Innlent
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forstjóri Skeljungs segir að bensínstöðvar gætu tæmst strax á fimmtudag ef af verkfalli olíubílstjóra verður á miðvikudag, eins og virðist stefna í. Hann hefur þungar áhyggjur af stöðunni, alvarlegt ástand geti skapast á örfáum dögum. Við tökum stöðuna á bensíninu í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. Innlent 12.2.2023 18:01
Lögreglan leitaði að dansandi manni á Miklubraut Lögreglu á höfuðborgarsvæði var tilkynnt um dansandi mann með heyrnartól á Miklubraut í dag. Sá var farinn af vettvangi þegar lögregla mætti í leit að manninum. Innlent 12.2.2023 17:41
Meirihluti þeirra sem hefur skoðun vill í Evrópusambandið Meirihluti þeirra sem tóku afstöðu í nýrri könnun Maskínu vilja ganga í Evrópusambandið. 66% vilja halda þjóðaratkvæðagreiðslu um að taka upp aðildarviðræður að nýju. Innlent 12.2.2023 17:00
Héraðsdómur ómerktur vegna tölvupósta dómarans Héraðsdómur í máli karlmanns sem ákærður hefur verið fyrir fjölmörg brot gagnvart sambýliskonu og börnum hefur verið ómerktur. Dómari tjáði sig um efni málsins í tölvupósti og taldi Landsréttur að draga mætti óhlutdrægni hans í efa. Héraðsdómur fær málið í sínar hendur á ný. Innlent 12.2.2023 14:19
Næsta lægð kemur strax í kvöld Gular stormviðvaranir taka gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra í nótt og verða í gildi fram eftir degi á morgun. „Nú er bara næsta lægð á leiðinni,“ segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Innlent 12.2.2023 14:07
Segir verkföll Eflingar vera tilgangslaus Enn og aftur kom til orðaskipta milli lögreglu og verkfallsvarða Eflingar við Íslandshótel í gær. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir engan tilgang með verkföllum Eflingar. Hann bíður átekta eftir úrskurði Landsréttar, sem væntanlegur er á allra næstu dögum - á ögurstundu í kjaradeilunni. Innlent 12.2.2023 13:13
Hefur miklar áhyggjur af nikótínotkun barna Tvö til þrjú börn og unglingar koma á viku koma á barnadeild Landspítalans með nikótíneitrun eftir að hafa sett svona upp í sig nikótínpúða eða apað slíkt eftir fullorðnum. Nikótínpúðar eru fíkniefni og oftast fyrsta slíka efnið sem fólk notar. Innlent 12.2.2023 12:54
„Ótrúlega bíræfið“ að auglýsa misnotkun á íslensku velferðarkerfi Ferðaskrifstofa í Venesúela auglýsir gott velferðarkerfi og há meðallaun á Íslandi; lágmarkslaun frá 500 þúsund allt upp í 850 þúsund krónur. Þingmann hefur grunað að starfræktur sé iðnaður í Venesúela þar sem fólk er hvatt til að leita hingað til lands. Innlent 12.2.2023 12:33
Hádegisfréttir Bylgjunnar Enn og aftur kom til átaka milli lögreglu og verkfallsvarða Eflingar við Íslandshótel í gær. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir engan tilgang með verkföllum Eflingar. Hann bíður átekta eftir úrskurði Landsréttar, sem væntanlegur er á allra næstu dögum - á ögurstundu í kjaradeilunni. Innlent 12.2.2023 11:51
Óvissustigi Almannavarna aflýst Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Vesturlandi, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra hefur aflýst óvissustigi Almannavarna í fyrrgreindum umdæmum. Innlent 12.2.2023 11:18
Reiðin kraumar í leigubílstjórum Leigubílstjórar fordæma ný lög um leigubifreiðar og segja ítrekuð aðvörunarorð hafa verið hunsuð. Þeir efast um öryggi almennings og segja peningahyggju ráða för. Þrátt fyrir að reiðin kraumi í leigubílstjórum beri þeir enn von í brjósti. Innlent 12.2.2023 11:11
Nánast enginn launamunur á opinbera og almenna vinnumarkaðnum Launamunur á milli opinbera- og almenna vinnumarkaðarins er nánast horfinn og opinberi markaðurinn því orðinn samkeppnisfær við þann almenna. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu sem að mati framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda kallar á viðbrögð. Velta þurfi því upp hvort verndarákvæði starfsmannalaganna eigi enn rétt á sér? Innlent 12.2.2023 09:57
Sprengisandur: Kjaradeilur, uppruni Íslendinga, sjókvíaeldi og Viðreisn Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 12.2.2023 09:30
Kýldi ökumann í andlitið og flúði á brott Ökumaður hafði samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í nótt og tilkynnti líkamsárás. Sagði hann tvo einstaklinga hafa sest inn í bifreiðina hjá honum án leyfis og annar einstaklingurinn síðan kýlt hann í andlitið. Innlent 12.2.2023 08:32
„Mamma okkar var drepin, hún var tekin af lífi“ „Það er rosalega erfitt að rifja þetta allt upp, rífa upp þessi sár. Það sem mér finnst eiginlega verst er að öll þessi umræða er að skyggja á allar fallegu minningarnar sem ég á af henni mömmu. Í staðinn fyrir eitthvað sem er falleg og góð minning kemur bara endalaus reiði og heift.“ Innlent 12.2.2023 07:00
