Lífið
Trommari Sykurmolanna: Cyndi Lauper átti nokkuð góð lög "Hún átti nú nokkuð góð lög, kerlingin. Ég hlustaði nú samt ekki mikið á hana á sínum tíma. Ekki það að ég sé svo mikill hrokagikkur. Ég hafði bara önnur áhugamál,“ segir trommuleikarinn og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson um bandarísku söngkonuna Cyndi Lauper, sem hélt fyrstu tónleikana á Evróputúr sínum í Hörpu í gærkvöld. Tónlist 13.6.2011 15:45
Longoria fallin fyrir unglambinu Desperate Housewives stjarnan, Eva Longoria, 36 ára, og kærastinn hennar Eduardo Cruz, 25 ára, gengu hönd í hönd í gegnum LAX flugvöllinn í Los Angeles. Þá var parið myndað á lúxussnekkju á Spáni þar sem þau létu vel að hvort öðru. Lífið 13.6.2011 15:15
Tengdó sátt við Bieber Leikkonan Selena Gomez mætti í viðtal til Jay Leno á dögunum, en þar var hún meðal annars spurð út í samband sitt og Justins Bieber. Leno spurði hana meðal annars að því hvort móðir leikkonunnar hefði hitt Bieber. Gomez svaraði því játandi og þegar hún var innt eftir því hvernig mömmu hefði líkað nýi tengdasonurinn svaraði stúlkan: "Hann stóðst prófið.“ Lífið 13.6.2011 15:15
Úfið hár og eftirminnilega þröngur galli Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá söngkonuna Jennifer Lopez, 41 árs, flytja lagið On the floor, í breska sjónvarpsþættinum So You Think You Can Dance, með hárið áberandi úfið klædd í eftirminnilega þröngan galla sem fer henni þetta líka afburða vel. Þá má sjá myndir af Jennifer á hlaupum fyrir utan hótelið sitt, á rauða dreglinum uppástrílaða í klikkuðum stígvélum og í notalegum gráum íþróttagalla ómálaða með hárið tekið í tagl. Sjá myndirnar hér. Lífið 13.6.2011 14:17
Haustlína Jil Sander 2011 Í meðfylgjandi myndasafni má skoða haustlínu Jil Sander 2011. Tíska og hönnun 13.6.2011 13:57
Cyndi Lauper dýrkaði Sykurmolana "Ég veit ekki mikið um Ísland, en mig hefur alltaf langað til að heimsækja landið. Þegar umboðsmaðurinn minn lét mig vita að það væri möguleiki á að halda tónleika á Íslandi varð ég mjög ánægð," segir bandaríska söngkonan Cyndi Lauper, sem hélt fyrstu tónleikana á Evróputúr sínum í Hörpu í gærkvöld. Tónlist 13.6.2011 12:15
Pippa vildi verða módel Pippa Middleton reyndi fyrir sér sem fyrirsæta þegar hún var við nám í Edinborgar-háskólanum. Hún kom fram á svipaðri góðgerðasýningu og systir hennar gerði þegar hún fangaði hug og hjarta Vilhjálms Bretaprins. Lífið 13.6.2011 12:00
Ánægð með Clooney Elisabetta Canalis segist vera afskaplega hamingjusöm með leikaranum George Clooney og að ekkert sé hæft í sögusögnum um sambandsslit þeirra. Lífið 13.6.2011 09:00
Styrktartónleikar félags flogaveikra Árlegir styrktartónleikar LAUF, félags flogaveikra, verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík annað kvöld og mun allur ágóði tónleikana renna til styrktar félagsins. Menning 12.6.2011 22:26
Steed Lord í So You Think You Can Dance Við urðum að skrifa undir rosa samning við Fox og gefa löglegt leyfi fyrir not af laginu okkar og gerðum það alveg fyrir tveimur mánuðum síðan. Við gáfum leyfi fyrir tveimur öðrum Steed Lord lögum sem verða í þættinum seinna eftir nokkrar vikur, svarar Svala Björgvinsdóttir söngkona hljómsveitarinnar Steed Lord sem búsett er í Los Angeles en lag sveitarinnar, Vanguardian, var notað í þættinum í vikunni. Lagið er af plötunni okkar Heart II Heart sem kom út í fyrra. Það hefur fengið góðar viðtökur út um allt og við höfum verið að spila það live mjög lengi út um allan heim, segir Svala. Það horfa margar milljónir á þennan þátt þannig að þetta er bara góð auglýsing fyrir bandið. Okkar tónlist er notuð mikið í bandarískum sjónvarpsþáttum og er til dæmis mikið í