Erlent Handtekinn vegna bréfsprengjuárása Breska lögreglan handtók í morgun karlmann á þrítugsaldri sem grunaður er um aðild að bréfasprengjuárásum víða á Bretlandseyjum fyrr í mánuðinum. Að sögn breskra miðla var maðurinn handtekinn í Cambridgeshire. Erlent 19.2.2007 12:30 Engin áþreifanleg niðurstaða Engin áþreifanleg niðurstaða fékkst eftir fund leiðtoga Ísraels og Palestínumanna með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Jerúsalem í morgun. Rice segir viðræðum verða haldið áfram. Markmið fundarins var að koma friðarviðræðunum fyrir botni Miðjarðarhafs aftur af stað. Erlent 19.2.2007 12:15 Pólverjar og Tékkar segja já við loftvarnarkerfi Pólland og Tékkland samþykkja líklega beiðni Bandaríkjamanna um að fá að setja upp loftvarnarkerfi á landsvæðum ríkjanna. Forsætisráðherrar landanna skýrðu frá þessu á sameiginlegum fréttamannafundi í dag. Erlent 19.2.2007 12:15 Rússar fresta byggingu kjarnorkuvers í Íran Rússar ætla sér að fresta byggingu á kjarnorkuveri fyrir Írana. Ákveðið var að fresta henni þar sem Íranar hafa ekki staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar vegna versins. Þetta sagði starfsmaður innan rússnesku kjarnorkumálastofnunarinnar í dag. Erlent 19.2.2007 11:50 Osama bin Laden snýr aftur Æðstu leiðtogar Al Kæda eru búnir að endurheimta að mestu leyti stjórn sína yfir hryðjuverkasamtökunum, að sögn bandaríska blaðsins New York Times. Blaðið hefur þetta eftir bandarískum leyniþjónustumönnum, sem segja að bæði Osama bin Laden og næstráðandi hans Ayman al-Zawahri komi nú beint að stjórn samtakanna. Erlent 19.2.2007 11:21 Engin eiturefni í París Erlent 19.2.2007 10:51
Handtekinn vegna bréfsprengjuárása Breska lögreglan handtók í morgun karlmann á þrítugsaldri sem grunaður er um aðild að bréfasprengjuárásum víða á Bretlandseyjum fyrr í mánuðinum. Að sögn breskra miðla var maðurinn handtekinn í Cambridgeshire. Erlent 19.2.2007 12:30
Engin áþreifanleg niðurstaða Engin áþreifanleg niðurstaða fékkst eftir fund leiðtoga Ísraels og Palestínumanna með Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Jerúsalem í morgun. Rice segir viðræðum verða haldið áfram. Markmið fundarins var að koma friðarviðræðunum fyrir botni Miðjarðarhafs aftur af stað. Erlent 19.2.2007 12:15
Pólverjar og Tékkar segja já við loftvarnarkerfi Pólland og Tékkland samþykkja líklega beiðni Bandaríkjamanna um að fá að setja upp loftvarnarkerfi á landsvæðum ríkjanna. Forsætisráðherrar landanna skýrðu frá þessu á sameiginlegum fréttamannafundi í dag. Erlent 19.2.2007 12:15
Rússar fresta byggingu kjarnorkuvers í Íran Rússar ætla sér að fresta byggingu á kjarnorkuveri fyrir Írana. Ákveðið var að fresta henni þar sem Íranar hafa ekki staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar vegna versins. Þetta sagði starfsmaður innan rússnesku kjarnorkumálastofnunarinnar í dag. Erlent 19.2.2007 11:50
Osama bin Laden snýr aftur Æðstu leiðtogar Al Kæda eru búnir að endurheimta að mestu leyti stjórn sína yfir hryðjuverkasamtökunum, að sögn bandaríska blaðsins New York Times. Blaðið hefur þetta eftir bandarískum leyniþjónustumönnum, sem segja að bæði Osama bin Laden og næstráðandi hans Ayman al-Zawahri komi nú beint að stjórn samtakanna. Erlent 19.2.2007 11:21