Tók fuglana í bænum undir sinn verndarvæng í frosthörkum Óvenjulangar frosthörkur hafa orðið til þess að fjöldi fugla glímir við máttleysi eða hafa hreinlega drepist úr kulda eða hungri. Íbúi í Hafnarfirði hefur tekið fuglana í bænum undir sinn verndarvæng og gefur þeim allt að þrisvar sinnum á dag. Innlent 11.2.2023 23:34
Viðbúnaður vegna lítils háttar elds á Hringbraut Slökkvilið og lögregla voru kölluð til vegna elds sem kom upp í kompu í fjölbýlishúsi á Hringbraut í Vesturbæ Reykjavíkur. Veginum til austurs er lokað á meðan aðgerðum stendur Innlent 11.2.2023 22:51
Bráðamóttaka á Selfossi á neyðarstigi vegna manneklu Bráðamóttaka á Selfossi verður á neyðarstigi um helgina vegna alvarlegrar manneklu. Innlent 11.2.2023 22:10
Íslenskir veitingamenn gera það gott á Tenerife Íslenskir veitingamenn hafa meira en nóg að gera á Tenerife við að þjóna ferðamönnum og heimamönnum. Íslendingum finnst líka frábært að geta farið á íslenska veitingastaði þó kjötsúpa sé ekki í boði. Innlent 11.2.2023 21:05
Sjáðu styrktartónleika björgunarsveitarinnar Stráka Haldnir verða styrktartónleikar fyrir björgunarsveitina Stráka á Siglufirði í tilefni 1-1-2 dagsins í Siglufjarðarkirkju í kvöld klukkan 20. Sýnt verður frá tónleikunum hér að neðan á Stöð 2 Vísi. Innlent 11.2.2023 19:26
Páll Pampichler Pálsson er látinn Páll Pampichler Pálsson hljómsveitarstjóri og tónskáld er látinn. Hann lést í heimaborg sinni í Graz í Austurríki þann 10. febrúar. Innlent 11.2.2023 19:04
Bjargaði lífi litla bróður síns Fimmtán ára piltur sem bjargaði bróður sínum þegar hann grófst undir snjóflóði í Hveragerði í fyrra segir það hafa verið versta augnablik lífs síns. Hin unga hetja var útnefnd skyndihjálparmanneskja ársins í dag. Innlent 11.2.2023 19:03
Þorgerður Katrín endurkjörinn formaður og Sigmar ritari Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur verið endurkjörin formaður Viðreisnar og Daði Már Kristófersson var kjörinn varaformaður. Sigmar Guðmundsson var kjörinn í nýtt forystuembætti ritara. Innlent 11.2.2023 18:55
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hús féllu saman, flutningabílar liðuðust í sundur og lausamunir tókust á loft í óveðrinu sem nú gengur yfir landið. Flugsamgöngur lömuðust og fara ekki aftur í gang fyrr en í nótt. Óvissustig almannavarna er enn í gildi vegna ofsaveðursins, sem enn á eftir að skella á hluta landsins af fullum þunga. Við förum yfir óveðursdaginn í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og ræðum við fulltrúa Landsbjargar í beinni útsendingu. Innlent 11.2.2023 18:00
Vilja nefna hringtorg í Garðabæ í höfuðið á fyrrverandi forsetum Menningar- og safnanefnd Garðabæjar leggur til að hringtorg bæjarins verði nefnd eftir fyrrverandi forsetum Íslands. Nöfn torganna skulu merkt með „veglegum og smekklegum hætti.“ Innlent 11.2.2023 16:47
Bráðamóttakan á Selfossi - Erfið staða um helgina Vegna alvarlegrar manneklu á Bráðamóttökunni á Selfossi verður erfið staða á deildinni um helgina. Alvarlegum veikindum og slysum verður þó áfram sinnt. Hjúkrunarfræðingar verða við vinnu og meta veikindi þeirra, sem leita á móttökuna en læknisþjónusta verður skert. Innlent 11.2.2023 15:03
Búið að aflýsa nánast öllu flugi Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst. Mikil röskun er á flugi á Keflavíkurflugvelli vegna veðurs. Búið er að aflýsa nánast öllum flugferðum á Keflavíkurflugvelli. Innlent 11.2.2023 14:21
Veðurvaktin: Sumarhúsið í Kjósinni mesta tjónið í dag Veðurviðaranir eru í gildi á landinu öllu, annaðhvort gular eða appelsínugular. Mikið hvassviðri var á landinu og stóðu Björgunarsveitir í ströngu í allan dag. Að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar varð blessunarlega lítið tjón utan sumarhúss í Kjósinni sem gjöreyðilagðist í vindhviðunum. Innlent 11.2.2023 14:01
Þung staða á bráðamóttökunni á Selfossi Þung staða er á bráðamóttökunni á Selfossi vegna manneklu. Erfiðlega hefur gengið að manna læknavaktir og biðtími á bráðamóttökunni hefur því lengst töluvert. Forstjóri segir forgangsraða þurfi tilfellum eftir alvarleika en að bráðum veikindum og slysum verði sinnt. Innlent 11.2.2023 13:42
Styður yfirlýsingu miðstjórnar ASÍ Forseti ASÍ segir havaríið við ráðherrabústaðinn í gær ekki tilefni yfirlýsingar sem miðstjórn ASÍ gaf út í gær þar sem orðræðan í kjaradeilu SA og Eflingar er gagnrýnd. Hann segist styðja baráttu Eflingar og er tilbúinn að sinna verkfallsvörslu þegar kallið kemur. Innlent 11.2.2023 13:23