Lífið

Prinsessan er svo með´etta

Hertogaynjan af Cambridge, Kate Middleton, 30 ára, gaf sér góðan tíma að ræða við börnin í Rose Hill skólanum í dag í Oxford, Englandi, eins og sjá má á myndunum. Prinsinn hennar, Vilhjálmur, var hvergi sjáanlegur eins og undanfarnar vikur þegar Kate lætur sjá sig en hann er upptekinn í flughernum.

Lífið

Nekt selur

Leikkonan Helen Mirren, 66 ára, og eiginmaður hennar, leikstjórinn Taylor Hackford, stilltu sér upp á rauða dreglinum síðustu helgi. "Hold selur. Fólk vill ekki sjá myndir af kirkjum! fólk vill sjá nakta kroppa,“ lét Helen hafa eftir sér. Sjá myndir af hjónunum í myndasafni.

Lífið

Enskur texti saminn við Mundu eftir mér

"Enski textinn er til en hann er ekki endanlegur," segir Greta Salóme Stefánsdóttir höfundur og annar flytjandi framlags Íslendinga til Eurovision söngvakeppninnar í Baku í lok maí.

Lífið

Geggjaðar í gráu

Fyrirsætan Rosie Huntington-Whiteley mætti á tískusýningu Burberry á tískuvikunni í London í gær. Þá vakti uglupeysa leikkonunnar Kate Bosworth athygli á sömu sýningu. Takið eftir gráum jakka Rosie og sömuleiðis gráu pilsi Kate í meðfylgjandi myndasafni.

Lífið

Jamie Cullum í Eurovision

Breski söngvarinn og lagahöfundurinn Jamie Cullum bar sigur úr bítum í undankeppni Eurovision söngvakeppninnar í Þýskalandi um helgina.

Lífið

Lést á tískusýningu

Tískuljónið og frumkvöðullinn Zelda Kaplan lést á tískusýningu Joanna Mastroianni á tískuvikunni í New York. Kaplan, sem var 95 ára gömul, sat á fremstu röð á sýningunni er hún missti meðvitund og lést. Tískuheimurinn er í sorg vegna fráfalls Kaplan en hún var fastagestur á fremstu röð á tískuvikum um allan heim.

Lífið

Vægast sagt sjóðheitur diskógalli

Söngkonan Nicole Scherzinger, 33 ára, mætti í svörtum samfesting á næturklúbbinn Boujis í London eftir að hún hélt tónleika þar í borg. Takk öll fyrir að mæta á tónleikana mína í kvöld og leyfa mér að deila tónlistinni minni með ykkur, skrifaði stjarnan á Twitter síðuna sína.

Lífið

Leðurklædd Aniston

Leikkonan Jennifer Aniston mætti með unnusta sínum, leikaranum Justin Theroux, í Jimmy Kimmel sjónvarpsþáttinn í Los Angeles. Parið ferðast nú um heiminn að kynna nýju myndina þeirra Wanderlust. „Aðdáendur mínir senda mér ekki nærföt eða neitt í þeim dúr. Ég fæ yfirleitt sendar kökur,“ sagði Jennifer.

Lífið

Sængaði hjá heilu auglýsingaskilti

Breska leikkonan Minnie Driver segist elska að búa í Californiu. Það fari þó í taugarnar á henni að hvert sem hún fari sé hún minnt á mistök sín eða það sem hún hefur misst af. Hún segir erfitt að þurfa stöðugt að ganga framhjá stórum auglýsingaskiltum með myndum sem hún fékk ekki hlutverk í, eða með fyrrum kærustum sínum.

Lífið

Lopez leiðist ekki í Ríó

Söngkonunni Jennifer Lopez, 42 ára, leiddist ekki á VIP svæði brasilíska bjórsins Brahma i á karnivalinu í Rio de Janeiro í gær. Hún veifaði á milli þess sem hún fylgdist með skrúðgöngunni...

Lífið

Whitney Houston kvödd

Heimsbyggðin fylgdist með þegar söngkonan Whitney Houston var borin til grafar í heimabæ sínum Newark á laugardaginn í beinni sjónvarpsútsendingu.

Lífið

Aðeins það besta fyrir Corea

Eins og komið hefur fram spilar píanósnillingurinn og Grammyverðlaunahafinn Chick Corea í Eldborgarsal Hörpu 24. apríl ásamt Gary Burton en miðasala hefst í dag.

Lífið

Hópfjármagna Breakbeat-bók

„Ein mynd segir meira en þúsund orð," segir Karl Tryggvason sem ásamt samstarfsfélaga sínum á Breakbeat.is, Gunnari Þór Sigurðssyni, og hönnuðinum Ragnari Frey Pálssyni, stefnir nú á útgáfu bókarinnar Taktabrot.

Lífið

Átta ára gömul bók á toppnum

Svartur á leik eftir Stefán Mána fór beint á toppinn hjá Forlaginu og í annað sætið hjá Eymundsson eftir að hafa verið ófáanleg í mörg ár. "Það er löngu kominn tími á að lesendur fái þessa bók aftur,“ segir Stefán Máni, sem ætlar að hrifsa toppsætið hjá Eymundsson af Jo Nesbö í vikunni. "En þetta er flott á fjórum dögum enda átta ára gömul bók.“

Lífið

Björn Hlynur stað Rúnars

Leikarinn og leikstjórinn Björn Hlynur Haraldsson leysir Rúnar Frey Gíslason af hólmi í leikritinu Fanný og Alexander. Rúnar Freyr hverfur á braut um hríð vegna persónulegra ástæðna og hoppar Björn Hlynur því í hlutverk stranga prestsins í sænsku fjölskyldusögunni eftir Ingmar Bergman.

