Erlent

Ítalir rökræða stöðu kvenna í þjóðfélaginu

Mikil umræða fer nú fram á Ítalíu um stöðu kvenna í þjóðfélaginu. Ímynd kvenna þar í landi snýst um kynþokka og að hafa laglegar línur. Sumar konur telja karlrembu vera vera ástæðuna en aðrar konur segja ekkert eðlilegra en að vera stoltar af líkama sínum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndbrot með fréttinni.

Erlent

Starfsfólk BBC á námskeið til að læra að segja satt

Yfir 16 þúsund starfsmenn breska ríkissjónvarpsins BBC hafa verið sendir á námskeið þar sem þeir eiga að læra að segja satt. Þetta var ákveðið eftir að upplýst var um stórfelldar falsanir í útvarps- og sjónvarpsþáttum þar sem fé var safnað.

Erlent

Kæra múslimskan frambjóðanda fyrir landráð

Þingmaður íhaldsflokksins í Danmörku hefur kært Asma Abdol Hamíd frambjóðanda Einingarflokksins fyrir landráð fyrir að réttlæta árásir vígamanna á danska hermenn í Írak. Hún líkir þeim við andspyrnuhreyfingu Dana gegn þjóðverjum í síðari heimstyrjöldinni, sem danskir stjórnmálamenn úr öllum flokkum vísa á bug. Allt að sex ára fangelsi getur legið við landráði í danmörku. Eins og greint hefur verið frá stefna Danir að því að kalla herlið sitt heim frá írak í næsta mánuði.

Erlent

250 heimili í Oxford rýmd

Íbúum 250 heimila í Oxford var gert að yfirgefa þau í nótt, en borgin er sú síðasta til að verða fyrir barðinu á flóðunum sem geysað hafa á Englandi undanfarna daga.

Erlent

Danir hafa mismikið álit á fólki eftir hreimi

Danir hafa minna álit á fólki sem tala dönsku með miðausturlenskum hreim en öðrum. Berlingske tiderne greinir frá þessu. Vísindamenn við Kaupmannahafnarháskóla báðu fólk að leggja mat á persónuleika 16 manns út frá því hvernig það las stuttan danskan texta. Þeir sem þóttu tala með miðausturlenskum hreim voru álitnir vitlausir og óáreiðanlegir, á meðan norðuevrópskur hreimur var tengdur við sjálfstæði, metnað og áreiðanleika. Þeir sem lásu textann voru allir með háskólamenntun og töluðu málfræðilega rétta dönsku.

Erlent

Fimm fjallgöngumenn frjósa í hel í Ölpunum

Fimm fjallgöngumenn urðu úti í Ölpunum aðfaranótt þriðjudags. Lík fjögurra fundust frosin í fjögur þúsund metra hæð á Mont Blanc, og eins á Monte Rosa. Þá dvelur illa kalin þýsk kona á spítala í Zermann í Sviss. Slæmt veður gerði björgunarmönnum erfitt fyrir að ná til fólksins. Sjaldgæft er að svo margir verði úti á einum degi í Ölpunum.

Erlent

Ungverjar kjósa um síestu

Ungverjar munu innan skamms fá tækifæri til að kjósa um hvort setja eigi lög í landinu um að menn taki sér síestu. Átta milljón kjósendur landsins munu þó enn þurfa að borga fyrir veitingar sem þeir ætla að innbyrða í síðdegishvíldinni, en nýlega var felld tillaga að lögum um að bjór yrði ókeypis á veitingastöðum. Ungverjar hafa frá því það varð lýðræðisríki árið 1989 verið duglegt að kjósa um ýmis lög, en einungis tvö þeirra voru samþykkt, um inngönguna í NATO og Evrópusambandið

Erlent

Fimm hundruð látnir í hitabylgjunni í Evrópu

Talið er að allt að fimm hundruð manns hafi látist í Ungverjalandi af völdum hitabylgjunnar sem gengið hefur yfir landið síðustu daga með um og yfir 40 stiga hita. Dauðsföll í nágrannaríkjunum í sunnanverðri Evrópu eru líka rakin til hitannna og víða loga skógareldar vegna þurrka, einkum í Grikklandi. Þá er alvarlegur uppsekrubrestur er í Serbíu og fleiri nágrannalöndum.

Erlent

Arababandalagið fundar með Ehud Olmert

Sendinefnd frá arababandalaginu er funda nú í fyrsta sinn með leiðtogum ísraelsríkis um friðarhorfur í mið-austurlöndum. Fulltrúar egyptalands og jórdaníu, einu arabalandanna sem viðurkenna ísraelsríki, munu funda með Ehud Olmert forsætisráðherra ísraels til að bjóða honum stjórnmálasamband við öll arabaríkin, gegn því að ísraelar dragi herlið sitt frá herteknu svæðunum og að Palestínuríki verði stofnað.

Erlent

Færri hlynntir sjálfsmorðsárásum

Færri múslimar styðja nú sjálfsmorðsárasir og ofbeldi gegn saklausum borgurum vegna trúarbragða en árið 2002. Einungis í Palestínu virðist stuðningur við þessar aðferðir enn almennur, en aðeins sex prósent palestínumanna segja sjálfsmorðárásir ekki eiga rétt á sér.

Erlent

MySpace lokar heimasvæðum 29.000 kynferðisafbrotamanna

Fjöldi kynferðisafbrotamanna frá Bandaríkjunum sem setur upp heimasvæði á tengslasíðunni MySpace hefur að sögn forsvarsmanna hans fjórfaldast og telur nú 29 þúsund. Í yfirlýsingu frá MySpace segjast þeir þó hafa lokað á þær allar.

