Erlent

300 Bretar vilja geislarannsókn eftir dauða njósnara

300 manns hafa leitað til heilbrigðisyfirvalda í Bretlandi eftir að í ljós kom að eitrað var fyrir rússneska njósnaranum Litvinenko með geislavirku póloníumi í byrjun mánaðarins. Fólkið verður sett í rannsókn öryggisins vegna en ólíklegt er talið að geislavirkni sem fundist hefur á sushi-veitingastaðnum þar sem hann át, hafi haft áhrif á aðra í umhverfinu.

Erlent

Berlusconi hneig niður í ræðustóli

Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu til margra ára, hneig niður í ræðustóli í Toskana á Ítalíu í dag. Ekki er vitað hvað amar að fjölmiðlakónginum og stjórnmálamanninum en hann greip fyrir hjartað. Annar ræðumaður sagði fundarmönnum að Berlusconi hefði hjarnað við baksviðs og viljað halda áfram en læknir hefði bannað það.

Erlent

Rússneski njósnarinn nafngreindi eitrarana

Rússneski njósnarinn fyrrverandi, Alexander Litvinenko, nafngreindi hugsanlega morðingja sína rétt áður en hann dó. Hann hitti mennina á hóteli og sushi-bar í London í byrjun mánaðarins en hann lést á fimmtudaginn eftir hjartaáfall á gjörgæsludeild í London.

Erlent

Forseti Íraks fastur í Bagdad

Leiðtogafundur forseta Írans og Íraks frestast í það minnsta til morguns, vegna útgöngubanns í Bagdad. Flugvöllurinn er lokaður, sem hamlar för Jalals Talabanis, forseta Íraks. Útgöngubannið gildir til klukkan 6 í fyrramálið að íslenskum tíma en það tók gildi eftir óvenju miklar árásir á Sadr-hverfið í Bagdad á fimmtudag.

Erlent

Karríið komið hringinn

Breska karríveitingastaðakeðjan Nawaab stefnir á að opna nýjasta útibúið sitt einmitt þar sem sumir hefðu haldið að markaðurinn væri mettaður: í Delhí á Indlandi. Nú er eggið hins vegar farið að kenna hænunni, því nýi staðurinn flaggar þjóðarrétti Breta úr karríhillunni: kjúklingur í tikka masala sósu, sem aldrei hefur verið seldur á Indlandi, svo vitað sé.

Erlent

Ræðst í dag hvort Ekvador fellur til vinstri

Seinni umferð forsetakosninga í Ekvador er í dag og ræðst þá hvort landið hallast til vinstri eins og nokkur grannlanda þess hafa gert. Slagurinn stendur á milli auðmannsins Noboa sem erfði eitt stærsta bananafyrirtæki heims og vinstri mannsins Correa sem hefur lofað félagslegum umbótum og riftun á viðskipta- og hernaðartenglsum við Bandaríkin.

Erlent

Lögregla skýtur brúðguma til bana

Lögregla í New York skaut í gærmorgun brúðguma til bana þar sem hann var á leið af nektarstað í Queens ásamt vinum sínum eftir steggjapartý. Brúðkaupið var áætlað seinna um daginn. Lögregluaðgerð var í gangi þar sem fylgst var með staðnum vegna meintrar ólöglegrar eiturlyfjasölu og vændis. Sjö lögreglumenn, einkennisklæddir og óeinkennisklæddir, voru í eða við staðinn þegar brúðguminn keyrði burt undir morgun ásamt vinum sínum.

Erlent

Olmert vonast til varanlegs friðar

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, vonast til þess að vopnahlé sem samþykkt var í nótt geti orðið til þess að "alvöru samningaviðræður" geti hafist á milli grannþjóðanna. Hann segir Ísraela muni sýna þolinmæði þó að palestínskir skæruliðar brjóti vopnahléð á næstu dögum.

Erlent

Vopnahléi á Gasa ógnað

Palestínumenn skutu í það minnsta þremur eldflaugum á Ísrael í morgun, einungis nokkrum klukkustundum eftir að vopnahlé var samþykkt á milli aðilanna. Ein eldflauganna lenti í borginni Sdrot, án þess að vinna borgurum mein eða valda tjóni á byggingum. Hinn herskái armur Hamas og Islamskir öfgamenn hafa lýst ábyrgð á árásunum sem ógna nú vopnahléinu á Gasa, en það tók gildi klukkan fjögur í morgun að íslenskum tíma.

Erlent

Fríblöðin skapa vandamál í Danmörku

Fríblöð flæða um ruslatunnur og stigaganga fjölbýlishúsa í Danmörku. Dönsku neytendasamtökin hafa selt eitt hundrað þúsund límmiða gegn blöðunum. Danska þingið hefur gefið útgefendum blaðanna frest til áramóta til að finna í sameiningu lausn á málinu.

