Lífið

Systurnar verja sína menn

Elskhugar Kardashian-systranna þurfa að þola sinn skerf af sögusögnum enda eru Kim, Khloe og Kourtney ansi frægar vestan hafs.

Lífið

Berbrjósta í þynnkunni

Poppprinsessan Rihanna skemmti sér konunglega í hrekkjavökupartíi á dögunum og morguninn eftir hafðu hún það náðugt í rúminu.

Lífið

Stressaðir að spila loksins fyrir íslenska tónleikagesti

Sigur Rós spilar á sínum fyrstu tónleikum á Íslandi í fjögur ár annað kvöld. Þeir verða haldnir í Nýju Laugardalshöllinni fyrir framan um sjö þúsund manns og eru hluti af Iceland Airwaves-hátíðinni. Þetta verða jafnframt fyrstu tónleikar Sigur Rósar á hátíðinni í ellefu ár, eða síðan þeir spiluðu í Listasafni Reykjavíkur 2001.

Lífið

Spenntir leikhúsgestir

Leiksýningin Gullregn var frumsýnd í Borgarleikhúsinu á fimmtudagskvöldið. Brosmildir frumsýningargestir fjölmenntu og virtust spenntir að berja þetta nýja verk eftir Ragnar Bragason augum. Með aðalhlutverk fara Halldóra Geirharðsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir og Brynhildur Guðjónsdóttir.

Lífið

Vel dúðaðir tónleikagestir

Þrátt fyrir veður og vind setja gestir tónlistarhátíðarinnar Airwaves svip sinn á Reykjavíkurborg þessa helgina. Margir hverjir reyna að klæðast sínu fínasta pússi á hátíðinni en í ár einkennist fatnaður tónleikagesta af hlýjum fötum.

Tíska og hönnun

Indísveitin Alt-J vann Mercury-verðlaunin

Enska indísveitin Alt-J hlaut hin eftirsóttu Mercury-verðlaun fyrir sína fyrstu plötu, An Awesome Wave. Veðbankar höfðu talið sveitina líklega til árangurs og það gekk eftir. Verðlaunaféð hljóðar upp á um fjórar milljónir króna.

Tónlist

Foxx leikur illmenni

Jamie Foxx ætlar að taka að sér hlutverk illmennisins Electro í framhaldi The Amazing Spider-Man sem er væntanlegt 2014. Tíðindin hafa ekki verið gerð opinber en Foxx hefur sjálfur gefið í skyn að hann leiki í myndinni. „Ég klæddi mig upp sem Electro á hrekkjavökunni í gærkvöldi. Búningurinn fór mér vel,“ skrifaði hann á Twitter.

Lífið

Þaulvanir þjófar stálu úlpum

„Þeir komu um tvöleytið í nótt, brutu gler í hurðinni, sem átti að vera óbrjótanlegt, hoppuðu inn og hlupu beint að dýrustu flíkunum í versluninni. Á myndbandsupptökum sjást þeir svo troða úlpunum í gegnum gatið á hurðinni og einhverjar hafa greinilega skemmst í leiðinni því það fannst loð af krögunum í gatinu,“ segir Dagný Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Cintamani. Þrjátíu úlpum var stolið úr verslun Cintamani við Austurhraun í Garðabæ aðfaranótt föstudags.

Lífið

Hverjir voru hvar á Airwaves

Gestir tónlistarhátíðarinnar Airwaves létu veður og vind ekki á sig fá á fimmtudagskvöldið og fjölmenntu á hina ýmsu tónleikastaði miðbæjarins. Tónlistarkonan Björk var mætti á hipp hopp kvöld Þýska barsins þar sem hún meðal annars skemmti sér við rapp Gísla Pálma. Þar voru einnig borgarfulltrúinn Dagur B. Eggertsson ásamt Örnu konu sinni, Snorri Helgason og sjónvarpskonan Margrét Maack.

Lífið

Sýndi geirvörturnar í beinni

Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian er orðin kynnir í sjónvarpsþættinum X Factor en frumraun hennar í þáttunum gekk ekki alveg sem skyldi.

Lífið

Lærðu að meta lífið upp á nýtt

Þau deila ekki bara ástríðunni fyrir tískunni og vinna saman heldur eru þau hjón. Hjón sem hafa gengið í gegnum ýmsar raunir að undanförnu, bæði erfiðar og ánægjulegar.

Lífið

Arnar Grant: Hún dafnar mjög vel

Arnar Grant og unnusta hans Kristín Hrönn Guðmundsdóttir eignuðust stúlku 15. október síðastliðinn. Lífið heyrði í Arnari, óskaði honum til hamingju með stúlkuna og forvitnaðist hvernig gengur. "Hún fæddist daginn eftir afmælið mitt - tveimur vikum fyrir settan fæðingardag. Hún var 2,3 kg og 45 cm. Það heilsast öllum voða vel og hún dafnar mjög vel. Við höfum ekki ákveðið nafn á hana ennþá en hún er svakalegt krútt - alveg eins og pabbi sinn," sagði Arnar glaður. Fyrir á Arnar einn fjórtán ára dreng og eina stúlku sem er fimm ára.

Lífið

Æfingar sem gera konur graðar

Kegel æfingar eru taktfastar kreppa og sleppa æfingar við grindarbotnsvöðvann, sem eru hluti af grindarbotninum, sem styður við þvagblöðruna, legið, endaþarminn og leggöngin. Því sterkari, sem vöðvinn er, því dýpri og lengri verða fullnægingarnar.

Lífið

Til hamingju Sigmar!

Ritstjóri Kastljóssins Sigmar Guðmundsson, 43 ára, og unnusta hans Júlíana Einarsdóttir, 26 ára, háskólanemi eiga von á þeirra fyrsta barni saman þegar vorar á næsta ári. Fyrir á Sigmar tvö börn. Lífið óskar parinu innilega til hamingju.

Lífið

Myndir frá Airwaves

Ljósmyndarinn Mummi Lú tók meðfylgjandi myndir á Airwaves í vikunni. Hann myndaði hljómsveitirnar Úlfur, Kiriyama Family, Ojba Rasta, Mammút, Sykur, Retro Stefson, The Heavy Experience, Skálmöld, Diktu, Ham, Bloodgroup, Of Monsters And Men og Láru Rúnars.

Tónlist

Djörf díva

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian heldur áfram að gleðja aðdáendur sína með djörfu fatavali en hún skrapp í hádegismat í vikunni ásamt kærastanum Kanye West klædd gegnsæjum blúndubúl og leðurbuxum.

Lífið

Andrea Jóns leikur Jöru

Tónlistarkonan Jara frumsýndi nýtt myndband í Hörpu í gærkvöldi. Því var leikstýrt af Loga Hilmarssyni og er við lagið Hope sem kom út fyrir nokkru. Myndbandið er fjögurra mínútna langt og fjallar um ævi Jöru.

Lífið

Tolli fagnar

Myndlistarmaðurinn Tolli opnaði í gærkvöldi sýningu á nýjum málverkum í Smiðjunni Listhúsi í Ármúla. Fjöldi gesta lagði leið sýna á opnun sýningarinnar sem ber yfirskriftina "Friður".

Lífið