Lífið

Ekki hrifinn af framhaldi

Robert Downey Jr. segist ekki vera aðdáandi framhaldsmynda þrátt fyrir að hafa leikið í Iron Man 2 og Sherlock Holmes: A Game of Shadows, sem er á leiðinni í bíó. „Mér finnst leiðinlegt að segja það en venjulega eru framhaldsmyndir leiðinlegar, en þessi er það þó ekki,“ sagði hann.

Lífið

Sár Suri Cruise

Leikarinn Tom Cruise, 49 ára, og eiginkona hans, leikkonan Katie Holmes, 32 ára, leiddu stelpuna sína, Suri, 5 ára, í Tribeca hverfinu í New York í gærmorgun...

Lífið

Tilnefningar til Golden Globe

Franska svart/hvíta-myndin The Artist fékk flestar tilnefningar til Golden Globe-verðlaunanna. Myndin er óður til þöglumyndaskeiðsins í Hollywood á upphafsárum draumaverksmiðjunnar og virðist fara ansi vel ofan í samtök erlendra fréttamanna í Hollywood.

Lífið

Vildi fitna en gat það ekki

Leonardo DiCaprio óskaði þess að hann gæti fitnað hraðar þegar hann var við tökur á mynd um stofnanda FBI-leynilögreglunnar, J. Edgar Hoover.

Lífið

Endurreistu gamla saltgerð fyrir vestan

Þrír 27 ára frumkvöðlar hafa sett nýtt salt á markað sem þeir framleiða á gömlum söltunarstað á Vestfjörðum. Erfiðar aðstæður, mikil vinna og slys settu aldrei strik í reikninginn, því saltararnir voru ákveðnir í að láta nýsköpunardrauminn rætast.

Lífið

Þrjátíu þúsund sáu Sveppa í bíó

Algjör Sveppi og töfraskápurinn er vinsælasta íslenska kvikmyndin sem var frumsýnd á þessu ári. Alls sáu hana rúmlega þrjátíu þúsund manns og náði hún í miðasölunni inn tæpum þrjátíu milljónum króna. Barnastjarnan Sverrir Þór Sverrisson má því vel við una fyrir þessa þriðju Sveppa-mynd þeirra Braga Hinrikssonar leikstjóra.

Lífið

Anna Hildur á útleið?

Breytingar eru í farvatninu hjá Útflutningsráði íslenskrar tónlistar, ÚTÓN. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er framkvæmdastjórinn Anna Hildur Hildibrandsdóttir að hætta þar störfum í byrjun janúar og er tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson, sem jafnframt er stjórnarmaður í ÚTÓN, talinn líklegastur til að taka við af henni.

Lífið

Ballerína í frístundum

Hjartaknúsarinn Ryan Gosling heldur áfram að heilla kvenþjóðina og mætir þessa dagana reglulega í ballettkennslu. Að sögn einkakennara hans er leikarinn ekki að undirbúa sig fyrir hlutverk, heldur dansar hann ballett eingöngu ánægjunnar vegna.

Lífið

Drukkið úr Cruise í 30 ár

Tom Cruise er stærsta kvikmyndastjarna í heimi; hvort sem maður skellti hurðum eftir væmna ástarjátningu í Jerry Maguire eða tók á flótta eftir vandræðalegar slagsmálasenur í Far and Away. Nú er komið að nýjustu Cruise-myndinni, leikarinn snýr aftur sem Ethan Hunt í fjórða sinn.

Lífið

Jessica alltaf grátandi

Söngkonan bandaríska Jessica Simpson grætur þessa dagana af minnsta tilefni. Ástæðan er sú að hún gengur með sitt fyrsta barn, og segir að óléttan geri það að verkum að hún tárist yfir öllu og engu.

Lífið

Paradísarmissi slegið á frest

Það er ekki bara tóm gleði hjá Bradley Cooper þótt hann hafi verið valinn kynþokkafyllsti karlmaður heims því kvikmynd hans, Paradise Lost, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Framleiðslufyrirtækið Legendary Pictures tók þessa ákvörðun eftir að forsvarsmönnum þess þótti einsýnt að kvikmyndin myndi sprengja kostnaðaráætlunina sem hljóðar upp á 120 milljónir dollara.

