Erlent Bush hittir forsætisráðherra Íraks Viðbrögð almennings í Írak eru blendin eftir fund Bush Bandaríkjaforseta og Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks. Eftir fundinn tilkynnti Bush að ákveðið hefði verið að flýta því að öryggismál yrðu í umsjá Írakshers. Þá sagði hann að bandarískt herlið yrði áfram í Írak eins lengi og forsætisráðherrann óskaði eftir. Bush og Al-Maliki útilokuðu enn frekar að sjálfstæð ríki yrðu stofnuð innan Íraks. Erlent 30.11.2006 13:15 BA reynir að ná sambandi við 30 þúsund farþega vegna geislunar Breska flugfélagið British Airways reynir nú að ná sambandi við þrjátíu þúsund flugfarþega eftir að leifar af geislavirka efninu sem varð fyrrverandi rússneska njósnaranum Alexander Litvinenko að bana fundust um borð í vélum félagsins. Erlent 30.11.2006 12:30 Dauðadómar fyrir hryðjuverk Erlent 30.11.2006 11:26 Telja óþarft að banna kynlíf með dýrum Dönsku dýraverndarsamtökin telja ekki ástæðu til þess að banna fólki að stunda kynlíf með dýrum, en vilja hinsvegar banna opinberar sýningar á slíku athæfi. Erlent 30.11.2006 10:56 Kastró of veikur til að mæta í eigin veislu Fídel Kastró, leiðtogi Kúbu sem kominn er til ára sinna, olli hundruðum aðdáenda sinna vonbrigðum sem höfðu komið um langan veg til þess að vera við hátíðarhöld vegna áttræðisafmælis Kastrós. Skeyti frá honum var lesið við upphaf fimm daga afmælisveislu til heiðurs forsetanum. Erlent 30.11.2006 10:41 Tugthúslimum fiölgar
Bush hittir forsætisráðherra Íraks Viðbrögð almennings í Írak eru blendin eftir fund Bush Bandaríkjaforseta og Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks. Eftir fundinn tilkynnti Bush að ákveðið hefði verið að flýta því að öryggismál yrðu í umsjá Írakshers. Þá sagði hann að bandarískt herlið yrði áfram í Írak eins lengi og forsætisráðherrann óskaði eftir. Bush og Al-Maliki útilokuðu enn frekar að sjálfstæð ríki yrðu stofnuð innan Íraks. Erlent 30.11.2006 13:15
BA reynir að ná sambandi við 30 þúsund farþega vegna geislunar Breska flugfélagið British Airways reynir nú að ná sambandi við þrjátíu þúsund flugfarþega eftir að leifar af geislavirka efninu sem varð fyrrverandi rússneska njósnaranum Alexander Litvinenko að bana fundust um borð í vélum félagsins. Erlent 30.11.2006 12:30
Telja óþarft að banna kynlíf með dýrum Dönsku dýraverndarsamtökin telja ekki ástæðu til þess að banna fólki að stunda kynlíf með dýrum, en vilja hinsvegar banna opinberar sýningar á slíku athæfi. Erlent 30.11.2006 10:56
Kastró of veikur til að mæta í eigin veislu Fídel Kastró, leiðtogi Kúbu sem kominn er til ára sinna, olli hundruðum aðdáenda sinna vonbrigðum sem höfðu komið um langan veg til þess að vera við hátíðarhöld vegna áttræðisafmælis Kastrós. Skeyti frá honum var lesið við upphaf fimm daga afmælisveislu til heiðurs forsetanum. Erlent 30.11.2006 10:41
Stækkun Stansted hafnað af sveitarstjórn Sveitarstjórnin í Uttlesford í SA-Englandi hefur hafnað áætlun breska flugvallafélagsins BAA um að fjölga flugferðum til og frá Stansted-flugvelli í nágrenni London. Flugvallafélagið segist munu áfrýja ákvörðun sveitarstjórnarinnar, sem byggir umhverfisrökum, meðal annarra hávaðamengun, loftmengun og hlýnun andrúmsloftsins. Erlent 30.11.2006 10:17
Fundað um friðarferli í Palestínu Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom til fundar við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu í morgun í gamalkunnu borginni Jeríkó á Vesturbakka Jórdanar. Bandaríkjamenn leggja með þessu sitt af mörkum til að koma af stað friðarferli milli Palestínumanna og Ísraela. Rice fundar með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels í Jerúsalem síðar í dag. Erlent 30.11.2006 10:00
