Erlent
YouTube að deila auglýsingatekjum með notendum Chad Hurkley, annars stofnenda YouTube, skýrði frá því í dag að þeir ætli að gefa notendum sem setja sínar eigin bíómyndir á vefinn hluta af auglýsingatekjum sínum. Framtakið á að ýta undir sköpunargleði notenda og stendur til boða þeim notendum sem eiga höfundarréttin á því sem þeir setja á vefinn. Erlent 27.1.2007 16:53
15 látnir og 55 slasaðir Að minnsta kosti 15 manns létu lífið og 55 slösuðust í tveimur sjálfsmorðsárásum í austurhluta Bagdad í Írak í morgun. Árásin átti sér stað í hverfi sjía múslima og eins og undanfarnar sprengjur, nálægt markaði. Erlent 27.1.2007 16:40
Blair vill fleiri lönd í öryggisráðið Breski forsætisráðherran Tony Blair sagði í dag að það ætti að hleypa Þýskalandi, Japan, Brasilíu og Indlandi inn í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Hann sagði einnig að það ætti að opna ráðið fyrir afrískum og múslimskum löndum til þess að auka lögmæti þess og virkni. Erlent 27.1.2007 15:46
Ban Ki-moon í Kongó Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, er nú í sinni fyrstu heimsókn til Afríku og hóf hann ferð sína í Kongó. Ban talaði við nýkjörið þing landsins og sagði þar að Kongó gæti treyst á stuðning Sameinuðu þjóðanna við uppbyggingu landsins. Erlent 27.1.2007 14:30
Beckham til bjargar Beyonce, Scarlett Johansson og David Beckham eru ný andlit Disney fyrirtækisins í herferð þess „Ár hinna milljón drauma.“ Stjörnurnar tóku að sér hlutverk frægra sögupersóna úr Disney sögum og ljósmyndarinn heimsfrægi, Anne Leibovitz, tók myndirnar. Erlent 27.1.2007 14:15
Settu hvolpinn inn í ofn Tveir bræður frá Atlanta í Bandaríkjunum sem voru sakaðir um að setja málningarlímband á lappir og trýni þriggja mánaða gamals hvolps og ofnbaka hann síðan lifandi játuðu sekt sína í gær. Erlent 27.1.2007 13:45
Eitrað te dró Litvinenko til dauða Breskir embættismenn hafa skýrt frá því að það hafi verið eitrað te sem hafi banað Alexander Litvinenko. Þetta kom í ljós þegar tekanna sem hafði verið í herbergi Litvinenkos var rannsökuð. Erlent 27.1.2007 13:30
Ford: Versta afkoma í 103 ár Bandaríski bílarisinn Ford tapaði tæpum 890 milljörðum króna í fyrra. Afkoma síðasta árs er sú versta í 103 ára sögu fyrirtækisins. Minnkandi spurn eftir jeppum og öðrum eldsneytisfrekum ökutækjum er ein aðalástæða tapsins, svo og harðnandi samkeppni við aðra bílaframleiðendur. Búist er við áframhaldandi taprekstri næstu 2 árin. Erlent 27.1.2007 13:08
Ályktað gegn efasemdarmönnum Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi ályktun þess efnis að þeir sem afneiti Helför gyðinga verði fordæmdir. Bandaríkjamenn lögðu fram drög að ályktuninni. Hún er sögð svar við ráðstefnu í Íran fyrir áramót þar sem dregið var í efa að Helförin hefði átt sér stað. Það voru rúmlega hundrað þjóðir sem studdu ályktunina. Erlent 27.1.2007 13:06
Taka harðar á Írönum George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið hersveitum sínum í Írak heimild til að taka útsendara írönsku klerkastjórnarinnar í landinu fastari tökum en áður. Íranskir flugumenn eru grunaðir um að þjálfa herflokka sjía sem berjast gegn hernámsliðinu en fram til þessa hefur þeim yfirleitt verið sleppt eftir nokkurra daga varðhald. Erlent 27.1.2007 13:05
