Erlent

Stefnir á Flórída

Meirihluti íbúa Florida Keys eyjaklasans hefur neitað að yfirgefa heimili sín, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir yfirvalda vegna fellibylsins Wilmu, sem hefur styrkst á ný og nær þar landi upp úr hádeginu í dag.

Erlent

Börn dóu í sprengjuárás

Háttsettur lögregluforingi í borginni Tikrit í Írak beið bana í sprengjuárás í gær ásamt tveimur ungum sonum sínum. Tvær telpur sem sátu í nálægri bifreið létust jafnframt í tilræðinu. Alls fórust tuttugu Írakar í árásum gærdagsins, þar á meðal tveir í Kirkuk þegar bifreið sem hlaðin var sprengiefni var ekið inn í bílalest bandarískra hermanna. Hermennirnir sluppu hins vegar með ­skrám­ur.

Erlent

Sjálfala í allt að sex vikur

Litli drengurinn sem fannst hungraður og illa til reika í íbúð í Leith á dögunum með látinni móður er talinn hafa verið einn á báti í allt að sex vikur, ekki í tvær eins og fyrst var talið. Lögreglurannsókn hefur leitt í ljós að móðir drengsins, sem er þriggja ára, sást síðast á lífi 1. september og því útilokar lögregla ekki að snáðinn hafi síðan þá dregið fram lífið á kexi og safa sem var til íbúðinni. Líðan drengsins er sögð furðu góð miðað við aðstæður.

Erlent

Átök við flóttamannabúðir

Fjórir slösuðust í átökum sem brutust út á milli líbanskra skæruliða og herskárra Palestínumanna við flóttamannabúðir nærri Sídon. Að sögn al-Jaazera sjónvarpsstöðvarinnar eru slíkir bardagar allalgengir en líbönsk yfirvöld hafa litla stjórn á búðum sem þessum.

Erlent

Stafirnir í stafrófinu búnir

Fellibylurinn Wilma yfirgaf loks Mexíkó í gær og hélt sem leið lá í átt til Flórídaríkis. Aldrei hafa jafn margir fellibyljir geisað á þessum slóðum á einu ári. Wilma hefur gert mikinn óskunda í löndunum við Mexíkóflóa undanfarna daga.

Erlent

Kominn til Flórída

Fellibylurinn Wilma mjakaði sér frá Mexíkó til Flórídaríkis í Bandaríkjunum í gær. Íbúar á hættusvæðum hafa flestir haft sig á brott. "Bærinn sem við búum í er núna eins og draugabær, það eru allir farnir. Hér er samt núna 28 stiga hiti og sólskin og þægileg hafgola. Eftir nokkrar klukkustundir skellur hins vegar veðrið hérna á. Við erum að fara að forða okkur til Fort Lauderdale," sagði Ingvi Hrafn Jónsson fréttamaður sem staddur var á í Key Largo, syðst í Flórída, síðdegis í gær.

Erlent

Manni banað með hnífi

Maður var stunginn til bana þegar átök brutust út í ­Birm­ingham í Englandi í fyrrakvöld. Upphaf ólgunnar má rekja til fundar sem boðað hafði verið til vegna árásar á 14 ára gamla stúlku, sem sagt er að hafi verið nauðgað af asískum innflytjendum.

Erlent

H5N1-stofninn ekki á ferðinni

Öndin sem drapst úr fuglaflensu í Svíþjóð í vikunni var ekki smituð af hinum illvíga H5N1-stofni veikinnar. Alls hefur 61 maður látist úr fuglaflensu af H5N1-stofni í Asíu en fuglaflensan hefur nú greinst í fimm Evrópulöndum: Rússlandi, Tyrklandi, Rúmeníu, Króatíu og nú síðast í Svíþjóð.

Erlent

Páfagaukurinn sýktur af H5N1-flensu

Bretland Bresk stjórnvöld skýrðu frá því í gær að banamein páfagauks sem geymdur var í einangrunarstöð í Essex í Englandi var fuglaflensa af H5N1-stofni. Komið var með fuglinn til landsins fyrir nokkru frá Súrínam í Suður-Ameríku og var hann settur í sóttkví með 216 fuglum frá Taívan.

