Lífið

Íhugar alvarlega að opna sig

Leikkonan Kristen Stewart er alvarlega að íhuga að opna sig um samband hennar og leikarans Robert Pattinson. Leikararnir kynntust við tökur á Twilight seríunni en hafa svo mánuðum skiptir þverneitað að eiga í ástarsambandi. Loksins staðfest Robert að þau væru að hittast og að um sannar tilfinningar þeirra á milli væri að ræða.

Lífið

Konur sjúkar í fræga menn

Spænski söngvarinn Enrique Iglesias, 35 ára, segir að frægðin sé lykillinn að konum. Söngvarinn, sem er dýrkaður um heim allan, hefur verið í sambandi við tennisstjörnuna Önnu Kournikova, undanfarin ár. Enrique hefur í gegnum tíðina stigið rætt opinberlega um ástarmálin sín og hve erfið unglinaárin voru hjá honum þegar stelpur voru annars vegar. Eftir að hann öðlaðist frægð gengu kvennamálin upp hjá stráknum. Mér er sama hvað fólk segir. Frægð er það sem konur vilja," sagði Enrique sem enginn vildi fara með honum á lokaballið í gagnfræðiskólanum þannig að hann endaði með því að fara aleinn og skemmti sér eftir því.

Lífið

Miley Cyrus á lausu

Söngkonan Miley Cyrus, 17 ára, er á lausu. Hún er hætt með kærastanum, ástralska leikaranum Liam Hemsworth. Miley sagði ástralska sjarmernum upp nýverið en hún féll fyrir honum þegar þau hittust við tökur á rómantísku gamanmyndinni The Last Song árið 2009. Sagan segir að leikarinn hafi ekki þolað endalausa athyglina sem söngkonan fékk hvert sem þau fóru.

Lífið

Ætlar að hlaða batteríin

Leikkonan Emma Watson, 20 ára, ætlar að hvíla sig frá leiklistinni um stundar sakir. Emma var aðeins tíu ára gömul þegar hún landaði hlutverki Hermione Granger í Harry Potter ævintýrinu. Núna þarfnast ég tíma til að öðlast sjálfstraustið á ný og þá er ég ekki að tala um að gera það í gegnum leiklistina. Ég þarf að hlaða batteríin og vera ég sjálf í einhvern tíma," sagði Emma.

Lífið

John Travolta á von á barni

Leikarinn John Travolta, 56 ára, og eiginkona hans leikkonan Kelly Preston, 47 ára, eiga von á sínu þriðja barni. Hjónin héldu hátíðlega upp á að Kelly gengur með dreng í veislu sem þau héldu fyrir fjölskyldu og vini, 40 manns, á heimili þeirra í Los Angeles í byrjun ágúst. John og Kelly syrgja enn son sinn, Jett, sem féll frá í janúar 2009 aðeins sextán ára gamall. Saman eiga þau 10 ára gamla dóttur, Ellu Bleu.

Lífið

Þetta fá Emmy stjörnurnar sent frá Íslandi

Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eigandi Gyðju Collections, er ein af útvöldum sem boðið var að vera með sérstaka gjafapakka handa stjörnum Emmy-verðlaunanna í ár. Eins og fram kom í Fréttablðinu varð Sigrún Lilja hissa en ánægð þegar henni bauðst að taka þátt og segir þetta merki um það að Gyðja Collection sé að vekja athygli vestan hafs. Um er að ræða gríðarlega góða kynningu fyrir merki Sigrúnar Lilju þar sem fjölmiðlar veita því mikla athygli hvaða merki eru valin hvert ár.

Lífið

Vissi strax að hann væri sá rétti

Söngkonan Katy Perry, 25 ára, vissi að breski grínistinn Russell Brand, 35 ára, er sá eini rétti fyrir hana því hann þekkir hana og skilur. Katy trúlofaðist Russell á nýárskvöld og síðar á árinu ætlar hún að giftast gríniastnum. Hvorgt hefur gefið upp hvar eða hvenær brúðkaupið fer fram. Það er hernaðarleyndarmál að þeirra sögn. Hún vissi strax og þau kynntust að hann væri rétti maðurinn fyrir hana. Hann er svo næmur fyrir hverju einasta smáatriði og svo skilur hann mig og hlustar á mig þegar ég þarf á því að halda," sagði Katy. Svo erum við með góðan húmor og komum hvort öðru til að hlæja og það eitt heldur okkur vel tengdum."

Lífið

Hræddur við stelpur

Leikarinn Michael Cera, 22 ára, sem fer með aðalhlutverkið í myndinni Scott Pilgrim vs. the World, er hræddur við unglingsstúlkur. Michael, sem skaust á methraða upp stjörnuhimininn eftir leik sinn í kvikmyndunum Superbad og Juno, hefur oftar en ekki leikið feimna stráka sem eiga í erfiðleikum með að umgangast stelpur, segist sjálfur vera náttúrulegt nörd sem verður bæði hræddur og taugaveiklaður þegar unglingsstúlkur öskra nafnið hans. „Unglinsstelpur eru ógnvekjandi og þær verða það alltaf. Síðan þegar þær fullorðnast tekur önnur svipað brjáluð kynslóð við," sagði Michael.

