Erlent
Sungið í minningu Díönu Erlent 2.7.2007 00:15 Lögreglan í Bretlandi leitar enn manna Heimildir Sky fréttastofunnar herma að einn maður gangi laus, sem talið er að tengist hryðjuverkaárásinni í Glasgow í gær og bílsprengjunum sem fundust í miðborg Lundúna í fyrradag. Samkvæmt upplýsingum Sky fréttastöðvarinnar var viðbúnaðarstig á Bretlandseyjum hækkað í gær af ótta við að hann eða fleiri láti til skarar skríða einn síns liðs eða í samstarfi við aðra. Erlent 1.7.2007 20:13 « ‹ ›
Veiðar á undan viðræðum Það fór vel á með Bush Bandaríkjaforseta og Pútín forseta Rússlands þar sem þeir skelltu sér í veiðiferð nærri sumardvalarstað Bush-fjölskyldunnar í Main-ríki í Bandaríkjunum í dag. Leiðtogarnir voru þar umkringdir lífvörðum en létu það ekki aftra sér í að reyna að landa þeim stóra. Erlent 2.7.2007 19:20
Læknar meðal grunaðra Læknir menntaður í Írak og annar frá Jórdaníu eru meðal sjömenninganna sem breska lögreglan hefur í haldi vegna hryðjuverkaárásar í Skotlandi á laugardaginn og bílsprengna sem gerðar voru óvirkar í Lundúnum á föstudaginn. Faðir jórandska læknisins, sem hefur unnið á tveimur sjúkrahúsum á Englandi, segist viss um að sonur sinn tengist ekki hryðjuverkum. Erlent 2.7.2007 19:10
Lystrupsprengjan gerð af viðvaningum Helstu sprengjusérfræðingar Danmörku segja að sprengingin í Lystrup hafi verið gerð af viðvaningum. Jørgen Schneiders, danskur sprengjusérfræðingur, telur að sprengjan hafi verið gerð úr krýsantema, sem er jurtategund. Hann telur ótrúlegt að bensín hafi verið í sprengjunni. Erlent 2.7.2007 18:12
Lieberman vill fjölga öryggismyndavélum Joe Lieberman öldungadeildarþingmaður í Bandaríkjunum, segist vilja fjölga öryggismyndavélum í landinu. Hann vill taka Breta til fyrirmyndar í þeim efnum og telur að öryggismyndavélar, sem dreift er mjög víða um helstu borgir í Bretlandi, hafi átt þátt í því að hafa uppi á grunuðum í eftir tilraunir til hryðjuverka þar um helgina. Erlent 2.7.2007 16:54
Átta látnir í sprengingu í Yemen Maður sprengdi sig í loft upp í bíl á ferðamannastað nærri fornu musteri Yemen í dag. Átta létu lífið, sex spænskir ferðamenn og tveir Yemenar. Sjö spánverjar til viðbótar særðust í árásinni. Erlent 2.7.2007 15:20
Óttast stórbrotin hryðjuverk Leynileg bandarísk lögregluskýrsla sem er í undirbúningi fyrir Heimavarnarráðið varar því að al Qaeda samtökin séu að skipuleggja stórbrotin hryðjuverk nú í sumar. Háttsettur embættismaður með aðgang að skýrslunni greinir frá þessu við ABC fréttastofuna. Hann segir hryðjuverkin sem lögreglan óttast vera í anda þeirra sem voru framin 11 september. Erlent 2.7.2007 15:01
Einn grunaðra í Glasgow er íraskur læknir Svæði í kringum Royal Alexandra spítalann í Paisley hverfinu í Glasgow var rýmt í dag og sprengja látin springa þar undir stjórn lögreglu, samkvæmt fréttastofu Sky News. Hverfið er skammt frá flugvellinum í Glasgow. Að sögn fréttastöðvarinnar er einn hinna handteknu læknir frá Írak, Bilal Abdulla. Erlent 2.7.2007 14:10
1.600 Íslendingar á leið á Hróaskelduhátíðina Um 45.000 manns eru nú komnir á Hróaskelduhátíðina. Svæðið var opnað á sunnudagskvöldið en hátíðin nær hámarki næstu helgi. 1.600 íslendingar hafa keypt miða á hátíðina og verða samkvæmt upplýsingum á heimasíðu hennar 2 % gesta. Erlent 2.7.2007 13:45
