Lífið

Ópal er Obal í Danmörku

„Við urðum að breyta nafninu og komumst að þessari niðurstöðu ásamt dreifingaraðilanum í Danmörku. Ætli þetta sé ekki auðveldasta breytingin,“ segir Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus.

Lífið

Paparassar pirra ekki Pippu

Pippa Middleton, 27 ára, litla systir hertogaynjunnar af Cambridge var mynduð í miðborg Lundúna í dag ásamt ónefndum karlmanni fá sér hádegisverð. Eins og sjá má í myndasafni er Pippa hætt að kippa sér upp við ljósmyndarana sem elta hana á röndum.

Lífið

Meira að segja Megan vill dekur (eins og við hinar)

Leikkonan Megan Fox, 25 ára, og eiginmaður hennar leikarinn Brian Austin Green, 38 ára, fengu sér steik á sunnudaginn í Santa Monica í Kaliforníu. Það geislaði af hjónunum en Megan var klædd í síðan kjól og hælaskó eins og sjá má á myndunum. Með í för var sonur Brian, Kassius.

Lífið

Ekki örvænta stelpur hún er með herlið af útlitssérfræðingum

Leikkonan Gwyneth Paltrow, 38 ára, var stórglæsileg á frumsýningu þrillersins Contagion á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum um helgina. Eins og sjá má í myndasafni er leikkonan með herlið af aðstoðarfólki sem sér til þess að hún líti vel út. Gwyneth var klædd í fölbleika Prada skó og Organza kjól. Þá má sjá einnig sjá leikarann Matt Damon í myndasafni.

Lífið

Heldur einkasýningu í Peking

„Mér finnst þetta æðislegt,“ segir myndlistarmaðurinn Guðmundur Oddur Magnússon, Goddur, sem er á leiðinni til Kína síðar í mánuðinum.

Lífið

Fjölnir: Aðgát skal höfð í nærveru sálar

"Mér finnst þetta fáránlegt," segir Fjölnir Þorgeirsson, hestamaður með meiru. Fjölnir virðist vera fyrirmynd persónu í bókinni Lýtalaus eftir Þorbjörgu Marinósdóttur eða Tobbu Marinós sem kom út fyrir helgi.

Lífið

Töff einstæðar útivinnandi mæður

"Við erum að reyna að upphefja stelpumenningu á Íslandi,“ segir Kristín Tómasdóttir sem ásamt systur sinni, Þóru, er að leggja lokahönd á uppflettirit fyrir stelpur sem kemur út í haust Systurnar gáfu í fyrra út Bók fyrir forvitnar stelpur sem seldist eins og heitar lummur og segir Kristín að vinsældir bókarinnar hafi sýnt að það er greinileg vöntun á efni fyrir þennan markhóp, stelpur.

Lífið

Brad og fjölskylda fóru út um bakdyrnar

Angelina Jolie og Brad Pitt gerðu sér dagamun og fóru með börninn Pax, Zahara, Shiloh, Knox og Vivienne í bíó í London að sjá myndina The Smurfs. Bíll beið þeirra bakdyramegin eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Dóra Jóhanns umvafin fyndnum strákum

„Þeir eru voða tillitsamir og góðir við mig, koma fram við mig eins og drottningu,“ segir Dóra Jóhannsdóttir, leikkona úr förðunarstólnum en hún er eina stúlkan í væntanlegum sjónvarpsþætti Mið Íslands-hópsins.

Lífið

Fyrsta plata Bjögga Halldórs og félaga

Björgvin Halldórsson og rokksveit hans Elephant Poetry hafa gefið út sína fyrstu plötu, sem nefnist Trash Can Honey. Hljómsveitin er dönsk/íslensk og auk forsprakkans Björgvins, sem jafnan er kallaður Bjöggi, skipa hana þeir Anders Klint, Dan Lings og Janus Bragi Jakobsson.

Lífið

Segi aldrei nei við Scarlett eða Quentin Tarantino

"Ég get staðfest að ég er að vinna við þessa mynd en meira get ég ekki sagt við þig. Það er mikil öryggisgæsla í kringum þessa mynd og það má ekkert leka út,“ segir Heba Þórisdóttir, förðunarmeistari í Hollywood.

Lífið

Gene gamli genginn út

Rokkarinn Gene Simmons úr hljómsveitinni Kiss mun ganga að eiga Shannon Tweed í Los Angeles hinn 1. október næstkomandi. Simmons bað um hönd Tweed í raunveruleikaþætti sínum, Gene Simmons Family Jewels, í júlí síðastliðnum. Þeim liggur greinilega á að láta pússa sig saman, sem verður að teljast fyndið í ljósi þess að þau hafa búið saman síðan 1985.

Lífið

Kría færir út kvíarnar

Hönnun Jóhönnu Metúsalemsdóttur, sem hannar undir nafninu Kría, hefur verið tekin til sölu í versluninni Project No8 sem staðsett er í Ace-hótelinu á Manhattan. Project No8 er hönnunarverslun sem selur hönnun hvaðanæva að, en á hótelinu er einnig verslun sem rekin er í samstarfi við tískuhúsið Opening Ceremony.

