Erlent
Stjórnvöld í Eþíópíu náða 38 stjórnarandstæðinga Stjórnvöld í Eþíópíu frelsuðu í morgun 38 stjórnarandstæðinga sem voru dæmdir í lífstíðarfangelsi í liðinni viku fyrir að efna til mótmæla og ofbeldis í kringum kosningarnar sem fram fóru árið 2005. Gagnrýnendur stjórnvalda í landinu segja að málið hafi verið af pólitískt. Erlent 20.7.2007 09:20
Tveir meintir hryðjuverkamenn handteknir í Bretlandi Breska lögreglan handtók í morgun tvo menn vegna gruns um að þeir hafi verið að skipuleggja hryðjuverk. Mennirnir voru handteknir í Bristol en í íbúð þeirra fann lögreglan um 50 lítra af efni sem nota má til að búa til sprengju. Efnið er af svipaðri gerð og það sem notað var í sjálfsmorðssprengjuárásunum í London árið 2005. Erlent 20.7.2007 09:05
Fjórir láta lífið í sjálfsmorðsárás í Pakistan Fjórir létust og að minnsta kosti sex særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í norðurhluta Waziristan héraðsins í Pakistan í dag. Talið er að árásin sé hefndaraðgerð vegna umsáturs stjórnvalda um Rauðu moskuna í Islamabad fyrr í þessum mánuði. Erlent 20.7.2007 08:27
Engin tímamörk ákveðin á kjarnorkuafvopnun Norður Kóreu Engin tímamörk voru ákveðin varðandi kjarnorkuafvopnun Norður-Kóreu á fundi stjórnarendreka frá Bandaríkjunum, Japan, Kína, Rússlandi og Kóreuríkjunum tvemur. Fundi ríkjanna lauk í Peking í morgun. Erlent 20.7.2007 08:06
Japanir þurfa að draga úr rafmagnsnotkun Akira Amari, iðnaðar og viðskiptaráðherran Japans, hvatti í morgun japönsk fyrirtæki til að draga verulega úr rafmagnsnotkun á næstu mánuðum. Stór jarðskjálfti reið yfir norðurhluta Japans á mánudaginn með þeim afleiðingum að loka þurfti stærsta kjarnorkuveri landsins. Erlent 20.7.2007 08:03
Verkamannaflokkurinn vinnur varnarsigur í aukakosningum Breski Verkamannaflokkurinn hélt báðum þingsætum sínum í aukakosningum til þings sem haldnar voru tveimur kjördæmum í Bretlandi í gær. Fylgi flokksins dalaði þó nokkuð frá síðustu kosningum. Erlent 20.7.2007 07:12
Stjórnvöld í Ísrael sleppa palestínskum föngum Stjórnvöld í Ísrael byrjuðu í morgun að sleppa um 250 palestínskum föngum en flestir þeirra eru liðsmenn Fatah samtakanna. Engum Hamas liðum var þó sleppt. Ísraelsk stjórnvöld hafa undanfarið unnið að því að styrkja stöðu Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og Fatah-hreyfingar hans og er þetta liður í þeim aðgerðum. Erlent 20.7.2007 07:10
Tólf láta lífið á Sri Lanka Að minnsta kosti 12 létu lífið á Sri Lanka í nótt þegar uppreisnasveitir Tamíl tígra gerðu árás stjórnahersveitir í norðvesturhluta Mannar-héraðs. Þrír hermenn féllu í árásinni og níu uppreisnarmenn. Erlent 20.7.2007 07:02
Rússar kenna Bretum um erfiða stöðu í samskiptum þjóðanna Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússland, kennir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretland, um þá stöðu sem upp er komin í samskiptum þjóðanna. Þetta kom fram í máli ráðherrans á blaðamannafundi í gærkvöldi. Sagði hann það undir Bretum komið hvernig framhaldið verður. Erlent 20.7.2007 06:58
Blair bjartsýnn á friðarviðræður Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og nýskipaður sáttasemjari Mið-Austurlanda, segist bjartsýnn á að hægt verði að koma skriði á friðarferli á milli Ísraels og Palestínu. Á fyrsta fundi sínum með Málamiðlunarkvartettinum svokallaða í Lissabon sagði hann að ekkert væri jafn mikilvægt til að tryggja frið og öryggi í heiminum. Erlent 19.7.2007 23:16
