Erlent
Orðsporið gæti orðið fjötur um fót Íranar eru ósáttir við skipan Tonys Blairs, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sem sérlegs sáttafulltrúa um lausn deilna fyrir botni Miðjarðarhafs. Breskur prófessor í stjórnmálafræði telur að orðspor hans geti orðið honum fjötur um fót. Erlent 1.7.2007 19:08
Óttast árás Breska lögeglan segir ljóst að hryðjuverkaárásin á Glasgow flugvelli í gær tengist bílsprengjunum sem fundust í miðborg Lundúna í fyrradag. Fimm hafa verið handteknir og fleiri er leitað. Hæsta viðbúnaðarstig er nú í gildi á Bretlandi - sem þýðir að yfirvöld telja að árás sé yfirvofandi. Erlent 1.7.2007 18:30
Atlantis á austurleið Atlantis geimferjan lagði af stað frá lendingarstað sínum í Kaliforníu til heimkynna sinna í Flórída í dag. Eins og sést á meðfylgjandi mynd flýgur hin 100 tonna skutla ekki sjálfkrafa yfir þver og endilöng Bandaríkin. Hún er ferjuð af júmbóþotu. Áætlað er að ferðin taki um einn sólarhring. Þetta kemur fram á vef Nasa. Erlent 1.7.2007 17:47
Óvæntur fundur við gröf Kínakeisara Óþekktur og afar dularfullur klefi fannst á dögunum í gröf Qin Shihuang, fyrsta keisara Kína. Klefinn fannst fyrir tilviljum með leitartækjum en engar heimildir voru þekktar um tilvist hans. Gröfin sjálf, sem er um 2200 ára gömul, fannst 1974. Erlent 1.7.2007 16:10
Bíll sprengdur við sjúkrahús í Paisley Sprengjuérfræðingar bresku lögreglunnar sprengdu bíl við Royal Alexandra spítalann í Paisley fyrir stundu. Bifreiðin þótti grunsamleg og var talin tengjast árásinni á flugvöllinn í Glasgow. Erlent 1.7.2007 15:57
Fimmti maðurinn handtekinn í tengslum við hryðjuverkaárásina í Glasgow Breska lögreglan hefur handtekið fimmta manninn í tengslum við hryðjuverkaárásina í Glasgow. Sá var handtekinn í Liverpool. Erlent 1.7.2007 14:32
Aukinn öryggisviðbúnaður í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn hafa aukið öryggisviðbúnað á flugvöllum vegna hryðjuverkaógna í Bretlandi síðastliðna daga. Meðal annars með því að fjölga öryggisvörðum. Erlent 1.7.2007 14:05
Litla Danaprinsessan heitir Ísabella Dóttir Friðriks Danaprins og Maríu Elísabetar konu hans hefur fengið nafnið Ísabella Henrietta Ingiríður Margrét. Prinsessan fæddist í lok aprílmánaðar og var það í fyrsta sinn í 61 ár sem stúlkubarn fæddist í dönsku konungsfjölskyldunni. Nafnið Isabella er komið úr spænsku og portúgölsku. Það er í 21. sæti á lista yfir vinsælustu nöfn í Danmörku en talið er að vinsældir nafnsins muni aukast til muna nú þegar að litla prinsessan er farin að bera það. Erlent 1.7.2007 11:44
Pútín heimsækir Bush Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, er væntanlegur í heimsókn til Bandaríkjanna í dag. Þar mun hann heimsækja George Bush, Bandaríkjaforseta, á sumardvalarstað Bush fjölskyldunnar í Kennebunkport í Maine-ríki. Erlent 1.7.2007 11:06
Fjörutíu og fimm óbreyttir borgarar létust í Afganistan Lögreglan í Helmand héraðinu í Afganistan fullyrðir að 45 óbreyttir borgarar og 62 hermenn hafi látist í loftárásum á svæðið um helgina. Talsmenn öryggissveita NATO hafa viðurkennt mannfall óbreyttra borgara en segja það vera mun minna en afganska lögreglan fullyrðir. Erlent 1.7.2007 10:43
Kínverjar krefjast lýðræðis Mörg þúsund mótmælendur gengu um götur Hong Kong í morgun og kröfðust lýðræðis. Tilefni göngunnar er að í dag eru tíu ár liðin frá því að Bretar færðu þáverandi nýlendu sína Kínverjum. Erlent 1.7.2007 10:32
