Erlent
Vísa orðum Hersh á bug Bandarísk stjórnvöld neita því alfarið að þau íhugi að gera kjarnavopnaárás á írönsk kjarnorkuver eins og fullyrt er í tímaritinu New Yorker. Þau útiloka þó ekki að beita Írana hervaldi haldi þeir kjarnorkuáætlun sinni til streitu. Erlent 10.4.2006 18:54
ESB stöðvar fjárstuðning til heimastjórnar Palestínumanna Utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í dag formlega að stöðva tímabundið fjárstuðning til heimastjórnar Palestínumanna. Fram kemur í tilkynningu að með því vilji sambandsríkin þrýsta á að stjórnin, undir forystu Hamas-samtakanna, viðurkenni Ísraelsríki, stöðvi ofsamenn í sínum röðum og staðfesti þau friðarsamkomulög sem gerð hafi verið. Erlent 10.4.2006 15:45
Gífurleg flóð í Serbíu Serbar búa sig undir það að vatnshæð í Dóná verði í dag sú mesta sem mælst hefur í aldarfjórðung. Gríðarlega hefur flætt í landinu síðasta hálfa mánuðinn sökum mikillar úrkomu og asahláku. Erlent 10.4.2006 15:25
Talið að 120 manns hafi drukknað Talið er að allt að 120 manns hafi látist er bát hvolfdi á vatninu Volta í Ghana í Vestur-Afríku á laugardag. Í það minnsta 150 manns voru um borð og var þrjátíu þeirra bjargað. Báturinn hefur enn ekki fundist en björgunarmenn leita nú að þeim sem kynnu að hafa lifað slysið af. Erlent 10.4.2006 13:22
Stjórn Berlusconis líklega fallin Kjörstöðum á Ítalíu var lokað fyrir nokkrum mínútum og benda útgönguspár til að ólívubandalag Romano Prodis hafi nauma forystu á hægrifylkingu Silvio Berlusconis forsætisráðherra. Stjórn Berlusconis virðist með öðrum orðum fallin ef marka má þessar spár. Erlent 10.4.2006 13:07
Kosið að nýju í Perú Allt útlit er fyrir að kjósa þurfi að nýju í Perú þar sem enginn frambjóðendanna í forsetakosningum landsins fékk meirihluta atkvæða. Það er þjóðernissinninn og fyrrum yfirmaður í her Perú, Ollanta Humala, sem leiðir naumlega eftir fyrstu umferð forsetakosninganna. Erlent 10.4.2006 12:45
Chirac dregur atvinnulöggjöfina til baka Jacques Chirac, Frakklandsforseti, hefur tilkynnt að nýlegar breytingar á atvinnulöggjöf verði dregnar til baka. Breytingarnar hafa valdið miklum mótmælum í Frakklandi á undanförnum vikum, en nú segir forsetinn að lagðar verði fram nýjar áætlanir sem leysa eiga atvinnuvanda ungs fólks. Erlent 10.4.2006 12:18
Kröftug sprenging á sjúkrahúsi í Kína Í það minnsta 17 fórust og sjö slösuðust þegar kröftug sprenging varð á sjúkrahúsi í Shanxi héraði í norðurhluta Kína í gær. Sprenginin varð í bílageymslu sjúkrahússins og olli skemmdum á nærliggjandi byggingum. 17 lík hafa fundist en björgunarstarf stendur enn yfir og talið er að fleiri lík muni finnast við leit í dag. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni. Erlent 10.4.2006 11:07
Alexander Lukashenko í ferðabanni Alexander Lukashenko forseti Hvíta-Rússlands má ekki ferðast til landa innan Evrópusambandsins samkvæmt banni sem sambandið setti á í dag. Erlent 10.4.2006 10:49
Slösuðust þegar svalir hrundu Sex manns slösuðust á Lálandi í Danmörku í morgun þegar svalir sem fólkið stóð á hrundu til jarðar. Fólkið sem var statt á námskeiði hafði brugðið sér út á svalirnar til að reykja þegar óhappið varð. Það var flutt á slysadeild og mun ekkert þeirra vera alvarlega slasað. Erlent 10.4.2006 10:00
Allt að hálf milljón manna mótmæla Allt að hálf milljón manna hvöttu yfirvöld í mótmælagöngum í nokkrum bandarískum borgum í gær til að viðurkenna þær ellefu milljónir ólöglegra innflytjenda sem búa í landinu sem fullgilda borgara. Erlent 10.4.2006 09:59
