Lífið

Á krossgötum

Sjónvarpsmaðurinn Ryan Seacrest og kærasta hans, Julianne Hough, hafa ákveðið að heimsækja sálfræðing saman áður en þau ganga í heilagt hjónaband. Að sögn vina stenda þau nú á krossgötum og vita ekki í hvorn fótinn þau eiga að stíga.

Lífið

Gyðjur komu saman í Hafnarfirði

Fjórar galvaskar athafnakonur þær Ása Karín ráðgjafi hjá Capacent, Linda framkvæmdastjóri Hress, Málmfríður eigandi Carita-Snyrting og Sigga gullsmiður hjá Siggu & Timo ákváðu að gera sér glaðan dag og halda gleði fyrir galvaskar gyðjur.

Lífið

Cintamani opnar í Bankastræti

Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar útivistarverslunin Cintamani opnaði glæsilega verslun í húsnæði sem áður hýsti verslun Sævars Karls í Bankastræti í Reykjavík. Eins og myndirnar sýna var stemningin gríðarlega góð en umgjörðin í kringum útivistarfatnaðinn er ævintýri líkust fyrir börn og fullorðna. Meðal annars er boðið upp á rennibraut fyrir börnin þar sem þau geta rennt sér á milli hæða verslunarinnar.

Lífið

Klæðist því sem hún vill

Leikkonan Cate Blanchett klæddist kjól frá tískuhúsinu Givenchy við Óskarsverðlaunaafhendinguna. Kjóllinn vakti aðdáun margra en hlaut einnig nokkra gagnrýni. Í viðtali við InStyle segist Blanchett aðeins klæðast því sem henni líði vel í.

Lífið

Leita aðdáanda Ghostface Killah

Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri RFF, leitar nú logandi ljósi að ungum manni sem sótti tónleika rapparans Ghostface Killah síðasta laugardag. Pilturinn sóttist eftir eiginhandaráritun rapparans á geisladisk og tóku aðstandendur RFF-hátíðarinnar það að sér að útvega honum hana. Geisladiskurinn hefur þó ekki enn komist í hendur eiganda síns.

Lífið

Steindinn á djamminu

Önnur þáttaröð af Steindanum okkar hóf göngu sína á Stöð 2 í gærkvöldi með miklum látum. Tónlistaratriðin eru til staðar eins og í fyrstu seríunni og hér má sjá fyrsta atriði vetrarins þar sem harður djammari sekkur dýpra og dýpra. Smellið á tengilinn hér að ofan til að horfa á „Djamm í kvöld“.

Lífið

María Birta og Gillz í djarfri kynlífssenu

"Við erum ekki alveg búnir að negla hvernig við ætlum að gera atriðið, en þetta er kynlífsatriði sem gerist í partíi með mörgum þátttakendum,“ segir Óskar Þór Axelsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Svartur á leik. Tökur á myndinni hefjast í lok þessa mánaðar og eru þeir Jóhannes Haukur Jóhannesson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson í aðalhlutverkum ásamt Maríu Birtu Bjarnadóttur og Agli Einarssyni, betur þekktum sem Gillz.

Lífið

Tina Fey ólétt

Grínistinn Tina Fey, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt í 30 Rock, á von á öðru barni sínu. Hún er gengin fimm mánuði með barn sitt og eiginmannsins, tónskáldsins Jeffs Richmond. Tina greindi frá barnaláni sínu í viðtali í sjónvarpsþætti Opruh Winfrey. Þar var hún að kynna nýja bók sína og ræða tilvonandi endurfundi í Saturday Night Live.

Lífið

Troðfullt áTrúbadorkeppni FM957

Meðfylgjandi myndir voru teknar á síðara undanúrslitakvöldinu í Trúbadorkeppni FM957 og Corona á Players í Kópavogi í gærkvöldi. Átta atriði voru skráð til leiks og var ljóst að samkeppnin yrði virkilega hörð enda mikið í húfi. Kvöldið opnaði þó á því að útvarpsfólkið í Tívolí þættinum á FM957 fóru á svið til að reyna heilla dómnefndina en það gekk ekki sem skyldi og má með sanni segja að reynsluleysi hafi orðið þeim að falli. Hin sjö atriðin stigu hinsvegar á svið hvert af öðru og voru allir keppendur einbeittu sér að því að heilla dómnefnd kvöldsins sem var skipuð þeim Hanna Bach trommuleikara Skímó, Haffa Haff tískumógul, Ísgerði Gunnarsdóttur leikkonu og Kristjáni Inga morgunhana í Svala & Félögum. Allir keppendur voru svo dyggilega studdir af stuðningsliðum sínum sem létu vel í sér heyra eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Á Icerave segja allir VÁ

Kanilkvöld er yfirskrift nýrra mánaðarlegra danstónlistarkvölda. Annað Kanilkvöldið verður haldið á morgun á Faktorý. Sigurður Arent skipuleggjandi hefur ekki áhyggjur af brjáluðu Icesave-fólki.

