Erlent

Fyrirlesurum rænt í Bagdad

Byssumenn í lögreglubúningum rændu að minnsta kosti þrem erlendum fyrirlesurum og lífvörðum þeirra í Bagdad í morgun. Vitni sem ekki vildi láta nafns síns getið sagði að mönnunum hafi verið rænt í fjármálaráðuneytinu í hjarta höfuðborgarinnar. Talið er að þeir séu bandarískir sérfræðingar sem hafa verið að kenna starfsfólki ráðuneytisins hvernig á að gera rafræna samninga.

Erlent

Skutu Hamas liða

Ísraelskir hermenn fóru í morgun inn á Gaza ströndina og drápu þar tvo Hamas liða sem voru að skjóta eldflaugum á Ísrael. Hamas hafa staðfest að mennirnir hafi verið skotnir en segjast munu halda áfram árásum sínum á Ísrael.

Erlent

Slóst við hlébarða um köttinn sinn

Ísraelskur maður sneri á dögunum niður hlébarða sem kom inn í svefnherbergi hans og hugðist éta köttinn hans. Arthur De Mosh vaknaði við mikil læti og sá hlébarðann sækja að kettinum. De Mosh stökk á skepnuna og hafði hana undir. Eiginkona hans hringdi eftir hjálp meðan hann hélt hlébarðanum niðri.

Erlent

Ofneysla lyfja og áfengis eykst hjá dönskum heilbrigðisstéttum

Ofneysla áfengis og óhófleg lyfjanotkun er vaxandi vandamál meðal danskra heilbrigðisstétta. Jótlandspósturinn greinir frá þessu og að nú séu að minnstakosti 25 hjúkrunarfærðingar í áfengismeðferð, samkvæmt átaki sjúkrahúsa í Kaupmannahöfn til að koma starfsfólkinu til hjálpar.

Erlent

Dæmdur til dauða vegna spillingar

Stjórnvöld í Kína dæmdu í morgun fyrrum yfirmann matvæla- og lyfjastofnunar landsins til dauða vegna spillingar. Óvenjulegt er að svo háttsettir félagar í kommúnistaflokknum séu dæmdir til dauða. Venjan er að þeir fái lífstíðarfangelsi.

Erlent

Verkfalli áhafna SAS lokið

Verkfalli áhafna flugfélagsins SAS hefur verið aflétt og mun þjónusta félagsins verða með eðlilegum hætti strax á morgun. Verkfallið hafði leitt til þess að SAS þurfti að aflýsa flugferðum síðastliðna fimm daga. Samkomulag náðist síðan í nótt.

Erlent

Páfi endurvekur trúarbragðadeild Vatíkansins

Benedikt páfi ætlar sér að stækka á ný deild sem sér um samskipti trúarbragða innan kaþólsku kirkjunnar. Ein af fyrstu ákvörðunum sem hann tók þegar hann varð páfi var að minnka deildina verulega. Talið er að páfinn sé að þessu til þess að reyna að bæta samskipti múslima og kristinna.

Erlent

Chavez hótar fleiri sjónvarpsstöðvum

Stjórnvöld í Venesúela ásökuðu í gær sjónvarpsstöð í landinu um að hvetja til þess að Hugo Chavez, forseti landsins, yrði ráðinn af dögum. Daginn áður höfðu stjórnvöld stöðvað útsendingar hjá annarri sjónvarpsstöð.

Erlent

Keppa um nýra dauðvona konu

Í næstu viku verður sýndur í Hollandi sjónvarpsþáttur þar sem þrír þátttakendur keppa um nýra úr dauðvona konu. Háar gagnrýnisraddir hafa heyrst vegna málsins og stjórnvöld báðu stöðina að sýna þáttinn ekki. Sjónvarpsstöðin ætlar sér engu að síður að sýna hann. Með því vill hún varpa ljósi á erfiða stöðu líffæraþega.

