Erlent

Hrökklaðist úr embætti

Varnarmálaráðherra Japans hrökklaðist úr embætti í dag vegna umdeildra ummæla. Hann móðgaði marga landa sína með því að gefa í skyn að kjarnorkuárásir Bandaríkjamanna á Hiroshima og Nagasaki 1945 hafi verið réttlætanlegar. Ummæli ráðherrans gátu vart fallið á verri tíma fyrir Japansstjórn, skömmu fyrir kosningar.

Erlent

Læknar grunaðir

Ættingjar og samverkamenn læknis frá Jórdaníu eiga bágt með að trúa að hann hafi skipulagt hryðjuverkaárásina á Glasgow-flugvelli um síðustu helgi eða komið fyrir bílsprengjum í miðborg Lundúna. Athygli vekur að sjö þeirra sem nú eru í haldi lögreglu vegna málsins eru læknar eða læknanemar sem hafa starfað á Bretlandseyjum.

Erlent

Brown vill flytja meira vald til þingsins

Gordon Brown lagði, í fyrstu ræðu sinni sem forsætisráðherra í Breska þinginu í dag, til að þingið fengi aukið vald í viðamiklum málum. Brown lofaði því að þingið fengi að hafa síðasta orðið í mögulegum ákvörðunum um stríð og einnig meira vægi í alþjóðlegum samningum.

Erlent

Tveir menn handteknir í Blackburn

Lögregla í Norðvestur Englandi hefur handtekið tvo menn í Blackburn í tengslum við rannsókn á sprengjutilræðunum á Bretlandseyjum um síðustu helgi. Sjö til viðbótar eru í haldi lögreglu á Englandi og í Skotlandi vegna málsins, fimm þeirra eru læknar.

Erlent

Níu látnir í átökum við Rauðu moskuna í Pakistan

Að minnst kosti níu manns, stúdentar hermenn, blaðamaður og borgarar hafa látist í átökum sem staðið hafa í allan dag við Rauðu moskuna í Islamabad í Pakistan. Um 150 manns særðust, en lögregla hefur meðal annars beitt táragasi á hóp róttækra íslamskra stúdenta og klerka Rauðu moskunnar.

Erlent

Ákvörðun Bandaríkjaforseta umdeild

Bush Bandaríkjaforseti náðaði í gær að hluta Lewis "Scooter" Libby, fyrrverandi aðstoðamann Cheneys, varaforseta. Demókratar á Bandaríkjaþingi hafa fordæmt ákvörðun forsetans og segja hann misnota vald sitt.

Erlent

Tveir læknar í Ástralíu handteknir

Tveir læknar voru í nótt og í morgun hnepptir í varðhald í Ástralíu í tengslum við rannsókn á sprengjutilræðunum á Bretlandseyjum um helgina. Sjö til viðbótar eru í haldi í Bretlandi - fimm þeirra eru sagðir læknar.

Erlent

Húsið í Lystrup sprengt

Sprengjusérfræðingur í Danmörku segir að hús í Lystrup hafi verið sprengt í loft upp í fyrrinótt en það hafi viðvaningur gert. Engan sakaði þegar einbýlishúsið sprakk. Kraftur sprengingarinnar var svo mikill að helmingur af þaki hússins féll saman og veggir eyðilögðust. Nærliggjandi hús skemmdust ekki.

Erlent

Málsókn á hendur Google

Breski viðskiptajöfurinn Brian Retkin hefur farið í mál við upplýsingaveituna Google. Hann heldur því fram að leitarvélin beini fólki á verulega niðurlægjandi og eyðileggjandi efni um netfyrirtæki hans Dotworlds, meðal annars eru þar fullyrðingar um að Retkin sé svikull.

Erlent

Gæti eignast hálfsystkini sín

Kanadísk kona hefur fryst egg úr sjálfri sér svo að dóttir hennar, sem er með sérstakan erfðagalla og er ófær um að eignast börn, geti notað þau og eignast börn síðar á lífsleiðinni. Ef stelpan ákveður að nota eggin mun hún í raun eignast hálfbróður sinn eða systur.

Erlent

Talið að al-Kaída beri ábyrgð á árásinni í Yemen

Talið er að al-Kaída samtökin beri ábyrgð á sjálfsmorðssprengjuárásinni sem framin var við hið forna Queen og Sheba musteri í héraðinu Marib í Yemen í gær. Níu létust í árásinni þar af sjö spænskir ferðamenn. Auk þess særðust sex til viðbótar.

Erlent

Pakki sprengdur við Hammersmith

Breska lögreglan sprengdi í morgun upp grunsamlegan pakka sem hafði fundist við Hammersmith lestarstöðina í vesturhluta Lundúna. Meira er ekki vitað um málið að svo stöddu.