Heimsmet í páskaeggjaleit Rúmlega tíuþúsund manns, aðallega börn, tóku forskot á páskasæluna og tóku þátt í heimsins stærstu páskaeggjaleit í Georgíu í Bandaríkjunum í gær. Rúmlega þrjúhundruð þúsund egg höfðu verið falin í Stone Mountain Park og innihéldu þau flest sælgæti en í rúmlega fjögur þúsundum þeirra voru ýmis verðlaun eins og DVD-diskar og aðgangsmiðar að leikjagörðum. Páskaeggjaleitin í gær sló fyrra heimsmet Rockfords í Illinois en þá voru falin 292.686 egg. Erlent 10.4.2006 09:30
Mótmæla valdatöku Gyanendra Mótmæli gegn konungi Nepals, Gyanendra standa enn yfir. Yfir helgina skutu hermenn tvo mótmælendur til bana en konungur landsins lagði á útgöngubann í höfuðborginni Katmandu og skipaði hermönnum sínum að skjóta alla sem ekki virtu bannið. Þúsundir hafa mótmælt ólýðræðislegri valdatöku Gyanendra fyrir 14 mánuðum. Erlent 10.4.2006 09:00
Átti sex börn með föður sínum Karlmaður í Þýskalandi á nú yfir höfði sér 15 ára fangelsi fyrir að misnota dóttur sína kynferðislega í rúm þrjátíu. Maðurinn býr ásamt fjölskyldu sinni á bóndabæ og lengst af héldu nágrannarnir að þar færi venjuleg fjölskylda en á heimilinu bjuggu tólf börn. Nú hefur elsta dóttir bóndans komið fram og sagt föður sinn hafa misnotað sig frá níu ára aldri og að saman eigi þau sex börn. Erlent 10.4.2006 08:45
Jafnaðarmenn halda líklega völdum Jafnaðarmenn í Ungverjalandi virðist ætla að halda völdum í landinu en fyrri hluti kosninganna fór fram í gær, þær fyrstu eftir að Ungverjaland gekk í Evrópusambandið. Seinni hluti þingkosninganna fer fram þann 23. apríl næstkomandi. Gangi útgönguspárnar eftir verður þetta í fyrsta skipti sem ríkisstjórnarflokkar halda meirihluta í kosningum í Ungverjalandi frá árinu 1989. Erlent 10.4.2006 08:30
Áfengissýki vaxandi vandamál hjá flugfélögum Sífellt fleiri flugmenn og flugþjónar og flugfreyjur í Danmörku eru svipt atvinnuleyfi vegna áfengissýki. Samkvæmt dagblaðinu Extra bladet þar í landi hefur vandinn farið stöðugt vaxandi en á meðan sjö manns voru á ári hverju að meðaltali sviptir starfsréttindum sínum vegna vandans á árunum 1992 til 2001, er talan nú 20 til 30 manns. Reynist áhafnarmeðlimur eiga við áfengisvanda að stríða er honum gert að fara í meðferð, vilji hann halda áfram störfum. Erlent 10.4.2006 08:15
Hvöttu yfirvöld til að viðurkenna innflytjendur Allt að hálf milljón manna hvöttu yfirvöld, í mótmælagöngum í nokkrum bandarískum borgum í gær, til að viðurkenna þær ellefu milljónir ólöglegra innflytjenda sem búa í landinu, sem fullgilda borgara. Talið er að fleiri göngur verði farnar í dag í enn fleiri borgum landsins. Mótmælin hafa hingað til farið friðsamlega fram en málið er mjög umdeilt. Talið er þó að yfirvöld muni láta af kröfum innflytjenda að lokum. Erlent 10.4.2006 08:00
Mun líklega velta Berlusconi úr sessi Þingkosningar halda áfram á ítalíu í dag en kjörstöðum verður lokað klukkan eitt eftir hádegi að íslenskum tíma. Talið er að kosningabandalag Romanos Prodis, forsætisráðherraefnis vinstri flokkanna, muni sigra Berslusconi, forsætisráðherra Ítalíu. Reynist það rétt bíður hans erfitt verkefni. Á vinstri væng þyrfti hann að mynda bandalag sem samanstendur af mörgum fylkingum, allt frá hörðum kommúnistum til hófsamra kaþólskra miðjumanna. Erlent 10.4.2006 07:45
Litlar líkur á að fuglaflensan stökkbreytist Afar litlar líkur eru á að fuglaflensan stökkbreytist og verði að faraldri í mönnum. Þetta sagði helsti vísindaráðgjafi ríkistjórnar Bretlands, Sir David King í gær. Sýni úr svani sem fannst dauður í Skotlandi í síðustu viku reyndist vera með H5N1-afbrigði fuglaflensuveirunnar. Síðan þá hafa þúsundir manna hringt inn og tilkynnt um dauða fugla en veiran hefur ekki greinst í öðru tilfelli. Erlent 10.4.2006 07:00
