Erlent
Böndin berast að hinum handtekna í Malmö Sænska blaðið Expressen segir í dag að tæknideild lögreglunnar hafi þegar komist að þeirri niðurstöðu að skammbyssa sem lagt var hald á hjá 38 ára gömlum manni hafi verið notuð við skotárásir á innflytjendur í Malmö. Erlent 9.11.2010 11:04
Déjá vu fyrir Joe Biden Bandaríkjamenn hafa harmað þá ákvörðun Ísraela að byggja yfir eittþúsund ný heimili á Vesturbakkanum. Erlent 9.11.2010 10:20
Hætt við mosku í Tromsö Miðstöð múslima í Tromsö í Noregi hefur hætt við að reisa mosku í bænum með fjárframlögum frá Saudi-Arabíu. Talsmaður miðstöðvarinnar segir að norska utanríkisráðuneytið samþykki ekki þessa fjármögnun. Erlent 9.11.2010 10:00
Bush sér ekki eftir neinu George Bush yngri, fyrrverandi Bandaríkjaforseti varði í gær sínar umdeildustu ákvarðanir í viðtali á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC. Erlent 9.11.2010 08:58
Herforingjar lýsa yfir sigri í Búrma - átök brjótast út Herforingjastjórnin í Búrma hefur lýst yfir sigri í kosningunum sem fram fóru í landinu um helgina, þeim fyrstu í tuttugu ár. Herforingjarnir segja að stærsti stjórnarflokkurinn hafi fengið yfir 80 prósent atkvæða en leiðtogar víða um heim hafa fordæmt kosningarnar og sagt þær ómarktækar. Erlent 9.11.2010 08:54
Castro boðar til aðalfundar Flokksins Forseti Kúbu, Raoul Castro hefur fyrirskipað að aðalfundur kommúnistaflokksins verði haldinn í apríl á næsta ári, til þess að ræða efnahagsvandræðin sem kúbverjar glíma við nú um stundir. Aðalfundinn á samkvæmt lögum að halda á fimm ára fresti en eldri bróðir Raous, Fidel Castro, frestaði honum ítrekað svo fundurinn hefur ekki verið haldinn í fjórtán ár. Erlent 9.11.2010 08:27
Þúsundir manna flýja Þúsundir flúðu heimili sín undan rótum eldfjallsins Merapi í Indónesíu í gær. Opinber viðvörun var gefin út um að eldfjallið gæti gosið aftur hvenær sem væri og fjölmenntu íbúar inn í rútur, lestir og bíla til að flýja í kjölfarið. Erlent 9.11.2010 02:00
Þúsundir hafa flúið frá Búrma Að minnsta kosti tíu þúsund manns hafa flúið yfir landamærin til Taílands vegna bardaga milli stjórnarhers Búrma og uppreisnarhers karena. Erlent 9.11.2010 01:45
Vill að NATO stefni á brottför Bandarísk hermálayfirvöld hvetja Atlantshafsbandalagið til að fallast á tímaáætlun Hamids Karzai Afganistansforseta. Erlent 9.11.2010 01:30
Mælir með því að gullfótur verði tekinn upp Robert Zoellick, forstjóri Alþjóðabankans, mælir með því að helstu iðnríki heims taki upp gullfót eða aðra viðmiðun fyrir gjaldmiðla landanna. Erlent 9.11.2010 01:30
Landið fái sæti í öryggisráði SÞ Barack Obama Bandaríkjaforseti styður óskir Indlands um að fá varanlegt sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Kom þetta fram í ræðu sem Obama flutti á indverska þinginu. Erlent 9.11.2010 01:00
Putin á 320 kílómetra hraða Vladimir Putin forsætisráðherra Rússlands gerir ýmislegt sér til gamans. Nýjasta uppátæki hans var að keyra Formúlu 1 kappakstursbíl í Sankti Pétursborg. Erlent 8.11.2010 16:47