þáttum á stöðvum einsog MTV, V-H1 ,E Channel, Bravo og fleiri stöðvum. Fox stöðin sem er með So You Think You Can Dance styður mikið við bakið á þeim tónlistarmönnum sem gefa leyfi á tónlist sinni fyrir þættina og það er bara frábært fyrir okkur og opnar allskyns dyr, segir hún jafnframt og heldur áfram: Svo er hún Sonya Tayeh,danshöfundur, sem notar tónlistina okkar í þættina og hún vann að myndbandinu okkar 123 sem kom út fyrir fjórum mánuðum síðan og vann einnig með okkur að nýju myndbandi sem er að koma út í júlí. Hún er náin vinur okkar og það er bara rosalega gaman að okkar vinkona sé að semja svona flotta dansa við tónlistina okkar. Vefsíða Steed Lord. 1. Já auðvitað vissum við af þessu,við urðum að skrifa undir rosa samning við Fox og gefa löglegt leyfi fyrir not af laginu okkar og gerðum það alveg fyrir 2 mánuðum síðan. Við gáfum leyfi fyrir 2 öðrum Steed Lord lögum sem verða í þættinum seinna eftir nokkrar vikur. 2. Lagið sem var notað í gær er lag sem heitir Vanguardian og var af plötunni okkar Heart II Heart sem kom út í fyrra. Það hefur fengið góðar viðtökur út um allt og við höfum verið að spila það live mjög lengi út um allan heim. 3. Það horfa margar milljónir á þennan þátt þannig að þetta er bara góð auglýsing fyrir bandið. Okkar tónlist er notuð mikið í bandarískum sjónvarpsþáttum og er til dæmis mikið í þáttum á stöðvum einsog MTV,V-H1,E Channel,Bravo og fleiri stöðvum. Fox stöðin sem er með So You Think You Can Dance styður mikið við bakið á þeim tónlistarmönnum sem gefa leyfi á tónlist sinni fyrir þættina og það er bara frábært fyrir okkur og opnar allskyns dyr. Svo er hún Sonya Tayeh,danshöfundur, sem notar tónlistina okkar í þættina og hún vann að myndbandinu okkar 123 sem kom út fyrir 4 mánuðum síðan og vann einnig með okkur að nýju myndbandi sem er að koma út í júlí. Hún er náin vinur okkar og það er bara rosalega gaman að okkar vinkona sé að semja svona flotta dansa við tónlistina okkar. Takk takk fyrir að hafa áhuga á þessu Ellý...kann að meta það :) Hugs Svala Lífið 12.6.2011 11:27
Lífið býður í bíó Lækaðu Facebook síðu Lífsins og póstaðu bíóleiknum á Facebooksíðunni þinni ef þú vilt eiga möguleika á að vinna tvo miða á kvikmyndina SUPER 8 sem verður frumsýnd 15. júní í Sambíóunum. Meðfylgjandi má sjá myndir af Tom Cruise, sem mætti á frumsýningu Super 8 í Los Angeles til að styðja leikstjóra myndarinnar og vin sinn J.J. Abrams en hann leikstýrði Mission Impossible III. Steven Spielberg framleiðir myndina. Tom stillti sér upp með Elle Fanning, sem leikur Alice, í Super 8, en hún er búin að skapa sér nafn í Hollywood þrátt fyrir að vera aðeins 13 ára gömul. Skráðu þig í bíóleik Lífsins hér. 10 bíómiðar eru í verðlaunapottinum. Lífið 12.6.2011 10:05
Toppaði eigið brúðkaup með óléttufréttum Söngkonan Lily Allen giftist Sam Cooper í gær. Eins og sjá má var brúðurin, 26 ára, geislandi fögur í hvítum kjól síðum blúndukjól eftir franska hönnuðinn Delphine Manivet sem fór henni afskaplega vel og þá sér í lagi af því að hún er barnshafandi en nýgift hjónin tilkynnti fjölskyldu og vinum eftir athöfinina að Lily er gengin 16 vikur á leið með barnið þeirra. Það var virkilega tilfinningaþrungin stund þegar þau sögðu frá gleðitíðindinunum því Lily hefur tvisvar gengið í gegnum fósturmissi, fyrst sárið 2007 og síðan aftur árið 2010 sökum blóðeitrunar. Lily, sem ber nú eftirnafnið Cooper, ætlar að taka það rólega yfir meðgönguna og fara einstaklega vel með sig. Lífið 12.6.2011 09:45
J-Lo baðaði sig upp úr hænsnablóði Jennifer Lopez giftist þjóninum Ojani Noa í byrjun árs 1997 og entist hjónabandið í heilt ár. Eiginmaðurinn hefur þó ekki alveg horfið úr lífi Lopez því hann veitir enn viðtöl um tíma þeirra saman. Lífið 12.6.2011 09:30
