Erlent
Ráðist að samkynhneigðum Rússneska lögreglan handtók í dag hóp fólks sem barðist fyrir réttindum samkynhneigðra í landinu. Áður höfðu öfgamenn ráðist að þeim með barsmíðum, en enginn þeirra var tekinn höndum. Erlent 27.5.2007 19:00
Ellefu ára strákur felldi ófreskju í Alabama Ellefur ára strákur frá Alabama gæti hafa drepið heimsins stærsta villisvín í síðasta mánuði ef fréttir af stærð skepnunar reynast réttar. Strákurinn elti svínið í marga tíma með föður sínum og hann fékk heiðurinn af því að veita því náðarskotið. Það var níunda kúlan sem felldi svínið því þeir feðgar höfðu skotið það átta sinnum án þess að fella það. Erlent 27.5.2007 17:44
Beið dauðans á Everest fjalli 22 ára gömul fjallgöngukona, Usha Bista, sem bjargað var úr hlíðum Everest fjalls á dögunum, segir að klifurfélagar hennar hafi skilið hana eftir. Það var annar hópur klifurgarpa sem gekk fram á stúlkuna sem lá meðvitundarlaus á „dauðasvæðinu“ svokallaða á Everest. Erlent 27.5.2007 17:25
Ofbeldi í Moskvu Rússneska lögreglan handtók í dag samkynhneigða mótmælendur sem kröfðust þess að fá að halda Gay Pride hátíð á götum Moskvuborgar. Mótmælendurnir sættu miklu harðræði frá öfgafullum þjóðernissinumm sem börðu fólkið og hreyttu í það ókvæðisorðum. Erlent 27.5.2007 16:50
Einn virtasti skrautritari múslíma myrtur Khalil al-Zahawi, einn virtasti skrautritari arabísks leturs í heiminum, var myrtur fyrir utan heimili sitt í Baghdad í gær. Listgreinin er afar hátt skrifuð í Írak jafnt sem í öðrum löndum hins múslímska heims og skrautritarar njóta mikillar virðingar. Erlent 27.5.2007 14:50
Fjöldi ábendinga vegna Madeleine Lögreglan í Portúgal segist hafa fengið mikinn fjölda ábendinga í máli Madeleine McCann eftir að ítarlegri lýsing var gefin af manni sem grunaður er í málinu. 24 dagar eru nú liðnir síðan hinni fjögurra ára gömlu telpu var rænt. Erlent 27.5.2007 14:10
Hernaðaraðgerðir í Sadr borg Bandarískir og íraskir hermenn gerði í dag árás á Sadr borg, fátækrahverfi í Baghdad, þar sem shía uppreisnarmenn hafa mikil ítök. Hverfið er kennt við múslímaklerkinn shía klerkinn Muqtada al-Sadr sem kom úr felum á föstudaginn var og hvatti shía og súnnía til þess að sameiast gegn innrásarliðinu. Erlent 27.5.2007 13:23
Stjórnmálakreppunni afstýrt Vonast er til að stjórnmálakreppan í Úkraínu sé að leysast eftir að Viktor Jústsjenkó, forseti landsins, og Viktor Janukovits, forsætisráðherra, tókst loks að koma sér saman um kjördag fyrir þingkosningarnar í landinu. Ólgan náði hámarki í gær þegar Jústsjenkó lét setja herlið í viðbragðsstöðu. Erlent 27.5.2007 13:00
Breskir skólar skiptast eftir kynþáttum Skólar á Englandi eru sífellt að verða einsleitnari þegar kemur að kynþætti. Nýjar tölur frá breskum stjórnvöldum þykja sína fram á þessa þróun en þar kemur fram að mörg sveitarfélög séu að skipuleggja skóla þar sem nemendur eru að miklum meirihluta annað hvort hvítir, svartir eða af asískum uppruna Erlent 27.5.2007 11:38
Fréttaritari BBC heill á húfi Alan Johnston, fréttaritari BBC, sem rænt var á Gaza ströndinni 12. mars síðastliðinn, er heill á húfi. Þetta er haft eftir Dr. Ghazi Hamad, háttsettum meðlimi í Hamas. Hamad segist vita hverjir það voru sem stóðu að mannráninu og að hann sé sjálfur að vinna í því að fá hann leystan úr haldi. Erlent 27.5.2007 10:56
Mótmælt á götum Caracas Tugþúsundir íbúa Venesúela þustu út á götur höfuðborgarinnar Caracas í gær til að mótmæla lokun sjónvarpsstöðvar sem gagnrýnt hafði ríkisstjórn Hugos Chavez. RCTV-stöðin hafði sent út dagskrá sína í 53 ár en þegar kom að því að endurnýja leyfi hennar á dögunum var því synjað Erlent 27.5.2007 10:14