Conrad Black frjáls þar til dómur verður kveðinn upp Fyrrverandi fjölmiðlakóngurinn Condrad Black þarf ekki að dúsa bak við lás og slá á meðan hann bíður eftir dómsuppkvaðningu, að því er dómari í Chicago hefur úrskurðað. Black, sem var fyrir viku síðan sakfelldur af kviðdómi fyrir fjársvik og hindrun á framgangi réttvísinnar, þarf að bíða fram í nóvember eftir dómsuppkvaðningu. Erlent 19.7.2007 22:44
Fjöldi fólks hefur leitað aðhlynningar í kjölfar eiturefnaslyss í Úkraínu Um 140 manns, þar af 43 börn, hafa leitað aðhlynningar á sjúkrahúsi með einkenni eitrunar í kjölfar lestarslyss sem varð nærri bænum Lviv í Úkraínu á miðvikudag. Lest, sem flutti mikið magn eiturefna, fór út af sporinu og í kjölfarið kviknaði í henni. Við það lagði þykkt eiturefnaský yfir stórt svæði. Erlent 19.7.2007 20:17
52 létu lífið í sjálfsmorðsárás í Pakistan í dag Þrjár sjálfsmorðssprengjuárásir urðu að minnsta kosti 52 að bana í Pakistan í dag. Er þetta mesta mannfall sem orðið hefur á einum degi síðan alda sjálfsmorðssprengjuárása hófst í kjölfar umsáturs stjórnvalda um Rauðu moskuna í Islamabad fyrr í þessum mánuði. Erlent 19.7.2007 19:05
Þingmenn í Ísrael telja Ísland hafa hlutverki að gegna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, segir að þingmenn í Knesset, ísraelska þinginu telji Ísland hafa hlutverki að gegna í friðarumleitunum milli Ísraels og Palestínu. Ingibjörg sagði í samtali við Stöð 2 í dag, að þeir höfðu mjög ákveðnar hugmyndir um það að Ísland gæti gegnt hlutverki, rétt eins og Noregur og Sviss. Erlent 19.7.2007 17:21
Rice segir að Kosovo verði sjálfstætt þrátt fyrir mótbárur Rússa Kosovo verður sjálfstætt á einn hátt eða annan þrátt fyrir andstöðu frá Rússum. Þetta fullyrti Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag. Bandaríkin eru að verða sífellt þreyttari á endurteknum neitunum Rússa á tillögum þeirra varðandi framtíðarskipulag mála í Kosovo. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur lagt fram fjölmargar tillögur og Rússar neitað þeim jafnharðan. Erlent 19.7.2007 16:49
Tékkar andvígir bandarískum eldflaugum Í skoðanakönnun sem gerð var í maí voru 61 prósent frekar eða mjög andvíg eldflaugakerfinu. Í nýju könnuninni er sú tala 65 prósent. Aðeins 28 prósent eru fylgjandi. Bandaríkin hyggjast koma fyrir tíu loftvarnaeldflaugum í Póllandi og ratsjárstöð í Tékklandi. Erlent 19.7.2007 16:46
Buxnadómarinn gefst ekki upp Roy L. Pearson, bandaríski dómarinn sem krafðist þriggja milljarða króna bóta fyrir buxur sem týndust í fatahreinsun tapaði því máli. Hann er þó ekki á þeim buxunum að gefast upp og hefur beðið dómarann í málinu að taka það upp aftur, jafnvel þótt brækurnar hafi á endanum fundist. Erlent 19.7.2007 16:23
Ég trampaði á hálsi hennar til að ná sálinni út Breskur kviðdómur heyrði í dag lýsingu á skelfilegum endalokum tvítugrar kúrdiskrar stúlku. Fjölskylda hennar og vinir myrtu hana fyrir að kasta rýrð á heiður fjölskyldunnar. Hún hafði orðið ástfangin af röngum manni. Henni var nauðgað og misþyrmt áður en hún var kyrkt. Erlent 19.7.2007 14:43
Sopranos fékk flestar Emmy tilnefningar Sjónvarpsþættirnir um Sopranos fjölskylduna hafa fengið langflestar tilnefningar til Emmy verðlaunanna. Þættirnir fá 15 tilnefningar meðal annars sem bestu dramaþættirnir. Helstu keppinautar Sopranos eru Grey´s Anatomy, Boston Legal, House og Heroes. Erlent 19.7.2007 14:06