16 fallið á Gaza Að minnsta kosti 16 hafa týnt lífi og fjölmargir særst í átökum milli Hamas og Fatah-liða á Gaza-svæðinu síðasta sólahring. Meðal látinna er tveggja ára drengur. Þetta eru einhver verstu átök sem blossað hafa upp milli fylkinganna í marga mánuði. Erlent 27.1.2007 13:04
Google viðurkennir mistök Stofnendur Google viðurkenndu í gær að ákvörðun þeirra um að verða við beiðni kínverskra stjórnvalda að efnisstýra leitarvél sinni í Kína hefði verið röng. Sögðu þeir það vera þar sem ákvörðunin hefði skaða orðspor fyrirtækisins í Evrópu og í Bandaríkjunum. Erlent 27.1.2007 11:00
Breska lögreglan vill fá Lúgóvoj Líklegt er talið að breska lögreglan krefjist þess að Rússar framselji Andrei Lúgóvoj, fyrrverandi njósnara KGB, vegna morðsins á starfsbróður sínum, Alexander Litvinenko. Eitrað var fyrir honum með geislavirku efni. Breska dagblaðið Guardian fullyrti þetta í gær. Erlent 27.1.2007 10:03
Fordæma þá sem afneita Helförinni Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi ályktun þess efnis að þeir sem afneiti Helför gyðinga verði fordæmdir. Bandaríkjamenn lögðu fram drög að ályktuninni og er hún sögð svar við ráðstefnu í Íran fyrir áramót þar sem dregið var í efa að Helförin hefði átt sér stað. Erlent 27.1.2007 10:00
Kleinuhringur með koffíni Vísindamanni í Bandaríkjunum hefur tekist að koma koffíni í kleinuhring. Ætla að margir kjósi slíka kræsingum á morgnana í náinni framtíð. Það var veirusérfræðinginum Robert Bohannon sem tókst þetta, en hann lét ekki þar við sitja og kom koffíni líka í kökukrem og annað góðmeti. Erlent 27.1.2007 09:45
Mannskæð átök á Gaza Að minnsta kosti þrettán týndu lífi og fjölmargir særðust í átökum milli Hamas og Fatah-liða á Gaza-svæðinu síðasta sólahring. Átökin eru þau verstu milli þessara hópa í marga mánuði. Meðal látinna var tveggja ára drengur. Erlent 27.1.2007 09:30
Friðargæsluliðar í átökum á Haiti Í það minnsta fimm létu lífið og sex særðust þegar friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna réðust inn í róstusamt fátækrahverfi á Haiti. Friðargæsluliðar reyna nú að hreinsa burt glæpagengi úr höfuðborginni Port-au-Prince til þess að fólk geti sinnt daglegum störfum óáreitt, að sögn yfirmanns friðargæslunnar. Erlent 26.1.2007 20:14
Hungursneyð yfirvofandi í Simbabve Hungursneyð vofir yfir Simbabve þar sem 850 þúsund tonn af maís vantar upp á að náist að næra þjóðina. Í desember var maísuppskeran aðeins 152.600 tonn, þannig að mikið vantar upp á. Ekki hjálpar til að gjaldeyrir er af skornum skammti í landinu sem er eitt fátækasta land heims. Erlent 26.1.2007 20:00
Sturtaði evruseðlum yfir mannfjöldann Vegfarendum í Kaiserslautern í Þýskalandi varð nokkuð hverft við í morgun þegar ský dró fyrir sólu og peningaseðlum tók að rigna. Ekki voru örlátir veðurguðir þarna á ferðinni heldur maður sem unnið hafði 100.000 evrur, jafnvirði níu milljóna króna, í útvarpshappdrætti. Erlent 26.1.2007 19:30
Geimhetjan komin heim Stokkhólmur var á öðrum endanum í dag þegar "geimkóngurinn" Christer Fuglesang kom til baka eftir að hafa farið lengra frá heimalandinu en nokkur annar Svíi hefur gert. Borgarstjórinn og hann skiptust síðan á gjöfum á ráðhúströppunum, Christer fékk lykil að borginni í skiptum fyrir fána sem hann ferðaðist með 203 hringi á sporbaug um jörðu. Erlent 26.1.2007 19:06