Sakaðir um að senda klasasprengur og taugagas til Líbanon Bandaríkjastjórn hefur undanfarna daga sent talsvert af hergögnum til Líbanon til að aðstoða her landsins við að uppræta hóp herskárra íslamista. Hópurinn sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fullyrt var að á meðal þeirra vopna sem Bandaríkjamenn hefðu sent væru klasasprengjur og taugagas. Erlent 27.5.2007 09:51
Stjórnarkreppa leyst með samkomulagi í Úkraínu Forseti og forsætisráðherra Úkraínu sömdu í morgunsárið um að þingkosningar verði haldnar í landinu 30. september. Þar með leystu þeir stjórnarkreppu sem komin var á alvarlegt stig. Erlent 27.5.2007 09:24
Stormur og flóð granda fimm í Texas Fimm létust og tugum manna var bjargað úr flóðum í stormi í Texas í Bandaríkjunum í dag. Frekari veðurham og rigningu er spáð um helgina. Þjóðvarðarlið hefur verið sent til Waco, Austin og San Antonio. Fréttastofa CNN segir að um 100 heimili og fyrirtæki hafi skemmst í veðurhamnum auk þess sem minniháttar meiðsl hafi verið tilkynnt. Erlent 26.5.2007 20:45
Simbabve: 200 stjórnarandstæðingar fangelsaðir Lögreglan í Simbabve handtók meira en 200 meðlimi stjórnarandstöðunnar sem funduðu um pólitísk mál í höfuðborginni Harare í dag. Nelson Chamisa talsmaður stærsta stjórnarandstöðuflokks landsins sagði CNN að lögreglan hefði brotist inn með því að brjóta niður hurðar og hefði síðan tekið fólkið höndum. Erlent 26.5.2007 19:51
Herinn settur í viðbragðsstöðu Viktor Jústsjenkó, forseti Úkraínu, setti hersveitir sínar í viðbragðsstöðu í dag og skipaði þeim að halda til höfuðborgarinnar Kænugarðs. Sáttaumleitanir á milli þeirra Viktors Janukovits forsætisráðherra hafa engan árangur borið. Erlent 26.5.2007 19:15
Jabba og Jóda mættu á svæðið Þrjátíu ár eru um þessar myndir frá því að fyrsta Stjörnustríðskvikmyndin var frumsýnd og af því tilefni komu þúsundir aðdáenda myndanna saman í Los Angeles í Bandaríkjunum. Litríkar persónur úr myndunum létu sig ekki vanta á svæðið og geislasverðum var brugðið á loft. Erlent 26.5.2007 19:02
Ísraelar vissu að sex daga stríðið var ólöglegt Háttsettur lögfræðingur sem varaði ríkisstjórn Ísraels við því að það væri ólöglegt að byggja gyðingabyggð á hernumdum svæðum Palestínumanna eftir sex daga stríðið árið 1967, hefur nú í fyrsta sinn komið fram og sagt að hann trúi að hann hafi haft rétt fyrir sér. Theodor Meron var lagalegur ráðgjafi utanríkisráðherra ísraels á þessum tíma. Hann er í dag einn virtasti dómari á alþjóðavísu. Erlent 26.5.2007 16:58
Kínverjar ögra stefnu um eitt barn Það færist í vöxt í Kína að almenningur komist hjá stefnu stjórnvalda um eitt barn á fjölskyldu með frjósemislyfjum. Stefna stjórnvalda er sú að kona geti aðeins fætt einu sinni. Fjölburafæðingum hefur hins vegar fjölgað mjög síðustu ár, sérstaklega þar sem aðgengi að frjósemislyfjum er auðvelt. Erlent 26.5.2007 14:25
Hvölum sprautað á haf út Líffræðingar hjá bandarísku strandgæslunni brugðu í gær á nýstárlegt ráð til að koma tveimur hnúfubökum sem villst höfðu upp í Sacramento-fljót í Kaliforníu aftur út haf. Þeir sprautuðu einfaldlega vatni á hvalina með kröftugum vatnsdælum og við þær aðfarir hröktust þeir frá bátnum og niður með ánni. Erlent 26.5.2007 13:30
