Erlent

Danskar ástir

Tuttugu og sex ára gamall Dani var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að lauma sér undir sængina hjá kærustu besta vinar síns og eiga við hana mök. Án þess að hún uppgötvaði að það var ekki kærastinn sem hún var að gamna sér með.

Erlent

Enga víbratora hér

Fjarstýrðir víbratorar hafa verið bannaðir á Kýpur. Breska fyrirtækið Anne Summers framleiðir þessi og önnur hjálpartæki ástarlífsins. Fyrirtækið hefur beðið kýpverska viðskiptavini sína afsökunar á því að þeir fá ekki að njóta þessarar tækninýjungar.

Erlent

Börn í Írak deyja eins og flugur

Engar hömlur eru á barnadauða í Írak. Eitt af hverjum átta börnum sem þar fæðast lifir ekki til fimm ára aldurs. Barnadauði í landinu hefur aukist um 150 prósent síðan árið 1990. Það er langtum meiri aukning en í nokkru öðru landi. Níu af hverjum tíu börnum sem deyja fyrir fimm ára aldur fæðast í 60 fátækustu löndum heimsins.

Erlent

Danir elska stóra bróður

Níu af hverjum tíu Dönum eru hlynntir nýjum lögum sem heimila yfirvöldum að fjölga eftirlitsmyndavélum á göngugötum og torgum. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var þar í landi. Meirihluti er fyrir þessum lögum á danska þinginu og er búist við að þau verði samþykkt áður en þingið fer í sumarfrí.

Erlent

Tveir karlar og kona grunuð um aðild að hvarfi Madeleine

Portúgalska lögreglan hefur þrjár manneskjur grunaðar um að vera valdar að hvarfi Madeleine McCann í Portúgal fyrir viku síðan. Samkvæmt fréttastofu Sky er lögreglan að kanna aðild tveggja manna og konu, sem sáust með telpu sem svipar til Madeleine, að málinu.

Erlent

Blair hættir 27. júní

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í morgun að hann myndi segja af sér þann 27. júní í sumar. Þetta kom fram á fundi hans með stuðningsmönnum sínum í kjördæmi hans, Sedgefield.

Erlent

Grænmetisætur sveltu kornabarn í hel

Bandarískir foreldrar hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir að svelta kornabarn sitt í hel. Crown Shakur var aðeins 1500 grömm að þyngd þegar hann lést, sex vikna gamall. Foreldrarnir, Jade Sanders og Lamont Thomas eru grænmetisætur og gáfu barninu mat í samræmi við þann lífsstíl sinn. Crown litli fékk aðallega smáskammta af eppelsínusafa og sojamjólk.

Erlent

Danskir hjartasjúklingar fá slæma meðferð

Stór hluti þeirra tuttugu þúsund sjúklinga í Danmörku sem lagðir eru inn á spítala vegna hjartasjúkdóma fá allt of slæma meðferð. Þessu er haldið fram í nýrri rannsókn sem mældi gæði sjúkrahúsa í Danmörku. Það er danska blaðið MetroXpress sem greinir frá þessu og hefur eftir talsmanni sjúklinga í Danmörku að fréttirnar veki óhug.

Erlent

Horta spáð öruggum sigri

Jose Ramos-Horta, forsætisráðherra Austur Tímor verður næsti forseti landsins að því er þarlendir fjölmiðlar segja. Forsetakosningar fóru fram Austur-Tímor á miðvikudaginn en lokatölur liggja líklegast ekki fyrir fyrr en á föstudag.

Erlent

Varð sprenging um borð í Estoniu?

Ekki er hægt að útiloka að sprenging kunni að hafa orðið um borð i ferjunni Estoniu sem sökk árið 1994. Þetta kom fram í þætti í sænska ríkisútvarpinu og er vísað í tvær nýjar rannsóknir á slysinu.

Erlent

Fullorðinsvefur fyrir blinda og sjónskerta

Athafnamaður á Bretlandi hefur sett upp nýja vefsíðu með efni fyrir fullorðna á. Hún er hins vegar frábrugðin að því leyti að hún er ætluð þeim sem eru blindir eða sjá mjög illa.

Erlent

Fá rafmagn í fjóra tíma á dag

Almenningur í Zimbabwe mun aðeins fá rafmagn í fjórar klukkustundir í dag. Ákvörðunin tók gildi í dag og verður í gildi næstu þrjá mánuðina. Með þessu aðgerðum eru stjórnvöld að reyna að gefa kornbóndum í landinu orku til þess að knýja vatnsúðunarkerfi en þau eru nauðsynleg svo að ekki verði uppsprettubrestur í landinu.

Erlent

Páfinn í Suður-Ameríku

Benedikt páfi er nú kominn til Sao Paulo og hefur þar fimm daga heimsókn sína til fjölmennustu rómversk-kaþólsku þjóðar í heiminum. Þetta er fyrsta heimsókn hans til Suður-Ameríku síðan hann tók við embætti.

Erlent

Mikki mús með áróður

Útsendingum á barnatíma sjónvarpsstöðvar Hamas-samtakanna í Palestínu hefur verið hætt en í honum skoraði Mikki mús á áhorfendur sína að berjast til síðasta manns gegn hernámi Ísraela. Málið sýnir vel hversu snemma er alið á sundrungunni hjá börnum herteknu svæðanna.

Erlent

Madeleine McCann enn ófundin

Enn hefur ekkert spurst til litlu bresku telpunnar sem rænt var á Algarve í Portúgal fyrir viku síðan. Foreldrar hennar segjast enn vongóðir um að hún finnist heil á húfi.

