Erlent

Samkynhneigðir sniðganga hótel

Hópur sem berst fyrir réttindum samkynhneigðra í Taílandi hefur nú ákveðið að sniðganga Evrópsku hótelkeðjuna Novotel. Þetta gerist í kjölfar þess að dyraverðir á einum staðnum vildu ekki hleypa klæðskiptingi þar inn.

Erlent

Visa styrkir FIFA

Kreditkortafyrirtækið Visa hefur náð samningum við Alþjóða knattspyrnusambandið um að styrkja heimsmeistaramótin 2010 og 2014. Visa mun styrkja knattspyrnusambandið um samtals 170 milljónir dala á átta árum.

Erlent

Skakki turninn ekki svo skakkur

Skakki turninn í Písa er ekki jafn skakkur og áður eftir að verkfræðingar luku við björgunaraðferðir á honum. Turninn, sem var við að hrynja, hefur verið réttur við um 45 sentimetra og er nú í sömu stöðu og hann var árið 1838. Jarðvegur var tekinn undan þeirri hliðinni, sem hallaði frá, með þeim árangri að hann rétti sig við.

Erlent

Verkfalli verður frestað

Búist er við því að verkfalli hundruð þúsunda opinberra starfsmanna í Suður-Afríku verði frestað í dag eftir góðar viðræður við stjórnvöld í gærkvöldi og nótt. Verkfallið hefur staðið í fjórar vikur og hefur lamað opinbera starfsemi í landinu.

Erlent

Lögregla í Írak fann 20 lík

Lögreglan í Írak fann í morgun lík 20 manna sem allir höfðu verið afhöfðaðir. Líkin fundust við ánna Tígris, rétt sunnan við Bagdad. Heimamenn á svæðinu sáu líkin og létu lögregluna vita en enn á eftir að bera kennsl á þau. Afhöfðanir eru algengar við aftökur. Öfgafullir súnníar nota þær sem og al-Kaída í Írak. Þó er sjaldgæft að svo stór hópur fórnarlamba finnist í einu.

Erlent

Búist við frekari rigningum í Bretlandi

Búist er við enn frekari rigningum í Bretlandi næstu daga. Líklegt er að rigningin eigi eftir að valda enn frekari vandræðum og þá sérstaklega á þeim svæðum sem urðu hvað verst úti í flóðunum síðustu daga. Strax í dag er búist við frekari rigningu og einnig um helgina.

Erlent

Chavez ræðir vopnakaup í Rússlandi

Forseti Venesúela, Hugo Chavez, er nú kominn til Rússlands til viðræðna við Vladimir Putin, forseta Rússlands, um kaup á hergögnum. Búist er við því að Chavez eigi eftir að festa kaup á nokkrum þyrlum og skoða kafbáta. Þetta er önnur heimsókn hans til Rússlands á undanförnu ári.

Erlent

Uppblástur alvarleg umhverfisvá

Tugir milljóna gætu þurft að flýja heimili sín vegna uppblásturs, sérstaklega í Afríku sunnan Sahara og Mið-Asíu, samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Hún segir að vegna loftslagsbreytinga séu stór svæði, sem áður voru gróði vaxin, að breytast í eyðimerkur.

Erlent

Hanaslagur verður loks bannaður

Louisiana verður síðasta ríkið í Bandaríkjunum til þess að banna hanaslagi. Ríkisþingið samþykkti í gærkvöldi frumvarp um að banna slagsmálin frá og með ágústmánuði árið 2008. Þá verður bannað að veðja á úrslit í henni frá og með samþykkt laganna.

Erlent

Bílsprengja banar 25

Bílsprengja sem sprakk í Bagdad í morgun varð 25 að bana og særði fleiri en 40 manns. Árásin átti sér stað á fjölförnum gatnamótum þar sem leigubílar taka og skila af sér farþegum. Sprengingin varð á háannatíma í sjíahverfinu Bayaa í suðvesturhluta borgarinnar. Um 40 bílar urðu eldi að bráð vegna hennar.

Erlent

13 láta lífið í átökum við lögreglu í Rio

Lögreglan í Rio de Janeiro í Brasilíu skaut 13 glæpamenn til bana í hörðum skotbardaga í gærkvöldi. Bardaginn átti sér stað í fátækrahverfi í borginni en fleiri en 1.300 lögreglumenn, studdir af brynvörðum bílum, réðust inn í hverfið.

Erlent

Miliband sagður nýr utanríkisráðherra Bretlands

Gordon Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands, hefur tilnefnt David Miliband umhverfisráðherra sem nýjan utanríkisráðherra samkvæmt heimildum Sky-fréttastofunnar. Hann tekur við af Margaret Beckett. Þá herma heimildir Sky að Douglas Alexander verði nýr ráðherra þróunarmála.

Erlent

Blair kvaddur með lófataki og tárum

Gordon Brown, fyrrverandi fjármálaráðherra, tók í gær við sem forsætisráðherra Bretlands af Tony Blair sem víkur eftir tíu ára valdatíð. Blair hefur verið skipaður formlegur erindreki Kvartettsins við friðarumleitanir á Mið-Austurlöndum.

Erlent

Hörð átök í fátækrahverfum Rio de janeiro

Að minnsta kosti 18 létu féllu í hörðum bardögum brasílískra lögreglumanna og íbúa í fátækrahverfi í Rio de Janeiro í dag. Fjölmennar sveitir lögreglumanna fóru inn í hverfið og segja yfirvöld að hinir föllnu hafi verið grunaðir um eiturlyfjasmygl.