Komið þið bara Talibanar segjast ekki hafa miklar áhyggjur af því að NATO sendi fleiri hermenn til Afganistans. "Ef þeir gera það fáum við bara fleiri skotmörk," segir Múllah Óbaídúllah, í viðtali við Reuters fréttastofuna. Þetta minnir dálítið á orrustuna í Laugarskarði árið 480 fyrir Krist, þegar þrjúhundruð Spartverjar stóðu gegn óvígum her Xerxes Persakonungs. Erlent 30.11.2006 09:51
Ekki hægt að panta ódýrt áfengi Ráðgjafi við Evrópudómstólinn segir að það brjóti ekki í bága við lög Evrópusambandsins að gera upptækt áfengi sem einstaklingar kaupa á netinu. Nokkrir Svíar létu reyna á þetta með því að panta sér vín frá Spáni. Erlent 30.11.2006 09:29
Íhuga lausn Palestínumanna úr ísraelskum fangelsum Ísraelar hyggjast leysa Palestínumenn úr haldi sem setið hafa í ísraelskum fangelsum fyrir skæruliðaárásir til þess að koma til móts við kröfur Palestínumanna sem halda ísraelskum hermanni föngnum, eftir því sem Reuters hefur eftir háttsettum stjórnmálamönnum í Tel Aviv. Erlent 30.11.2006 09:18
Hisbollah mótmælir í Beirút á morgun Hisbollah-hreyfingin í Líbanon hét í morgun á stuðningsmenn sína að safnast saman við friðsöm mótmæli í miðborg Beirút á morgun, föstudag. Mótmælendur munu setjast niður í miðborg Beirút klukkan eitt eftir hádegi á morgun að íslenskum tíma en ekki hefur verið ákveðið hversu lengi mótmælendurnir munu sitja. Erlent 30.11.2006 09:03
Hálfri milljón fugla slátrað Hálfri milljón alifugla verður slátrað í Suður-Kóreu á næstu dögum til að hefta útbreiðslu H5N1 fuglaflensu sem greindist þar á þriðjudag. Þegar hefur yfir 150 þúsund fuglum verið slátrað en engir menn hafa greinst með fuglaflensu í þessu tilfelli. Erlent 30.11.2006 08:30
Fer ekki frá Írak fyrr en „verkinu er lokið“ George Bush, Bandaríkjaforseti, sagði í morgun að Bandaríkjamenn muni ekki draga herlið sitt frá Írak fyrr en „verkinu er lokið.“ Hann sagði að herinn myndi ekki fara frá Írak meðan stjórnvöld þar óskuðu eftir nærveru hersins. Hann lofaði Nuri al-Maliki sem sterkan leiðtoga og sagði Bandaríkjamenn myndu í auknum mæli hjálpa við þjálfun öryggissveita Íraks. Erlent 30.11.2006 08:15
Hvetur til drengilegra forsetakosninga í Venesúela Manuel Rosales, aðalkeppinautur Hugo Chavez í kólumbísku forsetakosningunum sem haldnar verða á sunnudaginn, hvatti ríkisstjórn Chavez til að keppa drengilega og reyna ekki að hagræða úrslitum forsetakosninganna á síðasta baráttufundi sínum í gær, í Zileta-héraði, þar sem hann er ríkisstjóri. Erlent 30.11.2006 08:15
Norður-Kórea mun standa við alþjóðasamkomulag Stjórnvöld í Norður-Kóreu sögðu í morgun að Norður-Kóreumenn væru reiðubúnir að fylgja alþjóðasamkomulagi um kjarnavopn sem samþykkt var á síðasta ári en að þeir myndu aldrei gefa kjarnavopn sín upp á bátinn. Samkomulagið sem kennt er við 19. september felur í sér að Norður-Kóreumenn hætti við kjarnavopnaáætlun sína og fái í staðinn aðstoð í efnahags- og öryggismálum. Erlent 30.11.2006 07:45
Herinn á Fiji setur ríkisstjórninni afarkosti Yfirhershöfðingi eyríkisins Fiji í Kyrrahafi hefur gefið forsætisráðherra landsins sólarhrings frest til að taka sig saman í andlitinu og hreinsa til í ríkisstjórninni, ellegar muni herinn taka völdin af stjórninni. Öryggisráðið lýsti í gær yfir áhyggjum af ástandinu og bjóst við að herinn myndi reyna valdarán. Erlent 30.11.2006 07:44
Tillaga Íraksnefndar: breytt hlutverk Bandaríkjahers Óháð Íraksnefnd Bandaríkjaþings hefur ákveðið að leggja til að Bandaríkjaher hætti að berjast við uppreisnarmenn í Írak en verði frekar Íraksher til stuðnings, eftir heimildum Reuters fréttastofunnar. Nefndin hefur komist að niðurstöðu um málefni Íraks en mun ekki skýra frá henni fyrr en á miðvikudag í næstu viku. Erlent 30.11.2006 07:30
Geislavirkni í flugvélum British Airways Leifar af geislavirka efninu, sem að varð Alexander Litvinenko, fyrrum rússneskum njósnara, að bana, fundust um borð í tveimur áætlunarflugvélum British Airways í gær og voru vélarnar þegar teknar úr umferð. Vélarnar hafa aðallega verið í ferðum á milli Moskvu og London og styrkir þetta grunsemdir um að Rússar, sem sögðust vera uppljóstrar, hafi eitrað fyrir Litvinenko. Erlent 30.11.2006 07:20
