Erlent
Lugovoi mun tala við breska lögregluþjóna Andrei Lugovoi, lykilvitni í morðinu á rússneska fyrrum njósnaranum Alexander Litvinenko, mun hitta breska lögreglumenn í dag en frá þessu skýrði rússneska ITAR-Tass fréttastofan í dag. Erlent 6.12.2006 11:48
Leyniskjöl gerð opinber í tengslum við heimildarmynd í Danmörku Sören Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur, hefur ákveðið að birta leynileg skjöl í tengslum við störf danskra hermanna í Afganistan. Í heimildarmynd sem frumsýnd var á mánudag og nefnist Hið leynilega stríð eru danskir hermenn sakaðir um að hafa afhent bandarískum starfsbræðrum sínum 31 stríðsfanga sem síðan sætti pyntingum af hálfu Bandaríkjamanna. Erlent 6.12.2006 11:37
Trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða Frakkar sögðu í dag að heimsveldin sem nú funda í París, til þess að reyna að ná samkomulagi vegna kjarnorkuáætlana Írans, yrðu að hraða verkinu því annars væri trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða. Erlent 6.12.2006 11:34
Ísraelsher skýtur á Palestínumenn Ísraelskir hermenn skutu á og særðu tvo Palestínumenn sem nálguðust landamæri Ísraels við Gaza svæðið. Palestínskir sjúkraflutningamenn sögðu að mennirnir hefðu verið óvopnaðir en þetta er fyrsta árásin sem ísraelski herinn gerir á svæðinu síðan sæst var á vopnahlé þann 26. nóvember síðastliðinn. Erlent 6.12.2006 11:08
Kabila settur í embætti Joseph Kabila, sigurvegari í forsetakosningum í Austur-Kongó, verður settur í embætti í dag. Kabila bar sigur af Jean-Pierre Bemba í einum mikilvægustu kosningum í Afríku undanfarna áratugi. Búist er við fyrirmönnum frá fjölmörgum löndum vegna athafnarinnar en Bemba hefur þó sagt að hann muni ekki vera viðstaddur. Erlent 6.12.2006 10:49
Réttarhöld hafin í fyrsta hryðjuverkamáli Danmerkur Réttarhöld hófust í morgun í Eystri landsrétti í fyrsta hryðjuverkadómsmáli Danmerkur. Þar eru fjórir karlmenn á aldrinum 17 til 21 árs ákærðir fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk í einhvers staðar í Evrópu en þeir voru handteknir í Glostrup í Kaupmannahöfn fyrir rúmu ári og hafa síðan setið í gæsluvarðhaldi. Erlent 6.12.2006 10:35
Einræktun fósturvísa leyfð í Ástralíu Ástralir hafa ákveðið að leyfa einræktun á fósturvísum eftir miklar og tilfinningaríkar umræður en forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, var á móti lögunum. Hin nýju lög gera það kleift að rannsaka hugsanlegar erfðalækningar á erfiðum sjúkdómum og fötlunum. Erlent 6.12.2006 10:24
Ísraelar treysta ekki þjóðstjórn Palestínumanna Varaforsætisráðherra Ísraels, Shimon Peres, sagði í dag að þjóðstjórn í Palestínu myndi engu áorka auk þess sem hún væri frekar miðuð að því að fá pening þeim til handa en að vinna að friðsamlegri lausn deilunnar við Ísrael. Erlent 6.12.2006 09:58
8 látnir og 40 særðir Sprengjum var varpað á vinsælt verslunarhverfi í miðborg Bagdad í dag. Átta manns létust og um 40 særðust. Sprengjurnar voru fjórar eða fimm talsins og gerðist þetta í eldra hverfi Bagdad en í því hefur nýlega orðið mikil aukning á árásum. Erlent 6.12.2006 09:07
Pervez býður fram sáttahönd Pervez Musharraf, forseti Pakistan, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann væri tilbúinn til þess að gefa upp á bátinn allar kröfur til hins umdeilda héraðs Kasmír ef Indland myndi gjalda í sömu mynt og leyfa svæði í Himalaya fjöllum, sem Pakistan og Indland hafa lengi deilt um, að öðlast sjálfsstjórnarrétt. Erlent 6.12.2006 08:52
