Erlent
Mikill ís leynist á Mars Bandaríski vísindamaðurinn Joshua Bandfeld telur að stór hluti af yfirborði reikistjörnunnar Mars geti verið þakinn ís. Þetta segist hann hafa fundið út með nýjum greiningaraðferðum. Erlent 18.5.2007 10:00
Rasmussen heimsækir danska hermenn í Afganistan Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, kom í morgun í heimsókn í Bastion-búðirnar í Helmand-héraði í Afganistan þar sem danskir hermenn í landinu halda til. Rasmussen er nú í heimsókn í Afganistan og fundaði í gær með Hamid Karzai, forseta Afganistans. Erlent 18.5.2007 09:46
Breytt viðhorf Kína til Darfur Framtíð hins stríðshrjáða Darfur héraðs í Súdan verður líklega ákveðin þúsundum kílometra í burtu frá landinu. Og þar koma ekki við sögu Bandaríkin eða Sameinuðu þjóðirnar. Í þetta sinn er það Kína sem leikur lykilhlutverk og það er áminning um vaxandi áhrif Kína í alþjóðasamfélaginu. Erlent 18.5.2007 09:17
Putin tekur frestun ekki nærri sér Forseti Rússlands, Vladimir Putin, sagði í dag að hann tæki það ekki nærri sér að viðræðum um nýtt samstarfssamkomulag á milli Evrópusambandsins og Rússlands hefði verið frestað. „Við tökum þetta ekki nærri okkur og gerum ekki mikið úr því. Við skiljum að Evrópusambandið verður fyrst að leysa deilur innan sinna raða áður en viðræður hefjast. Við virðum þá ákvörðun þeirra.“ sagði Putin á fréttamannafundi eftir leiðtogafund Evrópusambandsins og Rússa í dag. Erlent 18.5.2007 08:59
Moska í Hyderabad sprengd í loft upp Að minnsta kosti fimm létu lífið í sprengingu í mosku á bænatíma í borginni Hyderabad í ríkinu Andhra Pradesh á Indlandi í morgun. Lögregla skýrði frá þessu í morgun. 22 særðust í sprengingunni í Mecca Masjid moskunni, en hún er stærsta moskan í borginni. Erlent 18.5.2007 08:52
Ísraelar ætla að grípa til aðgerða Utanríkisráðherra Ísraels, Tzipi Livni, sagði í morgun að nú væri komið nóg og að Ísrael myndi ákveða á næstu dögum til hvaða aðgerða yrði gripið til að koma í veg fyrir eldflaugaárásir Palestínumanna á Ísrael. Hún sagði fréttamönnum að ríkisstjórnin myndi hittast á sunnudaginn kemur og að þá yrðu ákvarðanir teknar. Erlent 18.5.2007 08:34
Sarkozy skipar ríkisstjórn Nicolas Sarkozy, nýkjörinn forseti Frakklands, tilkynnti í morgun um nýja ríkisstjórn. Í hana skipaði hann bæði vinstri- og miðjumenn í lykilstöður. Sarkozy fækkaði og endurskipulagði ráðuneyti og eru ráðherrar nún 15 talsins. Erlent 18.5.2007 08:01
Þing Kasakstan fjarlægir takmarkanir á kjörtímabil forseta Þingið í Kasakstan samþykkti í dag með yfirgnæfandi meirihluta að fjarlægja takmarkanir á hversu mörg kjörtímabil forseti landsins, Nursultan Nazarbayev, getur verið við völd. Erlent 18.5.2007 07:59
Rússar meina Kasparov að mótmæla Rússneska lögreglan kom í morgun í veg fyrir að leiðtogar stjórnarandstöðuhópa gætu farið og mótmælt á leiðtogafundi Evrópusambandsins og Rússlands. Á meðal mótmælenda var skákmeistarinn Garry Kasparov. Hópurinn var stöðvaður á flugvellinum í Moskvu. Erlent 18.5.2007 07:51