Bush ræðir við Norður íraka Viðræður Bush Bandaríkjaforseta og forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Malikis hófust í Amman í Jórdaníu í morgun. Abdullah Jórdaníukonungur fundaði einnig með Bush og al-Maliki sitt í hvoru lagi í gær. Embættismenn Hvíta hússins reyndu í gær að sannfæra fréttamenn um að orðrómur þess efnis að Nuri al-Maliki hefði móðgast við harðorða Hvítahúss-skýrslu væri tilhæfulaus. Erlent 30.11.2006 07:12
Breytt staða varna Íslands líka úrlausnarefni NATO Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins luku fundi sínum í Ríga í Lettlandi í gær með því að álykta um staðfestu bandalagsins að ná árangri í Afganistan. Forsætisráðherra sagði breytta stöðu varnarmála á Íslandi einnig vera úrlausnarefni NATO. Málið yrði tekið Erlent 30.11.2006 06:45
Nýtt að samningurinn sé ófullnægjandi Að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, má draga þá ályktun af ummælum forsætis- og utanríkisráðherra um varnarmál Íslands síðustu daga, „að tvíhliða varnarsamningurinn við Bandaríkin sé ekki fullnægjandi og taki fyrst og fremst til ófriðartíma“. Erlent 30.11.2006 06:15
Hundruð þúsunda talin af Tala látinna í Darfúr-héraðinu vegna átaka þar er talin vera komin upp í minnst 200.000 manns. Þetta kom fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna í gær, en aðrar rannsóknir hafa bent til þess að talan gæti verið nær 400.000 eða jafnvel hærri. Erlent 30.11.2006 06:00
Sextíu njósna í Bretlandi Allt að sextíu rússneskir njósnarar starfa nú í Bretlandi, kom fram í máli Chris Bryant, þingmanns verkalýðsflokksins, sem forsætisráðherrann Tony Blair stýrir. Erlent 30.11.2006 06:00
Rétt að ræða við grannþjóðir „Ég vek athygli á því að strax árið 2003 bentum við í Frjálslynda flokknum á að það væri ástæða fyrir okkur að ræða við nágrannaþjóðir okkar um það hvernig vörnum Íslands verði háttað,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. „Við tökum þeim hugmyndum mjög vel að ræða varnarmálin við næstu grannþjóðir okkar,“ segir Guðjón Arnar. Erlent 30.11.2006 05:30
Ástandið er erfitt fyrir alla Palestínskur félagsráðgjafi segist ekki saka Ísraela um ástandið í Palestínu, heldur stjórnina. Hann missti sjónina í árás Ísraelshers. Amro er staddur hér á landi til að ræða stöðu fatlaðra í Palestínu. Erlent 30.11.2006 05:00
Hafa sagt sig úr stjórn Íraks Fylgismenn sjíaklerksins Muqtada al-Sadrs á þingi og í ríkisstjórn Íraks hafa dregið til baka stuðning sinn við ríkisstjórn landsins. Með þessu vilja þeir mótmæla því að Nouri al-Maliki forsætisráðherra skuli fara á fund George W. Bush Bandaríkjaforseta í Jórdaníu. Erlent 30.11.2006 05:00
Viðræður um varnarsamstarf Breytt staða varnarmála Íslands eftir brottför varnarliðsins er einnig úrlausnarefni NATO og af Íslands hálfu verður málið borið upp í Norður-Atlantshafsráðinu, æðstu stofnun bandalagsins, á næstu vikum. Þetta sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem lauk í Ríga í Lettlandi í gær. Erlent 30.11.2006 04:30
Erdogan æfur vegna frestunar Benedikt sextándi páfi lýsti sig í gær fylgjandi því að Tyrkland fái aðild að Evrópusambandinu. Páfi er í opinberri heimsókn í Tyrklandi í þeim tilgangi að lægja reiðiöldur múslima gagnvart sér og stuðla að sáttum milli kristinna og múslima. Erlent 30.11.2006 04:00
Frekari varnarviðbúnaður óþarfur Að sögn Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, er engin þörf á því að leita eftir því við NATO og grannþjóðirnar að sjá Íslendingum fyrir frekari varnarviðbúnaði eftir brottför varnarliðsins. Erlent 30.11.2006 03:00
Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Innlent