Vinsæl mús lamin til bana Palestínsk sjónvarpsstöð hefur murkað lífið úr þekktri barnaþáttafígúru sem var sláandi lík Mikka mús. Þátturinn um músina Farfur vakti mikið umtal og deilur víða um heim fyrr á þessu ári. Erlent 1.7.2007 10:23
Fjórir í haldi í Glasgow Fjórir menn eru í haldi lögreglu í Skotlandi eftir að logandi jeppabifreið var ekið inn í aðal flugstöðina í Glasgow í gær. Tveir þeirra handteknu voru í bílnum sem ekið var á flugstöðina og liggur annar illa brunninn á sjúkrahúsi. Erlent 1.7.2007 10:09
Árásin í Glasgow tengist bílsprengjunum í Lundúnum Talsmaður lögreglunnar í Glasgow sagði á blaðamannafundi sem nú stendur yfir vegna hryðjuverkaárásarinnar á Glasgow flugvöll, að líkindi árásarinnar við misheppnuðu árásirnar í Lundúnum bendi til þess að atvikin tengist. Erlent 30.6.2007 20:53
Hættumat sett á efsta stig - Brown hvetur Breta til að standa saman Hættumat vegna hryðjuverkaógna hefur verið sett á hæsta stig í Bretlandi. Ástandið er metið alvarlegt og þýðir það að yfirvöld telja hryðjuverkaárás yfirvofandi. Frá þesstu var greint rétt fyrir hálf átta í kvöld. Öryggisnefnd bresku ríkisstjórnarinnar, COBRA, hefur setið á fundi í dag undir forystu Gordons Brown forsætisráðherra og þar var ákveðið að setja hættumatið á efsta stig. Erlent 30.6.2007 19:36
Reykingabann tekur gildi á Englandi Reykingabann á opinberum stöðum tekur gildi á Englandi á miðnætti og þar með gildir bann á öllum Bretlandseyjum. Bannað verður að reykja á knæpum og engar undanþágur veittar. Segja margir það ósanngjarnt gagnvart þeim sem reka sérstakar vindla- og vatnspípukrár. Erlent 30.6.2007 19:32
Ódýrara að hringja Frá og með deginum í dag er mun ódýrara fyrir íbúa á Evrópusambandssvæðinu að hringja milli landa innan ESB. Forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar segir Evróputilskipun þess efnis lækka farsímareikning margra Íslendinga en þó ekki alveg strax. Erlent 30.6.2007 19:12
Flóttafólkið komið til Möltu Yfirvöld á Möltu hafa tekið við tuttugu flóttamönnum sem voru teknir um borð í togarann Eyborgu í Miðjarðarhafi fyrr í vikunni. Herskip sótti fólkið í dag og sigldi með það til hafnar á Möltu. Flóttamennirnir fundust í flotkvíum sem togarinn hafði í eftirdragi. Erlent 30.6.2007 18:56
Flugvöllurinn á Ibiza rýmdur Flugvöllurinn á Ibiza á Spáni var rýmdur í dag vegna sprengjuhótunar. Óttinn við sprengjutilræði þar í landi er ekki síðri en í Bretlandi þessa dagana í ljósi þess að Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, batt enda á rúmlega árs vopnahlé fyrr í mánuðinum. Flugferðum til og frá vellinum var frestað um tíma á meðan sprengjusérfræðingar eyddu grunsamlegum pakka sem fannst. Erlent 30.6.2007 18:41
Hryðjuverkaárás á Glasgow flugvelli Logandi bifreið var ekið inn í aðal flugstöðina í Glasgow í dag. Töluverðar skemmdir urðu og einhver slys á fólki. Hryðjuverk segja bresk yfirvöld. Ökumaður bílsins og farþegi hafa verið handteknir. Erlent 30.6.2007 18:31
Sólböð tryggja ekki D-vítamín Sú títtnefnda kenning að sólböð tryggi nægilegt magn D-vítamíns í mannslíkamanum hefur verið vefengd eftir rannsókn á vegum Háskólans í Wisconsin. Hingað til hefur sólleysi borið ofarlega á blað yfir meinta sökudólga D-vítamínskorts. Erlent 30.6.2007 18:02
Flugvellinum í Blackpool lokað - spítali rýmdur Vopnaðir lögreglumenn hafa lokað flugvellinum í Blackpool á Englandi. Frá þessu er greint á Sky sjónvarpsstöðinni og vísa þeir í heimildarmenn sína en engar frekari upplýsingar hafa borist um málið að svo stöddu. Þá hefur konunglegi Alexandra spítalinn í Paisley verið rýmdur. Erlent 30.6.2007 17:51
