Erlent

Sænska ríkisstjórnin gagnrýnir hvalveiðar

Umhverfisráðherra Svíþjóðar gagnrýnir Íslendinga harðlega fyrir hvalveiðar í atvinnuskyni og segir í viðtali við Dagens Nyheter að sænska stjórnin hvetji Íslendinga til að hætta þeim. Það hafi verið mistök sænsku sendinefndarinnar á hvalveiðiráðstefnunni árið 2002 að Svíar mæltu með inngöngu Íslendinga í ráðið.

Erlent

Biðst afsökunar á ummælum um hroka og heimsku

Háttsettur bandarískur embættismaður baðst í gærkvöld afsökunar á orðum sem hann lét falla á laugardaginn. Hann sagði í viðtali á sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera að Bandaríkin hefðu sýnt hroka og heimsku í Írak.

Erlent

Sjöunda útgáfa vafrans komin út

Internet Explorer, vafrinn sem fylgir Windows-stýrikerfinu, hefur verið uppfærður. Tölvurisinn Microsoft, sem gerir vafrann, lagði lokahönd á sjöundu útgáfu hans á dögunum. Þetta er fyrsta uppfærsla vafrans í meira en fimm ár.

Erlent

Nýnasistar eru enn á ferð í Þýskalandi

Hátt í þúsund manns lýstu stuðningi sínum í Berlín um helgina við söngvara nýnasistahljómsveitar, sem situr í fangelsi fyrir að útbreiða kynþáttahatur. Leiðtogar gyðinga og margir þýskir stjórnmálamenn óttast uppgang nýnasistanna.

Erlent

Reka embættismann S.þ. frá Súdan

Súdanska ríkisstjórnin hefur skipað háttsettum embættismanni Sameinuðu þjóðanna að hypja sig úr landi innan þriggja daga. Hann skrifaði á einkavefsíðu sína að súdanski herinn hafi beðið ósigur oftar en einu sinni og að lélegur liðsandi væri í hernum.

Erlent

Repúblikanar að missa fylgi meðal trúaðra mótmælenda

Repúblikanaflokkurinn í Bandaríkjunum virðist vera að tapa fylgi, nú þegar aðeins tvær vikur eru til þingkosninga. Samkvæmt skoðanakönnun, sem vikuritið Newsweek birti um helgina, munar þar mestu um fylgi hvítra heittrúaðra mótmælenda, sem hingað til hafa verið ein helsta burðarstoðin í fylgi flokksins.

Erlent

Peron í nýtt grafhýsi

Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda í Argentínu þegar jarðneskar leifar Juans Domingos Peron, sem réð lögum og lofum í Argentínu stóran hluta síðustu aldar, voru í liðinni viku færðar í nýtt grafhýsi þar sem lík hans mun hvíla í marmarakistu. Þetta er í þriðja sinn sem Peron er jarðsettur frá því hann lést árið 1974.

Erlent

Yfirgnæfandi líkur á að demókratar muni sigra

Nái demókratar meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings kemst stefnuskrá Bush-stjórnarinnar í uppnám og stjórnarliðar verða meira og minna uppteknir við yfirheyrslur í þinginu, að mati Michaels Corgan.

Erlent

Skátaforingi beitti kynferðislegu ofbeldi

Danskur skátaforingi hefur verið dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að beita tvær telpur kynferðislegu ofbeldi þegar hann starfaði sem leiðtogi KFUM í Hinnerup norðan við Árhús í Danmörku. Frá þessu segir á fréttavef danska blaðsins Politiken.

Erlent

403 kúldruðust í 18 metra báti

Ítalska strandgæslan stöðvaði för 403 ólöglegra innflytjenda sem allir voru í sama átján metra bátnum. Báturinn fannst átta kílómetra undan strönd Lampedusa við Sikiley. Í hópnum voru meðal annars tíu mánaða gamalt barn og ólétt kona.

Erlent

Óttast að óeirðir brjótist út

Deilurnar í Bretlandi um andlitsblæjur múslimskra kvenna hafa harðnað og gætu brotist út í óeirðum. Þetta er álit Trevors Philips, sem er formaður bresku kynþáttajafnréttisnefndarinnar, sem er óháð en ríkisrekin nefnd í Bretlandi.

