Erlent

Hætt við útgáfu á bók O.J. Simpson

Fyrirtækið News Corp. hefur hætt við útgáfu á bók O.J. Simpsons "If I did it", sem útleggst á hinu ylhýra sem "Ef ég hefði gert það" og fjallaði um hvernig hann hefði myrt fyrrum konu sína Nicole Brown Simpson og vin hennar Ron Goldman. Einnig hefur verið hætt við að sýna sjónvarpsviðtal við O.J. um bókina en það átti að sýna í næstu viku.

Erlent

Kína hugsanlega í samstarf við Pakistan

Búist er við því að Kínverjar eigi eftir að tilkynna um samstarfssamning við Pakistan í kjarnorkumálum í næstu viku. Talið er að það sé vegna síaukinna tengsla Bandaríkjanna og Indlands og væntanlegs kjarnorkusamstarfs þeirra á næstu árum.

Erlent

Tony Blair í Afganistan

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands var í heimsókn í Afganistan í dag. Þar sagði hann að öryggi heimsins á komandi tímum myndi ráðast í bardögum við uppreisnarmenn Talibana í eyðimörkinni í Afganistan.

Erlent

Ísraelar sprengja á Gaza

Ísraelski herinn hefur skotið flugskeyti á bíl í Gazaborg. Öryggissveitir í Palestínu skýrðu frá þessu. Sem stendur er enn ekki vitað hversu margir eða hvort einhverjir hafi látist eða slasast. Íraelski herinn vildi ekkert segja um árásina að svo stöddu.

Erlent

Tveir forsetar í Mexíkó

Hinn vinstri sinnaði forsetaframbjóðandi í Mexíkó, Andres Manuel Obrador, ætlar í dag að láta sverja sig í embætti forseta Mexíkó. Það er ekki í frásögur færandi nema að hann tapaði í forsetakosningunum sem fram fóru í júlí síðastliðnum.

Erlent

Nágrannarnir aðstoða

Íraskir ráðamenn eiga í viðræðum við nágranna sína í Sýrlandi og Íran um hvernig ráða megi bug á ofbeldinu í landinu.

Erlent

Rússnesk stjórnvöld neita aðild

Líðan rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko fer hrakandi en eitrað var fyrir hann á veitingastað í Lundúnum á dögunum. Nánir vinir hans telja fullvíst að stjórnvöld í Moskvu hafi staðið á bak við tilræðið.

Erlent

Lestir sprengdar í Indlandi

Sprengingar urðu í tveimur farþegalestum í austurhluta Indlands í dag. Sex létust og talið er að um 53 hafi særst. Ekki er vitað hvers vegna sprengingarnar urðu og vildi lögreglan lítið segja um málið. Talsmaður lestarfyrirtækisins sagði hinsvegar að sprengjum hefði verið komið fyrir í lestunum.

Erlent

Serbneskur stríðsglæpamaður handtekinn í Noregi

Serneskur strísglæpamaður sem eftirlýstur hefur verið um allan heim var handtekinn í Noregi í síðasta mánuði. Þetta hafa yfirvöld í Serbíu staðfest við AP-fréttastofuna. Maðurinn, Damir Sireta, mun hafa verið í felum í Noregi en hann var eftirlýstur fyrir að hafa tekið þátt í aftöku á 200 króatískum stríðsföngum nærri bænum Vukovar í Króatíu í nóvember árið 1991.

Erlent

Forseti Írans býður til viðræðna

Forsetinn í Íran, Mahmoud Ahmadinejad, hefur boðið forsetum Íraks og Sýrlands til viðræðna varðandi það sívaxandi vandamál sem ofbeldið í Írak er. Forseti Íraks, Jalal Talabani, hefur þegar þekkst boðið og mun fara til Írans á laugardaginn kemur.

Erlent

Ástæður árásar í Vestfold enn ókunnar

Lögregla í Vestfold í Noregi vinnur enn að rannsókn á því hvers vegna maður á fertugsaldri myrti þrjá og særði tvo alvarlega í fylkinu á laugardag. Málið hefur vakið mikinn óhug í Noregi en maðurinn myrti föður sinn og kærustu fyrst og stakk svo son sinn, sem var fjórtán ára, til bana og særði tvo aðra alvarlega áður en hann svipti sig lífi.

Erlent

Myrti hátt í þrjátíu sjúklinga á sjúkrahúsi í Þýskalandi

Þýskur hjúkrunarfræðingur var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt nærri 30 sjúklinga á sjúkrahúsi í bænum Sonthofen í suðurhluta Þýskalands. Stephan Letter hóf störf á spítalanum í febrúar árið 2003 og talið er að hann hafi myrt fyrsta sjúklinginn innan við mánuði síðar.

Erlent

Neðanjarðarlestarkerfi Beijing verður heimsins stærsta

Neðanjarðarlestarkerfi Beijing í Kína verður orðið hið stærsta í heimi eftir nokkur ár. Ætlun Kínverja er að stækka lstarkerfið úr 115 kílómetrum í 273 km fyrir árið 2010 og upp í 561 km árið 2020. þá yrði það orðið stærar en neðanjarðarlestarkerfi Lundúnaborgar sem nú er hið stærsta í heimi.

Erlent

Ætlar að slá lengsta golfhögg sögunnar

Míkhaíl Tjúrín, geimfari í alþjóðlegu geimstöðinni, hyggst á miðvikudag reyna að skrá nafn sitt í sögubækurnar með því að slá lengsta högg í golfsögunni. Höggið slær hann í geimgöngu á stöðinni og á kúlan að fljúga í átt til jarðar.