Hætt að selja stolinn Hugleiksbol „Ég man ekki eftir að hafa rekist áður á að einhver sé að taka myndirnar mínar í leyfisleysi og setja á boli,“ segir listamaðurinn Hugleikur Dagsson. Lífið 12.6.2011 09:00
Kalt hús í steikjandi hitanum Meðfylgjandi má sjá glæsilegt hús í Aigina í Grikklandi hannað af arkitektinum Helen Sfakianaki. Eins og sjá má í myndasafni kjósa íbúar hússins að kæla sig niður í miðhlutanum, eða öllu heldur í skugganum þar sem gluggar hússins eru færanlegir. Bæði lag og útlit hússins harmonerar afskaplega vel við hlýtt loftslagið og fagurblátt hafið. Sjá myndir hér. Tíska og hönnun 12.6.2011 02:18
Halda skilnaðarpartý Rokkarinn Jack White og eiginkona hans, módelið Karen Elson, ætla að halda veislu fyrir sína nánustu, bæði til að fagna sex ára brúðkaupsafmæli sínu og svo skilnaðinum sem þau ganga nú í gegnum. Lífið 11.6.2011 18:27
Tónleikahaldari leitar sátta við lögreglu „Þetta kom flatt upp á mig, ég man ekki eftir því að þetta hafi verið gert áður. Maður skyldi ætla að það væri hægt að líta fram hjá þessu þegar svona stórir tónleikar fara fram. Ég veit ekki alveg hvaða tilgangi þetta þjónar, þetta virkar á mig eins og fjáröflun,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson tónleikahaldari. Hann er ósáttur við aðgerðir lögreglunnar á tónleikum Eagles á fimmtudagskvöld, en fjöldi fólks fékk sekt fyrir að leggja ólöglega fyrir utan Laugardalshöllina. Lífið 11.6.2011 16:30
Fjölmennt á Skjaldborg á Patreksfirði Meðfylgjandi myndir voru teknar á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, sem var sett í fimmta sinn í gærkvöldi á Patreksfirði. Við setningarathöfnina var klukkan færð fram um eina klukkstund og tekinn upp sumartími eða Skjaldborgartími öllu heldur. Opnunarmynd hátíðarinnar var heimildamyndin Jón og séra Jón eftir Steinþór Birgisson. Myndin fjallar um Jón Ísleifsson prest á Vestfjörðum. Yfir tuttugu nýjar íslenskar heimildamyndir verða frumsýndar á hátíðinni. Heiðursgestur Skjaldborgar í ár er Ómar Ragnarsson. Hátíðinni lýkur á sunnudagskvöld þegar áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, Einarinn, verða afhent. Fjölmennt er á Patreksfirði í tilefni af hátíðinni. Lífið 11.6.2011 16:23
Hrá steypan nýtur sín þarna Meðfylgjandi má skoða hús í Schliersee í Þýskalandi. Við byggingu hússins var lögð rík áhersla á einfaldleikann. Eins og sjá má er flæðið gott í húsnæðinu þar sem viðurinn mætir steypunni á ljómandi fallegan hátt. Tíska og hönnun 11.6.2011 13:53
Kate Winslet fótósjoppuð í tætlur Leikkonan Kate Winslet, 35 ára, auglýsir haustlínu St. John í ár en fyrsta myndin úr herferðinni þar sem Kate situr fyrir í svörtum kjól stórglæsileg að vanda hefur verið birt. Ég læt eins og ég sé fyrirsæta þegar ég klæðist fötunum þeirra en ég er augljóslega ekki fyrirsæta. Ég er ekki með rétta fyrirsætu-andlitið eða líkamslögunina, sagði Kate. Þá má sjá Kate með hárið í tagl, ómálaða á hlaupum um götur New York borgar í vikunni og auglýsingamyndir þar sem leikkonan er fótósjoppuð með aðstoð tölvutækninnar. Lífið 11.6.2011 12:58
Bloggarar ráða ekki hvað er í sjónvarpinu "Ég er mjög sáttur við útkomuna,“ segir Gestur Valur Svansson, leikstjóri gamanþáttanna Tríó sem voru frumsýndir á RÚV á fimmtudagskvöld. Tríó virðist ætla að vekja misjöfn viðbrögð hjá almenningi. Á fréttablogginu Fréttir af Facebook á Eyjunni voru tekin saman neikvæð ummæli úr ýmsum áttum í kjölfar frumsýningar þáttarins. Kvikmyndagerðarmaðurinn Gagga Jónsdóttir bað RÚV til dæmis um að endurgreiða sér afnotagjöldin með millifærslu. Lífið 11.6.2011 11:00