Berezovsky ákærður fyrir að hvetja til valdaráns Saksóknarar í Rússlandi hafa ákært rússneska auðkýfinginn Boris Berezovsky fyrir að hvetja til valdaráns. Lögfræðingur hans skýrði frá þessu í dag. Ákæran segir að hann hafi ætlað sér að ræna völdum með vopnavaldi. Berezovsky hefur búið í Bretlandi síðan hann flúði Rússland fyrir rúmum sex árum síðan. Erlent 2.7.2007 12:57
Rigningarmet slegið í Danmörku Rigningarmet var slegið í Danmörku í síðasta mánuði. Að meðaltali rignir um 55 millimetra í júní en í ár var magnið 124 millimetrar. Ekki hefur rignt jafn mikið á sama tíma síðan árið 1946. Erlent 2.7.2007 11:44
Hamas handtaka talsmann Hers íslam Hamas samtökin hafa handtekið talsmann hópsins Her íslam sem heldur fréttamanninum Alan Johnston í gíslingu. Hugsanlegt er að Hamas muni notfæra sér það til þess vinna að lausn Johnstons. Samtökin hafa krafist þess að hópurinn láti hann lausann. Erlent 2.7.2007 10:13
Maður lést eftir að hafa stokkið niður af 20 metra hárri brú Tuttugu og tveggja ára gamall maður hoppaði ofan af 20 metra hárri brú í Gautaborg aðfararnótt sunnudags og lést í kjölfarið. Rokktónleikar voru við annan enda Göta - Älv brúarinnar og voru nokkrir sem léku sér að því að stökkva niður af brúnni á meðan á þeim stóð. Maðurinn ætlaði ásamt félaga sínum að hoppa niður en félaginn hætti við á síðustu stundu. Erlent 2.7.2007 09:50
Lögregla sótti Wiltord vegna umferðarbrota Lögregla sótti í morgun franska framherjann Sylvain Wiltord þar sem hann var að hefja æfingu hjá félagi sínu Olympique Lyon í morgun. Lögreglan vildi yfirheyra leikmanninn í tengslum við umferðarlagabrot. Hann fékk að yfirgefa lögreglustöðina og fara á æfingu eftir að hafa svarað spurningum lögreglu. Honum var svo gert að mæta aftur til lögreglu eftir nokkra mánuði. Erlent 2.7.2007 09:33
Leiðtogar Afríku funda í Accra Leiðtogafundur Afríkusambandsins fer fram í Accra, höfuðborg Ghana, í dag. í sambandinu eru alls 53 ríki. Yfirskrift fundarins eru viðræður um aukna samtvinnun ríkisstjórna Afríku og stærra hlutverk sambandsins. Hugmyndin um Bandaríki Afríku er ekki ný af nálinni en forseti Líbíu, Muammar Gadafi, hvatti leiðtoga Afríkuríkja nýverið til þess að hugsa nánar um hana. Erlent 2.7.2007 08:39
Hús sprakk í Danmörku Kröftug sprenging jafnaði íbúðarhús í Lystrup við Árósa við jörðu rétt eftir miðnætti í gær. Húsið var tómt og ekki er vitað hvað olli sprengingunni. Erlent 2.7.2007 08:27
Segja Írana vita af hernaðaraðgerðum í Írak Háttsettir einstaklingar innan írönsku stjórnarinnar vita af hernaðaraðgerðum Byltingarvarða landsins í Írak. Talsmenn bandaríska hersins fullyrtu þetta í morgun. Bandaríski herinn hefur löngum ásakað Byltingarverðina, sem eru sérsveitir íranska hersins, um að hvetja til og auka á ofbeldi í Írak. Erlent 2.7.2007 08:04
Eiginkona forsetans býður sig fram Eiginkona forseta Argentínu, Cristina Kirchner, ætlar sér að bjóða sig fram í forsetakosningum í landinu í október. Hún hefur hingað til verið öldungadeildar þingmaður. Eiginmaður hennar, Nestor Kirchner, hefur gegnt embætti í fjögur ár. Erlent 2.7.2007 07:51
Putin og Bush ræða saman Vladimir Putin, forseti Rússlands, og George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, halda í dag óformlegar viðræður í ættarbústað Bush í Maine í Bandaríkjunum. Putin mun eyða tveimur dögum í félagsskap Bush. Erlent 2.7.2007 07:26
Obama slær fjáröflunarmet Demókratinn Barack Obama er sá frambjóðandi sem hefur safnað mestum peningum til þess að nota í baráttunni um forsetaefni flokksins. Obama safnaði 32,5 milljón dollara á síðustu þremur mánuðum, eða fimm milljónum meira en Hillary Clinton, sem er hans helsti andstæðingur. Erlent 2.7.2007 07:13