Erlent

Barist í mosku í Pakistan

Hersveitir í höfuðborg Pakistans, Islamabad, gerðu í morgun áhlaup á mosku og trúarskóla í borginni. Þær beittu táragási og vitni sögðust hafa heyrt skothríð í nágrenni moskunnar. Stjórnvöld hafa mánuðum saman átt í útistöðum við klerkana þar og nemendur þeirra.

Erlent

Evrópusambandið á eitt vinsælasta myndbandið á YouTube

Eitt vinsælasta myndbandið á vefveitunni YouTube þessa dagana er myndband frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Myndbandið fjallar hins vegar ekki um landbúnaðarsáttamála þess heldur er það samantekt af kynlífsatriðum úr evrópskum verðlaunabíómyndum. Myndbandinu er ætlað að fagna evrópskri kvikmyndagerð.

Erlent

Drápu 23 liðsmenn al-Kaída

Bandaríski herinn skýrði frá því í morgun að hann hefði drepið að minnsta kosti 23 liðsmenn al-Kaída í bardögum í Írak um helgina. Átökin áttu sér stað í vesturhluta Anbar-héraðsins. Herinn sagði að al-Kaída hópurinn hefði samanstaðið af sjálfsvígssprengjumönnum sem hefðu verið á leið til borgarinnar Ramadi. Aðgerðin er talin ein sú árangursríkasta í Írak í marga mánuði.

Erlent

Írakska ríkisstjórnin samþykkir olíufrumvarp

Írakska ríkisstjórnin samþykkti í dag frumvarp um skiptingu olíuauðs á milli trúar- og þjóðfélagshópa. Næsta skref er að leggja það fyrir þingið og vonast til þess að það verði samþykkt. Samskonar frumvarp var samþykkt af ríkisstjórninni í febrúar síðastliðnum en þá féll það í þinginu þar sem Kúrdar voru á móti því. Þeim fannst þeir ekki fá það sem þeir áttu rétt á.

Erlent

Fátækrahverfi í Rio tekin í gegn

Yfirvöld í Brasilíu hafa tilkynnt um nýja áætlun til þess að bæta aðstæður í fátækrahverfum í og við borgina Rio de Janeiro. Undanfarna daga hefur lögreglan í borginni staðið í miklum aðgerðum gegn eiturlyfjasölum í hverfunum og hafa 19 manns látist í þeim aðgerðum.

Erlent

Varnarmálaráðherra Japans segir af sér

Varnarmálaráðherra Japans sagði af sér í nótt vegna ummæla sem gáfu í skyn að hann væri sáttur við þá ákvörðun Bandaríkjamanna að beita kjarnorkusprengjum í lok Seinni heimsstyrjaldarinnar.

Erlent

Bush styttir dóm Libby

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, stytti í gærkvöldi fangelsisdóm Lewis „Scooter“ Libby, fyrrum aðstoðarmanns Dicks Cheney, varaforseta Bandaríkjanna. Demókratar fordæmdu ákvörðun Bush og sögðu hana dæmi um misnotkun á valdi forseta.

Erlent

Stilla saman strengi gegn Íran

George W. Bush Bandaríkjaforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti sneru í gær bökum saman gagnvart meintri kjarnorkuvígvæðingaráætlun Íransstjórnar.

Erlent

Marka friðvænlegri tíma

Talning er hafin í þingkosningunum í Austur-Tímor en þær eru taldar marka friðvænlegri tíma eftir ofbeldishrinu síðasta árs. Eftir að nær þriðjungur atkvæða hafði verið talinn var flokkur Mari Alkatir forsætisráðherra með naumt forskot á flokk Xanana Gusmao.

Erlent

Lokun kjarnaofna í sjónmáli

Norður-Kóreumenn munu líklega loka aðalkjarnaofni sínum þegar skipsfarmur af olíu berst til þeirra. Fulltrúi Suður-Kóreustjórnar segir að Norður-Kóreumenn hafi greint frá þessu í viðræðum landanna tveggja.

Erlent

Alþjóðlegar tóbaksvarnir

Fulltrúar fjölda landa og Heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (WTO) skoruðu í gær á Bandaríkin, Rússland og fleiri lönd að ganga til liðs við alþjóðlegan tóbaksvarnasáttmála.

Erlent

Talsmaður mannræningja handtekinn

Hamas-samtökin handtóku í gær talsmann hópsins sem heldur fréttamanninum Alan Johnston í gíslingu. Vonast er til að nú verði auðveldara að fá Johnston lausan úr haldi með fangaskiptum.

Erlent

F-14 þotur tættar í sundur

Á Davis-Monthan flugstöðinni í Tucson, Arizona, er flugvélakirkjugarður. Þar eru F-14 þotur tættar í sundur. Tilgangurinn er að halda flugvélunum, sem einnig eru kallaðar Tomcats, frá Írönum og öðrum ríkjum sem ógna öryggi Bandaríkjamanna.

Erlent