Lífið

Sár að fá ekki að ganga í hælaskóm

Tennisstjarnan Serena Williams, 28 ára, var gjörsamlega miður sín að eigin sögn þegar hún slasaðist á fæti fyrr á þessu ári af því að þá gat hún ekki gengið um á hælaskóm. Tennisstarnan slasaðist stuttu eftir að hún sigraði Wimbledon mótið í júlí og þurfti að hvíla sig á meðan hún náði fullum bata. Hún er sár yfir því að geta ekki æft og að sama skapi ekki gengið í uppáhaldsskónum sínum. „Þegar ég slasa mig verð ég döpur því þá get ég ekki verið í hælaskóm. Ég er nánast gráti næst yfir því," sagði Serena í viðtali við SOBeFiT tímaritið. Serena elskar tísku og hefur meðal annars hannað fatalínu fyrir Nike og Puma ásamt eigin fylgihlutalínu.

Lífið

Benedikt leikstýrir sér í Íslandsklukkunni

„Það verður mjög áhugavert að geta staðið á sviðinu á móti mótleikara og sagt honum til,“ segir Benedikt Erlingsson, sem leysir Björn Hlyn Haraldsson af hólmi í hlutverki Arnasar Arneuss í Íslandsklukkunni í Þjóðleikhúsinu.

Lífið

Þarf aðstoð ef allt á að ganga upp

Leikkonan Maggie Gyllenhaal segir það vera í lagi að mistakast endrum og eins þegar foreldrahlutverkið er annars vegar. Maggie, sem á þriggja ára gamla dóttur, Ramonu, með eiginmanni sínum Peter Sarsgaard, segist leggja sig alla fram við að halda jafnvægi á milli persónulega lífinu og vinnunni. Leikkonan elskar að vera mamma en segir tímaleysi, stress og álag oft koma í veg fyrir að hún geti verið fullkomin mamma. Ég nýt hverrar einustu mínútu með dóttur minni en ég þarf vissulega á aðstoð að halda ef allt á að ganga upp. Barnapían mín er frábær," sagði Maggie.

Lífið

Auto Tune-hneyksli í X-Factor

Simon Cowell var borinn þungum sökum af bresku pressunni í gær eftir að upp komst að aðstandendur raunveruleikaþáttarins X-Factor hefðu beitt svokallaðri Auto Tune-tækni á suma keppendur. Auto Tune virkar þannig að röddin er lagfærð þannig að hún hljómi örugglega í réttri tóntegund.

Lífið

Hnémeiðsli á leiksýningu

Leikarinn Ingi Hrafn Hilmarsson hefur aflýst sýningu sinni In the Beginning sem átti að fara fram í Listasafni Reykjavíkur á fimmtudaginn. Ástæðan er sú að hann reif liðþófa á sýningunni á menningarnótt.

Lífið

Airwaves til Akureyrar

Iceland Airwaves ætla að vera með tónleika í tengslum við Akureyrarvöku um næstu helgi. Tónleikarnir fara fram á Græna hattinum og koma þar fram hljómsveitirnar Bloodgroup, Endless Dark, Sjálfsprottinn Spévísi og Buxnaskjóna en þær eiga það sameiginlegt að vera af landsbyggðinni. Tónleikarnir eru á laugardagskvöldið og húsið verður opnað kl. 22. Aðgangur er ókeypis.

Lífið

Illa lyktandi söngkona

Samkvæmt slúðurritum vestan hafs hefur unnusti söngkonunnar Britney Spears sett henni úrslitakosti, annaðhvort þvær hún sér eða hann mun slíta sambandinu.

Lífið

Dikta kaupir útgáfuréttinn á Hunting For Happiness

Hljómsveitin Dikta hefur keypt útgáfuréttinn á annarri plötu sinni Hunting For Happiness af fyrirtækinu Smekkleysu. Ástæðan er sú að platan hefur verið ófáanleg í tvö ár, nema á Tónlist.is, og það voru liðsmenn Diktu ekki sáttir við.

Lífið

Játaði fyrir rétti

Breski popparinn George Michael hefur viðurkennt fyrir rétti að hafa ekið Range Rover-bifreið sinni inn í verslun undir áhrifum kannabisefna. Hann játaði einnig að hafa haft í fórum sínum kannabissígarettur til eigin nota.

Lífið

Milljarðaskilnaður Tigers

Tiger Woods og Elin Norde­gren er formlega skilin eftir sex ára hjónaband. Ekki liggur fyrir hversu háa fjárhæð Elin fær frá Tiger en þau munu hafa sameiginlegt forræði yfir börnunum tveimur.