Nautum hleypt á graða Breta Með illu skal illt út reka. Þetta er niðurstaða bæjarstjórnarinnar í breska smábænum Puttenham. Íbúar þar eru um 2500 talsins og bærinn er klukkustundar akstur frá Lundúnum. Erlent 8.11.2010 14:44
Lítil vinna en launuð vel Íraskir þingmenn hafa nú fengið greiddan árlegan þingfararstyrk að upphæð um 10 milljónir króna. Þeir fá auk þess tvær og hálfa milljón króna á mánuði í laun og frítt uppihald á besta hótelinu í Bagdad. Erlent 8.11.2010 13:45
Borgarstjóri forðar dætrum sínum úr landi Hinn eitt sinn voldugi borgarstjóri í Moskvu Yuri Luzhkov hefur ákveðið að senda tvær ungar dætur sínar til Lundúna til þess að tryggja öryggi þeirra. Dmitry Medvedev forseti Rússlands rak Luzhkov úr embætti í september síðasliðnum. Erlent 8.11.2010 13:17
Sylvía yfirgefur aldrei Karl Gústaf Sérfræðingur sænska ríkissjónvarpsins í málefnum konungsfjölskyldunnar segir að Sylvia drottning muni aldrei yfirgefa Karl Gústaf þrátt fyrir sögusagnir um framhjáhald og villt líferni. Erlent 8.11.2010 10:46
Fyrsta litaða borgin í Evrópu Borgin Leichester í Mið-Englandi verður á næsta ári fyrsta borgin í Evrópu þar sem hvítir innfæddir menn verða í minnihluta. Íbúar eru um 300 þúsund talsins og flestir íbúanna frá Pakistan, Indlandi, Afganistan og Afríku. Leicester hefur verið talin dæmi um vel heppnaða aðlögun innflytjenda. Erlent 8.11.2010 10:08
Skotárásin í Malmö: Fundu byssur hjá hinum grunaða Sænska lögreglan hefur fundið tvö skotvopn á heimili mannsins sem grunaður er um skotárásir í Malmö síðasta árið. Maðurinn, sem er 38 ára gamall er í haldi lögreglu, en hún vill lítið gefa upp um hvernig málinu miðar. Við húsleit fundust tvær byssur og er maðurinn með leyfi fyrir þeim báðum. Ættingi mannsins segir að hann sé meðlimur í byssuklúbbi í Malmö en síðasta árið hafa fjölmargar skotárásir verið gerðar í borginni og hefur byssumaðurinn beint sjónum sínum að innflytjendum. Erlent 8.11.2010 08:30
Vesturlönd gefa lítið fyrir kosningarnar í Búrma Helstu leiðtogar á vesturlöndum gefa lítið fyrir fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í Búrma í tvo áratugi og segja þær hvorki frjálsar né sanngjarnar. Barack Obama Bandaríkjaforseti er á ferð um Asíu og hann sagði í gær að kosningarnar hefðu ekki mætt kröfum alþjóðasamfélagsins. Erlent 8.11.2010 08:27
Námumaður hljóp maraþon Einn námumanna Þrjátíu og þriggja sem sátu fastir í námu í Chile eins og frægt er orðið, tók sig til og hljóp í New York maraþoninu um helgina. Hinn 34 ára gamli Edison Pena hljóp kílómetrana 42 á fimm klukkustundum og 50 mínútum en frægt var þegar hann sagðist hafa haldið heilsunni í námunni með því að skokka um göngin á hverjum degi. Erlent 8.11.2010 08:20
Súdan gæti losnað af hryðjuverkalista Bandaríkjastjórn hefur gert stjórnvöldum í Súdan tilboð um að ríkið verði fjarlægt af lista ríkja sem styðja við hryðjuverkahópa. Súdan losnar við stimpilinn ef yfirvöld tryggja að kosningar sem fara eiga fram í landinu í janúar á næsta ári verða gagnsæjar og lausar við spillingu. Erlent 8.11.2010 07:17
