús sem sýnir svo sannarlega hvernig tiltölulega djörf hönnun nýtur sín vel á sátt við náttúruna á þessum einstaklega fagra stað.

Tíska og hönnun

Depp vill taka því rólega

Þrátt fyrir að enn eigi eftir að frumsýnda sjóræningjamyndina Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides er framleiðandinn Disney þegar farinn að skipuleggja fimmtu myndina í seríunni. Johnny Depp, sem leikur sjóræningjann Jack Sparrow, vill samt ekki fara of geyst í málin og vill helst bíða í smá tíma.

Lífið

Tölvuleikur eftir íslenskri teiknimynd fær risastyrk

Tölvuleikur byggður á tölvuteiknimyndinni Hetjur Valhallar – Þór sem teiknimyndafyrirtækið CAOZ er nú að klára fer vænatanlega á netið á næsta ári. Hann verður hlutverkaleikur, ætlaður börnum og verður aðalmarkaðssvæðið Norðurlöndin og Þýskaland. Tölvuleikurinn fékk nýverið styrk úr evrópska MEDIA-sjóðnum upp á 24 milljónir íslenskra króna, en það þykir mikill gæðastimpill að fá slíkan styrk úr áðurnefndum sjóði. Þegar hefur verið gerður símaleikur fyrir i-Phone síma um Þór þrumuguð en eins og gefur að skilja er þessi netleikur mun stærri í sniðum.

Lífið

Kynnumst aðeins gamla manninum

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá fróðlegt viðtal við eiginmann söngkonunnar Önnu Mjallar Ólafsdóttur, Cal Worthington, sem er kunnur bílasali. Cal lítur til fortíðar í viðtalinu og rifjar upp forvitnilega hluti sem hann hefur upplifað á sinni löngu ævi en Cal er fimmtíu árum eldri en Anna Mjöll. Gamli maðurinn er hress miðað við aldur og syngur meðal annars í myndskeiðinu.

Lífið

Lygilega sniðug augnmálning

Margrét Friðriksdóttir förðunarfræðingur gerir vægast sagt magnaða hluti með því að nota XOXO förðunarpakkann á andlit Írisar Bjarkar Jóhannesdóttur ungfrú Reykjavík 2010 eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Margrét farðar annað augað á Írisi á mettíma. Sjón er sögu ríkari.

Lífið

Fastur í fljótabát og aðeins fimm dagar eftir

Nú er aldeilis farið að síga á seinni hluta ferðalags Sighvats Bjarnasonar umhverfis jörðina á 80 dögum. Hann er búinn að vera 75 daga á leiðinni og þarf að hafa sig allan við til að ná niður til Ríó og fljúga heim til Íslands.

Lífið