Erlent

Þrír dóu þegar brúin hrundi

Steypiregn olli því að brú hrundi í Puglia-héraði á sunnanverðri Ítalíu í gær með þeim afleiðingum að þriggja manna fjölskylda sem var í þann mund að aka yfir brúna beið bana.

Erlent

Kaczynski var kjörinn forseti

Pólverjar kusu í gær Lech Kazcynski forseta sinn ef marka má útgönguspár. Donald Tusk, keppinautur hans, lýsti sig sigraðan fljótlega eftir að spárnar voru birtar.

Erlent

Kvaðst vera vitorðsmaður

Breska lögreglan handtók um helgina mann sem viðurkenndi í blaðaviðtali að hafa verið í vitorði með mönnunum sem myrtu 52 í sprengjuárásum í Lundúnum 7. júlí. Sunnudagsblaðið News of the World greindi frá því í gær að lögregla í Dewsbury í Vestur-Jórvíkurskíri hefði í fyrradag handtekið Imran Patel eftir ábendingu frá ritstjórn blaðsins, en Patel hafði viðurkennt í samtali við blaðamann að hafa átt að taka þátt í hryðjuverkaárásunum.

Erlent

117 taldir af eftir flugslys

Nígería Boeing-þota í eigu nígerísks flugfélags fórst í fyrrakvöld með 117 manns skömmu eftir flugtak frá borginni Lagos. Afar misvísandi fréttir bárust af slysinu framan af gærdeginum. Þotan, sem var af tegundinni Boeing 737 og var í eigu nígeríska flugfélagsins Bellview Airlines, var á leið frá Lagos, stærstu borg landsins, til höfuðborgarinnar Abuja.

Erlent

Al-Kaída hvetur til mannúðar

Arabíska sjónvarpsstöðin al-Jaazera birti í gær ávarp Ayman al-Zawahiri, næstráðanda al-Kaída samtakanna, þar sem hann hvatti múslima til að aðstoða fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan. Pakistönsk stjórnvöld hafa aðstoðað Bandaríkjamenn í stríðinu gegn hryðjuverkum og því vekur yfirlýsingin athygli.

Erlent

Að minnsta kosti sjö látnir

Minnst sjö manns létu lífið þegar fellibylurinn Wilma gekk yfir Júkatan-skaga í Mexíkó um helgina. Bylurinn stefnir nú í átt að suðurhluta Flórída. Enn ein hitabeltislægðin hefur myndast í Karíbahafi.

Erlent

117 manns létust

Enginn komst lífs af þegar farþegaþota með hundrað og sautján manns innanborðs fórst skömmu eftir flugtak í Lagos í Nígeríu í morgun. Vélin var á leiðinni til Abuja, höfuðborgar landsins.

Erlent

Einn stunginn til bana

Einn maður var stunginn til bana í óeirðum sem blossuðu upp á milli afrískra og asískra ungmenna í Birmingham á Englandi í gærkvöldi. Lögreglumaður, sem reyndi að stilla til friðar, særðist alvarlega þegar skotið var á hann.

Erlent

Ein milljón varð fyrir tjóni

Að minnsta kosti ein milljón manna hefur orðið fyrir tjóni þegar fellibylurinn Wilma gekk yfir Mexíkó um helgina. Minnst sex hafa látist í óveðrinu. Alvarlegust er eyðileggingin á ferðamannasvæðinu Cancún en þar eru sjö hundruð þúsund manns talin hafa misst heimili sín. Talið er að þrjú hundruð þúsund manns til viðbótar hafi orðið fyrir einhverjum skaða.

Erlent

Öndin ekki smituð af H5N1

Öndin sem drapst af fuglaflensu í Svíþjóð í vikunni var ekki smituð af H5N1 afbrigði flensunnar sem borist getur í menn. Alls hefur 61 maður látist vegna veirunnar í Asíu en fuglaflensan hefur nú greinst í fimm Evrópulöndum. Rússlandi, Tyrklandi, Rúmeníu, Króatíu og nú síðast í Svíþjóð. Öndin drapst í Eskiltuna, um 100 kílómetra vestur af Stokkhólmi og var hún smituð af mildara afbrigði veirunnar, samkvæmt niðurstöðum dýralækna.

Erlent

Maður handtekinn í Lundúnum

Breska lögreglan hefur handtekið mann sem sagður er hafa verið beðinn um að ganga til liðs við mennina sem sprengdu upp neðanjarðarlestir og strætisvagn í Lundúnum í júlí síðastliðinum.