Olíusmit í hreyflum Airbus A380 Ástralska flugfélagið Qantas ætlar að kyrrsetja Airbus A380 risaþotur félagsins í þrjá daga til viðbótar en smávægilegir gallar hafa fundist í hreyflum vélanna. Hreyfill Airbus þotu sprakk í loft upp á dögunum yfir Singapore svo flugmennirnir þurftu að nauðlenda. Í kjölfarið fóru allar vélar sömu gerðar í ítarlega skoðun og segir forstjóri félagsins að í þreur vélum af sex hafi fundist olíusmit þar sem ekkert slíkt ætti að vera í svo nýjum hreyflum, en þeir eru tveggja ára gamlir. Erlent 8.11.2010 07:10
Sósíalistar fengu gott fylgi Frambjóðendum Sósíalistaflokksins í sveitarstjórnarkosningum á Grikklandi í gær virtist ætla að ganga vel, ef marka má fyrstu tölur. Þar með minnka likur á því að George Papandreou forsætisráðherra boði til þingkosninga. Erlent 8.11.2010 05:30
Segist munu leiðrétta stefnuna Barack Obama Bandaríkjaforseti segist þurfa að leiðrétta stefnu sína heima fyrir vegna kosningaúrslita, þar sem andstæðingar hans náðu meirihluta í fulltrúadeild þingsins. Erlent 8.11.2010 05:00
Gagnrýndi stjórn sósíalista á Spáni Mikill mannfjöldi fylgdist með Benedikt XVI. páfa þegar hann vígði hina sérstæðu kirkju, Sagrada familia, sem setur svip sinn á Barcelona á Spáni. Þegar páfi kom til kirkjunnar í gær biðu þar um 200 samkynhneigðir sem efndu til kossamótmæla gegn stefnu kaþólsku kirkjunnar, sem lítur samkynhneigð óhýru auga. Erlent 8.11.2010 03:15
Árásarmaðurinn ófundinn Maðurinn sem reyndi að myrða lögreglumenn á Norður-Írlandi í fyrrinótt er ófundinn. Fá vitni hafa gefið sig fram. Talið er að klofningshópur úr írska lýðveldishernum beri ábyrgð á tilræðinu. Erlent 7.11.2010 22:15
Byssumanninum lýst sem einfara Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglunnar í Malmö í Svíþjóð, grunaður um að hafa staðið á bakvið átta skotárásir á innflytjendur þar í borg. Maðurinn, sem er 38 ára gamall, var handtekinn í íbúð sinni í miðbæ Malmö um klukkan sex síðdegis í gær. Erlent 7.11.2010 17:51
Berlusconi segi af sér Gianfranco Fini, forseti ítalska þingsins, vill að Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segi af sér embætti. Fini er einn af stofnendum Frelsisflokks Berlusconi, en hann sagði skilið við flokkinn í sumar. Nokkrir þingmenn gerðu slíkt hið sama og við það veiktist pólitísk staða Berlusconi mikið. Ríkisstjórn hans hefur ekki lengur þingmeirihluta. Erlent 7.11.2010 15:57
Elísabet drottning komin á Facebook Elísabet II, drottning Breta, hefur opnað síðu á samskiptavefnum Facebook. Þetta gerir hún einkum fyrir tilstuðlan prinsessanna Beatrice og Eugenie sem eru dætur Andrews prins og Söruh Ferguson hertogaynju af York. Ár er frá því að drottningin hóf að nota Twitter en um jólin verða liðin þrjú ár frá því að hún opnaði sína eigin konunglegu síðu á myndbandavefnum YouTube. Erlent 7.11.2010 15:34
Byssumaðurinn neitar sök Maðurinn sem sænska lögreglan handtók í gær og er grunaður um að hafa skotið á fjölda innflytjenda að undanförnu neitar sök. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir honum. Frá þessu er greint á vef sænska ríkisútvarpsins en lögregla boðaði til boðaði til blaðamannafundar í hádeginu vegna málsins. Erlent 7.11.2010 13:05