Erlent

Írsk stúlka fær leyfi fyrir fóstureyðingu í Bretlandi

Írsk táningsstúlka hefur unnið mál fyrir hæstarétti Dublinarborgar þar sem henni er heimilað að fara til Bretlands í fóstureyðingu. Læknar höfðu sagt 17 ára móðurinni að hluta af heila og höfuðkúpu fóstursins vantaði. Barnið myndi einungis lifa örfáa daga eftir fæðingu. Stúlkan er í umsjá heilbrigðisyfirvalda á Írlandi sem höfðu hindrað hana í að fara til Bretlands.

Erlent

Blair greinir frá framtíð sinni á morgun

Tony Blair forsætisráðherra Bretlands mun tilkynna ráðherrum á morgun um framtíð sína í embætti og sem leiðtoga Verkamannaflokksins. Þetta var staðfest af skrifstofu hans í dag samkvæmt fréttastofu Sky. Hann mun ekki halda sérstakan blaðamannafund til að greina frá ákvörðun sinni.

Erlent

Allsnakin hefnd

Skilnaðurinn hafði verið bitur. Hinn 42 ára gamli Dani hafði verið borinn út úr húsi sínu og kærustu sinnar með fógetavaldi. Auk þess hafði verið sett á hann nálgunarbann. Hann vildi hefna sín. Kærastan rak eigið ráðgjafafyrirtæki. Honum tókst að stela listanum yfir viðskiptavini hennar. Og sendi þeim nektarmyndir af henni í allskonar stellingum.

Erlent

Sjónvarpsáhorf í Bandaríkjunum snarminnkar

Taugatitringur hefur gripið um sig meðal helstu sjónvarpsstöðva í Bandaríkjunum eftir að verstu áhorfstölur í manna minnum voru birtar. Fækkunin í mars og apríl nam rúmlega tveimur og hálfri milljón sjónvarpsáhorfenda frá sömu mánuðum í fyrra. Flestir hafa skýringar á reiðum höndum;

Erlent

Morgnarnir erfiðastir

Erfiðast er að gera margt í einu á morgnana og kvöldin. Vísindamenn finna sér mismunandi viðfangsefni og sum þeirra koma spánskt fyrir sjónir. Vísindamaðurinn Daniel Bratzke starfar við háskólann í Tübingen í Þýskalandi. Hann hefur síðustu ár rannsakað viðbragðstíma fólks á mismunandi tímum sólarhringsins.

Erlent

Sagaði af sér höfuðið

Þýskir lögreglumenn sem voru sendir að húsi í Köln segja að þeir hafi sjaldan upplifað aðra eins aðkomu. Aldraður maður hafði hringt í neyðarlínuna, en þagnað í miðri setningu. Ástæðuna sáu lögregluþjónarnir strax. Sjötugur maðurinn lá í blóði sínu eftir að sonur hans hafði stungið hann til bana með hnífi.

Erlent

Danir skutu á sænskt herskip

Ekki hefur þó slegist upp í vinskapinn hjá frændum okkar heldur var 21 fallbyssuskoti hleypt af til þess að fagna opinberri heimsókn sænsku konungshjónanna til Danmerkur. Svíar nátturlega svöruðu fyrir sig og herskipið sem þau Karl Gústav og Sylvía komu með þrumaði líka út í loftið með kanónum sínum.

Erlent

Barist við elda í Hollywood-hæðum

Slökkviliðsmenn í Los Angeles berjast nú við elda í frægum garði í Hollywood-hæðum sem kviknuðu í gærdag. Eftir því sem fram kemur á fréttavef CNN hafa um 15 prósent af Griffith-garðinum eyðilagst í eldinum en hann er um 15 kílómetra frá miðborg Los Angeles.

Erlent

Te dregur úr líkum á húðkrabbameini

Rannsóknir sýna að grænt og svart te minnkar hugsanlega líkur á húðkrabbameini. Tveir bollar af grænu eða svörtu tei gætu dregið úr líkum á krabbameini. Þetta eru niðurstöður breskra og bandarískra rannsókna á greindum húðkrabbameinstilfellum árin 1993 til 1995 og 1997 til 2000.

Erlent

Gagnrýna Sarkozy fyrir frí á lystisnekkju

Nicolas Sarkozy, nýkjörinn Frakklandsforseti, er nú í fríi á lystisnekkju úti fyrir ströndum Möltu ásamt fjölskyldu sinni. Verkalýðsleiðtogar gagnrýndu ferðalagið í morgun og sögðu það lýsa óviðeigandi munaði.

Erlent

Enn ein árásin á borgara

21 borgari er sagður hafa látið lífið í árásum Atlantshafsbandalagsins á búðir talibana í Helmand-héraði í Afganistan í morgun.

Erlent

Allir bannfærðir

Benedikt páfi sextándi segist sammála því að mexíkóskir stjórnmálamenn sem studdu lög sem leyfa fóstureyðingu verði bannfærðir. Slík lög voru sett í Mexíkóborg fyrir skömmu. Páfi lét þessi orð falla um borð í flugvél sem var að flytja hann í sína fyrstu pílagrímsferð til Suður-Ameríku.

Erlent

Elsku Arnold

París Hilton hefur lagt blessun sína yfir bréf til Arnolds Schwarzeneggers ríkisstjóra í Kaliforníu þar sem henni er beðið griða. París hefur verið dæmd í 45 daga fangelsi í ríki Tortímandans fyrir að aka fyrst undir áhrifum og síðan próflaus. Í bréfinu er henni lýst sem fyrirmynd sem lífgi upp á gráan hversdagsleika milljóna manna.

Erlent