Lífið

Smekkfullt hjá Steinda Jr.

Steindi Jr. og Ágúst Bent héldu partý í Gyllta salnum á Hótel Borg í gærkvöldi í tilefni af frumsýningu þáttaseríunnar Steindinn okkar II sem sýnd er á fimmtudagskvöldum á Stöð 2. Smekkfullt var á Borginni og allir í góðum gír eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Who Knew á Hróarskeldu

Sumarið er tími tónlistarhátíðanna og það vita strákarnir í hljómsveitinni Who Knew. Þeir koma fram víða í Evrópu í sumar þar á meðal á Hróarskelduhátíðinni víðfrægu.

Lífið

Foo Fighters endurfædd

Dave Grohl og félagar í Foo Fighters senda frá sér plötuna Wasting Light í næstu viku. Platan er mikið rokk og mikið ról, enda tekin upp af manninum sem tók upp Nevermind með Nirvana.

Lífið

Van Damme var útskúfaður frá Hollywood

Belgíska bardagahetjan Jean-Claude Van Damme hefur upplýst að kvikmyndaverin í Hollywood hafi meðvitað lokað á hann vegna launakrafna hans. Van Damme varð að hætta kvikmyndaleik eftir tíunda áratuginn þar sem engin hlutverk voru í boði fyrir hann. Leikarinn hafði skýringar á reiðum höndum í breskum sjónvarpsþætti á dögunum. "Þeir úthýstu mér eftir að ég setti fram of háar launakröfur. Eftir Time Cop fékk ég tilboð um að gera þrjár kvikmyndir og átti að fá tólf milljónir dala fyrir hverja mynd. Mér fannst það skammarlegt, ég vildi tuttugu milljónir dala á hverja mynd eins og Jim Carrey fékk.“ Eftir það hættu kvikmyndaverin að hringja og Van Damme segist sjá eftir öllu saman. "Ég var ekki með sjálfum mér og mér urðu á mikil mistök.“

Lífið

Öryggismál sett á oddinn í Eurovision

"Það sem hefur komið mér hvað mest á óvart er hvað Þjóðverjarnir eru rólegir, þeir eru ekkert yfir sig stífir á reglum,“ segir Jónatan Garðarsson, fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins.

Lífið

Nýtt nef - nýtt lag

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá glænýtt tónlistarmyndband söngkonunnar Britney Spears, 29 ára, af nýju plötunni hennar Femme Fatale, við lagið Till The World Ends. Nefið á Britney og breytingarnar sem hafa orðið á því í gegnum tíðina virðist ekki síður vera heitt umræðuefni í slúðurmiðlum vestan hafs eins og tónlistin hennar en nefið má skoða í myndasafni fyrir og eftir breytingar. Burtséð frá nefinu samdi Britney umrætt lag í samvinnu við söngkonuna Ke$ha.

Lífið

Stórstjörnur í Vesalingamynd

Robert Downey Jr. og Sean Penn eru meðal þeirra sem orðaðir eru við aðalhlutverkin í næstu kvikmynd Toms Hooper, Vesalingunum eða Les Miserables, sem byggð er á samnefndri bók Victors Hugo. Um er að ræða söngvamynd en leikverkið hefur verið sett upp hér á landi, meðal annars í Þjóðleikhúsinu. Hooper sópaði til sín Óskarsverðlaunum á síðustu hátíð með kvikmynd sinni The King‘s Speech og virðist geta valið úr leikurum fyrir sína næstu mynd. Vesalingarnir eru byggðir á sögu Victors Hugo og var sagan síðast kvikmynduð 1998 með þá Liam Neeson og Geoffrey Rush í aðalhlutverkum.

Lífið

Endurgerðar ofurhetjur

Hollywood virðist aldrei fá nóg af ofurhetjum og framleiðir grimmt af kvikmyndum um skikkjuklædd hreystimenni sem lumbra á þrjótum og bjarga sætum stelpum úr lífsháska. Þrjár ofurhetjur virðast hins vegar eiga eilíft líf.

Lífið

Maðurinn á bak við Palla

Coco Viktorsson á heiðurinn að mörgum af skrautlegustu búningum Páls Óskars Hjálmtýssonar. Skrautlegur klæðaburður er stór hluti af ímynd tónlistarmannsins og setur jafnan skemmtilegt yfirbragð á tónleika hans, enda er sjónarspil ekki síður mikilvægt en hressir tónar.