Fjórir hálshöggnir í Sádi-Arabíu Fjórir menn frá Sri Lanka voru teknir af lífi í Saudi-Arabíu, í dag, fyrir ofbeldisfull rán. Þá hafa sextán manns verið teknir af lífi í landinu það sem af er þessu ári. Mennirnir höfðu engan myrt, en hinsvegar sært nokkra með byssuskotum, í ránum sínum. Aftökur í Saudi-Arabíu fara venjulega þannig fram að menn eru Erlent 19.2.2007 10:30
Eiturefnaárás í París? Franska lögreglan hefur umkringt sendiráð Kanada í París, eftir að starfsmaður þar veiktist eftir að hafa opnað póst. Lögreglumenn í eiturefnabúningum eru þessa stundina að rýma sendiráðið. Erlent 19.2.2007 10:07
Mannrán nánast atvinnugrein Þremur króatiskum starfsmönnum olíufélags var rænt í borginni Port Harcourt í Nígeríu í dag. Þá eru samtals níu útlendingar í gíslingu mismunandi hópa mannræningja í landinu. Það líður orðið ekki sú vika að útlendingum sé ekki rænt í Nígeríu og haldið gegn lausnargjaldi. Bandarískum verkfræðingi og ökumanni hans var sleppt úr haldi í dag, að greiddu lausnargjaldi. Erlent 19.2.2007 09:43
Kjötkveðjuhátíðin hafin í Ríó Kjötkveðjuhátíðin hófst í Rio de Janeiro í Brasilíu í gær. Á fyrsta degi hennar var haldin mikil danskeppni en 13 sambaskólar kepptust þar um sigur. Talið er að kostnaður þeirra við þátttöku í keppninni sé nálægt 70 milljónum íslenskra króna. Í dag halda hátíðahöldin áfram með skrúðgöngum víðsvegar um borgina. Kjötkveðjuhátíðin í Rio de Janeiro er sú stærsta sinnar tegundar og laðar milljónir ferðamanna til Brasilíu ár hvert. Erlent 19.2.2007 09:00
Sex manns láta lífið í sprengingum Sex manns létu lífið og fleiri en 50 slösuðust þegar fleiri en 30 sprengjur sprungu í suðurhluta Taílands í gær. Árásirnar voru gerðar á skemmtistaði og hótel í borgum og bæjum á svæðinu. Stjórnvöld í Taílandi halda í dag neyðarfund vegna tilræðanna. Talið er að múslimskir aðskilnaðarsinnar standi að baki árásunum. Erlent 19.2.2007 08:15
Rice á ferðalagi um Mið-Austurlönd Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hittir í dag Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Ekki er búist við miklum árangri af þessum viðræðum. Rice sagði sjálf að þær væru óformlegar. Leiðtogarnir hafa ekki enn náð samkomulagi um hvað á að tala um á fundinum. Erlent 19.2.2007 07:37
64 létu lífið í sprengjuárás Að minnsta kosti 64 létu lífið í sprengjuárás á járnbrautarlest á Indlandi í gærkvöldi. Farþegar í lestinni, sem var á leið til Pakistan, sögðust hafa heyrt tvær sprengingar þegar lestin var stödd um 80 kílómetra fyrir norðan Delhi. Margir farþegar slösuðust og talið er að tala látinna gæti hækkað. Sprengjurnar tvær sprungu nær samstundis og lestarvagnarnir tveir urðu fljótt eldi að bráð. Erlent 19.2.2007 07:30
Umferðartollsvæði stækkað um helming Svæðið sem borga þarf umferðartoll fyrir að keyra um í miðborg Lundúna stækkaði í morgun um helming. Svæðið var áður takmarkað við miðborg Lundúna en nú eru Notting Hill og Chelsea hverfin á meðal þeirra sem greiða þarf fyrir að keyra um í. Erlent 19.2.2007 07:00
Rannsókn: Morfín slær á hósta Gamalt og gott húsráð meðal lækna í áratugi hefur verið að gefa sjúklingum með krónískan hósta morfín. Þar til nú hefur þessi grunur læknanna ekki verið staðfestur með rannsóknum. En nú hefur rannsókn í háskólanum í Hull í Bretlandi leitt í ljós að hugboð læknanna er rétt. Erlent 18.2.2007 20:53