Ísraelar gera enn loftárásir á Gaza Ísraelar gerðu í nótt enn fleiri loftárásir á Gaza svæðinu. Ísraelski herinn sagði að um skotmörk hans væru öll tengd Hamas. Að minnsta kosti fjórir létu lífið í árásunum í nótt. Ísrael hóf árásir á Gaza í gærdag og sagði þær viðbrögð við eldflaugaárásum Hamas. Hamas hótaði eftir árásir Ísraela að hefja sjálfsmorðsárásir á ný. Erlent 18.5.2007 07:06
Putin og Merkel funda í dag Vladimir Putin, forseti Rússlands, mun funda með leiðtogum Evrópusambandsins í dag en spenna hefur verið í samskiptum þeirra að undanförnu. Angela Merkel, kanslari Þýskalands og núverandi forseti Evrópusambandsins, sagði að litlar líkur væru á úrlausnum mála á fundinum. Erlent 18.5.2007 07:03
Wolfowitz hættir 30. júní Paul Wolfowitz, forseti Alþjóðbankans, ætlar að segja starfi sínu lausu vegna deilu um að hann hafi útvegað kærustu sinni stöðu- og launahækkun. Erlent 18.5.2007 06:55
Vill endurvekja traust fólksins Gordon Brown, fjármálaráðherra og verðandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist í gær myndu vinna að því að endurvekja traust fólksins á ríkisstjórninni þegar hann tæki við völdum. Hann nefndi engar breytingar á þátttöku Bretlands í Íraksstríðinu. Erlent 18.5.2007 05:00
Sumir fengu að kjósa nokkrum sinnum Alþjóðlegir eftirlitsmenn, sem fylgdust með þingkosningunum á Filippseyjum á mánudag, urðu vitni að því að á sumum kjörstöðum í suðurhluta landsins voru kjósendur beittir hótunum og atkvæði voru keypt. Erlent 18.5.2007 04:00
Staðfestu sterk tengsl þjóðanna Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, vörðu í gær Íraksstríðið og þátttöku sína í því. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í Washington staðfestu leiðtogarnir samstöðu og sterk tengsl þjóðanna tveggja. Erlent 18.5.2007 04:00
ESB-aðild í forgang Ný ríkisstjórn Serbíu var samþykkt á serbneska þinginu aðeins nokkrum mínútum áður en lokafrestur rann út á miðnætti aðfaranótt miðvikudags. Fyrir hinni nýju ríkisstjórn liggur að reyna að ganga inn í Evrópusambandið á sama tíma og hún reynir að koma í veg fyrir að Kosovo-hérað öðlist sjálfstæði. Erlent 18.5.2007 04:00
Árleg verðbólga 3.700 prósent Árleg verðbólga í Simbabve í Afríku var 3.700 prósent í lok apríl, sú langmesta í heiminum. Vöruverð í landinu tvöfaldaðist á milli mánaða. Erlent 18.5.2007 03:00
Bruni varpaði skugga á hátíð Norðmenn héldu þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan í gær í blíðskaparveðri. Mikið var um hátíðahöld um allt land en það var á þessum degi árið 1814 sem Norðmenn fengu sjálfstæði frá Dönum. Erlent 18.5.2007 00:15
Wolfowitz segir af sér Paul W. Wolfowitz lét í dag undan miklum þrýstingi stjórnar og starfsmanna Alþjóðabankans og sagði af sér sem forstjóri bankans. Með því kom hann í veg fyrir að bankastjórnin lýsti formlega yfir vantrausti á hann. Erlent 17.5.2007 23:34
Lögreglan fær súrefnisgeyma gegn mengun Lögreglustöðvar í Kalkútta á Indlandi hafa nú allar fengið súrefnisgeyma til þess að hjálpa lögreglunni að takast á við áhrif mengunarinnar í borginni. Umferðarlögreglumenn í borginni koma til með að njóta góðs af þeim en þeir þurfa að standa í einhverri mestu mengun í heimi. Erlent 17.5.2007 20:04