Mikilvægar leifar af dúdúfuglinum fundnar Nýfundnar leifar af hinum útdauða dúdúfugli gætu varpað nýju og óvæntu ljósi á þessa lítið þekktu fugla. Leifarnar fundust í helli á eyjunni Máritíus í Indlandshafi fyrr í þessum mánuði. Leifarnar eru afar heilar og þær bestu sem vísindamenn hafa komist í hingað til. Fundurinn þótti svo þýðingarmikill að honum var haldið leyndum í fyrstu og fjórir verðir gættu svæðisins þangað til starfi vísindamanna lauk. Frá þessu er greint á vef Reuters. Erlent 30.6.2007 15:58
Tveir handteknir - litið á atvikið sem hryðjuverk Nú hefur fengist staðfest að tveir hafi verið handteknir í Glasgow grunaðir um að hafa reynt að aka bíl með einhverskonar sprengiefni inn í flugstöð Glasgow flugvallar. Heimildir herma að málið sé rannsakað sem hryðjuverk. Í fyrstu var sagt að fjórir hefðu verið handteknir vegna málsins, síðan þrír, en nú hefur lögregla staðfest að tveir séu í haldi. Erlent 30.6.2007 15:03
Elsta tönn Evrópu Tönn af manni sem talin er vera yfir milljón ára gömul fannst á Spáni í vikunni. Ef satt reynist um aldurinn er tönnin elstu leifar af frummanni sem fundist hafa í Vestur-Evrópu. Erlent 30.6.2007 13:53
Sprengja sprengd á flugvellinum á Ibiza Spænskir lögreglumenn sprengdu sprengju á flugvellinum á Ibiza fyrir hádegi í dag. Flugvöllurinn hafði verið rýmdur skömmu áður en sprengjan sprakk en sprengjuhótun var send til spænsks dagblaðs í nafni ETA, aðskilnaðarsamtaka Baska. Sprengjusveit lögreglunnar fann sprenguna og sprengdu hana á staðnum án þess að tjón hlytist af. Lögregla á Spáni hefur verið á varðbergi allt frá því að ETA tikynnti um að vopnahlé sem þeir settu sjálfir væri úr sögunni. Flugvöllurinn á Ibiza er fjölfarinn, enda er eyjan vinsæll ferðamannastaður. Erlent 30.6.2007 12:23
Þriggja manna leitað Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að þremur mönnum vegna tveggja bílsprengja sem fundust í miðborg Lundúna í gær. Talið er að lögregla viti hverjir þeir séu og að mynd hafi náðst af einum þeirra þar sem hann lagði bíl með sprengju innanborðs nærri næturklúbbi í fyrrinótt. Erlent 30.6.2007 12:21
Páfinn gagnrýnir Kínverja Benedikt páfi gerði Kína að umræðuefni sínu í ræðu sem hann hélt í morgun. Hann gagnrýndi þarlend stjórnvöld harðlega fyrir hömlur sem þar eru settar á trúfrelsi. Hann sagðist þó vongóður um að Vatikanið og Kína næðu einhverskonar samkomulagi á næstu misserum. Engin samskipti hafa verið á milli Kína og Vatikansins frá árinu 1951 en talið er allt að 12 milljónir Kínverja séu kaþólskir. Erlent 30.6.2007 11:55
Mikið mannfall í loftárásum í Afganistan Íbúar í Helmand-héraði í Afganistan telja að á bilinu fimmtíu til áttatíu almennir borgarar hafi týnt lífi í loftárás herliðs Atlantshafsbandalagsins í nótt. Talið er að mörg börn séu meðal fallinna. Talsmaður NATO staðfesti að loftárás hefði verið gerð en sagði ekki staðfest að almennir borgarar hefðu fallið. Vitni segja sprengjum hafa rignt yfir svæðið í tvær til þrjár klukkustundir. Erlent 30.6.2007 10:25
Hættir að leita að gjöreyðingarvopnum í Írak Frá og með deginum í gær var allri leit af gjöreyðingarvopnum í Írak hætt. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að hætta formlegri leit sem hófst árið 1999. Bandaríkjamenn notuðu meinta gjöreyðingarvopnaeign Íraka sem rök fyrir innrás í landið. Erlent 30.6.2007 10:22