Íslendingar með í nýju evrópsku milljarðalottói Tuttugu lottófyrirtæki í tíu Evrópulöndum skrifuðu hinn 7. júní síðastliðinn undir samstarfssamning um að byrja með nýtt lottó undir nafninu Euro Jackpot. Vinningsupphæðin í nýja lottóinu yrði aldrei lægri en tíu milljónir evra, eða 1,7 milljarðar íslenskra króna. Hann gæti þó orðið allt að níutíu milljónum evra, eða tæpir fimmtán milljarðar íslenskra króna. Löndin tíu eru Þýskaland, Holland, Danmörk, Ísland, Noregur, Slóvenía, Finnland, Eistland, Ítalía og Spánn. Samtals búa um 200 milljónir manna í þessum löndum. Lífið 11.6.2011 10:00
Smálúða á la KEA Sigurbjörn Benediktsson kokkur á Hótel Kea á Akureyri opnaði eldhúsið fyrir okkur og eldaði dýrindis máltíð sem samanstendur af smálúðu, humar og kartöflum. Þá gerir hann einnig holla og bragðgóða skyrsósu sem svíkur engann. Matur 11.6.2011 09:25
Þessi er dúndur eftir ræktina (heilsudjús) Meðfylgjandi myndir af leikkonunni Scarlett Johansson, 26 ára, með grænleitan drykk í hendi yfirgefa líkamsræktina voru birtar á Visi í gær þar sem spurt var hvaða ógeðsdrykk leikkonan neytti. Solla Eiríks, eigandi veitingahússins Gló, skoðaði myndirnar af Scarlett og gaf okkur upp uppskrif af ljúffengum hollustudrykk sem lítur eins út og umræddur drykkur leikkonunnar. Grænn ofursjeik 250 ml kókosvatn 50g spínat ¼ lime eða sítróna, afhýdd 2 cm biti fersk engiferrót ½ tsk grænt duft ½ tsk bee pollen ½ - 1 avókadó, afhýtt ½ dl möndlur eða kasjúhnetur 1 msk lucuma- þurrkaður ofurávöxtur sem fæst í heilsubúðum (má sleppa) Setjið allt í blandara og blandið vel saman. Þessi er fullkomin máltíð eftir ræktina, segir Solla. Lífið 11.6.2011 09:15
Kanye West og Mary-Kate náin Kanye West hélt upp á 34 ára afmælið sitt á miðvikudaginn. Rapparinn sást skemmta sér á næturklúbbnum Submercer í New York og tóku gestir eftir því að hann var farinn að eiga óvenju náin kynni við unga stúlku á klúbbnum. Stúlkan umrædda reyndist síðan engin önnur en Olsen-tvíburinn Mary-Kate. Á þeim skötuhjúum er tíu ára aldursmunur. Lífið 11.6.2011 09:00
Gera myndband fyrir ítalska pönksveit Hrefna Hagalín og Kristín Bára Haraldsdóttir reka saman framleiðslufyrirtækið Krúnk, sem sá um framleiðslu tónlistarmyndbands ítölsku pönksveitarinnar The Minnies. Lífið 11.6.2011 08:00
Tarantino leitar til Leonardo DiCaprio Ljóst er að bandaríski leikstjórinn Quentin Tarantino hyggst ekki svíkja aðdáendur sína með nýjustu mynd sinni. Hann hefur nú leitað til Leonardo DiCaprio í þeirri von að leikarinn taki að sér aðalhlutverkið í nýjustu kvikmynd hans, Django Unchained. Lífið 10.6.2011 20:30
Lætur gott af sér leiða Lady Gaga vill veita aðdáendum sínum innblástur, nú þegar tónlistardraumur hennar hefur ræst. Gaga er orðin eitt mesta tónlistargoð veraldar og finnst nú að hún þurfi að sinna skyldum sínum í að hvetja aðdáendur sína áfram. „Draumar mínir hafa ræst. Nú er helsti draumur minn að hvetja aðra áfram. Ég vil að aðdáendur mínir nái eins langt og þeir vilja.“ Lífið 10.6.2011 19:30
Tónleikar á Yankee-leikvangi Bítillinn Paul McCartney er enn og aftur á leiðinni í tónleikaferðalag um heiminn og hyggst koma fram á Yankee-leikvanginum í New York 15. júlí. Verða þetta fyrstu tónleikar McCartney á þessum sögufræga leikvangi sem er í Bronx-hverfinu. Lífið 10.6.2011 18:00
Engin fýla hjá Lopez Benny Medina, umboðsmaður söng-og leikkonunnar Jennifer Lopez, vísar því á bug að honum og bílstjóra Lopez hafi sinnast með þeim afleiðingum að bílstjórinn hafi sagt upp og strunsað í burtu. Sjónarvottar sáu Medina og bílstjórann hnakkrífast og setti rifrildið nokkuð ljótan blett á kvöldið, samkvæmt bandaríska blaðinu New York Post. Lífið 10.6.2011 16:00