Erlent

Fjárframlög aukin vegna flóðanna

Breska ríkisstjórnin ætlar að auka fjárframlög um 10 milljónir punda vegna fóðanna sem herja á landið . Ákvörðunin var tekin eftir að ljóst varð að um 350 þúsund manns verða án hreins vatns í allt að tvær vikur.

Erlent

Samgönguráðherra Bretlands lofar úrbótum á lestarsamgöngum

Ruth Kelly, samgönguráðherra Bretlands, hefur greint frá því að milljörðum punda verði varið til að bæta lestarsamgöngur í landinu. En samgöngurnar anna sem stendur ekki eftirspurn. Aðgerðirnar eiga að stuðla að stærri og öflugri járnbrautum sem geta flutt allt að helmingi fleiri farþega fyrir 2030.

Erlent

Heilbrigðisstarfsfólkið náðað

Forseti Búlgaríu náðaði sex heilbrigðisstarfsmenn um leið og þeir komu til Búlgaríu frá Líbýu í dag. Þar höfðu þeir setið í fangelsi í átta ár. Líbýumenn fá bæði mikið fé og aukin stjórnmálatengsl fyrir að sleppa fólkinu.

Erlent

Íbúar við Thamesá varaðir við flóðum

Óttast er að enn fleiri hús verði flóðunum í Bretlandi að bráð á morgun, þegar flóðbylgjur berast niðureftir Thamesánni. Spáð er áframhaldandi úrkomu sem myndi enn auka á vatnsflauminn.

Erlent

Hús hrundi aðeins augnablikum eftir rýmingu

Byggingaeftirlitsmanni á Azoreyjum leist svo illa á hús sem hann fór framhjá að hann fékk lögregluna til þess að rýma það. Og það var eins gott. Aðeins nokkrum augnablikum eftir að síðasti íbúinn fór út úr húsinu hrundi það til grunna.

Erlent

Pútin segir framsalskröfu Breta bera vott um úreltan nýlenduhugsunarhátt

Vladimir Pútin forseti Rússlands segir kröfu Breta um að Rússar framselji Andrei Lugovoy, meintan morðingja Alexanders Litvinenko, vera móðgun og bera vott um úreltan nýlenduhugsunarhátt Breta. "Krafa þeirra er augljós vottur um leifar af nýlenduhugsunarhætti," sagði Pútin í rússneska ríkissjónvarpinu í dag.

Erlent

Norska prinsessan segist vera skyggn

Norska prinsessan Marta Lovísa tilkynnti í dag að hún sé skyggn og að hún ætli sér að hjálpa fólki að tala við engla. Marta Lovísa, sem er 35 ára, er menntaður sjúkraþjálfari.

Erlent

Framdi sjálfsmorð með handsprengju

Fyrrverandi fangi í Gvantanamó fangelsinu á Kúbu framdi sjálfsmorð með handsprengju í Pakistan í dag, frekar en komast undir manna hendur. Abdullah Mehsud var handtekinn í Afganistan þar sem hann barðist með Talibönum.

Erlent

Lentu flugvél á þjóðvegi

Kennsluflugvél úr síðari heimsstyrjöldinni var nauðlent á þjóðvegi í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær vegna vélarbilunar. Vélin lenti innan um bíla sem voru þar á ferð, og varð að vonum uppi fótur og fit.

Erlent

Heilbrigðisstarfsfólk loksins frjálst

Sex heilbrigðisstarfsmenn sem hafa setið í fangelsi í Líbýu í átta ár eru komnir heim til Búlgaríu. Fólkið var sakað um að hafa vísvitandi sýkt yfir 400 libysk börn af alnæmi.

Erlent

Varnargarðar reistir meðfram Thames-ánni

Breskar björgunarsveitir hamast nú við að byggja varnargarða neðarlega meðfram Thamesá þar sem búist er við miklum flóðum á næstu dögum. Hundruð þúsunda manna hafa enn ekki neitt hreint vatn til drykkjar, en verið er að koma rafmagni á á nýjan leik.

Erlent

Frambjóðendur demókrata tókust á með hjálp YouTube

Í gærkvöldi sátu átta frambjóðendur demókrata til forsetakosninga í Bandaríkjunum fyrir svörum í fyrstu kappræðunum þar sem einungis er stuðst við spurningar sem áhorfendur senda inn á netinu. Kappræðurnar voru samstarfsverkefni CNN fréttastöðvarinnar og myndbandavefsins Youtube. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndbrot frá kappræðunum.

Erlent

Klikkuðu DARPA- vísindamennirnir

Ef það er klikkað og getur drepið fólk, varið hermenn eða njósnað um óvini þá geturðu verið viss að DARPA er að fjármagna þróun þess. DARPA stendur fyrir Defense Advanced Research Projects Agency eða Rannsóknarstofnun hátækni-varnarbúnaðar.

Erlent

Spánverjar handtaka rússneskan njósnara

Spænska leyniþjónustan handtók í morgun grunaðan gagnnjósnara sem talið er að hafi sent ýmis ríkisleyndarmál til Rússlands. Alberto Saiz, yfirmaður leyniþjónustunnar skýrði frá þessu í morgun. Gagnnjósnarinn hafði unnið fyrir rússa síðastliðin þrjú ár. Ekki var gefið upp hversu lengi hann hafði unnið fyrir Spánverja.

Erlent