Lífið

Óþægilegt að afklæðast

Leikkonunni Milu Kunis fannst það bara huggulegt þegar mótleikari hennar, Justin Timberlake, afklæddist fyrir framan hana í kynlífssenum myndarinnar Friends with Benefits. „Ég hafði ekkert á móti því þegar Justin fór úr fötunum. En ég er ótrúlega óörugg með eigin vöxt, hvað þá fyrir framan fimmtíu manna tökulið. Það var mikið óöryggi í gangi,“ sagði Kunis. „Sum augnablik voru vandræðaleg en það góða við þetta er að ég og Justin vorum svo fínir vinir. Ég var að minnsta kosti með einhverjum sem ég þekkti sem fannst þetta líka óþægilegt.“

Lífið

Madonna þú ert megasæt í þessum kjól

Fiðrildakjóllinn sem Madonna, 53 ára, klæddist á kvikmyndahátíðinni i Feneyjum í fyrradag vakti verðskuldaða athygli. Ljósblár síðkjóllinn sem var skreyttur með rauðum fiðrildum eftir ítalska hönnuðinn Vionnet sem hannaði þennan kjól sérstaklega fyrir Madonnu stal senunni þetta kvöld. Söngkonan var dúndur flott með liðað hárið, rauð sólgleraugu á nefinu, eldrauðan varalit og demantaskreytt eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Loksins leikkona sem er ekki grindhoruð

Breska leikkonan Kate Winslet, 35 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum í Feneyjum á Ítalíu klædd í tvílitaðan Stellu McCartney kjól og svarta YSL skó. Ég hef verið horuð. Það er bara svo helvíti leiðinlegt, lét Kate hafa eftir sér. Leikkonan var stórglæsileg vægast sagt eins og myndirnar sýna greinilega.

Lífið

Spila sorglegar ástarballöður

Kristín Lýðsdóttir og Dóra Dúna Sighvatsdóttir skipa plötusnúðatvíeykið SAD SAD SAD. Þær stöllur eru báðar búsettar í Kaupmannahöfn og þykja efnilegir plötusnúðar.

Lífið

Eldandi fjölskyldumaður í London

Sálarpopparinn og eitísgoðið Paul Young heldur tónleika í Hörpu í byrjun október. Kjartan Guðmundsson sló á þráðinn til söngvarans í London, fræddist um smellina, röddina og átrúnaðargoðin og náði að kría út úr honum uppskrift að dýrindis pastasósu.

Lífið

Fjársjóðsleit við Íslandsstrendur

Sesselja Ómarsdóttir dósent lærði að kafa á síðasta ári. Ástæðan fyrir því var áhugi hennar á lífverum undirdjúpanna sem mögulega er hægt að nýta í lyf framtíðarinnar. Sesselja sagði Sigríði B. Tómasdóttur frá því hvað getur leynst á hafsbotninum.

Lífið

Njósnarinn sem var ýtt út í kuldann

Valerie Plame varð á einni nóttu nafntogaðasti njósnari CIA, þvert gegn vilja sínum. Hátt settir menn í stjórn George W. Bush láku nafni hennar í fjölmiðla til að grafa undan trúverðugleika eiginmanns hennar sem hafði sakað Bush um ósannindi.

Lífið

Ekki glæta að þessir séu þægilegir Victoria

David Beckham, 36 ára, hélt á Harper dóttur sinni, sem fæddist 10. júlí síðastliðinn, í verslunarleiðangri í Hollywood í gærdag. Eins og sjá má á myndunum var Victoria, 37 ára, með í för klædd í leðurbuxur og þetta líka svimandi háa hæla, Louboutin hælaskó réttara sagt. Þá var elsti sonur þeirra, Brooklyn, einnig með í för og lífverðirnir.

Lífið

Talar út um skilnaðinn

Söngvarinn Marc Anthony talaði í fyrsta sinn um skilnað sinn og Jennifer Lopez fyrr á árinu. Anthony tók fyrir að framhjáhald væri orsök skilnaðarins og að þau væru mjög góðir vinir í dag. „Þetta var sameiginleg ákvörðun. Hún var erfið en við tókum hana saman. Engin jarðarför og ekkert sjokk. Svona hlutir gerast,“ sagði Anthony í samtali við fréttamann ABC sjónvarpsstöðvarinnar.

Lífið

Svekktur að spila ekki á Íslandi

Árni Hjörvar Árnason er svekktur yfir því að spila ekki á Airwaves með The Vaccines. Hljómsveitin getur kennt sjálfri sér um veikindi söngvarans. „Þetta er mjög svekkjandi. Ég var farinn að hlakka mikið til að koma,“ segir Árni Hjörvar Árnason, bassaleikari bresku rokksveitarinnar The Vaccines.

Lífið

Þessu liði leiddist greinilega ekki

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar English pub opnaði í Hafnarfirði í vikunni. Eins og myndirnar sýna leiddist engum. Opnunin fór fram úr björtustu vonum, sagði Hermann Svendsen eigandi English pub spurður út í uppákomuna. Enski barinn í Hafnarfirði á Facebook.

Lífið