Erlent
Selja aðgang að Trump til auðugra glæpamanna sem vilja náðun Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er að íhuga að náða eða fella niður dóma rúmlega hundrað manns á síðustu klukkustundum forsetatíðar sinnar. Meðal annarra er forsetinn sagður íhuga að veita sjálfum sér, börnum sínum og ráðgjöfum náðanir. Erlent 18.1.2021 10:09
Rannsaka bakgrunn þúsunda þjóðvarðliða Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar nú bakgrunn þeirra 25 þúsund þjóðvarðliða sem væntanlegir eru til Washington-borgar í vikunni til þess að gæta öryggis þegar Joe Biden sver embættiseið sinn sem forseti Bandaríkjanna. Innsetningin verður á miðvikudag. Erlent 18.1.2021 09:05
Tólf kínverskir námumenn enn á lífi en innilokaðir á 600 metra dýpi Björgunarsveitir í Kína segja að tólf kínverskir námamenn sem hafa verið innilokaðir í gullnámu eftir að sprenging lokaði námumunanum séu enn á lífi en sprengingin varð fyrir viku síðan. Erlent 18.1.2021 07:40
Bjó á flugvellinum í Chicago í þrjá mánuði Aditya Singh, 36 ára gamall maður frá Kaliforníu, var handtekinn um helgina á O‘Hare-alþjóðaflugvellinum í Chicago og ákærður fyrir ýmis brot, meðal annars þjófnað og að hafa farið í leyfisleysi inn á lokað svæði á vellinum. Erlent 18.1.2021 07:21
Mun færri mótmæla en búist var við Mun færri hafa mótmælt í höfuðborgum Bandaríkjanna í dag en búist var við. Lögregluyfirvöld hafa verið í viðbragðsstöðu um helginna vegna viðbúinna mótmæla í höfuðborgum ríkjanna 50. Erlent 17.1.2021 22:25
Kalla eftir því að Navalní verði sleppt úr haldi Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, segir sér brugðið vegna handtöku stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní við komuna til Rússlands í dag. Hann hvetur rússnesk yfirvöld til að láta Navalní lausan án tafar. Þetta skrifar Guðlaugur á Twitter. Erlent 17.1.2021 21:00
Lík allra fimm hafa fundist í brunarústunum Fimm hafa fundist í brunarústum sumarbústaðar sem brann til grunna í þorpinu Risøyhamn á eyjunni Andøy í Noregi í gærnótt. Fjögur þeirra sem brunnu inni voru börn undir sextán ára aldri. Erlent 17.1.2021 19:37
Navalní handtekinn við komuna til Rússlands Alexei Navalní hefur verið handtekinn en hann sneri aftur til Rússlands í dag í fyrsta skipti eftir að eitrað var fyrir honum með taugaeitrinu Novichok. Erlent 17.1.2021 18:21
Phil Spector er látinn Bandaríski tónlistarframleiðandinn og lagahöfundurinn Phil Spector er látinn 81 árs að aldri. Erlent 17.1.2021 16:17
Þriðja líkið fundið í brunarústunum Leitarmenn fundu nú fyrir skömmu þriðja líkið í brunarústum sumarbústaðar sem brann til grunna í þorpinu Risøyhamn á eyjunni Andøy í Noregi í gærnótt. Erlent 17.1.2021 15:29
Vill vinda ofan af embættisverkum Trumps sem fyrst Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, virðist ætla að hefjast handa við það að vinda ofan af ýmsum stefnumálum Donalds Trump, fráfarandi forseta, um leið og hann tekur við embættinu, þann 20. janúar næstkomandi. Erlent 17.1.2021 13:38
Navalní gæti beðið handtaka þegar hann snýr heim til Moskvu í dag Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní mun snúa aftur heim til Moskvu seinnipartinn í fyrsta sinn eftir að hann lét næstum lífið eftir að eitrað var fyrir honum með taugaeitrinu Novichok. Erlent 17.1.2021 13:35
Fundu tvö lík í brunarústunum Tveir hafa fundist látnir í brunarústum sumarbústaðar sem brann til grunna í þorpinu Risøyhamn á eyjunni Andøy í Noregi í gærnótt. Nöfn þeirra hafa ekki verið birt en fimm var saknað úr bústaðnum í gær, þar af fjögurra barna. Erlent 17.1.2021 12:10
Handtekinn með hlaðna byssu skammt frá þinghúsinu Vopnaður karlmaður var handtekinn við öryggishlið skammt frá þinghúsi Bandaríkjanna í gær. Erlent 17.1.2021 09:48
Bókaútgáfu og viðburði þingmanns sem barðist gegn sigri Bidens aflýst Bandaríska hótelkeðjan Loews hefur tilkynnt að hún muni ekki hýsa fjáröflunarsamkomu fyrir bandaríska öldungadeildarþingmanninn Josh Hawley. Hann er einn þeirra þingmanna sem hefur barist hvað harðast gegn því að sigur Joes Biden í forsetakosningunum í nóvember á síðasta ári yrði staðfestur. Erlent 17.1.2021 09:23
Facebook bannar vopnaauglýsingar í Bandaríkjunum Facebook hefur ákveðið að banna auglýsingar sem auglýsa aukahluti fyrir vopn og hlífðarbúnað í Bandaríkjunum. Bannið tekur þegar gildi og mun gilda að minnsta kosti þar til á föstudag, tveimur dögum eftir að Joe Biden, verðandi forseti, sver embættiseið sinn þann 20. janúar. Erlent 16.1.2021 23:30