Bretar segja brottrekstur erindreka óréttlætanlegan Rússar hafa ákveðið að reka fjóra breska erindreka úr landi og hefna þar með fyrir ákvörðun Breta sem ráku nýverið fjóra enrindreka Rússa frá Bretlandi. David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, sagði ákvörðun Rússa óréttlætanlega. Erlent 19.7.2007 12:31
Ingibjörg Sólrún hitti Abbas í morgun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hitti Abbas forseta Palestínu á fundi á Vesturbakkanum í morgun. Abbas tilkynnti í gær að hann hygðist boða til þing- og forsetakosninga innan skamms. Erlent 19.7.2007 12:09
Feðgar fundu víkingafjársjóð Gríðarstór víkingafjársjóður fannst í janúar á þessu ári í Jórvíkurskíri í Englandi. Þeir sem fundu hann voru tveir feðgar að leika sér með málmleitartæki. Þeir héldu sjóðnum saman og afhentu hann Breska þjóðminjasafninu til rannsókna og varðveislu. Talið er að sjóðurinn sé frá tíundu öld. Erlent 19.7.2007 11:28
Sao Paulo vélin var á fjórföldum lendingarhraða Myndbandsupptökur af flugslysinu í Sao Paulo í Brasilíu í gær sýna að Airbus flugvélin var á allt að fjórföldum venjulegum lendingarhraða þegar hún snerti flugbrautina. Yfir 200 manns fórust þegar vélin fór til vinstri út af flugbrautinni, við enda hennar, og lenti á bensínstöð. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndband af flugvélinni lenda. Erlent 19.7.2007 10:29
Chirac yfirheyrður vegna spillingarmála Jacques Chirac, fyrrum forseti Frakklands, var yfirheyrður af dómara í morgun vegna spillingarmála. Um þó nokkur mál sem tengjast upplognum störfum er að ræða. Talið er að atvikin hafi átt sér stað í borgarstjóratíð Chirac's en hann var borgarstjóri Parísar á níunda áratug síðustu aldar. Erlent 19.7.2007 10:25
Rússar svara fyrir sig á hádegi Rússneska utanríkisráðuneytið ætlar sér að gefa frá sér yfirlýsingu varðandi samband Bretlands og Rússlands á hádegi í dag. Undanfarna mánuði hefur samband ríkjanna tveggja versnað verulega. Mál fyrrum njósnarans Alexander Litvinenko, sem myrtur var með geislavirka efninu pólóníum 210 í Lundúnum, er ein helsta ástæða þess. Erlent 19.7.2007 10:08
25 fórust þegar bygging hrundi í Mumbai Að minnsta kosti 25 manns fórust þegar gömul bygging hrundi í Mumbai, fjármálamiðstöð Indlands. Talið er að tugir séu enn fastir í rústum byggingarinnar. Björgunarmenn eru nú að fara í gegnum þær í leit að þeim sem lifðu af. Erlent 19.7.2007 09:57
Innanríkisráðherra Breta reykti kannabis á yngri árum Jacqui Smith, innanríkisráðherra Breta, hefur viðurkennt að hafa reykt kannabis þegar hún var við nám í Oxford háskóla á níunda áratugnum. Játning hennar kemur fram daginn eftir að Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti að hún myndi vera yfir nefnd sem á að endurskoða stefnu landsins í fíkniefnamálum. Erlent 19.7.2007 09:28
Mikil skelfing þegar gufuleiðsla sprakk í New York Nú er talið að einn hafi látist og 26 slasast þegar gufuleiðsla sprakk á háannatíma við Grand Central lestarstöðina í New York í gær. Erlent 19.7.2007 08:05
Ekki vilji fyrir vegtollum á Manhattan Fylkisþingið í New York hafnaði nýlega hugmyndum Michaels Bloomberg, borgarstjóra New York borgar, um að taka upp vegtolla á Manhattan. Hugmyndin fól í sér að bílstjórar fólksbíla greiddu 240 krónur fyrir að fá að keyra inn á Manhattan en vörubílstjórar rúmar 1200 krónur. Erlent 19.7.2007 07:13
Flugbrautin var í viðgerð Flugbrautin á Congonhas flugvelli í Sao Paulo í Brasilíu, þar sem farþegaþota fórst með 186 menn um borð, var í viðgerð. Búið var að skipta um yfirborð á flugbrautinni en ekki var búið að grafa frárennslislagnir fyrir regnvatn. Erlent 19.7.2007 07:11