Minningartónleikar um Díönu fóru fram í gær Minningartónleikar um Díönu Prinsessu af Wales fóru fram í Lundúnum í gær. Rúmlega sextíu þúsund manns hlýddu á stórstjörnur eins og Tom Jones, Elton John og Rod Stewart syngja sín bestu lög. Synir Díönu, William og Harry, skipulögðu tónleikana í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá því móðir þeirra lést. Allur ágóði tónleikanna fór í góðgerðarmál. Erlent 2.7.2007 07:09
Tveir handteknir vegna árásanna í Bretlandi Lögreglan í Bretlandi handtók í morgun tvo menn í tengslum við árásarinnar í Glasgow. Fimm manns voru þegar í haldi lögreglu og hafa því sjö verið handteknir vegna málsins. Af þeim höfðu tveir starfað sem læknar í Englandi áður en þeir létu til skarar skríða. Erlent 2.7.2007 06:56
Forsetar rækta vinskapinn Bandaríkin, AP Vladimír Pútín Rússlandsforseti kom í gærkvöld til Kennebunkport í Maine, þar sem hann hitti George W. Bush Bandaríkjaforseta í sumarhúsi í eigu George Bush eldri. Erlent 2.7.2007 05:30
Þrælahald í Kína hneykslar þjóðina Kínversk stjórnvöld boða nú hertar aðgerðir til að taka á þrælkun í múrsteinaverksmiðjum í sveitahéruðum landsins í kjölfar mikillar fjölmiðlaumfjöllunar um málið. Herferðin mun standa yfir í tvo mánuði og aðallega beinast að verksmiðjum og kolanámum. Erlent 2.7.2007 05:00
Siglt í kjölfar forfeðranna Síðdegis í gær lagði „Haffolinn frá Glendalough“, 30 metra langskip sem er nákvæm eftirgerð slíks skips frá 11. öld sem fannst í Hróarskeldufirði, af stað frá Hróarskeldu áleiðis til Dyflinnar. Um borð er 65 manna áhöfn af ýmsu þjóðerni. Erlent 2.7.2007 04:45
Ætlað að styrkja völd Abbas Tugþúsundir palestínskra ríkisstarfsmanna munu í þessari viku fá í fyrsta sinn í meira en ár greidd út full laun sín, eftir að ísraelsk yfirvöld afhentu bráðabirgðastjórn Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, út palestínskt skattfé sem hafði verið fryst á reikningum í Ísrael. Erlent 2.7.2007 04:00
Ísabella Henríetta Ingiríður Margrét Danmörk, AP Ísabella Henríetta Ingiríður Margrét var nafnið sem dóttir Friðriks krónprins af Danmörku og Maríu Elísabetar krónprinsessu var gefið er hún var skírð við hátíðlega athöfn í kapellu Fredensborgarhallar á Sjálandi í gær. Erlent 2.7.2007 03:45
Fimm handtökur í hryðjuverkarannsókn Breska lögreglan gerði húsleit í byggingum í grennd við Glasgow í Skotlandi og á Mið-Englandi í gær og tóku fimmta manninn fastan í leitinni að þeim sem grunaðir eru um að hafa tengst bíl-árásinni á flugstöð Glasgow-flugvallar og bílsprengjutilræðin sem koma tókst í veg fyrir í Lundúnum. Einni af flugstöðvarbyggingum Heathrow-flugvallar var lokað í gærkvöld vegna grunsamlegs pakka sem þar fannst. Erlent 2.7.2007 02:45
Hörð viðbrögð við dómsátt Dómsátt sem gera á fyrrverandi forseta Ísraels kleift að komast hjá nauðgunarákæru og hugsanlegum fangelsisdómi hefur vakið upp hörð og óvænt viðbrögð í Ísrael. Erlent 2.7.2007 01:15
Lögreglan í Bretlandi leitar enn manna Heimildir Sky fréttastofunnar herma að einn maður gangi laus, sem talið er að tengist hryðjuverkaárásinni í Glasgow í gær og bílsprengjunum sem fundust í miðborg Lundúna í fyrradag. Samkvæmt upplýsingum Sky fréttastöðvarinnar var viðbúnaðarstig á Bretlandseyjum hækkað í gær af ótta við að hann eða fleiri láti til skarar skríða einn síns liðs eða í samstarfi við aðra. Erlent 1.7.2007 20:13