Erlent

Fjölhæfir jólasveinar

Það þykir öruggt merki um að jólin séu í nánd, þegar ljós jólatrjáa eru tendruð. Í miðborg Chicago í Bandaríkjunum var kveikt á þrjátíu metra háu jólatré við hátíðlega athöfn undir jólasöng og flugeldasýningu. Í New York í dag gengu hins vegar eitt hundrað jólasveinar um götur Manhattan og söfnuðu peningum fyrir fátæka og heimilislausa.

Erlent

Yfir 200 manns jarðsettir í Írak

Yfir tvö hundruð manns voru bornir til grafar í Írak í dag eftir röð sjálfsmorðs- og bílaárása súnnia í borginni Sadr á fimmtudaginn. Dagurinn var sá mannskæðasti frá upphafi stríðsins. Hundruðir sungu og grétu þegar þeir gengu með kistum ástvina sinna á leið frá borginni Sadr til Najaf. Þrátt fyrir útgöngubann fyrirskipaði forsætisráðherrann lögreglu að gæta öryggis fólksins. Hinir látnu voru bornir til grafar í kirkjugarði í Najaf.

Erlent

Útgöngubann í Írak fram á mánudag

Útgöngubann í Bagdad í Írak mun vera í gildi fram á mánudag. Írösk stjórnvöld tilkynntu í dag að banninu verði aflétt á mánudagsmorgun. Útgöngubannið var sett á eftir eina mannskæðustu árás í landinu frá innrás Bandaríkjamanna árið 2003. Um tvö hundruð manns týndu lífi í sprengjuárás á fátækrahverfi Sjía í Bagdad á fimmtudaginn.

Erlent

Flugvél brotlendir á bíl á hraðbraut

Sjö eru slasaðir eftir að einkaflugvél brotlenti á bíl á hraðbraut nálægt borginni Essen í vesturhluta Þýskalands í gær. Vélin var í aðflugi að flugvellinum í Essen-Muelheim þegar slysið varð. Hún klippti í sundur umferðarljós og brú áður en hún brotlenti á bíl á fjölfarinni hraðbraut við flugvöllinn. Bílstjóri flutningabíls náði að slökkva eld sem kviknaði í flaki vélarinnar, en báðir vængirnir brotnuðu af við áreksturinn.

Erlent

Geislavirk efni á „njósnara“ stöðum í London

Fólk sem heimsótti sama veitingastað og hótel og rússneski njósnarinn sem lést á fimmtudaginn er hvatt til að hafa samband við heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi vegna geislavirkra efna sem hafa fundist þar. Efnin fundust á veitingastaðnum Itsu Sushi bar við Piccadilly og Pine bar Millenium hótelsins við Grosvenor torg.

Erlent

Aðskilnaðarsinnar styðja ályktun um Quebec

Flokkkur aðskilnaðarsinna í Quebec í Kanada hefur samþykkt að styðja þingsályktun um að frönskumælandi íbúar Quebec séu þjóð í sameinuðu Kanada. Gagnrýnendur segja tillöguna af pólitískum toga og hún muni stuðla að sundrungu landsins, en hugmyndir um sjálfstæði hins frönskumælandi héraðs hafa komið upp áður og valdið miklum titringi.

Erlent

Staðfest fuglaflensutilfelli í Suður-Kóreu

Staðfest hefur verið afbrigði H5N1 fuglaflensu í Suður Kóreu. Flensan braust út á fuglabúi í Iksan, sem er tvö hundruð og fimmtíu kílómetra suður af Seoul. Rúmlega sex þúsund fuglar drápust og tæplega sjö þúsundum til viðbótar þurfti að slátra. Rannsóknir úr sýnum munu leiða í ljós hversu smitandi flensan er, en búist er við niðurstöðum úr þeim seinna í dag. Japanir hafa hætt innflutningi á fuglakjöti frá Suður Kóreu af ótta við að flensan breiðist út.

Erlent

Fuglaflensa staðfest í Suður-Kóreu

Fuglaflensa af stofninum H5N1 hefur verið staðfest í fuglum á kjúklingabúi í Suður Kóreu. Tilfellið kom upp á fuglabúi í Iksan, sem er tvö hundruð og fimmtíu kílómetra suður af Seoul. Rúmlega sex þúsund fuglar drápust úr flensunni og þurfti að slátra tæplega sjö þúsundum til viðbótar.