Ríkislögmaðurinn hélt framhjá Peter Goldsmith ríkislögmaður Breta og bandamaður Tony Blairs forsætisráðherra hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni með lögfræðingi. Sambandi hans við ástkonuna, Kim Hollis lauk fyrir nokkrum árum. Hún var fyrsta konan af asískum uppruna sem var skipuð lögmaður í þágu bresku krúnunnar. Goldsmith lávarður hefur neitað því að hann hafi misnotað aðstöðu sína til að ýta undir frama Hollis. Erlent 18.2.2007 20:16
Konum verður greitt fyrir egg Breskar konur munu fá sem nemur rúmlega þrjátíu þúsundum íslenskra króna fyrir að gefa egg í þágu vísinda. Ákvörðunin markar þáttaskil í Bretlandi og mun verða bakslag fyrir leiðandi aðila í lyfjaheiminum. Í breska dagblaðinu Guardian kemur fram að nú sé sjúkrastofum leyfilegt að taka við eggjum í þágu vísinda nema þau séu auka afurð af gervifrjóvgun eða ófrjósemisaðgerð. Þeir sem styðja breytinguna segja það hafa leitt til skorts á eggjum til vísindarannsókna. Erlent 18.2.2007 19:18
Vonir dvína um viðræður Palestínu, Ísraels og Bandaríkjanna Condoleeza Rice fundaði með forsætisráðherra Ísrael og forseta Palestínu í dag en sameiginlegur fundur með þeim þremur verður á morgun. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, varði þjóðstjórn landsins og bað um biðlund en Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hélt fast við yfirlýsingar sínar frá því í gær um að bæði Bandaríkin og Ísrael myndu hvorki viðurkenna þjóðstjórnina né vinna með henni. Erlent 18.2.2007 18:30
Internet-fíkill kærir IBM fyrir að reka sig James Pacenza var rekinn frá IBM tölvufyrirtækinu í Bandaríkjunum fyrir að fara á spjallvef klámsíðu í vinnutölvu. Fyrirtækið segir stefnu félagsins alveg skýra og að Pacensa hafi verið varaður við. James fer fram á fimm milljónir bandaríkjadala frá fyrirtækinu undir þeim formerkjum að hann sé háður internetinu og verðskuldi meðferð og samúð, frekar en að vera rekinn. Erlent 18.2.2007 17:50
Ungabarnabeinagrindur í plastpoka Lögreglan á Indlandi fann plastpoka með leifum beinagrinda að minnsta kosti sex ungabarna nýverið. Pokinn fannst við leit á lóð sjúkrahúss í bænum Ratlam á mið-Indlandi. Óttast er að beinin geti verið vísbending um ólöglegar fóstureyðingar foreldra, sem vilja velja hvort kynið þau eignast. Pokinn fannst eftir ábendingu frá heimamanni. Erlent 18.2.2007 17:00
Segulljós rannsökuð í geimferð Delta II geimflaug Nasa geimferðastofnunnarinnar tók á loft í gærkvöldi frá Canaveral höfða í Florida. Seinkun varð á geimskotinu vegna vinds. Geimferðin ber heitið "Themis" og er ætlað að fá frekari innsýn inn í hvað orsakar segulljós og þá ljósadýrð sem getur skapast í himingeimnum. Vísindamenn eru á höttunum eftir upplýsingum um hvað hrindir af stað skyndilegri birtingu ljósa. Erlent 18.2.2007 16:45
62 létust í sprengingum í Baghdad Tala látinna í tveimur bílasprengingum í Baghdad í Írak í dag heldur áfram að hækka. Nú er staðfest að 62 létust og í það minnsta 120 slösuðust. Önnur sprengjan sprakk á markaði síja í nýjum hluta höfuðborgarinnar og hin í Sadr hverfinu. Um er að ræða mannskæðustu árásir síðan á miðvikudag þegar herir Bandaríkjamanna og Íraka tóku höndum saman um að skera upp herör gegn uppreisnarmönnum í landinu. Erlent 18.2.2007 13:58