Lífið

Live Project sló í gegn - Halda áfram á AK Extreme

Síðasta helgi var viðburðarík fyrir þá sem fylgdust með íslenska vefnum Live Project. Þar birtust yfir fimm hundruð myndir og myndbönd af Reykjavík Fashion Festival, bæði af tískusýningunum sjálfum í Hafnarhúsinu og öðrum viðburðum tengdum hátíðinni.

Lífið

Reykjavík Music Mess vekur athygli út fyrir landsteina

Átta erlendir blaðamenn hafa boðað komu sína á tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess síðar í mánuðinum. Að sögn Baldvins Esra Einarssonar, eins skipuleggjenda hátíðarinnar, hefur orðið vart við talsverðan áhuga erlendis, bæði hjá fjölmiðlum og tónlistaráhugafólki. Meðal þeirra fjölmiðla sem boðað hafa komu sína hingað eru Mojo, Clash, Uncle Sally‘s, sem að sögn Baldvins er eitt stærsta tónlistarblað Þýskalands, og Byte.fm sem ku vera stærsta netútvarp í Þýskalandi.

Lífið

Slær í gegn í norskum kvikmyndum

Ásta Hafþórsdóttir gerir það gott í norska kvikmyndaheiminum. Hún segir meiri peninga í bransanum þar en hér heima og að umhverfið þar sé fjölskylduvænna. "Það er búið að ganga mjög vel síðan ég flutti út en ég held að ég hafi verið á réttum stað á réttum tíma,“ segir Ásta Hafþórsdóttir leikgervahönnuður. Hún flutti til Noregs síðasta sumar þar sem hún hoppaði beint í tökur á sjónvarpsþáttum um sjóræningjann Kaptein Sabeltann fyrir NRK, en hann er rótgróinn karakter í Noregi og á meðal annars skemmtigarð tileinkaðan sér í Kristiansand.

Lífið

Hangover 2 auðveld

Todd Phillips, maðurinn á bak við The Hangover, segir í samtali við vefsíðuna comingsoon.net að framhaldsmyndin hafi verið ótrúlega auðveld í tökum, allir leikararnir hafi smollið í karakter strax.

Lífið

Rebekka sest í dómarasætið

"Mér fannst hljóma svo skemmtilega að geta sagt að ég sé að fara að gera þetta – þetta er flott á ferilskránni, að vera dómari,“ segir listakonan Rebekka Guðleifsdóttir. Rebekku var boðið sæti í dómnefnd alþjóðlegu ljósmyndakeppninnar Digital Camera Photographer í ár. Þessi keppni komst í fréttirnar á Íslandi árið 2009 þegar séra Bragi Ingibergsson, sóknarprestur í Hafnarfirði, sigraði með glæsilegri mynd sinni af tveimur hestum. Rebekka verður yfirdómari í flokknum Creative License, en þar leyfa ljósmyndarar sköpunargáfunni að njóta sín. "Þetta er sköpunarglaðasti flokkurinn, ef ég skil þetta rétt,“ segir hún.

Lífið

Dulmálslykill og drykkjurútur

Að venju er nóg um að vera í íslenskum kvikmyndahúsum um þessar mundir. Fyrst ber að nefna gamanmyndina Your Highness sem skartar Óskarsverðlaunakynninum James Franco og Óskarsverðlaunaleikkonunni Natalie Portman í helstu hlutverkum. Myndin gerist á miðöldum og segir frá tveimur bræðrum sem hyggjast bjarga unnustu annars þeirra úr klóm hættulegs seiðkarls. Myndin hefur fengið afleita dóma og það er ekki beint hægt að segja að Portman fylgi eftir frammistöðu sinni í Black Swan með glæsibrag ef No Strings Attached er tekin með í reikninginn.

Lífið

Finnst mjög gaman að vera fyrir framan myndavélina

Magdalena Sara Leifsdóttir bar sigur úr býtum í Elite-fyrirsætukeppninni. Fyrirsætustarfið heillar en hún getur ekki farið í unglingavinnuna í sumar vegna frjókornaofnæmis. „Þetta var alveg æðislegt upplifun og auðvitað mjög gaman að vinna þessa keppni," segir Magdalena Sara Leifsdóttir en hún vann Elite-fyrirsætukeppnina sem fór fram í Hafnarhúsinu um síðustu helgi.

Lífið

Björk hafnar Glee

Ryan Murphy, skapari sjónvarpsþáttanna Glee, reyndi að fá að nota tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur í þáttunum. Björk hafnaði beiðninni. Þetta kemur fram á vef Hollywood Reporter.

Lífið