Skemmdarverk unnin á Litlu hafmeyjunni Enn einu sinni hefur Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Þegar menn fóru á stjá í gær sáu þeir að rauðri málningu hafði verið slett á andlit, brjóst og kjöltu þessa frægasta kennileiti borgarinnar. Erlent 17.5.2007 19:45
Norðmenn fagna þjóðhátíðardegi sínum Norðmenn héldu þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan í dag, 17. maí. Á þessum degi árið 1814 lýsti Noregur yfir sjálfstæði sínu frá Dönum og stjórnarskrá landsins var undirrituð. Dagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land. Erlent 17.5.2007 19:09
22 fórust í skotbardaga í Mexíkó Blóðugur skotbardagi átti sér stað í Mexíkó í gær og létu 22 lífið. Hann er sá stærsti síðan að stjórnvöld hófu átak gegn eiturlyfjasölum fyrir fimm mánuðum síðan. Átökin hófust þegar lögreglan í Mexíkó, með stuðningi hermanna, réðust inn á búgarð þar sem allt að 50 vopnaðir vígamenn höfðust við. Erlent 17.5.2007 18:55
Var haldið föngnum í 13 ár Suður-afrískur maður hefur verið ákærður fyrir ofbeldi eftir í ljós kom að hann hafði haldið ungum dreng föngnum í lokaðri kompu í 13 ár. Sagt er að drengurinn sé enn í áfalli og að hann þoli illa ljós. Talið er að maðurinn hafi rænt honum þegar hann var aðeins fimm ára gamall. Honum var bjargað eftir að nágrannar höfðu heyrt öskrin í honum. Erlent 17.5.2007 18:39
Stjórnarandstaðan í Tyrklandi sameinast Tveir stjórnarandstöðuflokkar í Tyrklandi hafa sameinast um framboð í þingkosningum sem fara fram í landinu þann 22. júlí. Kosningunum var flýtt þar sem ekki náðist samkomulag um forseta landsins. Erlent 17.5.2007 18:34
Samkomulag næst um innflytjendalög Öldungadeild bandaríska þingsins og Hvíta húsið hafa náð samkomulagi um innflytjendalöggjöf sem veitir milljónum ólöglegra innflytjenda búseturétt í Bandaríkjunum. Erlent 17.5.2007 17:48
Einn lést og fjórir særðust Einn lést og fjórir særðust í loftárásum Ísraelshers á Gaza svæðið í dag. Talsmenn sjúkrahúsa á svæðinu skýrðu frá þessu í dag. Þeir sögðu að sá sem hefði látið lífið hefði verið óbreyttur borgari á unglingsaldri. Ísraelski herinn hefur ekki svarað þessum staðhæfingum. Erlent 17.5.2007 17:03
Ban stefnir að fundi um loftslagsmál Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-Moon, ætlar sér að koma á fundi háttsettra embættismanna á sama tíma og þjóðarleiðtogar hittast og ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september. Ban sagði að alþjóðasamfélagið væri nú betur að sér um umhverfismál og sérstaklega eftir að skýrsla sérfræðinga á vegum Sameinuðu þjóðana kom út. Erlent 17.5.2007 16:05
Stéttarfélög í Nígeríu boða til verkfalls Stéttarfélög í Nígeríu hafa boðað til tveggja daga verkfalls daganna 28. til 29. maí til þess að mótmæla framkvæmd forsetakosninga sem haldnar voru í landinu þann 21. apríl síðastliðinn. Framkvæmdastjóri stéttarfélaga skýrði frá þessu í dag. Erlent 17.5.2007 14:44
Dagar Wolfowitz sagðir taldir Enn einn fundurinn verður haldinn í stjórn Alþjóðabankans í dag um örlög bankastjórans Pauls Wolfowitz en flest bendir nú til að hann muni láta af störfum. Erlent 17.5.2007 13:16