Erlent

Enginn komst lífs af

Nú er ljóst að enginn komst lífs af eftir að nígerísk farþegaþota fórst skömmu eftir flugtak frá borginni Lagos í morgun. Alls voru 116 manns um borð. Flak vélarinnar fannst í héraðinu Kishi Oyo. Vélin, sem var af gerðinni Boeing 737, var í eigu flugfélagsins Bellview Airlines og var á leiðinni til Ajuba, höfuðborgar Nígeríu.

Erlent

Fuglaflensa í Svíþjóð

Fuglaflensan er komin upp í Svíþjóð. Veiran fannst í fjórum öndum sem fundust dauðar í Eskilstuna í gær, um 100 km vestur af Stokkhólmi. Ekki er hins vegar ljóst hvort veiran sem olli flensunni er af H5N1 stofni, sem getur borist í menn. Talsmaður yfirdýralæknisembættis Svíþjóðar, segir ljóst að ein öndin hafi verið með fuglaflensu en greining á stofni veirunnar liggur fyrir innan nokkrra daga.

Erlent

Fimm farast í Indlandi

Að minnsta kosti fimm létust og sex slösuðust þegar íbúðahús hrundi í borginni Bombay á Indlandi í morgun. Verið var að vinna við að styrkja húsið þegar þegar það hrundi og lentu verkamenn undir rústunum. Fjölmargar byggingar hafa hrunið í borginni frá því í ágúst þegar miklar rigningar gengu yfir hana.

Erlent

Þrír látnir á Ítalíu

Þrír létust er brú hrundi í Puglia á Ítalíu í nótt. Þá slösuðust að minnsta kosti þrír þegar lest fór út af sporinu í Puglia í dag. Talið er að miklar rigningar hafi valdið óhappinu en alls voru um 60 manns í lestinni sem var á leið frá Taranto í Puglia til Mílanó. Lestin hafði verið á ferð í klukkustund þegar óhappið varð. Unnið er að björgunaraðgerðum.

Erlent

Maður drepinn í Englandi

Einn maður var stunginn til bana þegar átök brutust út milli ungmenna í borginni Birmingham á Englandi í gærkvöldi.

Erlent

Fjórir látið lífið

Mikið óveður geysar í grennd við borgina Barí í suðausturhluta Ítalíu og hafa minnst fjórir látið lífið þar undanfarinn sólarhring. Miklar rigningar eru á svæðinu og hafa vegir farið í sundur og brýr eyðilagst. Fimmtán manns slösuðust í morgun þegar lest á leið frá Puglia til Mílanó fór út af sporinu eftir að aurskriða féll á lestarteinana.

Erlent

Sex farast í Cancun

Mikil eyðilegging blasir við í Cancun í Mexíkó þar sem fellibylurinn Wilma gekk yfir um helgina. Minnst sex fórust í óveðrinu.

Erlent

66 látnir í Nígeríu

Flak nígerísku farþegaþotunnar sem fórst skömmu eftir flugtak frá borginni Lagos í Nígeríu í morgun, er fundið. Alls létust sextíu og sex manns í slysinu en eitt hundrað og sextán manns voru um borð.

Erlent

Þréttán falla í Írak

Að minnsta kosti þrettán féllu og yfir þrjátíu særðust í árásum uppreisnarmanna í Írak í morgun. Lögreglumaður og fjögur börn hans voru meðal hinna sem féllu en eldur kom upp í bifreið þeirra í kjölfar sprengingar í norðurhluta landsins. Enginn samtök hafa lýst yfir ábyrgð á verknaðinum.

Erlent

Flugvélin fundin

Flak nígerísku farþegaþotunnar sem fórst skömmu eftir flugtak frá borginni Lagos í morgun, er fundið. Flakið fannst í héraðinu Kishi Oyo. 116 manns voru um borð í þotunni og ekki er ljóst hvort nokkur hafi komist lífs af. Vélin var á leiðinni til Ajuba, höfuðborgar Nígeríu en meðal annarra voru um borð hátt settir embættismenn stjórnvalda. Flugslys hafa verið tíð að undanförnu en þetta er sjötta farþegavélin sem ferst á þremur mánuðum í heiminum. Björgunarstarf stendur nú yfir.

Erlent