Of mikil tilfinningasemi varðandi hvalveiðar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sagði í viðtali við Reuters fréttaveituna í morgun að hvalveiðar Íslendinga væru ekki ógn við lífríki sjávar og að alþjóðleg viðbrögð einkenndust af of mikilli tilfinningasemi. Erlent 6.12.2006 08:35
Stjórnarkreppa í Úkraníu Viktor Yuschenko, forseti Úkraínu, ætlar að bjóða þinginu byrginn og fyrirskipa að utanríkisráðherra landsins sitji sem fastast eftir að þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum og innanríkisráðherra Úkraínu í síðustu viku. Erlent 6.12.2006 08:18
Norður-Kórea segir langt í viðræður Sexveldaumræðurnar munu ekki hefjast á þessu ári eða í náinni framtíð vegna ósanngjarnra skilyrða Bandaríkjastjórnar en þessu halda norður-kóreskir embættismenn fram. Þessu skýrði rússneska fréttastofan Interfax frá í morgun en hún er ein af fáum fréttastofum sem hafa aðgang að norður-kóreskum fréttamiðlum. Erlent 6.12.2006 08:02
Átta láta lífið í sjálfsmorðsárás Sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp fyrir utan höfuðstöðvar bandarísks öryggisfyrirtækis í suðurhluta Afganistan í morgun. Átta létust í árásinni og þar af tveir Bandaríkjamenn. Árásin átti sér stað í borginni Kandahar. Erlent 6.12.2006 07:55
Ítalskar veggmyndir frá 14.öld loksins sýndar umheiminum Veggmyndir sem uppgötvuðust í gömlum sal í klaustri í Róm voru loks sýndar umheiminum í gær eftir níu ára viðgerðir. Erlent 6.12.2006 07:20
Engin umbreytt fita í New York Heilbrigðisráð New York borgar ákvað í gær að gera borgina þá fyrstu í Bandaríkjunum þar sem bannað er að nota umbreytta fitu í matvæli. Umbreytt fita er fita sem hefur verið efnabætt til þess að bragðbæta og gera hana endingarbetri en hún er notuð í fjölmörgum matvörum í dag. Erlent 6.12.2006 07:15
Pinochet ekki lengur í lífshættu Augusto Pinochet, fyrrum einræðisherra í Chile, er ekki lengur í lífshættu en læknar hans neituðu því að hafa ýkt veikindi hans til þess að koma í veg fyrir að hann færi fyrir rétt vegna ódæðisverka sinna á valdatíma sínum. Erlent 6.12.2006 07:12
Gates samþykktur af varnarmálanefnd Varnarmálanefnd Bandaríkjaþings samþykkti einróma tilnefningu Robert Gates sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Gates kom fyrir nefndina í gær og svaraði spurningum hennar. Öldungadeildin mun í framhaldinu greiða atkvæði um tilnefningu Gates og ræður það því hvort hann taki við embættinu af Donald Rumsfeld. Erlent 6.12.2006 07:02
Neyðarástandi lýst yfir á Fídjieyjum Útvarpið á Fídji-eyjum greindi frá því í nótt að neyðarástandi verði lýst yfir í landinu í dag, en herinn framdi valdarán í landinu í fyrrinótt. Það var það fjórða sem framið er á eyjunum síðastliðin 20 ár. Erlent 6.12.2006 06:59
Lagt til að Bandaríkjaher verði til stuðnings Nefndin sem George W. Bush Bandaríkjaforseti setti á laggirnar til þess að endurskoða stefnu Bandaríkjanna í Írak skilaði af sér skýrslu sinni í morgun. Erlent 6.12.2006 06:54
Segir orð Royal ekki samræmast kjarnorkusáttmálanum Utanríkisráðherra Frakka, Philippe Douste-Blazy gagnrýndi í kvöld Ségolène Royal, forsetaframbjóðanda sósíalista fyrir að orð sem hún lét falla í Ísrael í dag, þess efnis að ef hún verði forseti muni hún beita sér gegn því að kjarnorkuáætlun Írana fái fram haldið, jafnvel í friðsamlegum tilgangi. Erlent 5.12.2006 23:30