Mettap á rekstri Ford Það er af sem áður var hjá bandaríska bílarisanum Ford því afkoma síðasta árs var sú versta í 103 ára sögu fyrirtækisins . Ársuppgjör þess var kynnt í gær en samkvæmt því nam tapið á árinu tæpum 890 milljörðum króna, sem er litlu minna en verg þjóðarframleiðsla Íslendinga á ári. Erlent 26.1.2007 19:00
Vill taka Kína og Indland í hóp stærstu iðnríkja Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands sagði í dag að G8, hópur stærstu iðnríkja heims, yrði að taka við vaxandi stórveldunum Kína og Indlandi ef félagsskapurinn ætlaði að halda áhrifahlutverki sínu í heiminum. Erlent 26.1.2007 18:48
Hyggst herja á Írana George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið hersveitum sínum í Írak heimild til að taka útsendara írönsku klerkastjórnarinnar í landinu fastari tökum en áður. Erlent 26.1.2007 18:45
Kynþáttahatur glæpsamlegt á Ítalíu Ítalska ríkisstjórnin samþykkti í dag frumvarp til laga sem gerir mismunun og kynþáttahatur glæpsamlegt. Þetta frumvarp ganga hins vegar ekki svo langt að banna afneitun helfarar nasista gegn gyðingum, eins og lagabókstafur þýskalands, austurríkis og fleiri landa. Erlent 26.1.2007 18:14
Bandaríkjamenn og Norður-Kóreumenn funda Samninganefndir Bandaríkjamanna og Norður-Kóreumanna munu hittast á ný á þriðjudaginn í næstu viku, 30. janúar. Þar verður m.a. rætt um norðurkóreska bankareikninga á Maká-eyju, sem Bandaríkjamenn frystu. Norður-Kóreumenn krefjast þess að fá aftur aðgang að þessum peningum áður en þeir íhugi kjarnorkuafvopnun. Erlent 26.1.2007 17:15
Hersveitir hafa heimild til að handtaka og drepa Írana í Írak George Bush Bandaríkjaforseti greindi frá því í dag að bandarískar hersveitir í Írak hefðu heimild til að handtaka og drepa íranska ríkisborgarar sem tækju þátt í árásum á hersveitir bandamanna. Erlent 26.1.2007 17:00
Fjórir látnir eftir átök á milli Fatah- og Hamas-liða Fjórir eru látnir eftir að það sló í brýnu milli hópa á vegum Fatah-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna á Gasaströndinni í dag. Til átaka kom á milli hópanna þegar Hamas-liðar minntust þess að ár er síðan þeir fóru með sigur af hólmi í þingkosningum í landinu. Erlent 26.1.2007 15:21
Abbe Pierre borinn til grafar Jacques Chiarc Frakklandsforseti og Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, voru hópi fjölmargra franskra leiðtoga sem voru viðstaddir útför Abbe Pierre í París í dag. Abbe Pierre, sem lést á mánudag 94 ára að aldri, var í hópi virtustu og vinsælustu manna í Frakklandi fyrir baráttu sína í þágu heimilislausra. Erlent 26.1.2007 14:35
Ítalskir hermenn áfram í Afganistan Mið- og vinstri stjórn Romanos Prodis á Ítalíu samþykkti á maraþonfundi í gærkvöld að halda tæplega tvö þúsund manna herliði sínu í Afganistan áfram í landinu. Erlent 26.1.2007 13:45
Skildi sprengju eftir í dúfnakassa Að minnsta kosti fimmtán létu lífið og tugir særðust í sprengjuárás í miðborg Bagdad í morgun. Hryðjuverkið var framið á fjölförnum dýramarkaði í miðborginni en talið er að árásarmaðurinn hafi falið vítisvél sína í kassa sem var fullur af dúfum. Erlent 26.1.2007 13:30