Vopnaður hópur nær yfirráðum í bæjum í Chad Hópur vopnaðra manna er sagður hafa náð yfirráðum í þremur bæjum í Afríkuríkinu Chad í dag. Hópurinn tilheyrir samtökum sem segjast berjast fyrir lýðræðislegum breytingum í landinu og eru yfirlýstur andstæðingur forseta landsins, Idriss Deby. Erlent 9.4.2006 16:45
Tvær palestínskar konur særðust alvarlega Tvær palestínskar konur særðust alvarlega í áhlaupi ísraelska hersins í bænum Nablus á Vesturbakkanum í dag. Ísraelar töldu að eftirlýstir öfgamenn dveldu í bænum og því réðist herinn til atlögu. Erlent 9.4.2006 16:30
Nítján tróðust undir á trúarhátíð í Pakistan Nítján konur og börn dóu í miklu öngþveiti sem skapaðist á trúarhátíð múslíma í Karachi í Pakistan í dag. Að því er Reuters-fréttastofan hermir féll ung stúlka þegar fólksfjöldinn var á leið út úr mosku og þar með myndaðist keðjuverkunin sem varð til þess að fólkið tróðst undir með þessum hörmulegu afleiðingum. Erlent 9.4.2006 15:15
Sniðganga sólarlandaferðir til landa múslíma Danskir ferðamenn sniðganga sólarlandaferðir til landa á borð við Egyptalands og Tyrklands þetta sumarið. Jótlandspósturinn segir þetta vera svar Dana við aðgerðum Miðausturlandabúa sem hunsuðu danskar vörur vegna Múhameðsmyndanna svonefndu. Erlent 9.4.2006 13:00
Tóku mann í gíslingu á hamborgarastað Talsvert uppnám skapaðist þegar tveir vopnaðir menn tóku þann þriðja í gíslingu á veitingastað í miðborg Istanbúl í gær. Erlent 9.4.2006 11:30
Lík af átta mönnum finnast í bílum í Kanada Lík af átta mönnum fundust í þremur bifreiðum nærri bóndabýli í Ontario-fylki í Kanada í gær. Lögregla telur fullvíst að mennirnir hafi verið myrtir og útilokar ekki að fleiri lík geti fundist. Ekki liggur fyrir hverjir mennirnir voru eða hver hefði banað þeim en bóndinn á bænum liggur þó ekki undir grun. Erlent 9.4.2006 10:45
Ítalir kjósa til þings í dag og á morgun Þingkosningar eru hafnar á Ítalíu en kjörstaðir voru opnaðir snemma í morgun. Fjörtíu og sjö milljónir Ítala eru á kjörskrá og hefur kjörsóknin framan af morgni verið bærileg. Erlent 9.4.2006 10:00
Árásir á Írana í athugun Bandarísk stjórnvöld eru sögð undirbúa stórfelldar hernaðaraðgerðir gegn Írönum til að koma í veg fyrir að þeim takist að koma sér upp kjarnavopnum. Jafnvel er í athugun að varpa atómsprengjum á vinnslustöðvar Írana þar sem auðgun úrans fer fram. Erlent 8.4.2006 19:06
Héldu gestum á Burger King í gíslingu Lögregla í Istanbúl handtók fyrr í dag tvo byssumenn sem haldið höfðu fólki í gíslingu í skamman tíma á Burger King veitingastað í borginni. Mennirnir voru gripnir á þaki veitingastaðarins eftir að annar þeirra hafði skotið af byssu sinni upp í loftið. Ekki er ljóst hverjir þeir eru eða hvort þeir voru á vegum einhverra samtaka en öllum gíslum var bjargað eftir umsátrið. Erlent 8.4.2006 17:45
Tveir Svíar létust í sjálfsmorðsárás í Írak Tveir Svíar, fullorðinn maður og sex ára sonur hans voru á meðal þeirra sem létust í sjálfsmorðsárás á mosku í Bagdad í Írak í gær. Áttatíu biðu bana þegar þrír menn sprengdu sprengjur í einni af höfuðmoskum sjía þegar föstudagsbænir stóðu sem hæst. Erlent 8.4.2006 12:45
Hamas-liðar æfir yfir niðurskurði á fjárframlögum Talsmenn Hamas-samtakanna eru æfir yfir ákvörðun Bandaríkjanna og Evrópusambandsins um að skera niður fjárframlög til heimastjórnar Palestínumanna. Þeir segja ráðstöfunina ekki í þágu Mið-Austurlanda. Erlent 8.4.2006 12:30