Erlent

Fundu mikið magn af fíkniefnafé í Kolómbíu

Lögreglan í Kolómbíu hefur lagt hald á mikið magn peninga í húsi í höfuðborginni Bogota. Um er að ræða 29 milljónir dollara og 17 milljónir evra. Samanlagt er um að ræða verðmæti upp á nær sex milljarða kr.

Erlent

Fleiri þjóðir vara við hryðjuverkaárásum

Ástralía hefur nú bæst í hóp þeirra þjóða sem gefið hafa út aðvörun til íbúa sinna um yfirvofandi hryðjuverkaárásir í Evrópu. Áður hafa Bandaríkin, Japan, Bretland og Svíþjóð gefið úr slíka aðvörun.

Erlent

Búist við mótmælaaðgerðum

Búist er við mótmælaaðgerðum við setningu danska þjóðþingsins í Kaupmannahöfn í dag. Æskulýðssamtök sem nefnast Ungt fólk til ábyrgðar ætla að mótmæla því að sparnaður stjórnvalda í menntamálum bitnar á 8.500 ungmennum í starfsnámi sem hafa verið svipt möguleikum á starfsþjálfun.

Erlent

Umdeildur þingmaður ákærður

Réttarhöld hófust í gær yfir hollenska þingmanninum Geert Wilders sem leiðir Frelsisflokkinn, þriðja stærsta stjórnmálaflokk landsins. Wilders er umdeildur maður í Hollandi en flokkur hans hefur harða stefnu gegn innflytjendum og þykir mörgum sem hann geri út á fordóma gegn þeim.

Erlent

Hættið þið nú alveg

Er ekki hægt að vera sammála um að nóg sé komið af rigningu þegar gæsir eru farnar að forða sér upp á húsþök?

Erlent

Beðið eftir pabba

Það styttist í að byrjað verði að reyna að hífa upp á yfirborðið námumennina 33 sem hafa verið lokaðir ofan í námu sinni í Chile á annan mánuð.

Erlent

Verið velkomin öll

G-20 iðnveldin halda ráðstefnu í Seoul í Suður-Kóreu um miðjan þennan mánuð. Það er orðin hefð fyrir mótmælum á slíkum ráðstefnum og

Erlent

Endurtaka þarf forsetakosningarnar í Brasilíu

Þvert á skoðanakannanir þarf að kjósa aftur í forsetakosningunum í Brasilíu. Dilma Rouseff, frambjóðandi stjórnarflokksins, náði ekki yfir 50% atkvæða eða hreinum meirihluta eins og henni var spáð.

Erlent

Hætta talin á hryðjuverkum

Bandaríkin, ap Bandaríkjastjórn hefur varað Bandaríkjamenn í Evrópu við mögulegri hryðjuverkahættu í álfunni. Bandaríkjamenn sem búa eða ferðast í Evrópu eru hvattir til að huga betur að öryggi sínu, sérstaklega á opinberum stöðum.

Erlent

Vill að leiðtogar Bandaríkjanna verði jarðaðir

Forseti Írans vill að æðstu yfirmenn Bandaríkjanna verði jarðaðir vegna viðbragða þeirra við kjarnorkuáætlunum Írana, samkvæmt frásögn AP fréttastofunnar. Þetta kom i ávarpi Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, í dag.

Erlent

Utanríkisráðherra Hitlers vildi setjast að á Bretlandi

Joachim von Ribbentrop, sem var utanríkisráðherra í nasistastjórn Adolfs Hitlers í Þýskalandi, hafði fyrirætlanir um að setjast í helgan stein í Bretlandi eftir innrás Þjóðverja í landið. Þetta fullyrðir rithöfundurinn Andrew Lanyon sem hefur rannsakað Seinni heimsstyrjöldina um þriggja ára skeið.

Erlent

Líklegt að Miðjusamstaðan fari með sigur af hólmi

Útlit er fyrir að miðjuflokkur rússneska minnihlutans í Lettlandi fari með sigur af hólmi í þingkosningum sem fram fara í Lettlandi í dag. Það yrðu söguleg úrslit því flokkurinn hefur aldrei náð miklu fylgi á þeim tuttugu árum sem liðin eru frá því Lettar sögðu skilið við Sovétríkin. Flokkurinn sem mætti kalla Miðjusamstaðan á íslensku, er aðallega skipaður frambjóðendum sem eiga rætur að rekja til Rússlands.

Erlent

Námumönnunum bjargað eftir tvær vikur

Talið er að hægt verði að bjarga þrjátíu og þremur námamönnum í Chile úr námagöngum sem þeir hafa verið króaðir í vikum saman, einhvern tíma á seinni hluta þessa mánaðar. Laurence Golborne námuráðherra landsins segir að prófanir á björgunarbúnaði frá ýmsum fyrirtækjum gefi vonir um að björgunaraðgerðir geti hafist eftir um tvær vikur.

Erlent

Sama sekt fyrir að keyra of hratt og eiga gras

Stjórnvöld í Kaliforníu hafa slakað á klónni varðandi refsingar við því að eiga og neyta maríjúanna. Þeir sem teknir verða með minna en eina únsu eða um 28 grömm af marijúanna fá eftirleiðis svipaða sekt og fólk fær fyrir að aka örlítið yfir hámarkshraða, eða um ellefu þúsund krónur.

Erlent