Erlent

Fimm látnir eftir sprengingu í lest í Indlandi

Fimm eru látnir og 25 alvarlega slasaðir eftir öfluga sprengingu í farþegalest í austurhluta Indlands í dag. Tveir vagnar í lestinni sem voru yfirfullir af fólki skemmdust mikið í sprengingunni sem varð á afskekktum teinum í Vestur-Bengalhéraði.

Erlent

Heilsu Litvinenkos hrakar

Líðan Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB og síðar leyniþjónustu Rússlands, hefur versnað og hann hefur aftur verið fluttur á gjörgæsludeild University College sjúkrahússins í Lundúnum þar sem hann dvelur vegna eitrunar sem hann varð fyrir.

Erlent

Alræmdur glæpamaður sleppur úr fangelsi í S-Afríku

Lögregla í Suður-Afríku leitar nú að einum af alræmdustu glæpamönnum landsins sem slapp úr öryggisfangelsi í Pretoríu á laugardagskvöld. Maðurinn, Ananias Mathe sem er frá Mósambík, var handtekinn fyrir rúmu ári og hefur verið ákærður fyrir yfir 50 brot, þar á meðal morð, nauðgun, vopnað rán og mannrán.

Erlent

Nærri þrjátíu slösuðust í lestarslysi í Berlín

Hátt í þrjátíu manns slösuðust, þar af tveir alvarlega, þegar farþegalest rakst á farartæki sem ætlað er til viðhalds á lestum á lestarstöð í Suður-Berlín í morgun. Bæði lögregla og slökkvilið voru kvödd á vettvang til þess að hjálpa hinum slösuðu út úr lestinni en flestir munu hafa hlotið minni háttar meiðsl.

Erlent

Segja réttarhöld yfir Hussein meingölluð

Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja að réttarhöldin yfir Saddam Hussein hafi verið meingölluð og dómurinn yfir honum því rangur. Verði hann tekinn að lífi er óttast að átök muni breiðast út um öll Miðausturlönd.

Erlent

Biður stuðningsmenn Hisbollah að vera reiðubúna til mótmæla

Hassan Nasrallah, leiðtogi Hisbollah, sagði í dag stuðningsmönnum að vera reiðubúnir til þess að mæta í friðsamleg mótmæli á götum úti til þess að krefjast nýrrar ríkisstjórnar í stað núverandi ríkisstjórnar, sem hann og stjórnmálamenn úr fleiri fylkingum segja að samræmist ekki stjórnarskrá. Þetta kemur fram í líbanska blaðinu Daily Star.

Erlent

Látinn eftir umsátur við grunnskóla í Þýskalandi

Grímuklæddur maður vopnaður skambyssu, sem réðst inn í grunnskóla í Emsdetten í vesturhluta Þýskalands í morgun, er látinn. Óvíst er hvort hann féll fyrir eigin hendi eða byssukúlum öryggissveitarmanna sem höfðu umkringt skólabygginguna en að sögn BBC var maðurinn með sprengjubelti um sig miðjan.

Erlent

Tony Blair á ferð um Afganistan

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í dag að breskir hermenn væru ekki á heimleið frá Afganistan og að herinn yrði í landinu þar til friði og ró yrði komið á þar.

Erlent

Eiði Smára hrósað í hástert fyrir mörkin tvö

Eiður Smári Guðjohnsen, eða "Guddy" eins hann er kallaður á Spáni, segir að mörkin tvö sem hann skoraði gegn Mallorca í gær komi til með að veita honum mikið sjálfstraust. Eiði Smára er líkt við Romario í spænskum fjölmiðlum í dag.

Erlent

Ráðist á annan aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraks

Vopnaðir menn réðust á bílalest eins af aðstoðaheilbrigðisráðherrum Íraks og drápu tvo af lífvörðum hans en aðstoðarráðherrann sjálfur slapp óskaddaður. Starfsbróður hans var rænt í gær en fleiri en einn aðstoðarráðherra er skipaður til þess að stjórnvöld lamist ekki við eitt mannrán.

Erlent

Maður réðst inn í skóla í Þýskalandi

Grímukæddur maður með byssu réðst inn í gagnfræðaskóla í bænum Emsdetten í vesturhluta Þýskalands í morgun og hóf skothríð á þá sem þar voru. Nokkrir munu hafa særst í árásinni en enginn alvarlega.

Erlent

Komið upp um hryðjuverkaáætlanir í Þýskalandi

Þýska rannsóknarlögreglan hefur komið upp um áætlanir um hryðjuverk í flugvél í Þýskalandi í ár. Lögreglan telur að átt hafi að sprengja flugvél í loft upp. Í það minnsta sex manns voru yfirheyrðir af lögreglu vegna rannsóknarinnar á föstudaginn en sleppt á laugardag. Talið er að tveir óþekktir bakhjarlar standi fyrir áætluninni.

Erlent

Tyrkland hefur frest til 6. desember

Stjórnvöld í Finnlandi, sem er í forsæti Evrópusambandsins, hafa sett Tyrklandi tímamörk, að þarlend stjórnvöld semji við kýpversk stjórnvöld fyrir 6. desember, ellegar seinki aðildarviðræðum Tyrklands og ESB. Framkvæmdastjórn ESB hittist þann sjötta næsta mánaðar og utanríkisráðherrar ESB taka ákvörðun þann 11. desember.

Erlent