Írska stjórnin líklega fallin Allt bendir til að Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, haldi embætti sínu eftir þingkosningarnar sem fram fóru í landinu í gær. Slæmu fréttirnar fyrir Ahern eru hins vegar þær að samstarfsflokkurinn í ríkisstjórninni þurrkaðist nánast út og stjórnin því að líkindum fallin. Erlent 26.5.2007 12:45
Öðrum ráðherra rænt Að minnsta kosti fimm manns hafa fallið í loftárásum Ísraelshers á Gaza-ströndina það sem af er degi. Þá var einum af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar rænt á Vesturbakkanum í morgun. Erlent 26.5.2007 12:30
Herlið sagt á leið til Kænugarðs Sáttafundur Viktors Jústjenskó, forseta Úkraínu og Viktors Janukovits forsætisráðherra Úkraínu í nótt skilaði engum árangri en áframhaldandi fundir hafa verið boðaðir í dag. Í morgun bárust fregnir af því að sá armur hersveitanna sem væri hliðhollur Jústsjenkó væri á leið til höfuðborgarinnar en á tólfta tímanum fullyrti AFP-fréttastofan að liðsflutningarnir hefðu stöðvast. Erlent 26.5.2007 12:11
Fjórir létust í árásum Ísraela á Gasa Fjórir létu lífið og tíu særðust þegar ísraelskar herþotur héldu áfram loftárásum á Gasa í morgun. Ísraelar segja árásirnar svar við ítrekuðum flugskeytaárásum yfir landamærin. Ísraelskar hersveitir réðust einnig inn í hús í Jenín á Vesturbakkanum og tóku þar fastan einn af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar, án nokkurra skýringa. Erlent 26.5.2007 11:09
Skriðuföll í Kína kosta 21 lífið Að minnsta kosti 21 hefur látið lífið í miklum skriðuföllum í vestanverðu Kína undanfarinn sólarhring. Miklar rigningar hafa geisað á þessum slóðum og því hefur los komist á jarðveg og heilu fjallshlíðarnar farið af stað. Þannig létust tólf manns þegar aurskriða færði þorp í kaf í Sichuan-héraði. Þrjú þúsund húsum skolaði á brott í skriðunni. Erlent 26.5.2007 10:35
Enn ósamið í kjaradeilu SAS Ekki er útlit fyrir að verkfall flugliða hjá Svíþjóðararmi SAS-flugfélagsins leysist um hádegisbilið eins og vonast hafði verið til og því er útlit fyrir að flug þess liggi áfram niðri að minnsta kosti fram á mánudag. Erlent 26.5.2007 10:30
Bandaríkjamenn á móti tillögum gegn gróðurhúsaáhrifum Bandaríkjamenn eru sagðir leggjast algerlega gegn tillögum sem Þjóðverjar ætla að leggja fyrir fund átta helstu iðnríkja heims um aðgerðir í loftslagsmálum. Á skjali, sem leggja á fyrir fundinn í júní, en Grænfriðungar hafa komist yfir og lekið til fjölmiðla, er að finna ályktunardrög þar sem kveðið er á um að iðnríkin setji sér tímaramma til að draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Erlent 26.5.2007 10:18
Ráðherra tekinn höndum Ísraelskar hersveitir réðust inn í hús í Jenín á Vesturbakkanum í morgun og tóku þar fastan einn af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar, án nokkurra skýringa. Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem Ísraelar handtaka palestínskan ráðherra því í fyrradag var menntamálaráðherrann tekinn höndum ásamt tugum háttsettra liðsmanna Hamas. Erlent 26.5.2007 10:01
Pólitísk spenna stigmagnast í Úkraínu Forseti Úkraínu tilkynnti í gær að hann tæki yfir stjórn hermanna sem heyra undir innanríkisráðuneytið. Ráðuneytið segir fyrirskipunina ólöglega og hafnar henni. Fyrirskipunin er talin benda til ótta um að til átaka geti komið. Erlent 26.5.2007 06:15
Lögregla hefur lýst eftir manni Lögreglan í Portúgal skýrði í gær frá því að nú sé leitað að hvítum manni á aldrinum 35 til 40 ára sem liggur undir grun um að hafa rænt hinni fjögurra ára gömlu Madeleine McCann af hóteli í Portúgal þann 3. maí síðastliðinn. Erlent 26.5.2007 06:00