Lífið

Stórafmæli Sniglabandsins

Sniglabandið hefur verið starfrækt í 25 ár og ávallt notið mikilla vinsælda. Afmælistónleikar verða haldnir í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. 25 ár eru liðin síðan hin ástæla hljómsveit Sniglabandið hélt sína fyrstu tónleika. Hún ætlar að fagna afmælinu með tónleikum á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu á laugardaginn.

Lífið

Styrktartónleikar fyrir Kaffi Flóka

„Þetta verður svona manneskjuvænt kaffihús fyrir alla," segir Edgar Smári Atlason, söngvari og einn af aðstandendum Kaffi Flóka, sem er kaffihús/matstofa rekið af og fyrir unga geðfatlaða einstaklinga.

Lífið

The Good Heart tilnefnd

Kvikmyndin The Good Heart er framlag Íslands til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Myndin, sem er eftir Dag Kára Pétursson, keppir við fjórar aðrar myndir um peningaverðlaun upp á 350 þúsund danskar krónur, eða um sjö milljónir íslenskra króna.

Lífið

Spenningurinn mikill

Hljómsveitin SILFUR gaf nýverið út sinn fyrsta geisladisk sem fékk nafnið Ekkert Vesen. Bandið hélt útgáfutónleika í tilefni plötunnar á Sódómu Reykjavík Tryggvagötu 22. Auk Thelmu Hafþórsdóttur Byrd söngkonu, Andra Hrannars trommara, Stefán Þórs bassaleikara og Sveins Pálssona gítarleikara fékk bandið til liðs við sig góða og hæfileikaríka vini.

Lífið

Sættu þig við útlitið

Fyrirsætan Tyra Banks biður aðdaendur sína að sætta sig við útlit sitt. Tyra sem talar oftar en ekki um útlitið á opinberum vettvangi segir að nú sé kominn tími til að konur sætti sig við útlit sitt. „Þið vitið að ég trúi því að fegurðin kemur innan frá. Mjög margar konur eru óánægðar með útlitið og þá líka dökkar konur sem vilja ekkert fremur en hvíta húð. Í staðinn fyrir að óska þér að þú breytist í eitthvað annað en þú ert skaltu fagna því að vera eins og þú ert. Því sérstakt útlit þitt gerir þig að því sem þú ert. Of dökk eða of föl. Ég bið alla aðdáendur mína að sætta sig við sjálfan sig og umfaðma húðina og útlitið með jákvæðu hugarfari," sagði Tyra. „Verið hamingjusöm sama hvað lífið færir ykkur," eru skilaboð fyrirsætunnar.

Lífið

Nína Dögg sýnir leikmynd Hamskipta

Hin rómaða sýning Vesturports á Hamskiptunum snýr nú aftur í Þjóðleikhúsið, en einungis verða örfáar sýningar á verkinu nú. Hamskiptin var frumsýnd í Lyric Hammersmith leikhúsinu í London fyrir tveimur árum og hlaut þá tilnefningu til Evening Standard verðlaunanna. Í kjölfarið var sýningin endurfrumsýnd í nýrri íslenskri gerð hér Þjóðleikhúsinu. Hætta þurfti sýningum fyrir fullu húsi, og í lok leikárs hlutu Hamskiptin Grímuverðlaunin sem leiksýning ársins. Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Nína Dögg Filippusdóttir leikkona okkur leikmynd verksins og segir okkur meðal annars frá því að sýningin hefur ferðast víða um heim og fengið frábærar viðtökur. Eftir sýningar í Þjóðleikhúsinu nú tekur við sýningartímabil í BAM leikhúsinu í New York.

Lífið

Ældi og kvaddi þar með Lisbeth Salander

Leikkonan Noomi Rapace, 30 ára, sem lék Lisbeth Salander, tölvuhakkarann í þríleik Stiegs Larsson segir unglingsárin hafa verið hræðileg en hún flutti inn með kærasta aðeins fjórtán ára gömul. Fyrir hlutverkið létti leikkonan sig, klippti hárið, byrjaði að reykja og lét gata sig á hinum og þessum stöðum því hún vildi líkjast Lisbeth eins mikið og hún mögulega gat. Noomi viðurkennir að hún átti auðvelt með að tengja sig við karakterinn Lisbeth sem átti erfitt líf og var alltaf utangátta. Noomi líkir því við tilfinninguna þegar hún sjálf var barn. Mér fannst ég aldrei vera hluti af neinu. Ég passaði

Lífið

Þakkar fagfólki útlitið

Leikkonan Emma Stone, 21 árs, landar eingöngu skvísuhlutverkum og fyrir það þakkar hún förðunarvörum og fagfólki í bransanum. Emma, sem er þekktust fyrir að leika í kvikmyndum á við Superbad og Zombieland, þakkar förðunarfræðingum og stílistum fyrir útlit sitt. Þegar ég hef fengið skvísuhlutverk hefur það verið hæfileikaríkum förðunar- og hárgreiðslumeistara að þakka," sagði Emma.

Lífið