Erlent

Ehud Barak sigraði í fyrstu umferð

Fyrrum forsætisráðherra Ísraels, Ehud Barak, vann sigur í fyrstu umferð leiðtogakosninga verkamannaflokksins í Ísrael í gærkvöldi. Hann mun mæta manninum sem lenti í öðru sæti í lokaumferð í næsta mánuði.

Erlent

Forseti Kazakhstan vill láta handtaka tengdason sinn

Hópur lögfræðinga frá Kazakhstan er nú í Vínarborg þar sem þeir reyna fyrir hönd stjórnvalda að fá tengdason forseta landsins handtekinn. Tengdasonurinn var sendiherra Kazakhstan í Austurríki þangað til á laugardaginn þegar hann var rekinn af forsetanum. Handtökubeiðnin virðist vera liður í harðvítugri fjölskyldudeilu.

Erlent

Slóst við hlébarða í rúminu

Ísraelskur maður vaknaði upp við það í nótt að hlébarði stökk inn um gluggann á heimili hans og upp í rúm þar sem maðurinn svaf ásamt ungri dóttur og heimiliskettinum. Hann stökk strax á hlébarðann, hafði hann undir og hélt honum í tuttugu mínútur uns hjálp barst.

Erlent

Hitað upp fyrir G8

Lögreglan í Hamborg í Þýskalandi tók hart á mótmælendum í borginni í dag en þangað söfnuðust þúsundir andstæðinga alþjóðavæðingar vegna fundar ASEM, sem eru samtök Evrópu- og Asíulanda.

Erlent

Fordæma myndbirtingu frá banaslysi Díönu

Háværar raddir heyrast nú í Bretlandi um að þarlend sjónvarpsstöð hætti við að sýna heimildarmynd um dauða Díönu prinsessu. Í myndinni verða sýndar áður óbirtar ljósmyndir af vettvangi þar sem prinsessan lést. Sjónvarpsstöðin Channel 4 áformar að sýna heimildarmyndina 6. júní næstkomandi. Stöðin hefur legið undir ámæli fyrir að ganga ansi langt í myndbirtingum og framsetningu í ýmsum þáttum.

Erlent

Spænska lögreglan gerir hryðjuverkaáhlaup

Fimmtán manns sem grunaðir eru um að vera nýliðar í íslömskum baráttusamtökun voru handteknir í röð áhlaupa Spænsku lögreglunnar í dag. Um 100 manns hafa verið handteknir á Spáni vegna gruns um tengsl við hryðjuverk frá árinu 2004 þegar mannskæðar sprengjuárásir voru gerðar í fjórum lestum í Madrid.

Erlent

SAS aflýsir flugi á morgun

Skandinavíska flugfélagið SAS hefur aflýst flugi til og frá Svíþjóð á morgun. Það er fimmti dagurinn í röð sem verkfall sænskra flugliða lamar rekstur félagsins. Verkfallið hófst á föstudag. SAS hætti þá við flest flug til og frá Svíðþjóð vegna deilunnar um vinnuaðstæður flugliðanna. Samningaumleitanir stóðu fram á nótt og báru ekki árangur.

Erlent

Fyrsti fundur Írana og Bandaríkjamanna í 30 ár

Íranar og Bandaríkjamenn héldu í morgun fyrsta fund sinn í þrjá áratugi. Öryggismál í Írak voru eina umræðuefni fundarins og ekki var minnst á kjarnorkuáætlun Írana. Bandaríkjamenn vöruðu Írana við að styðja við herskáa öfgahópa í Írak. Erindrekar ríkjanna í Írak, Bandaríkjamaðurinn Ryan Crocker og Íraninn Hassan Kazemi Qomi hittust í Baghdad í morgun.

Erlent

Crocker hljóp Reykjavíkurmaraþon

Sendiherra Bandaríkjamanna í Írak, sem er í sviðsljósinu þessa dagana vegna fundar hans við kollega sinn í Íran, telst til Íslandsvina. Ryan Crocker hljóp nefnilega Reykjavíkurmaraþon fyrir 23 árum síðan.