Lífið

Nasistamynd vekur athygli

Finnska vísindaskáldsögugrínmyndin Iron Sky hefur vakið mikla athygli á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Hún fjallar um hóp nasista sem flýr til tunglsins í lok síðari heimsstyrjaldarinnar og leggur þar á ráðin um að frekari illvirki á jörðinni.

Lífið

Syrgir Whitney vinkonu sína

Söngkonan Mariah Carey, 41 árs, mætti í minningarathöfn Whitney Houston um helgina klædd í svart. Þá fékk hún sér súpu í Soho hverfinu í New York eftir athöfnina niðurlút með sólgleraugu eins og sjá má á myndunum. "Hjarta mitt er brostið og ég græt yfir því að vinkona mín er dáin,“ skrifaði hún á síðuna sína. Söngkonan söng lagið When You Believe með Whitney árið 1998.

Lífið

Eftirminnilegt og ævintýralegt upphaf í leikhúsinu

"Þetta er búið að vera hrikalega skemmtilegt og gaman að fá að vera með í þessu," segir leiklistarneminn Sigurður Þór Óskarsson en hann hefur undanfarið fengið góða reynslu af leikhúsheiminum sem afleysingamaður í leikritinu Galdrakarlinn í Oz.

Lífið

Mel B skottast í form

Mel B, 36 ára, æfir líkt og enginn sé morgundagurinn en hún skokkar daglega. Mel eignaðist stúlkuna Madison Brown í september í fyrra. Madison er fyrsta barn hjónanna. Fyrir á Mel dæturnar Phoenix, 12 ára, og Angel, 4 ára, og Stephen á eina stúlku fyrir, Giselle, 6 ára. Eins og sjá má á myndunum hleypur hún í samfloti við fleiri skokkara. Þá má sjá hana með eiginmanni sínum Stephen Belafonte.

Lífið

Svaka sætar svo ekki sé meira sagt

Leikkonurnar Nicole Kidman, 44 ára, Cate Blanchett, 42 ára, voru klæddar í svart og hvítt þegar þær settust í dómarasætið á Tropfest stuttmyndahátíðinni sem fram fór í Sydney í Ástralíu í gær, sunnudag. Nicole var klædd í Gucci kjól og Manolo Blahnik skó en Cate var í Hussein Chalayan fötum.

Lífið

Hver ber ábyrgð á neysluvenjum okkar?

Ég velti mikið fyrir mér hvernig matvöruverslanirnar stjórna kauphegðun okkar með tilboðum og afsláttum. Margir halda að þau séu að gera góð kaup en hugsa minna út í hvaða áhrif matvaran er að hafa á líkama þeirra og heilsu....

Lífið

Dyraverðirnir klippa á bindin

"Dyraverðirnir verða með skæri á sér og þeir klippa á bindin,“ segir Arnar Gíslason, einn af eigendum nýs skemmtistaðar sem kemur í stað Olivers á Laugaveginum.

Lífið

Eftirpartý á Næsta Bar

Edduverðlaunin fóru fram á laugardagskvöldið og mikil gleði í herbúðum kvikmynda- og sjónvarpsfólks. Eftir að verðlaunaafhendingunni lauk í Gamla Bíó skokkuðu flestir yfir götuna á Næsta Bar þar sem gleðin tók völd. Meðal þeirra sem skáluðu á barnum voru félagarnir Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson, en mikill skeggvöxtur þess síðarnefnda vakti athygli viðstaddra. Einnig mátti sjá leikstjórann Ragnar Bragason, stjórnmálamanninn Guðmund Steingrímsson, Þórunni Antóníu og leikstjórann Friðrik Þór Friðriksson. -áp

Lífið

Fleiri myndir frá Edduverðlaununum

Edduverðlaunin, uppskeruhátíð sjónvarps-og kvikmyndabransans hér á landi, fór fram með pompi og pragt í Gamla Bíó á laugardagskvöldið. Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar Eldfjall var sigurvegari kvöldsins með alls fimm verðlaun. Eldfjall var valin kvikmynd ársins, Rúnar Rúnarsson var leikstjóri ársins og skrifaði handrit ársins, Theodór Júlíusson var leikari ársins í aðalhlutverki og Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona ársins í aðalhlutverki en þau leika hjón í myndinni Eldfjall.

Lífið

Ástfangin af Jackass sprelligosanum

Fyrrverandi kærasta leikarans George Clooney, Elisabetta Canalis, 33 ára, var mynduð ásamt Íslandsvininum Steve-O í Róm á Ítalíu í gærdag. Elisabetta, sem er ítölsk sjónvarpsstjarna, gaf sér tíma til að spjalla við fólk á förnum vegi á milli þess sem hún knúsaði kærastann sinn, Steve-O sem er þekktur sprelligosi úr Jackass.

Lífið