Erlent

Nýjar deilur setja svip á hátíðarhöldin

Hálf öld er í dag liðin frá því uppreisnin gegn kommúnistastjórninni í Ungverjalandi hófst. Ungverjar minnast þessara viðburða, og í gær var meðal annars hátíðarsamkoma í ríkisóperunni í Búdapest sem þjóðarleiðtogar frá fjölmörgum ríkjum tóku þátt í. Meðal þeirra var Ólafur Ragnar Grímsson frá Íslandi.

Erlent

Kennarar í löngu verkfalli

Svo gæti farið að palestínsk ungmenni missi heilt ár úr skóla vegna kennara-verkfalls. Ekki eru til fjármunir í ríkiskassanum til að greiða laun og kennarar neita að vinna kauplaust.

Erlent

Fosfórsprengjur í loftárásum

Ísraelski ráðherrann Jacob Edery hefur viðurkennt að ísraelski herinn hafi notað fosfórsprengjur í loftárásunum á Líbanon í sumar. Sprengjur af þessu tagi valda alvarlegum efnabruna.

Erlent

100 indverskir nemar horfnir

Eitt hundrað indverskir nemendur hafa horfið sporlaust í Svíþjóð. Þetta kom fram á fréttavef sænska blaðsins Dagens Nyheter í gær. Ungmennin sóttu um leyfi til náms í Svíþjóð, en eftir að þau komu til landsins á síðustu vikum og mánuðum, hefur ekkert til þeirra spurst og fæst mættu á tilskyldum tíma í skólann.

Erlent

Önnur umferð nauðsynleg í Búlgaríu

Georgi Parvanov, forseti Búlgaríu og frambjóðandi sósíalista, vann fyrri umferð forsetakosninga í Búlgaríu með miklum yfirburðum. Hins vegar var þátttaka í kosningunum svo lítil að nauðsynlegt er að kjósa að nýju í annarri umferð milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu.

Erlent

Paul stefnir á ferðamannastaði í Mexíkó

Hitabeltisstormurinn Paul stefnir nú að Baja California skaganum við Kyrrahafsströnd Mexíkós. Búist er við að veðurhamurinn fari yfir skagann nálægt Los Cabos, sem er vinsæll ferðamannastaður. Veðurfræðingar í Bandaríkjunum segja að vart hafi verið við storminn yfir Kyrrahafi á laugardag og að hann muni ná miklum styrk á þriðjudag.

Erlent

Fulltrúi Sþ rekinn frá Súdan

Stjórnvöld í Súdan hafa rekið sérstakan sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna úr landi, vegna ummæla sem hann setti á blogg-síðu sína. Honum er gert að fara úr landi innan 72 klukkustunda.

Erlent

Fleiri líkamspartar finnast

Enn finnast líkamsleifar á svæðinu þar sem tvíburaturnarnir í New York stóðu fyrir hryðjuverkaárásinu 9.september 2001. Í gær fundu leitarmenn 15 bein eða líkamsparta til viðbótar við þá 80 sem fundust óvænt í holræsisbrunni á svæðinu á föstudag. Leit á svæðinu hefur verið hafin að nýju, en henni var hætt árið 2002 og höfðu þá 20 þúsund líkamspartar fundist.

Erlent

Bush boðar breyttar áherslur

George Bush Bandaríkjaforseti ræðir nú um að her sinn breyti um áherslur eða starfsaðferðir í Írak og viðurkennir að mánuðurinn hafi verið þeim erfiður. Sjötíu og sex bandarískir hermenn hafa verið felldir í Írak það sem af er þessum mánuði.

Erlent

Kemur ekki til greina að fara

George Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í vikulegu útvarpsávarpi sínu í gær að ekki kæmi til greina að kalla bandaríska herliðið heim frá Írak. Með því að hörfa á brott væri hryðjuverkamönnum veitt öruggt athvarf þar sem þeir gætu skipulagt árásir á Bandaríkin. Einnig væri minning þeirra sem látist hafa í stríðinu vanvirt ef herliðið væri kallað til baka, með því væri fórn þeirra höfð að engu.

Erlent