Farsímar valda ekki heilaæxli Ekkert bendir til þess að farsímanotkun hafi í för með sér aukna hættu á heilaæxli eöa öðru krabbameini. Þetta kemur fram í nýjum rannsóknarniðurstöðum danska Krabbameinsfélagsins á farsímanotendum. Vísindamenn á vegum félagsins hafa fylgst með farsímanotendum í allt að 21 ár og sjá engin markverð tengsl á milli farsímanotkunar og krabbameins. Erlent 5.12.2006 23:15
Engin niðurstaða í Íransviðræðum Viðræður sex valdamikilla ríkja um viðbrögð við kjarnorkuáætlun Írans enduðu í dag í París án þess að diplómatarnir kæmust að endanlegri niðurstöðu um viðskiptahindranir gegn Írönum, samkvæmt upplýsingum frá franska utanríkisráðuneytinu. Fulltrúar ríkjanna koma næst saman til fundar í New York til að reka smiðshöggið á tillögu sína. Erlent 5.12.2006 22:34
Varnarmálanefndin samþykkti Gates Varnarmálanefnd Bandaríkjaþings samþykkti einróma tilnefningu Robert Gates sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Gates kom fyrir nefndina í dag og svaraði spurningum hennar. Öldungadeildin mun í framhaldinu greiða atkvæði um tilnefningu Gates og ræður það því hvort hann taki við embættinu af Donald Rumsfeld. Erlent 5.12.2006 22:13
Eiður tryggði Barcelona sæti í undanúrslitum Eiður Smári Guðjohnsen átti seinna markið í 2-0 sigri Barcelona á Werder Bremen á heimavelli í Barcelona í kvöld. Börsungar eru því komnir áfram í 16 liða úrslit meistaradeildar Evrópu, ásamt fyrrverandi félögum Eiðs í Chelsea, en þeir unnu riðilinn. Ronaldinho átti leifturskot á mark á þrettándu mínútu og kom liðinu yfir og Eiður gulltryggði síðan sigurinn. Erlent 5.12.2006 22:01
Forsætisráðherra Fiji flýr landið Forsætisráðherrahjónin á Fiji flúðu eyríkið flugleiðis fyrir sólarupprás að þarlendum tíma, - Fiji-eyjar eru 12 tímabeltum á undan Íslandi, að sögn þarlendrar útvarpsstöðvar. Ekki hefur verið gefið upp opinberlega hvort, og þá hvert, hjónin flúðu. Hermenn stjórnarhersins höfðu lokuðu Qarase inni á heimili sínu í gærkvöldi. Bainimarama hershöfðingi lýsti því yfir í morgun að herinn hefði tekið völdin á eyjunum. Erlent 5.12.2006 21:41
Yuschenko býður þinginu byrginn Viktor Yuschenko, forseti Úkraínu, ætlar að bjóða þinginu byrginn, og fyrirskipa að utanríkisráðherra landsins sitji sem fastast eftir að þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum og innanríkisráðherra Úkraínu í síðustu viku , sem báðir eru hollvinir forsetanum og appelsínugulu byltingunni sem kom honum til valda. Erlent 5.12.2006 21:22
Bretar afhenda Alþjóðabankanum 50 milljón pund Bretar sögðust í dag ætla að greiða Alþjóðabankanum 50 milljón pund, jafnvirði tæplega 6,75 milljarða íslenskra króna, sem Bretar höfðu neitað að greiða bankanum nema stefnu hans gagnvart þróunarlöndum yrði breytt. Bankinn hefur síðan sagst munu breyta stefnu sinni að skilyrða þróunaraðstoð við efnahagsbreytingar í hjálparþurfi landi. Erlent 5.12.2006 20:50
Vill sýna börnunum upprunaleg landamæri Ísraels Menntamálaráðherra Ísraels vill að kennslubækur sýni börnum landamæri landsins eins og þau voru fyrir árið 1967 þegar Ísrael lagði undir sig Vesturbakka Jórdanar, Gaza-ströndina, Austur-Jerúsalem og Gólan-hæðirnar. Hægrimenn hafa reiðst mjög þessari tillögu ráðherrans sem segir breytinguna nauðsynlega til að börn skilj sögu landsins. Erlent 5.12.2006 20:27
Geislavirkar skyttur á Emirates Stadium Leifar geislavirka efnisins pólons 210 fannst á heimavelli breska fótboltaliðsins Arsenal, á Emirates Stadium í Norður-London. Breskir leyniþjónustumenn reyna nú að rekja slóð morðingja rússneska njósnarans Litvinenkos, sem lést af völdum póloneitrunar. Erlent 5.12.2006 20:09