Átta bandarískir hermenn létust í Afghanistan Átta bandarískir hermenn létust og 14 slösuðust þegar herþyrla hrapaði í suðausturhluta Afghanistan. Þyrlan var af Chinook gerð. Flugmaðurinn hafði tilkynnt um vandræði í mótor. Þyrlan hrapaði í Zabul héraði við landamæri Pakistan, en þar hafa aðgerðir talibana verið áberandi upp á síðkastið. Erlent 18.2.2007 13:47
Ár svínsins gengið í garð Milljónir manna hafa verið á faraldsfæti innan Kína sem og til landsins alla þessa viku og er um að ræða eina mestu fólksflutninga á jörðinni. Ástæðan er þó ekki stríðsátök eða hungursneyð, heldur mun gleðilegri - nýja árið í kínverska tímatalinu er nefnilega gengið í garð þar í landi og nú taka við vikulöng hátíðahöld. Erlent 18.2.2007 12:40
Bretar áhyggjufullir vegna unglingadrykkju Breskir læknar vilja sérstök meðferðarúrræði fyrir börn með áfengissýki. Börn allt niður í 12 ára aldur eru greind sem alkahólistar. Þetta kemur fram í breska dagblaðinu The Independent. Vaxandi áhyggjur eru í Bretlandi vegna mikillar áfengisdrykkju. Aldrei hafa jafn margir unglingar frá tólf ára aldri þurft læknisaðstoð vegna hliðarverkana áfengisdrykkju. Erlent 18.2.2007 11:10
Hóta að sniðganga Palestínustjórn Bandaríkjamenn og Ísraelar hafa fallist á að sniðganga nýja þjóðstjórn Palestínumanna nema stjórnin viðurkenni Ísraelríki og láti af ofbeldisverkum gegn Ísraelum. Ekkert samstarf verði á milli Ísraela og Palestínumanna ef af þessu verði ekki. Þessu lýsti Ehud Olmert yfir í aðdraganda viðræðna milli hans og utanríkisráðherra Bandaríkjanna Condoleezzu Rice. Erlent 18.2.2007 10:30
Fuglaflensa staðfest í Rússlandi Tvö tilfelli fuglaflensu hafa verið staðfest í Rússlandi sem hið banvæna afbrigði H5N1. Tilfellin tvö komu upp á tveimur stöðum vestur og suður af Moskvuborg í gærkvöldi. Frekari sýni verða tekin á morgun. Rannsókn þeirra mun leiða í ljós hversu hættulegur vírusinn er. Ekki hefur verið tilkynnt um fuglaflensusmit í mönnum enn sem komið er í Rússlandi. Erlent 17.2.2007 20:15
Þúsundir Ítala mótmæltu í Vicenza Þúsundir Ítala mótmæltu stækkun bækistöðvar Bandaríska hersins í borginni Vicenza á Ítalíu í dag. Skipuleggjendur mótmælanna segja meirihluta bæjarbúa mótfallna áformum bandaríska hersins. Þeir segja Romano Prodi forsætisráðherra Ítalíu hafa hunsað mótbárur þeirra gegn stækkuninni. Erlent 17.2.2007 20:00
Öldungadeild hafnar ályktun fulltrúadeildar Öldungadeild Bandaríkjaþings neitaði í dag að samþykkja ályktun sem fordæmir ákvörðun Bush forseta um að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Ályktunin var samþykkt í fulltrúadeild bandaríska þingsins með 246 atkvæðum gegn 182. Þetta er í annað skiptið á hálfum mánuði sem demókrötum í öldungadeildinni mistekst að vinna á mótstöðu repúblíkana og ná viðunandi fjölda atkvæða til að koma máli í gegn. Erlent 17.2.2007 19:36
Sjö létust í eldsvoða í Pennsylvaníu Sjö manns létust, þar af sex börn, þegar kviknaði í húsi í Pennsylvaníu ríki í Bandaríkjunum. Börnin voru á aldrinum tveggja til tíu ára, en kona um tvítugt lést einnig í eldsvoðanum. Nokkrir fullorðnir komust úr húsinu þegar eldurinn kviknaði klukkan þrjú í nótt að staðartíma. Ekki er enn vitað um orsök eldsins, en húsið var timburhús í Franklin rétt við Pittsburg. Erlent 17.2.2007 16:56