Erlent

Hamleys opnar búð á Indlandi

Þekktasta leikfangaverlsun í heimi, Hamleys í London sem er í eigu Baugs, mun væntanlega opna útibú innan tíðar í Nýju Delhi á Indlandi. Það yrði í fyrsta skipti sem Hamleys verður annars staðar en á Regent street í London, ef undan eru skilin útibú verslunarinnar í Magasin í Danmörku. Samningaviðræður við þarlenda aðila eru sagðar ganga vel og búðin gæti opnað strax á næsta ári.

Erlent

21 látinn í sprengingu í Baghdad

Að minnsta kosti 21 dó og 66 særðust þegar bílsprengja sprakk í miðborg Baghdad í morgun. Sprengingin heyrðist um alla miðborgina og eldur kom upp í að minnsta kosti 10 bílum í grendinni.

Erlent

Jákvæðar viðræður í Baghdad

Sendiherra Bandaríkjanna í Írak, Ryan Crocker segir að viðræður hans við sendiherra Írana í landinu hafi gengið vel og verið jákvæðar. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn hyggist bíða átekta og sjá til hverskonar aðgerða verði gripið af hálfu Írana, en Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt Íran fyrir að styðja við bakið á uppreisnarmönnum í Írak.

Erlent

Allt strand hjá SAS

Engin lausn virðist í sjónmáli í deilu skandinavíska flugfélagsins SAS og flugliða þess í Svíþjóð. Samningafundur deiluaðila stóð yfir fram á nótt en bar ekki árangur. Verkfallið heldur því áfram í dag, en fulltrúar flugliða munu funda með baklöndum sínum og ákveða með framhald aðgerðanna.

Erlent

Danir skipta um kúrs í hvalveiðimálum

Danir sæta nú harðri gagnrýni Breta og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins eftir að þeir breyttu um stefnu í hvalveiðimálum. Þeir styðja nú skipulegar hvalveiðar og vísindaveiðar. Þetta kom fram á ársfundi hvalveiðiráðsins sem hófst í Anchorage í Alaska í gær.

Erlent

Fyrsti fundur ríkjanna í þrjátíu ár

Bandaríkjamenn og Íranir sitja nú á fundi í Írak til að ræða um málefni Íraks. Þetta er í fyrsta skipti í þrjá áratugi sem þjóðirnar hittast í tvíhliða viðræðum. Erindrekar ríkjanna í Írak, þeir Ryan Crocker og Hassan Kazemi Qomi hittust fyrir stundu á heimili íraska forsætisráðherrans, Nouri Maliki.

Erlent

Hvalveiðiráðið fundar í Alaska

Íbúar Ancorage í Alaska hafa undirbúið sig síðustu daga fyrir fund Alþjóða hvalveiðiráðsins sem hefst á morgun. Greenpeace liðar hafa staðið fyrir mótmælum um allan heim í tengslum við fundinn og búist er við mótmælum í borginni þegar fundurinn hefst.

Erlent

Rúmensk mynd hlaut Gullpálmann

Það var rúmenska kvikmyndin „4 mánuðir, 3 vikur og 2 dagar" í leikstjórn Christians Mungiu sem hlaut Gullpálmann í Cannes þetta árið. Verðlaunin eru á meðal þeirra eftirsóttustu í kvikmyndaheiminum og þetta árið höfðu þau á sér nokkuð alþjóðlegt yfirbragð.

Erlent

Krókódílum komið burt

Íbúum Miami Lakes í Flórída brá nokkuð í brún þegar þeir tóku eftir því að tveir krókódílar höfðu hreiðrað um sig í skurði í bænum. Starfsmenn áhaldahúss bæjarins voru kallaðir til og höfðu þeir hröð tök við að handsama þessar háskalegu skepnur.

Erlent