Erlent
Óvíst um framsal Stjórnvöld í Namibíu hafa ekki fengið beiðni frá bandarískum stjórnvöldum um að framselja kvikmyndaleikarann Wesley Snipes sem er ákærður fyrir að hafa svikið jafnvirði rúmlega 800 milljóna íslenskra króna undan skatti. Snipes er nú staddur í Namibíu við tökur á næstu kvikmynd sinni. Erlent 23.10.2006 17:25
Rússneskir embættismenn neita að skrá stjórnarandstöðuflokk Rússneskir embættismenn sögðu í dag að þeir hefðu hafnað umsókn til þess að skrá stjórnarandstöðuflokk sem fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, Mikhail Kasyanov, er í forsvari fyrir. Erlent 23.10.2006 15:59
Kaupa 500 þúsund plastpoka vegna nýrra reglna Forsvarsmenn Kastrup-flugvallar í Kaupmannahöfn hafa fest kaup á 500 þúsund plastpokum til þess að geta mætt nýjum reglum Evrópusambandsins eftir tvær vikur. Erlent 23.10.2006 15:51
Íran heldur kjarnorkutilraunum áfram Ráðamenn í Íran hafa sett í gang aðra úranínum-auðgunarsamstæðu þrátt fyrir hugsanlegar refsiaðgerðir af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Erlent 23.10.2006 15:35
Segir yfir 50 manns hafa verið handtekna í tengslum við spillingu í Kína Yfir fimmtíu manns úr kínversku viðskiptalífi og stjórnkerfi landsins hafa verið handteknir eftir að upp komst um spillingu í tengslum við félagslega sjóði í borginni Shanghai. Erlent 23.10.2006 15:18
Condoleezza Rice gagnrýnir súdönsk yfirvöld Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ákvörðun súdanskra yfirvalda um að reka sérstakan erindreka Sameinuðu þjóðanna, Jan Pronk, úr landi hafi verið "ákaflega óheppileg". Erlent 23.10.2006 14:41
Lögregla skýtur á mótmælendur í Ungverjalandi Vitni segja að lögregla hafi skotið gúmmíkúlum á mótmælendur í Ungverjalandi til þess að reyna að dreifa úr hópi þeirra. Erlent 23.10.2006 14:38
Ísraelar skutu sjö til bana á Gaza Ísraelskar hersveitir skutu til bana sjö Palestínumenn í morgun, þar af þrjá bræður. Fjórtán aðrir særðust í árásinni, sem var gerð á fyrsta degi aðalhátíðar múslima, Eid al-Fitr. Erlent 23.10.2006 14:20
Yfirvöld í Íran banna umbótasinnað dagblað Yfirvöld í Íran hafa bannað umbótasinnað dagblað sem var aðeins viku gamalt. Bannið var á þeim grundvelli að blaðið væri einfaldlega nýtt nafn á öðru blaði sem hefði verið bannað í september síðastliðnum. Erlent 23.10.2006 14:02
Október blóðugasti mánuður ársins fyrir Bandaríkjaher Októbermánuður er þegar orðinn blóðugasti mánuður ársins fyrir Bandaríkjaher í Írak. Tíu hermenn létust um helgina og hafa því alls 85 bandarískir hermenn fallið í mánuðinum sem er níu mönnum meira en í apríl síðastliðnum. Erlent 23.10.2006 14:00
Reykingabann í Hong Kong Reykingabann á opinberum stöðum í Hong Kong mun taka gildi í Janúar á næsta ári. Erlent 23.10.2006 13:37
Sprenging í Þýskalandi hugsanlega af völdum gamallar sprengju Verkamaður lést og fimm slösuðust þegar sprenging varð við vegavinnu á hraðbraut í Bæjaralandi í suðurhluta Þýskalands í dag. Lögregla telur hugsanlegt að vegavinnuvél hafi verið ekið á sprengju úr síðari heimsstyrjöldinni. Erlent 23.10.2006 13:29
Páfi að endurvekja gamlar hefðir innan kaþólsku kirkjunnar Benedikt Páfi er að velta fyrir sér að enduvekja svokallaða latneska messu í kaþólsku kirkjunni og hefur tillagan mætt andstöðu innan kirkjunnar. Erlent 23.10.2006 13:13
Átök á afmæli uppreisnarinnar í Ungverjalandi Til átaka kom í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, í morgun þar sem þess var minnst að hálf öld er liðin frá uppreisninni í landinu. Nokkur fjöldi fólks hafði komið sér fyrir á torginu fyrir framan þinghúsið í borginni til að lýsa andstöðu sinni við Ferenc Gyurcsani forsætirsáðherra en þar inni fór fram athöfn í tilefni tímamótanna. Erlent 23.10.2006 12:45
Hægri-öfga flokkur gengur í ríkisstjórn Ísraels Leiðtogi hægri-öfga flokksins Yisrael Beitenu sagði í dag að flokkurinn myndi ganga í ríkisstjórn Ehuds Olmert á morgun. Erlent 23.10.2006 12:39
Bretar ætla að halda ótrauðir áfram í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, fullvissaði Íraka í morgun um að Bretar ætli að halda ótrauðir áfram starfi sínu í Írak. Erlent 23.10.2006 12:15