Lífið

Britney tók fjölskylduna upp á svið

Britney Spears lauk tónleikaferð sinni um heiminn með stæl í San Juan í Púertó Ríkó á dögunum. Í lokalaginu tók hún stórfjölskylduna sína upp á svið sem dillaði sér við tónlistina fyrir mörg þúsund áhorfendur.

Lífið

Steik með stökkri parmaskinku

Snorri Viktor Gylfason yfirmatreiðslumaður á ítalska veitingahúsinu La Luna á Rauðarárstíg sýnir í meðfylgjandi myndskeiði hvernig elda má steik með stökkri parmaskinku á auðveldan máta...

Lífið

Demi neitar að skipta um nafn

Leikkonan Demi Moore þurfti að svara fyrir sig á Twitter á dögunum en aðdáendur hafa furðað sig á því að hún heiti enn þá Mrs. Kutcher á samskiptasíðunni. Moore, sem skildi við Ashton Kutcher á dögunum eftir sex ára hjónaband, skrifaði eftirfarandi skilaboð á Twitter „Það er ekki forgangsatriði hjá mér að skipta um nafn núna. Ég biðst fyrirgefningar ef það truflar ykkur og ég ætti kannski að hætta að skrifa? Skiptir nafn mitt virkilega svona miklu máli?“

Lífið

Pabbi Beckham

David Beckham, 36 ára, hélt á 5 mánaða gamalli dóttur sinni, Harper, á fótboltaleik í Los Angeles þar sem sonur hans, Romeo, spilaði ásamt félögum sínum...

Lífið

Fékk gullplötu og keypti þvottavél

"Við erum mjög sáttir við þetta. Þetta eru að mínu mati mestu verðlaunin sem hægt er að fá í þessum bransa. Þetta eru verðlaun fólksins,“ segir grínistinn Steindi Jr. Steindi og leikstjórinn Ágúst Bent fengu í gær afhenta gullplötu fyrir sölu á fyrstu þáttaröð Steindans okkar.

Lífið

Miðbæjarrotta í Eurovision

„Ég var mikill Eurovision-aðdáandi þegar ég var lítil og kunni öll lögin utan að,“ segir Rósa Birgitta Ísfeld, söngkona Feldberg og Sometime.

Lífið

Rihanna sú vinsælasta á Facebook

Söngkonan Rihanna er efst á lista yfir þá tónlistarmenn sem fengu flest „like“ á Facebook í ár. Hún skýtur þar með reggísöngvaranum sáluga Bob Marley og söngkonunni Avril Lavigne ref fyrir rass, en þau voru í öðru og þriðja sæti, samkvæmt tölum frá Facebook.

Lífið

Lofar betri Bond

Daniel Craig hefur lofað því að Bond-myndin Skyfall verði betri en Quantum of Solace, síðasta Bond-mynd leikarans. Craig hefur verið ansi stóryrtur í viðtölum að undanförnu og sagði meðal annars Kardashian-fjölskylduna vera heimska. Hann dró því ekkert undan þegar hann var spurður um Quantum of Solace en myndin olli talsverðum vonbrigðum eftir að Casino Royale hafði hleypt Bond-myndunum aftur á skeið.

Lífið

Sheen birti númerið sitt

Leikarinn Charlie Sheen lenti í smá vandræðum með samskiptasíðuna Twitter á dögunum. Sheen ætlaði að senda einkaskilaboð til Justins Bieber sem innihélt símanúmerið hans, en birti skilaboðin óvart fyrir allra augum.

Lífið

Löggan stoppar Bieber

Poppstjarnan Justin Bieber hemlaði þegar lögreglan í Los Angeles gerði athugasemd við aksturinn í gær...

Lífið

Fanga gamla tíma í nýju blaði

„Við fengum þessa hugmynd í sumar og erum búnir að vinna í blaðinu síðan þá,“ segir Guðmundur Jörundsson fatahönnuður um nýtt tímarit herrafataverslunar Kormáks & Skjaldar, Spjátrung.

Lífið

Talandi íkornar slá í gegn

Þriðja myndin um Alvin og íkornana verður frumsýnd um helgina. Hinar myndirnar tvær hafa slegið í gegn og að þessu sinni eru íkornarnir óstýrilátu og eigandi þeirra á ferðalagi á skemmtiferðaskipi.

Lífið