Fótbolti
Coyle: Sturridge getur orðið stórstjarna Owen Coyle, stjóri Bolton, hrósaði Daniel Sturridge mikið eftir 1-1 jafntefli gegn Newcastle í dag. Enski boltinn 26.2.2011 18:39
Enski boltinn: Öll mörkin úr leikjum dagsins á visir.is Það var mikið skorað í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þar sem að Manchester United sigraði Wigan 4-0 á útivelli. Alls fóru fimm leikir fram í dag og öll mörkin eru nú aðgengileg á sjónvarpshlutanum á visir.is. Enski boltinn 26.2.2011 18:03
Heiðar skoraði tvívegis fyrir QPR í 3-0 sigri Heiðar Helguson heldur áfram að skora í ensku 1. Deildinni í fótbolta en í dag skoraði Dalvíkingurinn tvívegis í 3-0 sigri QPR á útivelli gegn Middlesbrough. Heiðar skoraði fyrstu tvö mörk leiksins á 40., og 61. mínútu. Enski boltinn 26.2.2011 17:16
Hernandez skorað tvívegis í 4-0 sigri Manchester United Manchester United vann stórsigur á útivelli gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Javier Hernández kom Man Utd yfir með marki á 17. mínútu og hann bætti við öðru marki á 74., Wayne Rooney bætti því þriðja við á 84., og Da Silva skoraði fjórða markið þremur mínútum fyrir leikslok. Man Utd er með fjögurra stiga forskot á Arsenal en bæði liðin hafa leikið 27 leiki. Man Utd er með 60 stig en Arsenal er með 56. Enski boltinn 26.2.2011 17:04
Hoffenheim tapaði á heimavelli - Gylfi lék í 45 mínútur Gylfi Sigurðsson og félagar hans í þýska liðinu Hoffenheim töpuðu 2-1 á heimavelli gegn Mainz í dag. Gylfi kom inná sem varamaður í upphafi síðari hálfleiks. Fótbolti 26.2.2011 16:51
Kuyt bjartsýnn á samstarfið við Suarez Hollendingurinn Dirk Kuyt er afar ánægður með nýja framherjann Luis Suarez sem kom ti Liverpool á dögunum frá Ajax. Kuyt er þess fullviss um að þeir tveir geti myndað gott framherjapar hjá félaginu. Enski boltinn 26.2.2011 14:30
Wigan býður Man. Utd upp á nýtt 20 milljón króna gras Forráðamenn Wigan bera greinilega mikla virðingu fyrir Man. Utd því liðið hefur ákveðið að leggja nýtt gras á völlinn áður en United kemur í heimsókn á morgun. Enski boltinn 25.2.2011 23:45
Ancelotti fer ekki til Roma: Á eftir að tryggja mér nokkra bónusa í Englandi Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segist ekki vera á leiðinni til Roma í sumar en ítalski þjálfarinn hefur verið orðaður við Roma-liðið sem rak Claudio Ranieri á dögunum. Slakt gengi Chelsea hefur ýtt undir orðróm um hugsanlega brottför Ancelotti af Brúnni. Enski boltinn 25.2.2011 23:15
Hughes ánægður með æfingabúðir Fulham í Portúgal Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Fulham voru í æfingabúðum í Portúgal í vikunni þar sem liðið undirbjó sig fyrir leik á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Enski boltinn 25.2.2011 22:00
Fyrsti sigur Wolfsburg undir stjórn Littbarski og Eyjólfs Wolfsburg endaði fjögurra leikja taphrinu í þýsku úrvalsdeildinni þegar liðið vann 2-1 sigur á botnliði Borussia Mönchengladbach í kvöld. Þetta var fyrsti sigur liðsins undir stjórn þeirra Pierre Littbarski og Eyjólfs Sverrissonar og liðið er eftir leikinn í þrettánda sæti deildarinnar. Fótbolti 25.2.2011 21:29
Rakel Logadóttir inn í Algarve-hópinn - Guðný meidd Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur gert eina breytingu á landsliðshóp sínum sem tekur þátt á Algarve-bikarnum í byrjun mars. Íslenski boltinn 25.2.2011 19:30
Terek Grozny býður Ronaldo 964 milljónir fyrir 18 mánuði Tsjetsjenska liðið Terek Grozny ætlar að reyna að plata brasilíska knattspyrnumanninn Ronaldo til þess að taka skóna af hillunni og spila með liðinu í rússnesku deildinni. Það er mikill hugur í félaginu sem réði nýverið Ruud Gullit sem knattspyrnustjóra. Fótbolti 25.2.2011 19:15
Steve Bruce búinn að skrifa undir nýjan samning Steve Bruce, stjóri Sunderland, er búinn að framlengja samning sinn við félagið til ársins 2014. Bruce hefur setið í stjórastólnum á Stadium of Light síðan 2009 en hann kom þangað frá Wigan Athletic. Enski boltinn 25.2.2011 18:45
Ferguson: Annaðhvort Manchester United eða Arsenal verður meistari Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að baráttan um Englandsmeistaratitilinn standi núna bara á milli United og Arsenal. Hann sagði þetta á blaðamannafundi í dag fjórum dögum áður en United heimsækir Englandsmeistara Chelsea á Stamford Bridge. Enski boltinn 25.2.2011 18:15