Fleiri bólusettir fyrir veirunni en hafa smitast á Bretlandi Fleiri hafa nú verið bólusettir fyrir kórónuveirunni en hafa greinst smitaðir á Bretlandi. Nú hafa meira en 3,5 milljónir Breta fengið fyrsta skammt bólusetningarinnar við veirunni og þegar hafa 447 þúsund fengið báða skammta. Hingað til hafa 3,3 milljónir manna greinst smitaðir af veirunni á Bretlandi. Erlent 16.1.2021 22:50
Að minnsta kosti 70 börn frá Marshall-eyjum seld bandarískum pörum Að minnsta kosti 70 börn frá Marshall-eyjum voru seld bandarískum pörum eftir að þungaðar mæður þeirra höfðu verið lokkaðar til að yfirgefa heimili sín og fjölskyldur fyrir 1,3 milljónir króna og loforð um betra líf í Bandaríkjunum. Erlent 16.1.2021 20:01
Öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna búa sig undir óeirðir Öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna auk Washington DC eru viðbúin vegna mótmæla sem búast má við um helgina. Talið er að óeirðir geti brotist út en andstæðingar Joe Bidens verðandi Bandaríkjaforseta stefna á götur út til að mótmæla embættistöku forsetans verðandi. Erlent 16.1.2021 19:43
Spænskur fjallgöngumaður fórst á K2 Spænski fjallagarpurinn Sergi Mingote fórst á leiðinni á tind K2, næsthæsta fjalls í heimi. Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, tilkynnti þetta á Twitter í dag. Erlent 16.1.2021 17:42
Breskir heilbrigðisstarfsmenn óttast að verða sóttir til saka Breskir heilbrigðisstarfsmenn hafa kallað eftir því að þeim verði veitt lagaleg vernd gegn mögulegum afleiðingum álagsins sem fylgir kórónuveirufaraldrinum. Þeir séu settir í þá stöðu að taka ákvarðanir sem gætu valdið dauðsföllum. Erlent 16.1.2021 16:13
Fjögur börn voru í bústaðnum Óttast er að fimm hafi látist þegar sumarbústaður brann til grunna í í þorpinu Risøyhamn á eyjunni Andøy í Noregi í nótt. Sex dvöldu í bústaðnum þegar eldurinn kom upp en einn komst út af sjálfsdáðum. Erlent 16.1.2021 15:09
Armin Laschet nýr formaður Kristilegra demókrata Armin Laschet var í dag kosinn formaður Kristilegra demókrata og tekur hann við embættinu af Annegret Kramp-Karrenbauer. Á undan henni hafði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, gegnt formannsembættinu frá árinu 2000 til 2018. Erlent 16.1.2021 14:48
Varð á undan John Snorra á toppinn Nepalski fjallgöngumaðurinn Mingma Gyalje kveðst í dag hafa náð tindi K2, næsthæsta fjalls í heimi. Hann og íslenski fjallagarpurinn John Snorri Sigurjónsson ætlaði sér að verða fyrstur, en Gyalje virðist hafa orðið fyrri til. Erlent 16.1.2021 13:12
Fimm saknað eftir bruna í sumarbústað Fimm er saknað eftir að bústaður brann til grunna í þorpinu Risøyhamn á eyjunni Andøy í Noregi í nótt. Lögreglu barst tilkynning klukkan 04:30 að staðartíma eftir einn úr bústaðnum náði að láta nágranna vita. Erlent 16.1.2021 10:57
Keppinautur Johns Snorra nálgast tindinn óðfluga Nepalski fjallagarpurinn Mingma Gyalje segist hársbreidd frá því að ná tindi K2. Enginn hefur áður klifið tindinn að vetri til. Hinn íslenski John Snorri Guðjónsson freistar þess einnig að ná tindinum um þessar mundir. Erlent 16.1.2021 10:30
Rannsaka hvort þingmenn hafi aðstoðað árásarmennina Lögreglan í þinghúsi Bandaríkjanna (e. Capitol Police) hefur hafið rannsókn á því hvort einhverjir þingmenn kunni að hafa verið til leiðsagnar í „óviðeigandi“ skoðunarferðum um þinghúsið, áður en múgur hliðhollur Donald Trump Bandaríkjaforseta réðst þar inn þann 6. janúar síðastliðinn. Erlent 16.1.2021 09:13
Boðar til kosninga í Palestínu Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur tilkynnt að gengið verði til þing- og forsetakosninga í landinu. Síðustu kosningar fóru fram árið 2006. Erlent 16.1.2021 08:39
Breska afbrigðið verði orðið ráðandi í mars Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, varar nú við því að afbrigði kórónuveirunnar sem talið er meira smitandi en flest önnur, og var fyrst uppgötvað í Bretlandi, verði orðið ráðandi afbrigði veirunnar í Bandaríkjunum fyrir marsmánuð. Erlent 16.1.2021 08:17
Biden vill bæta í bólusetningar Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, lofaði í gær að undir hans stjórn myndu bandarísk stjórnvöld bæta í bólusetningar við kórónuveirunni. Erlent 16.1.2021 07:57