Erlent

Vilja aftökur án dóms og laga

Meirihluti íbúa Gvatemala eru þeirrar skoðunar að lögregla og aðrir sjálfskipaðir baráttumenn gegn glæpum sé stætt á því að myrða glæpamenn án dóms og laga. Þetta kom fram í könnun dagblaðs sem sagt er það virtasta þar í landi. Landsmenn trúa því margir að þessháttar aðgerðir myndu draga úr glæpum í landinu.

Erlent

Ræningjarnir skildu tuttugu milljarða eftir

Réttarhöld standa nú yfir sakborningum í stærsta peningaráni í sögu Bretlands. Ránið var framið í febrúar í fyrra og komust mennirnir á brott með sex og hálfan milljarð íslenskra króna í reiðufé þegar þeir rændu peningageymslu í Kent. Þeir neyddust hins vegar til að skilja um tuttugu milljarða eftir á staðnum, vegna þess að þeir komu þeim ekki fyrir í bílnum sem þeir notuðu við ránið.

Erlent

Krefjast gagna vegna hlerana

Öldungadeild bandaríska þingsins hefur krafið Hvíta Húsið um skjöl sem tengjast eftirliti stjórnvalda á grunuðum hryðjuverkamönnum. Ráðamenn í Hvíta húsinu hafa hingað til neitað að afhenda gögnin og Bush forseti hefur þvertekið fyrir að lög hafi verið brotin þegar hleranir voru fyrirskipaðar án þess að fyrir þeim væru heimildir.

Erlent

Ekki séð aðra eins úrkomu fyrr

Íslendingur sem búið hefur í Hull í 20 ár segir ástandið skelfilegt á flóðasvæðunum í Bretlandi. Samgöngur eru enn í lamasessi á Englandi og í Wales eftir flóðin þar í gær og fyrradag. Íbúarnir bíða milli vonar og ótta því spáð er meiri úrkomu á svæðinu um næstu helgi.

Erlent

Boðar breytingar

Gordon Brown boðaði breytingar og nýja forgangsröðun þegar hann tók við embætti forsætisráðherra Bretlands í dag. Þingmenn allra flokka á breska þinginu hylltu Tony Blair eftir að hann flutti síðasta ávarp sitt á þinginu í morgun. Síðdegis sagði Blair af sér þingmennsku en hann tekur við embætti sérstaks erindreka fjórveldanna svo kölluðu í friðarviðræðum fyrir botni Miðjarðarhafs.

Erlent

Tennur faraós

Fornleifafræðingar í Egyptalandi hafa fundið múmíu Hatshepshut sem er 3000 ára gömul. Hún var ein fárra kvenna sem voru faraóar og frægasti kvenleiðtogi Egyptalands. „Mesta fornleifauppgötvun síðan grafhýsi faraósins Tutankhamons fannst 1922,“ segir yfirmaður fornleifamála í Egyptalandi.

Erlent

Blair verður sérstakur erindreki Miðausturlanda-kvartettsins

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur verið tilnefndur sérstakur erindreki hins svokallaða Miðausturlandakvartetts sem vinnur að friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Frá þessu greindi talsmaður hjá Sameinuðu þjóðunum í dag. Blair hefur jafnframt sagt af sér sem þingmaður á breska þinginu.

Erlent

Meira en helmingur jarðarbúa í borgum árið 2008

Meira en helmingur jarðarbúa mun búa í borgum árið 2008, flestir í þróunarlöndunum. Þetta kemur fram í skýrslu Mannfjöldastofnunar Sameinuðu Þjóðanna. Fólksfjöldi í þéttbýli mun tvöfaldast í borgum Afríku og Asíu næstu 30 árin.

Erlent

MCC styrkir Mósambík um 507 milljónir dala

Laura Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að MCC sjóðurinn muni veita Mósambík fjárhagslega aðstoð. Sjóðurinn hyggst veita Mósambík 507 milljónir dala til vegagerðar og til að styrkja baráttuna við malaríu. Malaría banar 150 manns á dag í Mósambík, meirihluti þeirra eru börn.

Erlent

Þýskir stjórnmálamenn fordæma tölvugerða mynd

Þýskir stjórnmálamenn hafa fordæmt tölvugerða mynd af leiðtogum Póllands vera að sjúga brjóst þýska kanslarans, Angelu Merkel. Myndin birtist á forsíðu pólska vikuritsins Wprost, og er titluð sem „Stjúpmóðir Evrópu."

Erlent

Geri mitt allra besta fyrir bresku þjóðina

Gordon Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands, sagðist myndu gera sitt allra besta í starfi fyrir bresku þjóðina og boðaði breytingar á tröppum Downing-strætis 10 þangað sem hann mun flytjast. Þangað kom hann skömmu eftir að Blair-fjölskyldan hafði kvatt þessi híbýli sín til síðustu tíu ára.

Erlent

Missti hluta fótanna í skemmtigarði í Nashville

Líðan 13 ára stúlku sem missti hluta af báðum fótum sínum í síðustu viku er stöðug. Kaitlyn Lasitter var í leiktæki í skemmtigarði í Nashville þegar vír úr tækinu slitnaði og hjó lappinar af henni fyrir ofan ökla.

Erlent