Jósef búinn að skrifa undir þriggja ára samning Jósef Kristinn Jósefsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við búlgarska liðið PSFC Chernomorets Burgas en hann var á reynslu hjá liðinu í síðasta mánuði. Þetat kemur fram á heimasíðu Grindavíkur. Íslenski boltinn 25.2.2011 17:45
Van der Meyde hættur Hollendingurinn Andy van der Meyde hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna þó svo að hann sé ekki nema 31 árs gamall. Enski boltinn 25.2.2011 17:30
Kuyt: Getum enn náð Meistaradeildarsæti Dirk Kuyt segir að þrátt fyrir slæmt gengi Liverpool í haust eigi liðið enn möguleika á einu af efstu fjórum sætum ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 25.2.2011 16:45
Rio verður ekki með á móti Chelsea á þriðjudaginn Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur staðfest það að miðvörðurinn Rio Ferdinand verði ekki með í stórleiknum á móti Chelsea á þriðjudaginn. Ferdinand mun hinsvegar getað spilað með United á móti Liverpool um þar næstu helgi. Enski boltinn 25.2.2011 16:15
Van Persie verður í fyrirliði Arsenal um helgina Hollendingurinn Robin Van Persie mun leiða Arsenal til leiks í úrslitum deildarbikarsins á sunnudag í fjarveru Cesc Fabregas. Arsene Wenger, stjóri liðsins, hefur staðfest það. Enski boltinn 25.2.2011 15:45
Man. Utd er ekki til sölu Stuðningsmenn Man. Utd stukku ekki hæð sína í fullum herklæðum í dag þegar Glazer-fjölskyldan undirstrikaði að félagið væri ekki til sölu. Enski boltinn 25.2.2011 15:15
Hamburg á eftir Bendtner Það spá því margir að Nicklas Bendtner sé á förum frá Arsenal í sumar og nú berast fréttir af því að þýska félagið Hamburg sé á eftir honum. Enski boltinn 25.2.2011 14:00
Barcelona og Juventus vilja fá Pirlo Svo gæti farið að AC Milan missi miðjumanninn Andrea Pirlo í sumar. Þá rennur samningur hans við félagið út og hann er ekki búinn að skrifa undir nýjan samning. Fótbolti 25.2.2011 13:15
Hutton á förum eftir rifrildi við Redknapp Alan Hutton, bakvörður Tottenham, er á förum frá félaginu í sumar. Hann lenti í heiftarlegu rifrildi við Harry Redknapp knattspyrnustjóra og þarf að borga fyrir það. Enski boltinn 25.2.2011 12:45
Mourinho: Benzema getur betur Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, vill fá mun meira frá franska framherjanum Karim Benzema sem hefur ekki staðið undir væntingum hjá Real Madrid. Fótbolti 25.2.2011 12:00
Tiote gerir langan samning við Newcastle Cheik Tiote, miðjumaður Newcastle, er augljóslega ekki á förum frá félaginu því hann er búinn að skrifa undir nýjan samning. Nýi samningurinn hljóðar upp á sex og hálft ár. Enski boltinn 25.2.2011 11:30
Beckham ánægður með vistina hjá Spurs David Beckham hefur trú á því að vistin hjá Tottenham eigi eftir að skila sér í betri leik hjá sér og þar af leiðandi græði félag hans, LA Galaxy, á því að hann hafi verið í London að æfa. Enski boltinn 25.2.2011 10:45
Rooney kallar eftir einbeitingu Wayne Rooney, framherji Man. Utd, varar við því að leikmenn liðsins fari fram úr sjálfum sér. Hann segir að menn verði að halda einbeitingu ef þeir ætli sér að vinna til verðlauna í lok tímabilsins. Enski boltinn 25.2.2011 10:15
Fabregas fær ekki að leiða Arsenal til leiks á Wembley Spánverjinn Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, þarf að bíta í það súra epli að fylgjast með úrslitum deildarbikarsins úr stúkunni þar sem hann er meiddur. Enski boltinn 25.2.2011 09:30
Eric Cantona líkir Sir Alex Ferguson við Gandhi Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United, býst við því að félagið eigi eftir að vera í vandræðum þegar Sir Alex Ferguson hættir sem knattspyrnustjóri félagsins. Cantona mærði fyrrum stjóra sinn mikið í viðtali við Daily Mail. Enski boltinn 24.2.2011 23:45
Hver einasta snerting landsliðsmanna Íslands verður skoðuð Knattspyrnusamband Íslands hefur gert samning við Prozone um leikgreiningu á landsleikjum Íslands næstu tvö árin en landsliðsþjálfarar Íslands hafa þá aðgang að mjög ítarlegum upplýsingum um frammistöðu leikmanna í landsleikjum. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Íslenski boltinn 24.2.2011 23:15