Talibanar ætla að ráðast gegn Evrópubúum Foringi í liði talibana, Mullah Muhammad Amin, sagði í morgun að talibanar stefndu á árás á Bretland og Evrópu. Í einkaviðtali við Sky fréttastofuna sagði Amin að samtökin ættu gnægð vopna og að óbreyttum borgurum á Vesturlöndum yrði ekki hlíft enda hefðu þeir komið Bush og Blair til valda með atkvæðum sínum. Erlent 23.10.2006 12:05
Ísrael krefst aðgerða vegna stefnu Írana Forsætisráðherra Ísrael, Ehud Olmert, skoraði í dag á alþjóðasamfélagið að refsa forseta Írans, Mahmoud Ahmadinejad, fyrir að að hafa krafist eyðileggingar Ísraels Erlent 23.10.2006 11:29
Útgöngubanni komið á í Amara Yfirvöld í Írak hafa komið á útgöngubanni í bænum Amara í suðurhluta landsins vegna átaka milli andófsmanna úr röðum sjíta og lögreglu undanfarna daga. Erlent 23.10.2006 11:23
Dómur kveðinnn upp yfir Skilling vegna Enron-máls Dómur verður kveðinn upp í Houston í Bandaríkjunum í dag yfir Jeffrey Skilling, fyrrverandi framkvæmdastjóra orkurisans Enron, sem varð gjaldþrota fyrir fimm árum. Erlent 23.10.2006 11:14
Rússneskur hermaður seldur sem þræll Lögfræðingur í Rússlandi skýrði frá því í dag að hún væri með skjólstæðing sem hefði verið seldur sem þræll úr hernum. Hermaðurinn hafði verið seldur ásamt skurðgröfu á um 1.300 dollara, sem samsvarar um nítíu þúsund íslenskum krónum Erlent 23.10.2006 10:28
Ekki verði þrýst á að Írakar taki við stjórn öryggismála Bresk stjórnvöld hyggjast ekki þrýsta á um að Írakar taki á næstunni við stjórn öryggismála í Suður-Írak á fundi Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, með Barham Salih, varaforsætisráðherra Íraks, í Lundúnum í dag. Erlent 23.10.2006 10:18
Frú Forseti? Allar líkur eru á að Nancy Pelosi, 66 ára amma frá San Francisco, fái nafn sitt ritað í sögubækurnar sem fyrsta konan til að gegna embætti forseta fulltrúadeildarinnar verði niðurstaða þingkosninganna í Bandaríkjunum í samræmi við skoðanakannanir. Erlent 23.10.2006 10:17
Ísraelar halda áfram eftirlitsflugi um líbanska lofthelgi Varnarmálaráðherra Ísraels, Amir Peretz, sagði í gær að Ísraelar myndu halda áfram daglegu eftirlitsflugi sínu yfir líbanska lofthelgi svo lengi sem líbanska ríkisstjórnin sinnti ekki sínum hluta vopnahléssamkomulagsins um að hindra vopnasmygl til Hisbollah. Líbanir hafa gagnrýnt yfirflug Ísraela sem skýlaust brot á vopnahléssamkomulagi öryggisráðsins. Erlent 23.10.2006 10:15
Ástandið enn eldfimt ári eftir óeirðirnar Upplýsingaþjónusta frönsku lögreglunnar, Renseignements Généraux, telur ástandið enn eldfimt í úthverfum Parísar sem loguðu í óeirðum fyrir ári síðan. Í skýrslu sem franska blaðið Le Figaro vitnar í kemur fram að sú óánægja sem kynti undir bílabrennum og öðrum skemmdarverkum sé enn til staðar. Erlent 23.10.2006 09:45
Varað við fellibylnum Páli á Kaliforníuskaga Fellibyljastofnun Bandaríkjanna hefur varað íbúa á Kaliforníuskaga við hitabeltisstorminum Páli sem í gærkvöld styrktist og varð að fellibyl. Páll hefur verið á leið upp eftir vesturströnd Mexíkós síðustu daga og fylgjast veðurfræðingar náið með ferðum hans. Erlent 23.10.2006 09:36
Kínverjar leysa einn fréttamann úr haldi, ákæra tvo aðra Kína leysti í dag, níu mánuðum fyrr, úr haldi fréttmann sem hafði verið sakfelldur fyrir fjárkúgun. Á sama tíma ákærðu þeir tvo greinahöfunda, sem birta skrif sín á internetinu, fyrir að grafa undan hinu kíverska alþýðuveldi. Erlent 23.10.2006 09:16
Yfir 100 bein hafa fundist í grunni Tvíburaturnanna Fleiri bein hafa fundist í grunni Tvíburaturnanna í holræsaopum og verkfærageymslum. Varaborgarstjóri New York borgar sagði einnig í gær að 12 önnur svæði hefðu fundist sem yrðu fínkembd næstu daga. Meira en hundrað bein hafa fundist síðustu fimm daga síðan byggingarverkamenn rákust á fyrstu beinin þar sem verið er að útbúa neðanjarðarlestarstöð. Erlent 23.10.2006 09:15
Panamaskurðurinn verður víkkaður Panama-búar kusu í gær um mestu framkvæmdir í 92ja ára sögu Panama-skurðarins. 79% kjósenda samþykktu að víkka skurðinn þannig að heimsins stærstu skip geti komist um skipaskurðinn sem tengir Atlantshafið og Kyrrahafið. Erlent 23.10.2006 08:45
Tvær milljónir Afgana munu þurfa matvælahjálp Tvær milljónir manna í Afganistan munu þurfa á matvælahjálp að halda í vetur, eftir að uppskera brást vegna þurrka. Sameinuðu þjóðirnar og afganska ríkisstjórnin hafa kallað eftir tæplega þriggja milljarða fjárframlögum, til viðbótar við rúmlega fimm milljarða sem þegar hafði verið beðið um. Erlent 23.10.2006 08:30