Erlent

Breska lögreglan finnur leifar af geislavirku efni

Bresk yfirvöld hafa fundið leifar af sama geislavirka efninu og fannst í líkama Alexanders Litvinenko eftir að hann lést á þeim þremur stöðum sem hann dvaldi á daginn sem hann taldi að hefði verið eitrað fyrir honum.

Erlent

Boðið upp á hraðþjónustu á flugvöllum

Einkafyrirtæki í Bandaríkjunum hafa nú séð sér hag í því að setja upp þjónustu sem að flýtir ferð fólks í gegnum flugvelli þar í landi. Vegna ótta við hryðjuverk eru mörg öryggishlið sem fólk þarf að fara í gegnum og hefur það valdið miklum pirringi meðal fólks sem ferðast mikið.

Erlent

Google í slæmum málum á Ítalíu

Ítalskir saksóknarar eru iðnir við kolann en þeir hófu í dag rannsókn á því hvernig myndband, sem sýnir fjóra unglinga fara illa með einhverfan dreng, á myndbandavefsíðu Google. Eru tveir starfsmenn Google ákærðir fyrir að fylgjast ekki nógu vel með því hvers konar efni er sett inn á síðuna.

Erlent

Brostu og allur heimurinn brosir við þér

Sjálfboðaliðar fyrir Ólympíuleikana sem verða í Peking í Kína árið 2008 hafa verið sendir í sérstaka þjálfun til þess að standa sig betur í starfi sínu. Og hvað er verið að kenna sjálfboðaliðunum? Jú, að brosa.

Erlent

Setti barnið í frystinn

Kanadískur maður sem vissi ekki hvað átti að gera þegar að tíu mánaða gamalt barn kærustu hans fékk hita setti það inn í frysti til þess að kæla það aðeins niður. Maðurinn hefur nú verið ákærður fyrir glæpsamlegt gáleysi og að ráðast á barnið en móðirin bjargaði því þegar hún kom heim. Maðurinn hafði þá sett stúlkubarnið við hliðina á ísmolunum og hamborgurunum.

Erlent

Berlusconi sakaður um kosningasvindl

Ítalskir saksóknarar hafa hafið rannsókn á þeim ásökunum vinstri sinnaðs dagblaðs á Ítalíu að flokkur Silvio Berlusconis, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, hafi reynt að hafa rangt við í þingkosningum sem fóru fram í apríl síðastliðnum. Berlusconi neitar öllu og íhugar málsókn.

Erlent

Bush leitar bandamanna víða

Stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta er farin að leita leiða til þess að koma á stöðugleika í Írak en landið er á barmi borgarastyrjaldar. Ætla þeir sér að vinna að því takmarki með hófsömum múslimaríkjum á svæðinu og á sama tíma ætla þeir að leita leiða til þess að binda enda á deilur Ísraela og Palestínumanna.

Erlent

Eiturlyfjagengi í ímyndarvanda

Mexíkóskt eiturlyfjagengi tók upp þá nýjung að auglýsa sjálft sig í dagblöðum til þess að segja fólki að það væri í rauninni ekkert slæmt. Í auglýsingunum, sem voru birtar í nokkrum dagblöðum, var tekið fram að gengið, sem er þekkt sem "Fjölskyldan", væri ekki glæpagengi heldur sjálfskipaðir verndarar reglu og réttlætis.

Erlent

Ódæða hefnt

Minnst 30 týndu lífi og hátt í 50 til viðbótar særðust þegar vígamenn hófu skothríð í hverfi súnnía í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Að sögn vitna lögðu árásarmennirnir síðan elda að fjórum moskum í hverfinu. Árásin er sögð hefnd fyrir sprengjuárás í Sadr-hverfi sjía í höfuðborginn í gær sem kostaði rúmlega 200 manns lífið.

Erlent

Valdarán á bandarísku dagblaði

Maður íklæddur felubúning og vopnaður hríðskotabyssu réðist til inngöngu í húsakynni bandaríska dagblaðsins Miami Herald í dag. Neyddi hann starfsfólk til þess að yfirgefa húsakynnin og gaf til kynna að hann hefði þar með tekið dagblaðið yfir. Ástæðuna sagði hann vera lág laun og að dagblaðið væri illa rekið.

Erlent

Geislavirkt efni í líkama Litvinenkos

Töluvert af geislavirku efni hefur fundist í líkama rússneska njósnarans Alexanders Litvinenkos, sem lést af völdum eitrunar á sjúkrahúsi í Lundúnum í gærkvöldi. Skömmu fyrir andlátið sagði hann Pútín Rússlandsforseta bera ábyrgð á örlögum sínum. Forsetinn vísar því alfarið á bug.

Erlent